Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1999, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 9. JUNI 1999
11
DV
Fréttir
Ólafur landlæknir gerist
læknir í Rockville
- unniö aö innréttingu ratsjárstöövar fyrir meöferö á ölkum
Jónsson rekur.
Olafur Olafsson.
Geysilegar skemmdir voru unnar á
mannvirkjum í Rockville og ýmsu
stolið eftir að radarstöð Atlantshafs-
bandalagsins var lögð niður. í stöðinni
munu á annað hundrað alkar frnna
leið út i eðlilegt líf á vegum Byrgisins,
mannúðarsamtaka sem Guðmundur
Stolið hefur ver-
ið sturtubotnum,
vöskum og salem-
isskálum og auk
þess miðstöðv-
arofnum. Flestar
rúður í bygging-
um hafa verið
brotnar. Vamar-
liðið hafði skipt
um flest allt inn-
anhúss 7-8 mánuð-
um áður en reksturinn var aflagður og
var allt eftir evrópskum stöðlum. Unn-
ið er hörðum höndum við að innrétta
upp á nýtt. Fyrrverandi landlæknir,
Ólafur Ólafsson, hefur sýnt hugsjónum
Byrgisins mikinn áhuga og gefíð
grænt ljós á að verða læknir heimilis-
ins í Rockville þegar það verður opnað
2. september næstkomandi enda þótt
hann hafl fengið önnur atvinnutilboð.
Guðmundur Jónsson, gamall alkó-
hólisti, stofnaði Byrgið ásamt fleirum.
Hann segir að tapið af völdum þjófh-
aða og skemmdarverka sé mikið. Fjöl-
mörg fyrirtæki hafi komið Byrginu til
hjálpar og útvegað ýmislegt það sem
stolið var eða brotið. Félagar og fleiri
vinni nú að innréttingu. Þannig hafa
Glerborg og Kiwanisklúbburinn Brú á
Valtýr Ómar Guðjónsson stendur við brotna rúðu í Rockville.
Keflavikurflugvelli gefið tvöfalt gler, 90
rúður, í stað þeirra sem brotnar voru.
Þá hefúr Flugstöð Leifs Eirikssonar
gefið allan tækjabúnað í eldhús. Hita-
veita Suðumesja hefur líka reynst
Byrginu góður stuðningsaðili varðandi
rafmagn. Mörg fleiri fyrirtæki, einkum
í Keflavík, hafa lagt þeim félögum lið.
Guðmundur segir að þeim í Byrginu
þyki afar vænt um stuðning Ólafs
landlæknis og þann áhuga sem hann
og fleiri hafa sýnt málefninu. „Að fá
hann í okkar hóp er afar mikilvægt,"
sagði Guðmundur Jónsson. Hann segir
að fleiri góðir
kraftar séu á leið-
inni, meðal
þeirra Pálmi
Benediktsson,
áfengisráðgjafi í
Danmörku.
„Það stóð til að
eyðileggja mann-
virkið, enginn
virtist hafa áhuga
á því. Líklega
hefði það verið
sprengt upp af
norskri víkinga-
sveit sem liður i
heræflngu en svo
verður ekki.
Reyndar leit þetta
út eins og eftir
slilca árás því
krakkamir í ná-
grenninu höfðu
gert sér að leik að
brjóta rúður,
töldu það í lagi
þar sem ætti að
rífa þetta hvort eð
var,“ sagði Guð-
mundur Jónsson.
Nú er unnið að
því að koma „ís-
lensku rafmagni“ í Rockville, 220 volt
koma í stað 110. Byrgið starfar nú í
Hafnaríirði og í Hlíðardalsskóla í Ölf-
usi. í Ölfúsinu lýkur rekstri í ágústlok,
eins og ráðgert var, en í Hafnarfirði er
Byrgið ekki velkomið, að mati Guð-
mundar. Hann segir að bæjaryfirvöld
vilji nú rífa húsið að Hvaleyrarbraut
23. Byrgið á að hypja sig en ekki benda
bæjaryfirvöld á neitt húsnæði i stað-
inn fyrir þá 20 einstaklinga sem þar
eiga athvarf. -JBP
DV-mynd Arnheiður
Báruplast
Sterkt og endingargott
bórupiast úr glœru og
tœru höggþolnu Acryl
plastgleri. Hefur sama
form og bárujórn og því
einfalt aö leggja.
Háborg
ÁL OG PLAST
Skútuvogi 6 Sími 568-7898
Fax 568-0380 og 581-2140
-8ára
Sími: 587 9699
S.S. GUNNARSSON HF.
VELSMIÐJA
Rennismíði - vélsmíði
Dráttarkúlur - Varahlutir í fiskvinnsluvélar
Tannhjól - Ásar - Fóðringar
Nipplar -Valsar - Slífar
Eigum á lager ryðfrítt vökvafittings.
Framleiðum eftir pöntunum.
Fljót og góð afgreiðsla.
S.S.G
,'M:Luh:i:ij=.w=
Trönuhrauni 10, Hafnarfirði. Sími 555 3343. Fax 565 3571. GSM 898 7449
Fjöldi rafvirkja sem útskrifast hafa frá Johan Rönning hf. hittist nýlega og
minntist gamalla og góðra daga. Annar frá vinstri í fremstu röð er Jón
Magnússon, stjórnarformaður Johans Rönnings. Hann bauð til hófsins.
DV-mynd Jóhannes Long
Lærlingar Johans Rönnings:
Öllum rafvirkjun-
um boðið
: Johan Rönning hf. bauð nýlega til
hófs öllum núlifandi rafvirkjum
sem lært hafa hjá fyrirtækinu frá
stofnun þess. Yfir sjötíu rafvirkjar
hafa lært hjá fyrirtækinu en um
þrjátíu hittust og minntust gamalla
og góðra daga.
Stofnandi fyrirtækisins, Johan
Rönning, var norskur maður, fædd-
ur árið 1894. Hann kom til íslands
árið 1921 á vegum Elektrisk Bureau
A/S til að annast uppsetningu og
tengingar á lag- og háspennukerfi
Rafveitu Reykjavíkur við Elliðaár-
stöðina og spennistöðvar í Reykja-
vík.
Johan Rönning hóf sjálfstæðan
atvinnurekstur hérlendis á fjórða
áratugum og samnefnt hlutafélag
hefur verið starfrækt frá árinu
1941 og er enn öflugt á sínu sviði.
Johan Rönning lést árið 1978.
Rafvirkjamir sem útskrifuðust
frá Johan Rönning hafa alltaf
haldið hópinn og hafa hist við
ýmis tækifæri undanfarna ára-
tugi. Þeir höfðu því frá ýmsu að
segja enda margs að minnast.
Hluti hópsins sem hittist starfar
enn við fagið en margir era komn-
ir á eftirlaun.