Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.1999, Page 16
horfnar hugsjónir
Lufsast
í sumar
Enn einu sinni ætlar hippa-
dæmið að troða sér inn í tískuna,
hvort sem okkur líkar betur eða
verr. Hún þykir víst svo sexí.
Kannski verður hún ekki allsráð-
andi en alla vega svona í bland við
allt þetta snyrtilega, gráa og
bleika sem er aðal málið í sumar.
Sem sagt: fln og pússuð
hippatíska. Þær sem voru ægilega
íhaldssamar í vetur, og klæddust
svörtu svo mánuðum skipti, geta
byrjað á því að setja eitthvað glað-
legt i hárið, eins og til dæmis lítil
blóm, ennisbönd eða fiðrilda-
spennur. Sítt hár er náttúrlega til-
valið til að flétta pínulítið og svo
má lika draga fram blómabuxur
og útsaumaðar töskur. Til að vera
alveg með þetta má ekki mála sig
mikið. Það er alveg nóg
að setja bláan blý-
ant í kringum «
augun og
smá gloss áv
varirnar.
Vera svo
sólbrún og
s æ 1 -
leg, el-
egant *j
e n
frjálsleg
og lufsast í sumar.
kynl í f
Konur gegn klámi
Konur gegn klámi voru áberandi
hér á íslandi á síðasta áratug. Þetta
voru nokkrar konur sem voru ekki
alveg að þola klámblöðin og klám-
myndirnar sem eru seldar á bensín-
stöðum og i safnarabúðum um allt
land. Þessi misnotkun á kvenmönn-
um fór víst eitthvað fyrir brjóstið á
þeim og sérstaklega fór það í taug-
arnar á þeim þegar klámi var otað að
bömum. En þá er átt við klámblöð í
blaðahillum í bókabúðum og bensín-
stöðvum. í dag fer ekki mikið fyrir
þessum konum en í myndasafni DV
er að fmna myndir frá aðgerðum
þessara kvenna og myndin á þessari
síðu eru frá því þegar Konur gegn
klámi heimsóttu myndlistarsýningu
í Gallerí Borg fyrir tólf árum.
Vonlaus barrátta?
„Það veit ég ekki,“ segir Guðrún
Agnarsdóttir, fyrrum forsetafram-
bjóðandi og eitt sinn Kona gegn
klámi, aðspurð hvar Konur gegn
klámi séu í dag. „Þetta var mjög
laustengdur félagskapur sem er
ekki starfandi i dag,“ bætir Guðrún
við en hún berst enn gegn klámi þó
hún sé ekki lengur Kona gegn
klámi. Hún er nefnilega önnum
kafin þessa dagana við að undirbúa
ráðstefnu um ofbeldi (hún skil-
greinir klám sem ofbeldi) sem byrj-
ar á Hótel Sögu í dag.
En var þetta ekki vonlaus
barrátta frá upphafi?
„Það er alveg ljóst að öll við-
brögð af hálfu fólksins í landinu
eru af því góða,“ segir Guðrún og
útskýrir að það hafi verið fjöldinn
allur af konum sem voru Konur
gegn klámi á sínum tíma og vildu
ekki láta þetta ofbeldi viðgangast.
Þú manst samt eftir þessari
mynd, þar sem þú ert aö skoöa lista-
verk í Galleríi Borg, er þaö ekki?
„Jú.-jú. Það var einhver blaða-
maður sém fékk okkur til að kíkja
þangað til að ná góðum myndum af
okkur," segir Guðrún.
Það muna eflaust
margir eftir
Konum gegn
klámi. Þær voru
áberandi á sínum
tíma og vildu
mótmæla því að
boðið væri upp á
klámmyndir og þá
helst þeirri stað-
reynd að í þeim
væri að finna konur.
C'4
Hótað nauðgun og drætti
Einn af forsprökkum Kvenna
gegn klámi er Ingibjörg Hafstað
hjá Nýbúafræðslunni. Hún segir
Konur gegn klámi hafa byrjað að
starfa fljótlega eftir að Kvenna-
framboðið (Kvennalistinn) var
stofnað, í kringum 1982^1.
„Við vorum mjög virkar í nokk-
ur ár og vorum þá með alls konar
herferðir í gangi. Fórum í bókabúð-
ir og bentum eigendunum á að þeir
væru að selja bannað blaðaefni í
búðunum sínum,“ segir Ingibjörg
og minnist þess þegar þær, konum-
ar keyptu klámmynd af einhverj-
um millilið og buðu síðan alþingis-
mönnum og ráðherram að horfa á
hana með sér á Hótel sögu. En
þetta vakti mikla athygli á sínum
tíma og konurnar voru meira að
segja kærðar fyrir að sýna klám á
opinberum vettvangi. Það var ekk-
ert gert í þvi máli og svo virðist
sem kæran hafi hreinlega horfið.
En fenguö þió einhvern til að
hætta að selja klámfengna vöru?
„Jú. Það voru nokkrar bókabúð-
ir sem hættu að selja klámblöð."
Þœr hljóta aö vera byrjaóar aftur
að selja, er það ekki?
„Jú,“ svarar Ingibjörg og hljóm-
ur raddarinnar gefur í skyn að hún
sé frekar uppgefin en reið.
Nú eru Konur gegn klámi dánar.
Hvað gerðist?
„Ég missti áhugann á þessu og
hætti þegar hótunarbréfin byrjuðu
að berast,“ svarar Ingibjörg en á
sínum tíma fékk hún bréf frá
ónefndum aðilum sem hótuðu
henni nauðgun, morði eða sögðu að
það sem hún þyrfti væri bara að
einhver riði henni almennilega.
-MT
■Mm T*
Íii M
Guðrún Agnarsdóttir, fyrrum forsetaframbjóðandi, segir að Ijósmyndari hafi fengið þær inn á þessa sýningu
til að ná góðum myndum af Konum gegn klámi.
Of f|k ir cii lá’ða
Páll Óskar á sér alter ego sem heitir Dr. Love. M
Og þú getur sent Dr. Love bréf á fókusvefnum á www.visir.is
Láttu Dr. Love greiða úr tilfinningaflækjunni þegar |
allt er komið í spagettí - því svörin sem hann veitir þér
og umræður hans um kynlíf, ástina, tilfinningar
og persónuleg vandamál eru vítamínsprauta sálarinnar!
Bréf til dr. Love:
Ég á viö vandamál aó stríöa. Ég er
búinn að vera meö stelpu í 6 mánuói
og viö erum búin að stunda kynlíf í 4.
Vandamáliö er að ég er oftast of fljót-
ur aö fá þaö. Og þetta er byrjaö aö
pirra kœrustuna mína svoldið. Hvaó
er hœgt að gera í þessum málum?
- Jói
Svar dr. Love:
Já, elsku Jói.
Þú ert sko ALLS EKKI eini karl-
maðurinn í heiminum sem er enn þá
að hella niður mjólkinni sinni! Ná-
kvæmlega þetta vandamál böggar
karlmenn jafnmikið og SKORTUR á
fullnægingu gerir konum lífið leitt!
Sumir karlmenn meira að segja
brunda í buxurnar áður en þeir kom-
ast til að renna niður buxnaklaufinni
- Já, það getur verið SVONA alvar-
legt!
Margir reyna að afsaka sig við
konurnar með því að krumpa upp úr
sér línum á borð við: „Ja, ég get ekk-
ert gert að þessu - þú ert bara svo
SEXÝ!“ eða „Já, sko, ég er svo við-
kvæmur þessa dagana - ég er í mjög
sterkri lyfjameðferð!" Ooooojjjjjjjjjj,
afsakið á meðan ég æli! Konur nenna
ekki að hlusta á þetta - og ekki ég
heldur!
Þess vegna finnst mér þú mjög
hugrakkur að vilja spyija mig og
^ leita hjálpar við þessu og með því
* einu ert þú strax að sýna sanna karl-
mennsku! Áfram Jói!
Að fá það of fljótt er sálrænt
vandamál, ekki likamlegt! Hmm ...
hljómar skringilega, ekki satt? Trúðu
mér, það er búið að reyna ÖLL tiltæk
ráð til að finna lausn á þessu algenga
vandamáli karla og alltaf búið að ein-
blína á kynmökin sjálf í því sam-
bandi, kynfærin á karlinum (og kon-
unni) o.s.frv. - En það er nefnilega
þarna sem meginþorri mannkyns er
búinn að misskilja kynlíf allan tím-
ann. Samfélagið sem þú ert alinn upp
í er haldið mögnuðum ranghugmynd-
um um kynlíf og ein þeirra er sú að
kynlíf gangi út á það hvernig tveir
líkamar snertast! Þá er fólk oftast að
pæla í „tippi-inní-píku“ kontakt!
Það er algjört helvítis kjaftæði!
Kynlíf gengur út á ORKUNA sem tvær
manneskjur geta búið til á milli sín!
Við erum öll drekkhlaðin rafmagni
og við getum auðveldlega sent þessa
strauma til annarra manneskja með
hugsanaflutningi. Þegar við erum að
riða þá erum við að senda hugskeyti
á miÚjón hvort til annars og til okk-
ar sjálfra! Ég veit að þetta hljómar
svolítið eins og eitthvert kosmískt
nýaldarkjaftæði í mér en ææjjji ...
gemmér séns!
Forleikurinn að kynlífi byrjar hjá
sumum í strætó, þegar þeir stinga
strætómiðanum i raufina, setjast nið-
ur og finna titringinn. Ekki ein-
skorða kynlif bara við þig og þína
heittelskuðu allsber uppi í rúmi!
Sem betur fer á Dr. Love EKKI við
þetta „of-brátt-sáðlát“-vandamál að
etja! (Takk, Guð!) En það þýðir ekki
að hann sé ekki til í að læra að fá
meiri og betri fullnægingar!!! Ég verð
örugglega að því það sem eftir er æv-
innar að kynnast líkamanum á mér
betur og betur og ég er eins og Indi-
ana Jones þegar kemur að kynlífmu:
Leitin að týndu fullnægingunni verð-
ur örugglega hin mesta svaðilfor - en
ég ætla mér líka að fá hana!
Þú ert að fara í smá-Indiana Jones-
ferð líka, Jói. Þú ert að fara að læra
hvað fúllnægingin þín ER, af hverju
þú færð hana, hvemig þú getur haft
fullkomna stjóm á henni og orðið al-
gjör sex-maskína á sama tíma!
Elsku Jói! Farðu til sálfræðings.
Þrír til fjórir timar hjá flottmn sál-
fræðingi geta komið þér aldeilis á
sporið í leitinni að týndu ástæðunni
fyrir því að þú kemur of fljótt. Auð-
vitað mun sálfræðingurmn segja þér
að „ná stjórn á sjálfum þér“, en það
er bara toppurinn á ísjakanum.
Kannski kemst sálfræðingurinn að
því að þú sért hreinlega HRÆDDUR
við konur, að þér finnist þú vera of
kynferðislega minnimáttar til að
vilja fullnægja komnn, eða þá að þú
sért í undirmeðvitundinni að
HEFNA þín á konum - með því að
hita þær upp kynferðislega og neita
þeim svo um það sem þú lofaðir. (Hér
á að koma hryllingsmyndatónlist!)
Þetta kemur kannski flatt upp á
þig en ég er líka bara að velta mér
upp úr mögulegum ástæðum núna.
Nú jæja, þegar þú ert búinn að
komast að sálrænni rót vandans þá
ferð þú að stunda jóga! Þú verður að
fá hjálp til að anda, borða og ríða
rétt. Nú heldur þú að ég sé orðinn
eitthvað geðveikur en ég skal sko
segja þér eina sögu!
Einu sinni lenti ég i frábærum
gæja i New York sem var flottur,
skemmtilegur, vel vaxinn (og vel vax-
inn niður líka (-)) og með endalausar
hugmyndir i rúminu! En það var
ekki nóg! Þessi gæi gat fengið það
hvenær sem honum sýndist! Hann
gat fengið raðfullnægingar, gat riðið
í 2 klukkutíma ÁN þess að fá það en
samt hélt hann honum uppi, og þessi
lota stóð í rúma 12 klukkutima - og
hann var ekki á neinum lyfjum, dópi
eða í öðru rugli! ÓTRÚLEGT EN SATT!
Og þama lá ég morguninn eftir,
dauðþreyttur, og ég spurði manninn
hvernig hann GAT ÞETTA! Hann
sagðist hafa stundað jóga í 14 ár síð-
an á menntaskólaárum sínum, og þar
lærði hann að ANDA RÉTT og ná al-
gjöru VALDI á líkama sínum. Hann
er í 100% sambandi við líkama sinn
- og þar er kynlífið ekki út undan.
Fullnægingin hefur alveg rosalega
mikið með rétta öndun að gera og
súrefnisflæði í líkamanum. Við
kryddum hana svo sjálf með því sem
við erum að hugsa á meðan við ríð-
um, því sem gerir okkm- gröð o.s.frv.
Þetta líkamlega (öndunin) og hug-
læga (fantasían) mætist svo á miðri
leið í orkunni sem við getum virkt og
sent frá okkur til annarra mann-
eskja! PÚMM KYNLÍF VERÐUR TIL OG
FULLNÆGINGIN PAKKAR HENNIINN í
GJAFAUMBÚÐIR!
Einn góðan veðurdag ætla ég að
fara á spes námskeið í þessari
ákveðnu öndunartækni og ná full-
komnum tökum á mínum eigin lík-
ama, að fullnægingunum meðtöldum.
Það er hægt að fara á jóganám-
skeið á íslandi - þó ég viti nú ekki
hvort þau sérhæfa sig beint í kynlífi,
en þau hjálpa þér vissulega í áttina
að hugsa og anda rétt! Þau kenna þér
líka að umgangast mat upp á nýtt -
já, þú lærir að borða upp á nýtt.
Mataræðið þitt hefur örugglega
eitthvað að gera með kynlífsvand-
ræði þín. Prófaðu að hringja upp í
Kramhúsið eða World Class. Ég veit
að það eru starfandi jógakennarar á
báðum stöðum. Þau geta örugglega
veitt þér nánari upplýsingar.
Svo mæli ég lika með því að þú
heimsækir kynlífsgúrúinn minn og
lærimeistara, Miss Annie Sprinkle!
Hún er æði! Hún er kynlífskúnstner
með hjarta úr skiragulli og kann að
taka á kynlífi eins og þig hefði
ALDREI grunað að hægt væri. Hún er
t.d. á http://www.heck.com ásamt
fleiri flottum listamönnum. Svo get-
urðu tékkað á kynlífsspeki Josephs
Kramers, en hann er einmitt einn
besti kennarinn í heiminum í þessari
öndunartækni sem ég var að segja
þér frá. Tékkaðu á http://www.er-
ospirit.com
Svo eitt að lokum: Ef þú heldur
áfram að koma of fljótt, þá er nú
spurning um að hætta trúboðastell-
ingunni fyrir fullt og allt. Einmitt
nota „tippi-í-píku“-aðferðina. Alla-
vega ekki fyrr en HÚN er búin að
fáða! Vertu góður við stelpuna og
gerðu eitthvað allt annað við hana:
Sleiktu hana og farðu í heví sleik við
hana og puttaðu hana á meðan.
Splæstu í víbrator og komdu henni á
óvart og gerðu þetta helst í öllum fót-
unum!
Svo þegar röðin er komin að því að
klímaxa ... ÞÁ fyrst tekur þú hann út
og einni míkrósekúndu seinna ertu
búinn að subba þessa rómantísku
kvöldstund út með klessunum lek-
andi niður um alla veggi.
DR. LOVE
24
f Ó k U S 21. maí 1999