Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1999, Side 16
Í2
% Suðurland
Eyrarbakki:
.Verslun Guölaugs
Pálssonar endurgerö
Um þessar mundir er unnið að því að endurgera eitt þekktasta hús
Eyrarbakka þar sem verslunarmaðurinn kunni, Guðlaugur Pálsson, rak
verslun sína í yfír sjötíu ár.
Jón Karl Ragnarsson
Guðlaugs.
smiður við gamla peningaskúffu
„Húsið var byggt af Þórdísi
Símonardóttur ljósmóður
árið 1887 en 1896 eignaðist
Helga Sigurðardóttir það og
hún breytti þaki hússins og
byggði við það skúr. Það
var íbúðarhús til ársins
1919 þegar Guðlaugur
keypti það og
breytti því í
verslun. Árið
1949 byggði hann
íbúðarhús ofan á
það og gerði á
því margvíslegar
breytingar," seg-
ir Magnús Karel
Hannesson sem
nýlega festi kaup
á húsinu.
Magnús og eig-
inkona hans, Inga Lára Baldvinsdótt-
ir, stefna að því að ná þeirri mynd á
húsið sem það var í árið 1919. Þau
ætla sér að endurgera verslunarinn-
réttingarnar í húsinu. Aðspurður um
það hvað eigi að gera við húsið segir
Magnús það ekki alveg ákveðið en í
því verði líklega einhvers konar þjón-
usta fyrir ferðamenn, safnverslun eða
ferðamannaverslun.
Smiðurinn, Jón Karl Ragnarsson,
sagði þar sem hann var við störf við
húsið að ástandið á því væri ótrúlega
gott. Þá sagði hann að markmiðið
væri að klára húsið að utan í sumar
og hefja vinnu inni í því í vetur.
Hjónin eiga nú alls þrjú hús á Eyr-
arbakka sem verður að teljast óvenju-
legt. Upphaflega keyptu þau Eyrar-
götu 46a, þar sem þau búa, svo eignuð-
ust þau Eyrargötu 46b, sem þau nota
sem eins konar gestahús, og nú síðast
keyptu þau húsið sem verslun Guð-
laugs var í, Eyrargötu 46.
„Þetta höfum við gert ein og óstuddd
og enga styrki fengið tO þess en aftur á
MIÐVIKUDAGUR 9. JÚNÍ 1999
Húsið er ekki frýnilegt á að líta en það stendur til bóta
DV-myndir: Hilmar Þór
móti hafa ættingjar og vinir aðstoðað,
t.d. við að rífa síðasta húsið og sú hjálp
verður ekki metin til fjár.“ Magnús
segir að þau hjónin séu vissulega
áhugafólk um gömul hús en það eigi
einnig þátt í kaupum þeirra að Húsið,
sem geymir Byggðasafn Árnesinga, sé
perla sem þurfi þokkalega umgjörð.
„Á síðustu 10-15 árum hefur orðið
vakning í því að endurbæta gömlu
húsin hér á Eyrarbakka. Húsin eru
flest alþýðuhús sem búið er í, þó ekki
allan ársins hring. Mörg þeirra eru í
eigu Reykvíkinga." Ferðamenn koma
í auknum mæli á Eyrarbakka og að-
dráttaraflið er ekki síst hin gamla
götumynd sem er einkar töfrandi.
Andi liðins tíma hrífur, kyrrðin og
róin sem og nálægðin við náttúruna
og haflð. -þor
Vlf> SUÐURSTRONDINA
Kajaksiglingar fyrir alla um fjöruna og vötnin,
heimkynni sela og fugla. Einstök náttúruupplifun.
^úsinu V/ð fj{jhl
Verið velkomin
í nýja og fallega verslun
Eina safnið,
sinnar tegundar á Islandi
Opið í júlí og ágúst
lau. oq sun. kl.13-18
Nuddpottur og vaðlaug
I lumar og rómantík
i sérsiökú umhverfi.
[Versluifi
oB
WmmSSBSt \ ':li 1
z.
5
J*:
O
CQ
Ul
i