Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1999, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1999, Blaðsíða 15
31 MIÐVIKUDAGUR 2. JÚNÍ 1999 Hús og garðar H j álpartæki garðeigandans Plöntuviðhöld eru mjög einföld i notkun og auðvelt að lagfæra ef plöntur vaxa út fyrir sett mörk eða ef eitthvað hefur gleymst. I versluninni Gull og grænir skógar í Hverafoldinni geta garð- eigendur fengið ýmis tæki og tól sem auðvelda þeim að halda garð- inum i horfinu. Auk þess fæst þar tölvuhugbúnaður sem nýtist garð- eigendum vel við að skipuleggja garðinn og velja plöntur. Það getur verið mesta puð að bogra yfir fjölærum plöntum með bambusstengur og bindigam og því geta plöntuviðhöld verið góð lausn. Þau er hægt að fá í mis- munandi stærðum og gerðum. Þau eru mjög einfold í notkun því einungis þarf að stinga þeim nið- ur og krækja saman. Einnig er auðvelt að lagfæra ef plöntur vaxa út fyrir sett mörk eða ef eitthvað hefur gleymst. Link- og Loop-plöntuviðhöldin, sem framleidd eru úr heilu stáli, eru galvaniseruð og húðuð með grænu PVC-plastefiii. Fíflabani Fíflabaninn er létt og þægilegt verkfæri sem notað er til að útrýma fiflum og öðru illgresi úr grasflötum. Verkfærið er 95 cm langt og smíðað úr jámi sem tryggir góða endingu þess. Á enda þess eru þrír pinnar sem er stungið niður þannig að plantan lendir inni í þríhyrningnum sem þeir mynda. Verkfærinu er síð- an snúið 1-2 hringi og dregið upp og plantan tekin út. Með notkun fifla- banans eru illgresislyf óþörf. Geitungagildra Mörgiun er afskaplega illa við geifimgana sem herja á landann á sumrin og því getur geitunga- gildra komið í góðar þarfir. Gildr- an er hengd upp i hæfilegri fjar- lægð frá dvalarsvæðum og agninu (sem er í fljótandi formi) er hellt í skálina sem er með trektformuðu opi að neðan. Flugurnar laðast að lyktarefhum sem eru í vökvanum og fljúga upp um trektina. í vökv- anum eru lyktarhormón sem eru boðefni og laða að einstaklinga sömu tegundar. Hægt er að fá áfyllingu þegar áhrif vökvans taka að dvína. Sniglagildra Sniglagildran er einfold aðferð til að lokka snigla og ranabjöllur. Hentugasta agnið er bjór. Gildran er grafin niður og bjórnum hellt í. Sniglamir laðast að börmum gildrunnar og falla ofan í. Gildran er úr grænu plasti, með loki yfir, svo ekki rigni í hana. Margmiölunarefni Gull og grænir skógar hafa einnig á boðstólum forrit handa garðyrkju- og áhugafólki. Forritið 3D landscape 2 hefur að geyma myndir í sýndarveruleika þar sem hægt er að ganga um garða og skoða sig um. Þar er gagna- grunnur með yfir 2200 tré, mnna og blóm. Hægt er að bæta við það safn eigin plöntum eða flytja úr öðrum forritum. Einnig em á boðstólum forritin Garden encyclopaedia 2 og Perfect plants. Fiflabaninn útrýmir fíflum og öðru illgresi úr grasflötum og notkun hans gerir illgresislyf óþörf. aukaafslátt af smáauglýsingum Smáauglýsingar r»s*i 550 5000 GX302 GR450 GR345 BLACK&DECKER ______ i ■ _ GARÐSLÁ TTUVÉLAR kr. 18.900,- kr. 47.900.- kr. 19.800.- kr. 39.900.- kr. 69.900.- *: KEÐJUSÖG GK1635T GARÐURINN 99 Rafmagn i garðinn er besti og umhverfisvænasti kostunnn sem völ er á i dag. Black & Decker em fremstir í flokki med rafknúin garöáhöld. garösláttu- vélar, kantskera, limgerðisklippur, mosatætara, garðkvarnir, keöjusagir, laufblásara og laufsugur. 1. kr. 6.900.- GL580 GLC120 SINDRI V E R S L U N Borgartúni 31 -105 Rvík • sími 575 0000 fax 575 0010 • www.sindri.is GARÐKVARNIR «

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.