Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.1999, Page 14

Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.1999, Page 14
Það er stuð í bíó þessa helgina. Nóg að gerast, endaluast af frumsýningum og öðru góðgæti. * > ■y ♦ ■v Astamál blindur fær She’s All That. að verksviði að koma leikritum eftir Max Fischer á framfæri. Þessi mikla aukastarfsemi hans hefur gert það að verkum að hann er einn slakasti nemandinn í skól- anum. Honum gengur samt allt í haginn þar til hann verður ást- fanginn af einum kennaranum sem telur hann of ungan fyrir sig. Á myndinni eru Jason Schwartzman sem leikur Max Fischer og Bill Murray sem eru góðir vinir þar til þeir fara að berjast um sömu konuna. Who Am I? Fyrir rúmu ári tók Jackie Chan sér frí frá stóru myndunum í Hollywood, fór til Suður-Afríku og gerði á stuttum tíma Who Am I? sem hann leikstýrir sjálfur ásamt Benny Chan. Stjörnubíó frumsýnir mynd- ina í dag. í myndinni leikur Chan einn af málaliðaflokki sem rænir þremur vísindamönnum. í rimmu sem fylgir í kjölfarið eru félagar Jackie allir drepnir og hann sjálfur fellur úr þyrlu sem hann reynir að forða sér í. Hann rotast í faliinu og þegar innfæddir sem hafa náð hon- um á sitt vald spyrja hvað hann heitir svarar hann Who Am I? þar sem hann er búinn að missa She’s All That Regnboginn, Bíóhöflin og Borg- arbíó á Akureyri taka til sýningar í dag rómantíska gamanmynd, She’s All That, sem skartar mörg- um þekktum imglingastjörnum. í myndinni segir frá lífi nokkurra krakka í Los Angeles High School þar sem ástamálin eru nokkuð flókin svo ekki sé meira sagt. Allt fer á annan endann þegar vin- sælasta stúlkan í skólanum segir kærastanum upp þar sem hún hef- ur hitt annan sem henni líst betur á. Þar sem kærastinn fyrrverandi er forseti nemendaráðsins þá er úr vöndu að ráða fyrir hann, sér- staklega þar sem þau voru parið í skólanum sem allir vildu vera með og það er erfitt fyrir nem- endaráðsformanninn að kyngja því nú að vera settur út í kuldann. í aðalhlutverkum eru Freddie Prinze jr., Jody Lyn O’Keefe, Rachel Leigh Cook, Matthew Lilli- ard, Kieran Culkin og Anna Paquin. Rushmore Rushmore, sem Bfóborgin frum- sýnir í dag, er einnig mennta- skólamynd eins og She’s Ail That en þar með er samlíkingunni lok- ið. Rushmore litur gagnrýnum húmorsaugum á skólalífið og sam- band krakkanna við kennarann. Aðalpersónan er séníið Max Fischer sem er ekki aðeins rit- stjóri skólablaðsins og árbókar- iimar, hann er forseti Frönsku- klúbbsins, Þýskuklúbbsins, Skák- klúbbsins, Geimvisindaklúbbsins, Skylmingaklúbbsins og Max Fischers klúbbsins sem hefur það '■ -‘m«* minnið. Þeir innfæddu halda að það sé nafn hans og kalla hann Who Am I?. Smátt og smátt fær Jackie Chan minnið og ákveður að reyna að graf- ast fyrir um afdrif vísindamann- anna og þeirra sem sviku hann og félaga hans. At First Sight Laugarásbíó frumsýnir í dag At First Sight. í henni leikur Val Kil- mer ungan mann sem missti sjónina þegar hann var smádrengur. Þegar gerður er á honum tilraunaupp- skurður fær hann sýn. Eins og gefur að skilja verða viðbrigðin mikil, honum er nánast hent út í veröld sem hann þekkir ekki og hefur enga meiningu fyrir hann. I raun verður hann fyrst að deyja sem blind mann- eskja til að geta lifað sem sjáandi. Hann er maður sem aldrei hefur gert mun á ketti og hundi, verður að læra að þekkja liti og fyrst og fremst að ljós er eitthvað sem hann á ekki að hræðast. Með tímanum lærir hann að láta ekki augun ráða ferð- inni heldur hjartað. Auk Kilmers leika í myndinni Mira Sorvino, Kelly McGillis, Steven Weber, Bruce Davison og Nathan Lane. Leikstjóri er Irwin Winkler. Sex athyglisverðar kvikmyndir á sameiginlegri kvikmyndahátíð Regnbogans og Háskólabíós: Vorvindar kvikmyndanna blása um höfuðborgina Ég heiti Joe (My Name Is Joe) Lelkstjórl: Ken Loach. Aöalhlutverk: Peter Mullan og Loulse Goodall. Hann heitir Joe og er alkóhólisti. Hann hefur veriö edrú í 10 mánuöi og þrátt fyrir tilmæli AA-samtakanna, sem ráö- leggia meölimum sínum aö foröast rómantík fyrsta áriö eftir aö meöferö ef hafin, er Joe oröinn ástfanginn af Söru. Joe býr í hættulegu hverfi I Glas- gow þar sem ofbeldi og eiturlyf eru hversdagsleg fyrirbæri. Gamlar skuldir og vinabönd stofna nýjum lifsstíl Joe i hættu og veröur hann aö taka á hon- um stóra sínum til að komast heill á húfi 1 gegnum þetta breytingaskeiö í lifl sínu. Peter Mullan sem leikur Joe var hann valinn besti karlleikarinn á Cann- es í fýrra. Leikstjóri myndarinnar, Ken Loach, er kvikmyndaáhugafólki góð- kunnugur og á hann heiðurinn af mynd- um einsog Carla's Song, Raining Sto- nes og Riff-Raff. Henry kiaufi (Henry Fool) Lelkstjórl: Hal Hartley. Aöalhlutverk: Thomas Jay Ryan, James Urbanlak og Parker Posey. íslandsvinurinn sérvitri Hal Hartley, sem þekktur er fyrir sérstakan stíl og óvenjuleg efnistök i myndum eins og The Unbelievable Truth, Trust og Simple Men, fer hér ótroðnar slóöir i nýjustu mynd sinni, Henry klaufi, Fjall- ar myndin um öskukall sem ef til vill er snillingur, fyrrverandi fanga, kynóöa systur og fleira óvenjulegt fólk, sem öll tengjast á einn eöa annan hátt. Henry klaufi er frumleg mynd sem gefur áhorfandanum nasasjón af því hvernig er að sjá heiminn með augum Hals Hartleys. (Taik of Angeis) Lelkstjóri: Nlck Hamm. Aðalhlutverk: Polly Walker, Vincent Pérez & Francis McDormand. Polly Walker leikur Mary, irska ráös- konu, sem tekur aö sér aö annast börn spænsks aöalsmanns. Þetta er róstusamt tímabil á Spáni og virðist sem stutt sé í að stríö brjótist út. Elsti sonurinn i fjölskyldunni, leikinn af Vincent Perez snýr aftur heim. Ráðs- konan unga fellur fyrir þessum myndar- lega manni og ástin blómstrar þeirra á milli. Sonurinn er hins vegar með sterkar pólitískar skoöanir sem ganga þvert á vilja fööurins og bjóöa hætt- unni heim. Rómantísk mynd sem ger- ist á tíma spænsku borgarastyrjaldar- innar. Metroland (Metroland) Leikstjóri: Philip Savllle. Aöalhlut- verk: Christlan Bale og Emlly Watson. Metroland gerist snemma á áttunda áratugnum og fjallar um tilvistarkreppu sem Chris Bale lendir í þegar Tim, æskuvinur hans, kemur í heimsókn eftir nokkurra ára fjarveru og minnir hann á gömlu góðu dagana áður en hann varð auglýsingamaður, giftist, eignaðist barn og flutti í úthverfi London sem kallað er Metroland. Tim er lióöskáld, frjáls eins og'fuglinn og engum háður. Heimsóknin fær Chris til aö rifja upp tímabil þegar hann bjó í Paris, tók Ijósmyndir og átti þokkafulla franska kærustu sem kenndi honum að elska. Tim reynir að fá Chris til aö breyta aftur í gamla horfiö og kynnir hann fyrir framhjáhaldi, partlum og dópi. (Western) Leikstjóri: Manuel Poirier. Aðalhlut- verk: Sergi López og Sacha Bourdo Franska kvikmyndin Vestur er óhef- bundin vegamynd sem fjallar um feröa- lag katalónska skósölumannsins Paco um Brittany-héraöiö í Frakklandi og samskipti hans við Nino, litríkan rúss- neskan puttaferöalang. í fyrstu gerir Nino Paco lífið leitt en síðar meir verða þeir sálufélagar og miklir vinir. Báöir eru þeir .útlendingar", báðir í leit að ástinni, hvor á sinn hátt. Ferðalag þeirra um sveitir og héruð vesturhluta Frakklands leiöir þá I gegnum ýmsar þolraunir þar sem býsna stutt er á milli gráts og gleði. Vestur hlaut verðlaun dómnefndar (Prix de Jury) á Cannes- hátíðinni. Etgin öriög (A Destiny of Her Own) Lelkstjóri: Marshall Herskovitz. AöaF hlutverk: Catherine McCormack & Rufus Sewell. Eigin örlög gerist á 16. öld í Feneyjum og er byggð á sannri sögu Veronicu Franco sem valdi það að gerast gleði- kona yfirstéttarinnar frekar en að lifa í fátækt eða giftast öldruðum aðals- manni. Hana skorti hvorki fé eða aðdá- endur en tímabil breytinga var haflð í Feneyjum og gullöld allsnægta senn á enda. Veronica er leikin af Catherine McCormack sem hóf feril sinn I mynd Mel Gibson, Braveheart. Þetta hlut- verk er öllu stærra Myndin er hin glæsilegasta og hefur ekkert verið sparað til við að endurskapa tímabilið sem hún gerist á. 22 f Ó k U S 21. maí 1999 4 --- ____ ______________________ £S3L................._

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.