Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.1999, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.1999, Síða 8
Engir RoMnnar og 17 koma Atli Rafn Sigurðarson er án efa skærasta stjarnan í Rent en þar leikur hann hommann og klæðskiptinginn Angel. Fókus fékk Atla til að kafa aðeins ofan í naflann á sér og reyna að fá botn í hvað það er að vera leikari. En þessi Frammari úr Hlíðunum hefur verið að leika á fullu frá því hann útskrifaðist fyrir tveimur árum. Þá erum við að ræða um leikritin Mýs og menn, Bróðir minn Ijónshjarta, Kaffi, Hamlet og sjónvarpsþættina Þrettándi riddarinn og í ágúst verður Myrkrahöfðinginn frumsýnd en þar leikur Atli kærasta aðalkvenpersónunnar. Svo kannast kannski einhverji við Atla frá því hann söng með hljómsveitinni Spámenn í föðurlandi í Stutt í spunann. í staðinn! Það er sko alls engin gúrkutíð í tónleikahaldi á íslandi. Erlendu böndin hreinlega hellast yfir og ekki minnkar úrhellið nú þegar dauðahaldi tvisvar sinnum næst- um innflytjenda Stones hefur ver- iö aflétt. Enginn lagði í samkeppni við Rollingana og því var tónleika- sumarið í fyrra afleitt. Hanson- gengið var svo elskulegt að blása hugaróra sína af í tíma og því ganga nú um bæinn aðrir hug- sjónamenn. Einn þeirra er Alan Ball sem var afskastamikill í þungarokkinu fyrr á öldinni, flutti t.d. inn hárkollurokkið sem fór fram á Kaplakrika. Hann og fleiri hyggjast halda stórtónleika þriðju- daginn 22. júní með Garbage, East 17, Mercury Rev og Repu- blica, allt fínar sveitir á sinn hátt en ólíkar mjög. East 17 er t.d. týpiskt strákaband fyrir ferming- araldurinn en Mercury Rev er til- raunakennt ballöðuband fyrir lengra komna. Garbage og Repu- blica eru svo tölvukeyrð popp- bönd. Þessir fjölbreyttu tónleikar eiga að fara fram ofan á Faxaskála við Reykjavíkurhöfn. Það er auðvitað enginn tónleikastaður en meistari Alan mun láta miðbæjarbúa fínna fyrir sér á næstu vikum með ham- arshöggum því smiða þarf bæði svið og girðingar í kringum „tón- leikastaðinn“. Atli Rafn Sígurð- arson leikur/ í Rent og My«ra höfðingjanum sem veröyr frum- sýnd í ágúst. Jóhann Sigmarsson: Rak óskabarn- ið Hilmi Snæ Nýjasta kvikmynd Jóhanns Sigmarsson- ar, Óskabörn þjóðarinnar, verður frumsýnd strax í ágúst eða sept- ember á þessu ári. Aðalhlutverkin eru í höndum Davíðs Þór Jóns- sonar radíógúru, Óttars Proppé, kassadömu hjá Máli og menningu, Jóns Sæmundar, fyrrum mynd- listarskólanema, og Gríms Hjart- arsonar, sem enginn veit hver er. Það hefur annars ekki gengið átakalaust fyrir Jonna að klára sjálfa kvikmyndina. Snemma í tökuferlinu neitaði Hilmir Snær að hella sig fullan í einni af senun- um. Jonni trylltist og rak Hilmi heim. Hann tók því sem það væri búið að reka hann og Davíð Þór tók við hlutverki Hilmis. Það ætti því að verða mjög gaman á frum- sýningunni á þessari filmu og gaman verður að sjá hvort Jonni býður Hilmi í frumsýningarpartí- ið og helli hann kannski fullan. Fyrsta leikaraspurningin hlýtur að tengjast góðærinu og gróskunni í íslensku leikhúsi. Er ekki brjálaö aö gera? „Jú. En ég held að það sé ekkert meira að gera hjá leikurum en hverj- um öðrum. Það hafa flestir af þeim sem útskrifuðust með mér haft nóg að gera frá því við kláruðum skól- ann. Þó það sé talað um að mik- ið sé að gera þá eru stóru hlut- verkin að sjálf- sögðu alltaf af Grímur s k o r n u m Hiartarson skammti," segir Atli Rafn Sig- á urðarson leik- ari sem leikur Angel i söng- leiknum Rent sem Þjóðleik- húsið frum- sýndi fyrir viku. Óhætt er að fullyrða að Atli Rafn stendur sig frábærlega í hlutverki sínu sem dragdrottning og hommi þrátt fyrir að hann sé gagnkynhneigður. Öfundar myndlistarmenn En á hvaö stefnir leikari í starfi sínu, aö veröa leikstjóri? „Það kemur málinu ekkert við. Metnaðurinn er bara að ætla sér að verða listamaður. Að fá stóra L-ið og vera sáttur við vinnuna sem maður er að skila. Þetta snýst alls ekkert um að verða leikstjóri eða græða peninga. Þetta fjallar meira um að taka nýtt skref í hvert skipti sem maður tekur að sér hlutverk og auð- vitað að segja eitthvað með því sem maður er að gera.“ En eru leikarar ekki listamenn? „Maður útskrifast sem leikari en ekki listamaður,'1 segir Atli og segir að þó stefnan sé tekin á að verða sannur listamaður þá verði menn aö passa sig að taka sig ekki of alvar- lega. „Ég öfunda til dæmis myndlist- armenn fyrir aö geta bara talað kæruleysislega eins og þessi sem var í Fókusi um daginn í tilefni út- skriftarinnar hjá Mynd og hand. Hann sagði að hann ætlaði að hanga á Kaffibamum í eitt ár og komast á listamannalaun. Ef einhver leikari talaði svona væri hann stimplaður sem fábjáni. En myndlistarmenn virðast einhvem veginn hafa gefiö sjálfum sér leyfi til þess að segja það sem þeim sýnist og persónulega fínnst mér það ótrúlega flott." Eru leikarar svolítiö fyrir aö tala undir rós? „Ég veit það ekki. Ég veit ekki einu sinni hvað ég er að gera í við- tali. Ég er alla vega ekki vanur að úttala mig um hlutina á þessum vettvangi," segir Atli, hlæjandi, og bætir því við að hann sé pínulítill Finni í sér. Duran Duran og háir hælar Er hlutverkiö Angel í Rent mesta áskorunin sem þú hefur tekist á viö til þessa? „Já, að vissu leyti. Það eru þarna tæknileg atriði sem ég hef aldrei gert áður. Ég hef aldrei sungið svona mikið fyrr.“ En hvaö meö Spámenn í föóurlandi sem sungu í Stutt í spuna? „Sú hljómsveit er ekki beint starf- andi. Þetta var bara gert fyrir þátt- inn og ég ákvað að vera með af því að Kristján Eldjám, vinur minn og gítarleikari, bað mig um að syngja þama með þeim. Spámenn í föður- landi hafa verið hans hugarfóstur í nokkur ár,“ segir Atli og því er við að bæta að Spámenn í föðurlandi er engin venjuleg hljómsveit. Þeir spila og syngja Duran Duran lög við vel þýdda íslenska texta. En í Rent ertu á háœluöum skóm og einhverjar sögur hafa heyrst af þeirri þolraun. „Já, það tók nokkrar vikur og því- líka kvöl að komast upp á lagið með það,“ segir Atli og nokkuð ljóst að hann á ekki alltof góðar minningar frá þeim raunum. Hvaö áttu viö meö „kvöl“? „Þetta vom bara margfaldar þján- ingar. Ég fór mjög fljótlega á æfinga- tímanum að ganga á háhæluðum skóm og það er alveg ótrúlegt álag á ökklana. Og ekki bættu bakverkirn- ir ástandið og það sem er fyndið við það að allar konur sem ég talaði við könnuðust við þessa verki alla sam- an og maður skilur eiginlega ekki af hverju konur eru að þessu.“ Og hvaö, þurftiröu aö leita til lœknis? „Nei, en ég fór og hitti kíróprakt- or og hann kenndi mér að beyta lík- amanum rétt. En ég þarf samt alltaf að hita mig upp fyrir og á milli sýn- inga og ganga um á háum hælum,“ segir Atli Rafn og gerir síðan lítiö úr þessum tæknilegu atriðum í saman- burði við það að ná því hvemig per- sónan hugsar og setja sig með því al- veg inn í karakter. Þú ert sem sagt búinn aö vera á hœlum í nokkra mánuöi? „Já, já. Og er stundum heima hjá mér bara einn gangandi um stofuna á hælum og talandi við sjálfan mig.“ Hvað meó nágrannana? „Þeir eru löngu búnir að missa allt álit á mér. Ég hugsa líka að ég sé ekki góður nágranni en skýli mér á bak við listina," segir Atli og glottir. Hómófóbía „Það skemmtilegasta við að vera leikari er að gefa sig allan í hlutverk sem neyðir mann til að klífa hindr- anir sem ekki er öruggt að maður komist yfir,“ segir Atli um hlutverk sitt í Rent. Já, þarf gagnkynhneigöur karl- maöur ekki aö yfirstíga innbyggöa hómófóbíu til aö geta skilaö samkyn- hneigöum manni fullkomlega? „Ja. Það var á einhverjum einum tímapunkti á æfmgatímanum sem ég þurfti að fást við einhvern svoleiðis múr. En það var mjög gott að vinna með Helga Björns. Hann hefur leikið homma áður, í Rocky Horror, og var því búinn að fara yfír alla þröskulda sjálfur og það auðveldaði mér náttúr- lega að finna mig í hlutverkinu." En hver var þessi múr sem þú þurftir aö fara yfir? „Það var í ástardúettinum okkar Helga og var í rauninni ekkert mál því að svona múrar eru stór þáttur í starfi leikarans,“ segir Atli og út- skýrir að kannski hafi þetta bara verið eilítil spéhræðsla við tilhugs- unina um að leika þetta fyrir fullu húsi. En það er alveg pottþétt að þessum múr var rutt i burtu og Atli er ótrúlega sannfærandi sem homm- inn og klæðskiptingurinn Angel. „En það voru í rauninni færri múrar í þessu hlutverki en þegar um er að ræða illmenni. Það er líka svo auðvelt að láta sér líka vel við Angel og mjög erfitt að hafa fordóma gagn- vart henni," bætir Atli við. Lifað með hlutverkum „Ég er ekki þannig að ég geti sagt að mér finnist skemmtilegra að leika í þessu eða hinu,“ segir Atli aðspurð- ur hvort honum finnist skemmti- legra að leika í leikhúsi en bíómynd. „Mér finnst bara alltaf skemmtileg- ast að leika það sem ég er að leika á hverjum tíma fyrir sig. Ég er líka bara þannig að ég verð fljótlega svo- lítið heilaþveginn af hlutverkinu sem ég er að leika í það og það skiptið." Tekur verkiö yfir persónuna Atla? „Já, svolítið. Ég er til dæmis alveg hrikalegur þegar ég er einn í bíl, tala stanslaust við sjálfan mig sem per- sónan sem ég er að leika." En er þaö ekki kostur fyrir leikara að kasta sér bara fram af brúninni? „Örugglega. Alla vega í vinnunni en heima er það kannski aðeins of mikið af því góða,“ segir Atli Rafn og glottir út í annað yfir sjálfum sér. En hvernig er þá aö hœtta meö sýn- ingu? „Þá tekur bara ný persóna við en það sem mér finnst furðulegast við þetta er að skapið breytist. Þessa dagana er ég til dæmis í frekar léttu og glaðlegu skapi vegna þess að Ang- el er þannig. Maður smitast af stemningunni sem er í gangi." En svona aö lokum, hvaö á aö gera í sumarfríinu? „Ég ætla til Mallorka með syni mínum, honum Sigurbjarti, og dvelja síðan með honum í Kaup- mannahöfn," segir Atli Rafn. f Ó k U S 21. maí 1999

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.