Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1999, Page 15
MIÐVIKUDAGUR 9. JÚNÍ 1999 ;_____
Kví Keikós
- og annað spennandi í Eyjum
Skoöunarbátnum Víkingi í Vestmannaeyjum er stjórnaö af
Ólafi Jónssyni sem einnig gerir hann út ásamt Jóhanni bróð-
ur sínum og Eyjólfi Guðjónssyni frænda þeirra.
Skoðunarferðir í kringum Vest-
mannaeyjar byggja á gamalli hefð
og eru fyrir löngu orðnar fastur lið-
ur í móttöku ferðamanna. Ólafur og
hans menn bjóða m.a. upp á sigl-
ingu í kringum Heimaey sem er
ægifogur að líta af sjó. Himinhá
björgin rísa þverhnípt upp af sjón-
um iðandi af fuglalífl sem óvíða er
fjölbreyttara. Siglt er inn í hella
eins og Fjósina í Stórhöfða, Kletts-
helli í Ystakletti, þar sem gestir fá
að njóta einstakra hljómgæða í
hljóðfæraleik, og í helli í Hænu þeg-
ar vel viðrar. Þá er síðast en ekki
síst siglt að kví Keikós í Klettsvík.
Ólafur segir að sigling í kringum
Heimaey sé alltaf jafnvinsæl. „Þó að
við auglýsum
ferðimar ekki
sérstaklega
sem hvalaskoð-
unarferðir er
alltaf mikið um
hval í kringum
Vestmannaeyj-
ar. Frændur
Keikós, há-
hymingamir,
era einna mest
áberandi en við
sjáum líka af
og til stórhveli.
Hvalir hafa
verið sérstak-
lega áberandi í
sumar og eru
fáar ferðirnar
sem ekki er
eitthvað að sjá.
Hvalimir era
því góður bón-
us fyrir þá
sem koma
með okkur,“
sagði Ólafur.
Besti golfvöllur
landsins í Eyjum?
Á síðasta ári voru 60 ár frá því
að byrjað var að leika golf með
skipulögðum hætti í Vestmanna-
eyjum en á þessum grunni byggir
Golfklúbbur Vestmannaeyja öflugt
starf sitt í dag. GV hefur í nokkur
ár boðið upp á 18 holu völl sem
nýtur sífellt meiri vinsælda
golfleikara.
„Við njótum þess að völlurinn
okkar er sá fyrsti á landinu sem
tilbúinn er í slaginn á vorin," seg-
ir Ævar Þórisson framkvæmda-
stjóri klúbbsins. „Við vorum t.d.
með fyrsta stigamótið í íslensku
mótaröðinni í ár. Þá reynum við
að bjóða upp á ýmsar nýjungar til
aö laða til okkar fólk, bæði af fasta-
landinu og erlendis frá,“ bætir
hann við.
Þarna á Ævar t.d. við Hjón og
paradís um næstu helgi, sem eins
og nafnið bendir til er ekki síst
ætlað hjónum og pöram. Helgina á
eftir er opna Cantat 3-mótið þar
sem fjöldi góðra verðlauna er í
boði. „Við hugsum líka um unga
fólkið og bjóðum upp á það sem við
köllum Golfævintýri um mánaða-
mótin júní og júlí. Það er golf-
kennsla og golfkeppni fyrir 9 til 16
ára kylfinga. Svo er það opna
Volcano-mótið 9. til 11. júli sem
nýtur sífellt meiri vinsælda, ekki
síst erlendra kylflnga. Svo er alltaf
hægt að bregða sér til Eyja og taka
nokkra hringi á vellinum okkar.
Það verður enginn svikinn af því,“
sagði Ævar að lokum. -ÓG
Golfvöllurinn i Eyjum þykir með þeim betri og hann
glimdu drottningarnar við.
Vissir þú - að Hveragerði er góður staður til búsetu,
fjarri ys og þys höfuðborgarsvæðisins, en þó rétt innan
seilingar I
Vissir þú - að Hvcragerði er bær menningar og lisfa!
Víssir þú - að markvisst er unnið að uppgræðslu
og fegmn í Hveragerði 1
ViSSÍr þú - að í Hveragerði og nágrenni eru fallegar
gönguleiðir sem henfa allri fjölskyldunní!
Vissir þú - að Sundlaugin í Laugaskarði státar af
náttúrulegu gufubaði, nuddpotti og potti fyrir börnin !
Ell eitt veistu - að í blómabænum færð þú blóm
og ferskt grænmeti og nýtur góðrar þjónustu.
Vertu velkomin(n) !
Sundlaugin í Laugaskarði