Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1999, Síða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1999, Síða 32
Áldraumar á Austurlandi James F. Hensel, aðstoðarfor- stjóri Columbia Ventures, eiganda Norðuráls á Grundartanga, var á ,Jíerð um Austurland í gær ásamt fylgdarliði til að kanna aðstæður vegna fyrirhugaðrar byggingar ál- vers á Reyðarfirði. Columbia Ventures hefur lýst yfir áhuga á að eiga og reka álver á Reyðarfirði. Næstu skref aðstoðarforstjórans eru viðræður við innlenda ráðherra iðnaðar- og utanríkismála og verða þær væntanlega i dag samkvæmt upplýsingum úr höfuðstöðvum Norðuráls á Grundartanga. -EIR Avaxta- og ferðamannaskip Þriðja ferðamannaskip ársins var við Miðbakkann í gær, Black Prince frá norska reiðaranum og auðkýfingnum Fred Olsen. Farþegar eru einkum eldri borg- arar frá Bretlandseyjum. Skemmtiferðaskip verða færri hér við land í sumar en áður, líklega 37 talsins, skipafélög hafa verið seld og eitt fór á hausinn. Far- þegar sem hingað koma verða um 22 þúsund. Svarti prinsinn er gamalt og öruggt skip sem flutti ávexti fyrir Norðmenn frá Kanaríeyjum - og líka ferðamenn. DV-mynd GVA Vafasamar fjárfestingar lífeyrissjóða á Vestfjörðum og í Vestmannaeyjum: Fjármálaeftirlitið krefur sjóðina skýringa - vegna hlutabréfakaupa í Vinnslustöðinni og Básafelli Fjármálaeftirlitið hefur ritað bréf til stjórna Lífeyrissjóðs Vestfirðinga og Lífeyrissjóðs Vestmannaeyja þar sem sjóðirnir eru krafðir skýringa vegna fjárfestinga í heimafyrirtækj- um. Með þessu er ljóst að Fjármála- eftirlitið setur stórt spurningar- merki við að fjárfestingar sjóðanna tveggja séu innan þess ramma sem eðlilegt geti talist. Eins og DV hefur greint frá keypti Lífeyrissjóður Vestmanna- eyja stóran hlut í Vinnslustöðinni á dögunum og á sjóðurinn nú um 11,5 prósent í fyrirtækinu sem glímir við mikla rekstrarerfið- leika. Háværar raddir eru meðal sjóðfélaga í Eyjum um að þessi kaup geti ekki talist eðlileg og spurt er hvort verið sé að hygla einhverjum hluthöfum með því að kaupa bréf á yflrverði. Lífeyrissjóður Vestfirðinga keypti nýlega stóran hlut í sjávar- útvegsfyrtækinu Básafelli á ísa- firði og boðað er að meira verði keypt. Þau kaup eru einnig um- deild og hafa sjómannafélög á Vestfjörðum og í Eyjum krafist skýringa. Þá liggur í loftinu að fé- lög gangi hugsanlega út úr sjóð- unum vegna þessara mála, sem og skerðinga sem samþykktar hafa verið á útborganir til sjómanna. Það þykir engin tilviljun að sjóð- irnir fjárfesta í fyrirtækjum i heimabyggð og meiningar eru uppi um að þar ráði ekki eðlileg ávöxtunarsjónarmið heldur byggðasjónarmið og átök um völd innan fýrirtækjanna. Bent er á að stjórnir lífeyrissjóða hafi þá laga- skyldu að ávaxta fé sjóðfélaga samkvæmt bestu fáanlegu þekk- ingu. Þá er varað við því fordæmi sem sjóðstjómir gefi með þvi að fjárfesta í umræddum fyrirtækj- um. Önnur fyrirtæki í svipaðri stöðu gætu fylgt á eftir og borið víumar í fé sjóðfélaga. -rt/-BMG Pitsustaðir: Sumarflöskur valda hrolli Eigendur fjögurra pitsustaða, Pizzahússins, Pizzakofans, Hróa hattar og Pizza 67 hafa krafist þess að Vífilfell, framleiðandi Coca Cola, afgreiði til þeirra ómerktar flöskur í stað þeirra sem merktar eru sumarflöskur. Ástæða þessa er að meðal vinninga í sumarleik Coke er pitsuveisla frá Dominos pizzum. Merki þess fyrirtækis er á flöskunum og una umræddir stað- ir því ekki að bera í hús auglýs- ingar samkeppnisaðilans. Eigend- ur umræddra staða fimduðu í gær með Jóni Magnússyni lögmanni um málið en þeir treysta sér ekki til að henda kókinu út af ótta við að tapa viðskiptum. Slík sé yfir- burðastaða kóksins hjá neytend- um. „Coke gaf og Coke tók,“ sagði einn forsvarsmanna staðanna fjög- urra í morgun. -rt Frá slysstað. DV-mynd HH Beið bana á Reykjanesbraut Sautján ára piltur beið bana á Reykjanesbraut skömmu eftir klukkan sjö í gær. Pilturinn var að ■**keyra austur Reykjanesbraut þegar bifreið hans skall á vörubíl sem kom úr gagnstæðri átt. Slysið átti sér stað milli Vífilsstaðavegar og Hamrabergs. Bifreiðin sem piltur- inn var á gjöreyðilagðist en vöru- bíllinn skemmdist lítið. -ES íslenskur varn- armúr í Moskvu DV, Moskvu: Guðjón Þórðarson, landsliðs- þjálfari í knattspymu, tilkynnti í morgun byrjunarlið sitt fyrir Evrópuleikinn gegn Rússum sem hefst kl. 15 að íslenskum tima. ^ Ttann stillir upp sannkölluðum vamarmúr, fimm manna vörn og tveimur varnarsinnuðum miðju- mönnum þar fyrir framan. Þessir em í byrjunarliðinu: Birkir Kristinsson, Auðun Helga- son, Lárus Orri Sigurðsson, Sigurð- ur Jónsson, Pétur Marteinsson, Hermann Hreiðarsson, Brynjar Bjöm Gunnarsson, Eyjólfur Sverrisson, Rúnar Kristinsson, Þórður Guðjónsson og Ríkharður Daðason. MikO hitasvækja er í Moskvu, um 30 stiga hiti, loftið rakt og nokkuð mengað. Leikurinn hefst kl. 19 að staðartíma og þá ættu skilyrðin að vera orðin eitthvað betri. 'Tí Sjá nánar á bls. 16 og 33. -JKS FRETTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 FRJALST, OHAÐ DAGBLAÐ MIÐVIKUDAGUR 9. JUNI 1999 Veðrið á morgun: Gott fyrir austan Á morgun verður suðaustanátt, 8 til 13 m/s og súld suðvestan og vestan til en annars sunnan 5-8 m/s og léttskýjað. Hiti verður á bilinu 9 tO 18 stig, hlýjast norð- austan tO síðdegis. Veðrið í dag er á bls. 45 Tölur viö víndörvar svna vindhraöa í metrum á sekúndu. STÓRSÝNING Bfla- og búvélasýningar Ingvars Helgasonar og Bflheima um landió Á morgun þriójud. 8. júní Kirkjubæjarklaustur 9-11 Vík....................... 13-15 Hvolsvöllur......... 16.30-19.30 Bflheimar ehf. Savarhötða 2a - SM S2S 9000 www.Mheimar.ii

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.