Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.1999, Síða 7
Rauðhaus
í minnihluta
Halldór Gylfason útskrifaðist
úr Leiklistcirskólanum fyrir tveim
árum og auglýsir nú einhverja
tombólu. Siðan hann úskrifaðist
hefur hann m.a. leikið í Hart í bak,
Poppkorni og Grease og er þessa
dagana að leika í Stjómleysingi
ferst af slysförum.
Háir þaö ekkert í leiklistinni aö
vera rauöhœröur meö krullur?
„Nei, nei. Ég hélt það yrði mér
fjötur um fót, en nú er ég t.d. með
hárið litað af því ég er að leika
ítalska löggu. Ég er þó auðvitað í
minnihlutahópi og það getur oft
verið erfitt. Ég og fleiri höfum
stofnað Félag rauðhærðra á ís-
landi. Við hittumst á jólum og stór-
hátíðum en annars erum við meira
svona þrýstihópur. Við tökum á
móti frjálsum framlögum á reikn-
ingi í Útvegsbankanum í Glæsi-
bæ.“
Fyrir utan að leika er Halldór
einn af sex í alkabandinu Geirfugl-
unum. Alltaf nóg að gera þar?
„Já, þetta er búið að vera mjög
fint lengi. Við gerðum plötu í fyrra
og erum að spila mikið í Fjöl-
skyldu- og húsdýragarðinum, í
brúðkaupum og þannig. Svo erum
við eitt og eitt kvöld á Grand Rokk,
en vorum samt meira þar áður en
staðurinn flutti."
Hvaö rekur rauöhœrðan leikara
til aö auglýsa tomhólu?
„Peningamir og í þessu tilfelli
góður málstaður og vandaðar vör-
ur,“ segir Halldór og hugsar sig
um. Segir svo: „Ef hugmyndin er
sniðug og peningamir sæmilegir
þá segi ég allt í lagi.“
Hvaö fékkstu fyrir þetta?
„Það er leyndó."
Hefuröu fengiö einhver komment?
„Já, fólki finnst þetta sniðugar
auglýsingar. Það er það eina, ekk-
ert neikvætt."
Sem sagt, þaö hefur enginn viljað
lemja þig?
„Nei,“ segir Halldór. „Ég pæli nú
minnst í því.“
faðir étur snakk
Sigurður Pálmason er leik-
munavörður hjá Þjóðleikhúsinu.
Hann auglýsir nú eitthvert snakk.
„Það er skemmtilegt djobb," seg-
ir hann jákvæður um leikmuna-
vörsluna. En lífið hefur ekki alltaf
verið svona jákvætt hjá Sigurði.
„Ömurlegasta djobbið mitt var
þegar ég var framleiðsludýr hjá
Vífilfelli", segir hann með grátstaf-
inn í kverkunum. „Maður lagði
hjarta sitt í að framleiða kók en
var svo rekinn þegar maður þurfti
að fara til tannlæknis. Svona er
þetta nú vinveitt, þetta drulluskíta-
fyrirtæki."
Sigurður söng á tímabili í hljóm-
sveitinni Texas Jesús sem gaf
m.a.s. út plötu hjá Rúnari Júl. Það
band er dautt og Siggi farinn að
syngja með kántríhljómsveitinni
Hnökkum.
„Þrír af okkur erum nýbakaðir
feður og sá fjórði er með barn á
raðgreiðslum í Úganda, svo þetta
gengur mjög rólega," segir hann en
vonast þó til að geta farið að
hnakkast eitthvað fyrir fjölskyldu-
stefnunni, en hann segir að það að
fjölga sér sé mjög í tísku þessa dag-
ana.
En hvaö rekur leikmunavörð til
aö auglýsa snakk?
„Fyrst og fremst það að snakkið
hefur verið í morgunkornsumbúð-
um síðan elstu menn muna en er
nú komið í poka. Ég vildi leggja
mitt af mörkum því hver kannast
ekki við það að vakna þunnur og
hella snakkinu í skál og mjólk út
á?“
Hvaó fékkstu fyrir þetta?
„Ótakmarkað snakk í heilt ár.“
Hefuröu fengiö einhver komment?
„Já, já, ég hef náttúrlega bara
fengið þau komment að ég sé æðis-
legur.“
Þú segist vera myndlistarmaður
sem vill gera gjöming. Færð leyfl
hjá Imbu og tjaldar við Jón Sig-
urðsson. Liggur svo þar með fjöl-
skyldunni, grillar og pissar utan í
Kafli París.
Þú keyrir á milli
sjoppa og færð þér
pylsu og kók. Reynir
að keyra í drullupolla
svo þú getir skolað af
bílnum þegar þú kem-
ur heim til þín.
sem smekklausir vilja kafla óð-
inshana.
Partur af góðri útilegu er að míga
í náttúrunni. Karlar eiga í litlum
vanda, en þetta hefur vafist fyrir
konum. Megum við stinga
upp á hrútshorni sem
búið er að gata í mjórri
endann. Þjóðlegt, þægi-
legt og flott og það er
jafnvel hægt að markaðs-
setja þetta fyrir verslun-
armannahelgina.
gera menn vitlausa er hægt að
grýta villiketti, rottur, máva eða
bara hvað sem hreyfist, en Fókus
mælir auðvitað ekki með því.
Mættu skítugur með bakpoka til
ættingja þinna eða vina i bænum.
Þú faðmar þá, lætur þá fæða þig,
ræðir við þá um ættina og færð aö
sofa á gólfmu hjá þeim.
Öskjuhlið-
in er næst-
um því í
Biskupstung-
um eftir að
gervigeysir-
inn var settur
upp. Hann
heitir reyndar Strókur og mann-
eskjan sem fann nafnið varð 50
þúsund krónum ríkari. Þama get-
urðu mætt um helgina og séð nátt-
úruna í sinni fegurstu mynd -
manngerðri.
Hólminn í Elliðaárdalnum er
gróðursæll unaðsreitur sem þú
getur gengið um í faðmi náttúru
og fjölskyldu. Svo sestu við
Skoruhylsfoss (fyrir teprur má
geta þess að fossinn er einnig
þekktur sem Kermóafoss), færð
þér nesti og hlustar á kraftbirt-
ingarhljóm guðdómsins. Kannski
kemur þú auga á torfgrafarálft,
Veiddu flsk. í Tjörninni við
Norræna húsið er krökkt af horn-
sílum, en lítill stórmennskubragur
er á því. Á höfninni er hægt að
renna fyrir ýmsar sjávartegundir
en þú leggur þá veiði þér varla til
munns. Kostir alvöru stangveiði-
manna eru nokkrir.
Stangaveiðifélag
Reykjavikur selur
hálfs dags leyfi í El-
liðaá og Korpu á tæp-
lega 8000-kall. Ódýrara
er að kaupa leyfi hjá
Vatnsendabóndanum í
Elliðaárvatn (600-kall) og Laxalón
selur leyfi í Reynisvatn. Þar kaup-
irðu kvóta upp á fimm eldisfiska á
tæplega 3000-kall og getur veitt þá
þegar þér sýnist. Sniðugt og nátt-
úrulegt.
Skotveiðimenn hafa færri kosti,
reyndar enga, því öll skotveiði er
stranglega bönnuð í landi Reykja-
víkur. Ef veiðiþörfin er alveg að
Þú getur tekið Þingvallahrmg-
inn í Kringlunni. Fyrst færðu þér
vöfllu á kaffihúsi, klöngrast svo
um grunninn fyrir utan - sem er
svipað því að ganga um Almanna-
gjá - og í lokin hendirðu smápen-
ingi í gosbrunninn. Ef þú vilt vera
verulega grand á því geturðu tínt
ber í ávaxtaborðinu í
Hagkaupi.
Keyrðu út fyrir borg-
armörkin. Snúðu þar
við og fáðu þessa „ahhh
hvað er gott að vera
kominn heim“-tilfinn-
ingu sem fær þig til að finnast allt
vera orðið breytt og ferskt. Þegar
þú hefur notið þeirrar tilfinningar
skaltu ekki fara heim til þín held-
ur finna hótel eða gistiheimili. Svo
ferðu í leikhús, bíó, kaffihús, söfn
og Húsdýragarðinn; allt þetta sem
þú hefur aldrei tíma til að gera.
(Ath.: Líklega er allt lokað um
helgina, en ce la vie.)
.viku fyrir heimsfrægð!
FORSALA JAPIS
LAUGAVtGI 6 KRINGtUNNI
BJP m M MB
21. maí 1999 f ÓkUS
7