Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.1999, Síða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.1999, Síða 18
? haf Á síðustu dögum hafa lesendur Fókus-vefs- ins valið sína eigin feg- urðardrottningu úr föngulegum hópnum sem nú gengur um svið Hótel Broadways. Skemmst er frá að segja að Bjarney Þóra Hafþórsdóttir tók snemma forystu í þessari gagnvirku könnun (20,6%) og hélt henni enn þegar Fókus fór i prentun. Bjarney er á þriðja ári á náttúrufræðibraut í Mennta- skólanum á Akureyri, hefur m.a. áhuga á fót- bolta, börnum og að hafa það gott heima. Anna Þóra Þorgllsdóttir kemur fast á hæla Bjarneyjar, var komin með 16,9%. Hvort les- endur Fókuss hafa sama smekk og fegurðar- dómarar kemur í Ijós í kvöld. Bubbl Morthens ætlar ekki að vera með í jólaplötuflóðinu í ár. Þetta verða þó síður en svo Bubbalaus jól því það á að gefa út allar sólóplötur Bubba i kassa. Það verður dýrt að gleðja Bubbaaðdáandann í ár því þetta eru eflaust orönar einar 20 plötur hjá hr. Morthens. Allar plöturnar verða „endurmasteraðar" og eflaust verð- ur óútgefið efni haft með til að auka áhug- ann. Ekki er komið nafn á gripinn en „Box með Bubba" hlýtur að vera álitlegur kostur. Birgir „Bix“ Sigurðsson, hljóðgruflarinn glúrni sem einu sinni var kenndur við Innn- útgáfuna, flutti fýrir nokkru til San Francisco til að skipta um umhverfi og finna sér nýjan Kaffibar, eins og hann segir sjálfur. Hann hefur verið að bauka við ýmislegt; var fenginn til að hanna vef fyrir stærstu módelskrif- stofuna f borginni og hljóðvann tónlist fýrir einhvern Adam sem sérhæfir sig í að end- urgera eldgömul gyðingalög. Bix er svo auðvitað með ýmis önnur járn í eldinum. GusGus flengist nú um heiminn. Kven- mannslausu mennirnir spila í Athletic- klúbbnum í Hollywood í kvöld og I Palace í Los Angeles annað Ijvöld. Uppselt er|á tónleikana. Fyrir viku spilaði bandið á einum af sínum mikil- vægustu tónleikum, 6000 manna tónleikum sem Víva-sjónvarps- stöðin hélt í Köln. GusGus skiptu aðal- hlutverki kvöldsins með Underworld en Jimi Tenor og Mouse on Mars komu líka fram. Að sögn voru þetta einir allra bestu tónleikar GusGus og hljóð- gaurinn Páll Borg varð klökkur af gleði eft- ir á. Allir söknuðu þó Hafdfsar, bæði áhorf- endur og hljómsveitarmeðlimir. Liíid eítir vmnu Hellisbúinn býr I helli sfnum f íslensku óper- unni. Sýning kl. 20. Bjarni Haukur Þórs- son er hellisbú- inn. Síminn er 551 1475. Hádeglsleikhús Iðnó sýnir Leltum aö ungri stúlku eftir Kristján Þórð Hrafnsson kl. 12. Leikritið er hálftími að lengd og á eftir fá gest- ir hádegismat og ættu að vera aftur komnir til vinnu á slaginu eitt. Magnús Gelr Þórðarson leikhússtjóri leikstýrir en Llnda Ásgelrsdóttir og Gunnar Hansson leika. Sfminn er 530 3030. ís Maöur ' mlslitum sokk- i.4 um eftir Arnmund Back- M man er á Smfðaverk- j M - ’ kM stæ6i ÞJóðleikhússins V jhf HatE kl. 20.30. Þessi farsi ■fjfm gengur og gengur. Enn ■ » eitt 6an6stykki£) með • Æ S „gömiu leikurunum" - að þessu sinni Þóru Friö- bí riksdóttur, Bessa Bjarnasyni og Guðrúnu Þ. Stephensen. Síminn er 551 1200 fyrir þá sem vilja panta miða á sýningu einhvern tfma f framtíðinni. Þjðöleikhúsið sýnir Rent eftir Jonatan Larson á stóra sviðinu kl. 20.30. Þetta er söngleikur sem öfugt flesta slfka sem hafa ratað á fjalirn- ar undanfarin misseri er nýr. Ekki þó alveg því þráðurinn er að hluta spunninn upp úr óper- unni La Boheme - ekki þó tónlistin. Sagan seg- ir frá ungum listnemum f New York og Iff þeirra innan um dóp, alnæmi, ást, spillingu, greddu og rómantík. Baltasar Kormákur leikstýrir en meðal leikenda eru flestar af yngri stjörnum leikhússins: Rúnar Freyr Gíslason, BJörn Jör- undur Friöbjörnsson, Brynhildur Guðjónsdótt- Ir, Atli Rafn Sigurðarson og Margrét Elr Hjart- ardóttir auk nokkurra eldri brýna á borð við Steinunn! Ólínu Þorstelnsdóttur og Helga Björns. Rommí er f kvöld sunnan heiða, nánar tiltekið I Iðnó kl. 20.30. Erllngur og Guðrún Ás eru bæði sæt og kvikindisleg saman. Sfmi 530 3030. Sex í svelt er vinsælasta stykki Borgarleikhússins þetta árið. Leikarar: Edda Björgvinsdóttir, Björn Ingi Hilmarsson, Ellert A. Ingimundarson, Gísli Rúnar Jónsson, Rósa Guðný Þórsdóttir og Halldóra Geirharðs- dóttir. Sfmi 568 8000. Tvelr tvöfaldir á Stóra sviði Þjóðleikhússlns kl. 20. Uppselt. Upplýsingar um lausa miða á næstu sýningar í sfma 5511200. •Kabarett Fegurðarsamkeppni Is- lands á Broadway. í kvöld fær einhver ungpfan tár f augun og skjálfta f hnén þegar hún fær að vita að dómnefnd þótti hún fegurst allra. Á eftir leikur Skíta- mórall. •Opnanir Myndíistar- og Ijóðasýningin Lifæöar hefur verið sett upp á nokkrum sjúkrahúsum vfðs vegar um landið. Þessi sýning er f boði lyfjafyrirtækisins Glaxo Wellcome á íslandi.Sýningin verður opnuð á Fjóröungssjúkrahúsinu á Akureyri I dag, klukk- an 15. Hugmyndin að sýningunni kviknaði við lestur viðtals við Kristján T. Ragnarsson, yfir- lækni endurhæfingarstöðvar Mount Sinai-sjúkra- hússins í NewYork, sem sagöi frá því að hann hefði keypt verk eftir listakonuna Laufeyju Vil- hjálmsdóttur til að fegra og lífga upp á ganga spítalans. Forráðamenn íslensku menningar- samsteypunnar ART.IS töldu ekki sfður þörf á að gleðja þá sem um sárt eiga að binda vegna sjúk- dóma hér á landi og voru þvf nokkrir yfirmenn sjúkrahúsa spurðir hvernig þeim litist á hug- myndina. Þeir tókuhenni allir fagnandi og var þá framkvæmdinni hrundið af stað. i dag, klukkan 16, opna 2. árs textílnemar úr Myndllsta- og handíðaskólanum samsýningu f Gallerí Nema hvað við Skólavöröustfg 22c. Þeir sýna þar frjálsan textíl. Sýningin er opin frá 14-18 um þessa helgi og næstu. •Fundir Væntanlegir BS-kandídatar í hjúkrunarfræði kynna lokaverkefni sín og meistaranemar f hjúkrunarfræði kynna rannsóknaráætlanir sfn- ar í Elrbergi, húsnæöi námsbrautar í hjúkrun- arfræði, Eiríksgötu 34. Allir eruvelkomnir. Kaffiveitingar í boði. Aðgangur ókeypis. Kynning á BS-verkefnl nemenda námsbrautar í sjúkraþjálfun fer fram frá klukkan 10.30 til 15.40. Kynningin fer fram f Læknagarði, 3. hæð, og eru allir sem áhuga hafa velkomnir. Hvert erindi er20 mfnútur, 15 mfnútur f fram- sögu og 5 mínútur f spurningar og umræður. Ólafur Ármann Óskarsson og Jón Harðarson ríða á vaðið með fitumælingar; aðferðir og notk- un. Þvi næst mæta Róbert Magnússon og Sig- urjón Rúnarsson til leiks með umfjöllun um styrktarþjálfun. Þar á eftir er það Kristinn Magn- ússon með meðferðarheldni og loks kemur upp Kristín Rós Óladóttir og talar um ofþjálfun. Svo er hádegishlé. Trausti Hrafnsson og Valgeir Sigurðsson hefja leik eftir matartímann með tölu um álagseinkenni þeirra sem vinna við tölv- ur og að því loknu flytja Inga Margrét Friðriks- dóttir og ída Braga Ómarsdóttir ritverk sitt um hálshnykksáverka og vfsa til þolmælinga hjá konum með langvarandi einkenni eftir háls- hnykksáverka. Karl Guðmundsson fjallar þá um vöðvarafrit af m. multifidus hjá fólki með óstöð- ugleika f baki og Oddbjörg Erla Jónsdóttir talar um óstöðugleika fram á við f axlarlið. Svo er hlé. í sfðustu lotu tala fýrst Ása Dóra Konráðsdóttir og Berghildur Ásdís Stefánsdóttir um greiningu og meðferð sinabólgu í snúningsvöðvum axla en Halldóra Sigurðardóttir kemur f kjölfarið með tölu um áhrif relaxins á grindarlos ófrískra kvenna. Hólmfríður Berglind Þorsteinsdóttir og Alma Anna Oddsdóttir klára svo samkomuna með erindi um áhrif slökunar á líðan fólks með vefjagigt. •Sport Knattspyrna i. deild karla. Fyrsta umferð: KA- Víðir, Fylkir-FH, KVA-Dalvfk, Stjarnan-Skallagrímur og Þróttur R.-ÍR. Allir leikirnir hefjast kl. 20.00. •Feröir Hvernig væri að skreppa á Hvannadalshnjúk? Ferðafélag íslands er á leiðinni þangað og leggur af stað klukkan sjö f kvöld. Þessi ferð stendur fram á mánudag þannig að betra er búa sig vel. Hnjúkurinn nær 2.119 metra yfir sjávarmál sem kunnugt er. Popp Nú færist átak Kidda kanínu, „Lágmenningar- borgin Reykjavík 1999",'lnn á Kaffi Thomsen. Wiseguys og Les rythms digltales mæta gal- vaskar og láta Hafnarstrætið nötra. Með i för er PS Daði, alíslenskur snúður. •K1úbbar DJ Siggi Hlö er öe kúlest of ðe kúl núna en man þá tfð er plötusnúðar voru bara diskótek- arar en ekki framlínugoð sem allir vilja sofa hjá. Hann er f Leikhúskjallaranum í kvöld. ✓Wall of Sound tónleik- ar á Thomsen. Touche betur þekktur sem Wiseguys þeytir skffum á efri hæðinni. Á þeirri neðri verður Les Rythm Digitales með „live" prógram þar sem hann mun meðal annars flytja efni af gænýrri breiðskífu sinni „Darkdancer". Hörku stuð... • Krár Álfarnir eru aftur á Grandrokkinu. Frumsamið efni í bland við erlend og innlend lög af ýms- um toga. Blái fiðringurinn er hljómsveit 68-kynslóöar- innar og unglinga sem vilja skera sig úr. Nú verður Hendrix og Cream bætt við prógrammið sem annars nær yfir 100 lög. Þetta eðalband' er á Fégetanum í kvöld. ✓Á Gauki á Stöng stfga á stokk sveitirn- ar Botnleðja og Bellatrix. Með þeim koma fram DJ Jörundur og eitthvað sem kallast dan modan. Bellatrix er að flytja til útlanda til að reyna til þrautar við meikið sem aldrei kemur. Kaffi Reykjavík hefur upp á Sixties að bjóða. Við gerum okkur það að góðu, enda fínt band. Jón Möller hrærir í hljómborðinu undir áti á Fjörukránni. Siðfágaðir standardar á borð við Nótt f Túnis og Blátt tungl, allt þar til Vfkinga- sveitin tekur við með sérfslenskan lummoxa- gang. Furðufuglinn Fuglinn (DJ Birdy) skemmtir hverj- um sem er inni á Kaffi Amsterdam. Spurning hvort Gunnlaug getur hermt eftir honum. Svensen og Hallfunkel eru aftur á Gullöldinni. Bjórinn er tjíp en staðurinn ekki. Gunnar Páll leikur dægurlagaperlur fýrir gesti á Grand Hótel. Ætli Joshua Ell mæti? Dm7b5 G7 Cmaj7, Dm7b5 G7 Cmaj7, F#maj7 Fmaj7 Emaj7 Ebmaj7, Dm7 G7 Cmaj7. Night and dayfyrir buskara eins og Liz Gammon sem feikar standarda á Café Romance. Sverrir Stormsker er hvergi hættur þótt lítið hafi farið fyr- ir honum. Hann mætir með hljóðfæri og heilbrigðar Iffsskoðanir inn á Álafoss föt best og verður með nettan sóða- kjaft. Ekki fyrir kristilegar teprur. Á Dubliner, sem eitt sinn var jjemakrá en gæti núna allt eins heitið Strætið, er hljómsveitin Poppers að engjast f kvöld. Svo færir hún sig yfir á Grandrokk á morgun. Sama skipan og f gær á Kringlukránni. Guð- mundur Rúnar er I leikherberginu en Taktík er frammi. I Böl 1 Hilmar S. og Anna V. hamast á sviöi Næturga- lans og þið hamist á góifinu. Barþjónarnir og dyraverðirnir hamast minna þvf þið eruð svo stillt og þæg og drekkiö f hófi. Hér er orðsending frá Millunum: „I tilefni vors, góðæris og almennrar bjartsýni halda Millj- ónamæringarnlr dansleik á Hótel íslandi þann 22. mai. Þeir söngvarar sem koma fram með hljómsveitinni eru kyntröllið Bjarni Arason; Júróvisfonstjarnan Páll Óskar; maðurinn með flauelsröddina - Ragnar Bjarnason og sjálfur Bogomil Font sem kemur sérstaklega frá Bandarfkjunum til að gleðja okkur i góðærinu. ÞesS má geta að f byrjun sumars kemur út safndiskur með öllum helstu smellum Milljóna- mæringanna f gegnum tíðina. Á diskinum má finna nýtt lag með Ragga Bjarna sem þegar er far- ið að heyrast á öldum Ijðsvakans."____________ K 1 a s s í k Þar verða tónleikar f Reykholtskirkju klukkan 16. Þar munu Kristín R. Sigurðardóttlr, sópr- an, Jóhann Stefánsson trompetleikari og Brynhildur Ásgeirsdóttir pianóleikari flytja verk eftir Alessandro Scariatti, Johann Sebast- ian Bach, Georg Friedrich Hándel, Henry Purcell og Aldrovandini. Kristfn Ragnhildur er menntuð frá Söngskólanum í Reykjavík, þar sem kennari hennar var Ragnheiður Guð- mundsdóttir, og á Ítalíu, þar sem hún varí læri hjá Rfnu Malatrasi. Hún hefur sótt fiölda óp- erunámskeiða, m.a. hjá Virginíu Zeanny, Ant- honi Hose, Andrei Orlowitz, Eugene Ratti, Malcolm King. Kristfn hefur sungið einsöng á tónleikum á Italfu og við mörg tækifæri hér á landi. Jóhann byrjaði að læra á trompet f Tón- listarskóla Árnessýslu um 12 ára gamall og var I Skólahljómsveit Selfoss og sfðar f Lúðra- sveit Selfoss f mörg ár. Hann útskrifaðist síð- an frá blásarakennaradeild Tónlistarskólans f Reykjavfk 1992. Hann kennir nú við Tónlistar- skóla Garðabæjar, Skólahljómsveit Kópavogs og Tónlistarskóla Árnesinga. Brynhildur lauk námi frá Tónlistarskólanum f Reykjavfk 1986 en kennari hennar þar var Jónas Ingimundar- son. Framhaldsnám stundaði hún svo f Hollandi hjá Herman Uhlhorn og Jan Huising frá 1986-90. Hún starfar nú sem tónlistar- kennari. Brynhildur hefur komið fram sem undirleikari og við flutning kammertónlistar. • Sve i tin Allar sætu Snæfellsfraukurnar eru að gera sig klárar fyrir öskrandi stuð- ball hljómsveit- arinnar Gos. Hún er hins vegar að stilla upp inni í Bióborgin True Crime irkirk Eins vel og leikstjórinn Clint Eastwood stendur sig þá er þvf miður ekki hægt að segja það sama um leik- arann Cllnt Eastwood. Ekki það að hann fari illa með hlutverkið heldur er hann of gamall fyrir það. Að öðru leyti hefur vel tek- ist með skipan hlutverka og aukaleikarar eru hver öðrum betri í vel út- færðri sakamálafléttu. -HK One True Thing ickici, Fjölskyldudrama f þess orðs bestu merkingu. Leikstjórinn Carl Franklin fer framhjá flestum hættum sem fylgja viðkvæmu efni sem hér er fjallað um, enda er hann með í höndunum vel skrifað handrit og fær góðan stuðning frá William Hurt og Meryl Streep, sem eru leikarar f hæsta gæðaflokki. Þá sýnir hin unga Rene Zwelleger að hún er leikkona framtíðarinnar f Hollywood. -HK Bíóhöl1in She’s All That Varsity Blues ■ArA Varsity Blu- es er enn ein unglingamyndin þar sem gert er út á ungar Tþrótta hetj u r, meyja, villt Iff eft- ir leik og samband þeirra við foreldra. Allt er þetta kunnuglegt, þekktar formúlur færðar í ný klæði sem f þetta sinn eru gegnsæ. -HK Message In a Bottle irki Óskammfeilin róm- antfk, saga um missi og nær óbærilegan sökn- uð eftir því sem hefði getað orðið á öðrum enda vogarskálarinnar og örlagaríka samfundi og endurnýjun á hinum endanum. Ýmislegt þokka- lega gert, leikur er hófstilltur og látlaus, fram- vindan að mestu sömuleiðis og myndirfallegar. En einhvern veginn nær þetta ekki að virka nægilega sterkt á mann, til þess er flest of slétt og fellt. -ÁS Payback kkrki. Leikstjóranum Brian Helgeland tekst ágætlega að búa til dökk- myndastemningu, vel fléttaða, og kemur stund- um jafnvel skemmtilega á óvart. Hins vegar er svolítiö erfltt að trúa á Mel sem vonda gæjann, til þess er byrði hans úr fýrri myndum of þung. -4S Lock Stock and Two Smoking Barrels kkki Glæpamynd sem segir frá nokkrum fjölda glæpamanna, smáum sem stórum, 1 tvenns konar merkingu þeirra orða. Má segja að stund- um sé farið svo nálægt fáránleikanum að myndin verði eins og spilaborg þar sem ekkert má út af bera svo allt hrynji ekki, en snjall leik- stjóri og handritshöfundur, Guy Ritchie, sýnir af- burða fagmennsku og aldrei hriktir f stoðunum heldur er um að ræöa snjalla glæpafléttu sem gengur upp. -HK Patch Adams kk Saga merkilegs læknis er tekin yfirborðslega fýrir f kvikmynd sem fer yfir markið f melódrama. Robin Williams sér að visu um að húmorinn sé f lagi, en er þegar á heildina er litið ekki rétti leikarinn f hlutverkið. Mörg atriði eru ágætlega gerð en það sem hefði getað oröið sterk og góð kvikmynd verður aðeins meðalsápuópera. -HK Pig in the City kki Mynd númer 2 er fýrst og fremst ævintýramynd og meira fyrir börn en fyr- irrennarinn. Má segja að teiknimyndaformið sé orðið alls ráðandi og er myndin mun lausari f rásinni. Dýrin, sem fá mikla aðstoö frá tölvum nútímans, eru vel heppnuð og þótt oft sé gam- an að apafjölskyldunni og hundinum meö aftur- hjólin þá eru dýrin úrfýrri myndinni, meö Badda sjálfan f broddi fylkingar, bitastæðustu persón- urnar. -HK Pöddulíf kkkk Það sem skiptir máli I svona mynd er skemmtanagildið og útfærslan og hún er harla góð. Sama skemmtilega hugmynda- flugið og gerði Mulan svo ánægjulega er hér enn á ferð og mörg atriðanna eru hreint frábær, bæði spennandi, fýndin og klikkuð. -úd Mighty Joe Young kki Gamaldags ævintýra- mynd sem heppnast ágætlega. Sjálfur er Joe meistarasmfð tæknimanna og ekki hægt ann- að en að láta sér þykja vænt um hann. Það er samt ekkert sem stendur upp úr; myndin liður í gegn á þægilegan máta, án þess að skapa nokkra hræðslu hjá yngstu áhorfendunum sem örugglega hafa mesta ánægju af henni. -HK You’ve Got Mail kki Háskólabíó Henry Fool Forces of Nat- ure ki Felli- bylurinn sem kemur lítillega við sögu í lok þessarar mynd- ar virðist áður hafa átt leið um hugi allra aðstandenda hennar því að satt að segja stendur ekki steinn yfir steini. Þetta er ein af þessum innilegu óþörfu myndum sem Hollywood sendir stundum frá sér, eins og til að fylla uppf einhvern kvóta eða skaffa stjörnunum eitthvað að gera. Hvers- vegna einhverju viti bornu fólki dettur í hug að bjóöa áhorfendum uppá þetta rusl er ofar mfn- um skilningi. -4S Arlington Road kkki I það heila vel heppn- uð spennusaga með umhugsunarverðum og ögrandi vangaveltum og sterku pólitísku yfir- bragði. Minnir um margt á samsæris- og para- nojumyndir áttunda áratugarins, t.d. The Paral- lax View eftir Alan Pakula, þar sem „óvinurinn" virðist ósýnilegur og leit aðalpersónunnar að sannleikanum ber hann út að ystu nöf, bæði andlega og siðferðislega. Handritiö spilar ágæt- lega á innbyggðar væntingar okkar til hetju og illmennis alla leiö að hrikalegum endinum sem situr þungt f manni eins og illur fyrirboði. -4S A Civil Action kki Réttardrama, byggt á sönnum atburðum. Leikstjórinn og handritshöf- undurinn, Steven Zalillan, skrifar ágætt handrit en hefur gert betur (Schindler’s List). Leik- stjórn hans er flöt og þrátt fyrir góða tilburði hjá flestum leikurum nær myndin aldrei flugi. Það sem helst veikir myndina, fyrir utan .flata at- burðarás, er ótrúverðugleiki persónanna sem er frekar óþægilegt þar sem myndin er byggð á sönnum atburðum. -HK American History X kkki American History X er sterk og áleitin ádeilumynd á kynþáttahat- ur, sem auk þess sýnir á áhrifamikinn hátt fjöl- skyldutengsl, hvernig hægt er að splundra fjöl- skyldu og hvernig hægt er að rækta hana. -HK Idioterne kkki Kringlubíó Belly i Belly er leikstýrt af Hype Williams sem þykir nú einn besti leik- stjóri tónlistarmyndbanda. Hans sérsvið hefur verið rapp og hefur hann þvf val- ið nokkra þekkta rappara til að leika f myndinni sem lýst er sem sakamála- mynd með svörtum húmor f Permanent Midnight kki Þrátt fyrir sterkan leik Ben Stillers er Permnent Midnight aldrei nema miðlungsmynd, formúlumynd af því tag- inu að þetta hefur allt sést áöur. Það hlýtur að skrifast á reikning leikstjórans David Veloz að framvindan er öll hin skrykkjóttasta og það sem hefði getað orðið kvikmynd um hæfileika- rfkan handritshöfund sem tapar áttum verður aðeins kvikmynd um herófnneytanda og margar betri slfkar myndir hafa verið gerðar. -HK Jack Frost kki Fjölskyldumynd um tónlistar- mann og pabba sem deyr af slysförum en snýr aftur f líkama snjókarls. Ekki beint uppörvandi og þótt reynt sé að breiða yfir það alvaralega og gert út á fýndnina þá er snjókarlinn ekki nógu skemmtileg ffgúra til að geta talist fýndinn. Michael Keaton, sem leikur föðurinn og er rödd snjókarlsins, hefur oft verið betri. -HK Star Kid kk Vonda skrímslið f Star Kid er eins konar klóni úr Predator og einhverju kunn- uglegu úr eldri geimmyndum. Einhvern veginn varð boðskapurinn sögunni ofviða og þegar 1001. heilræðið sveif yfir skjáinn fór ég að geispa. Ef það er eitthvað sem drepur barna- myndir þá er það ofhlæði áróðurs sem gengur 26 f Ó k U S 21. maí 1999

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.