Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.1999, Side 18
18
FÖSTUDAGUR 11. JÚNÍ 1999
Sport
DV
Á ÍA-ESSO sundmótinu voru veitt sérstök hvatningarverðlaun fyrir það lið sem var umhverfisvænst, jákvæðast og prúðast og voru það starfsmenn mótsins
sem völdu liðið. Að þessu sinni bar lið Vestra sigur úr býtum. DV-mynd DVÓ
Njarðvík sigraði á ÍA-mótinu í sundi sem fór fram fyrir stuttu:
Syntu til sigurs
Helgina
4.-6. júní
fór fram
hið árlega
ÍA-ESSO-
sundmót í
Jaðars-
bakka-
laug
Akranesi
og er
þetta í 11.
sinn sem
mótið er
haldið.
Að
þessu
sinni mættu 360 keppendur
til leiks frá 18 félögum sem
syntu og skemmtu sér í
rjómablíðu. Þátttakan á þessu
móti var með besta móti mið-
að við undanfarin ár. Keppt
var í 42 greinum, í einstak-
lings- og liðakeppni.
Mótið fór í alla staði mjög
vel fram og keppendur undu
sér vel við frábærar að-
stæður.
Þetta mót var frábrugðið
öðrum ÍA-Esso-sundmótum
þar sem margir af sterkustu
sundmönnum SH og Keflavík-
ur voru í æfingabúðum er-
lendis og voru ekki með. Auk
þess var
Kolbrún
Ýr Krist-
jánsdótt-
ir er-
lendis.
Þrátt fyr-
ir það
náðist
ágætis
árangur
á mót-
inu. Það
fór svo
að Njarð-
víkingar
komu,
sáu og sigruðu á mótinu en
þeir enduðu efstir að stigum í
liðakeppninni og Jón Oddur
Sigurðsson, einnig úr Njarð-
vík, var valinn sundmaður
mótsins.
Úrslit
i liðakeppni á ÍA-sund-
móíinu á Akranesi:
1. UMFN, 380 stig
2. KR, 255 stig
3. SH, 236 stig
4. ÍA, 200 stig
5. Ármann, 141 stig
6. UBK, 150 stig
7. Vestri, 41 stig
8. Keflavik, 38 stig
9. Óðinn, 36 stig
10. UMSB, 28 stig
11. Stjaman, 25 stig
12. UMFA, 24 stig
13. Fjölnir, 23 stig
14.. Rán, 16 stig
15. UMFT, 12 stig
16. Þjótur, 6 stig
17. IBV, 4 stig
18. Umf Glói, 3 stig
Stórefni
Jón Odd-
ur Sigurðs-
son, Njarð-
vík, var
valinn
sundmaður
mótsins á
Akranesi
og kom
það honum
sannarlega
á óvart.
„Ég tók þátt í 13 greinum, sigr-
aði í sjö, fékk fimm silfur og eitt
brons. Ég var samt ekki ánægð-
ur því ég bætti mig ekki í bestu
sundgreinunum mínum, bara í
hinum. Ég er i mun betra formi
en í fyrra þannig að þetta er allt
á uppleið. Fram undan er að æfa
sund eins lengi og ég mögulega
get. Ég tek þátt í AMÍ-
(aldursflokkamóti íslandsjmót-
inu í Borgamesi i sumar en veit
ekki í hvernig formi ég verð þar
sem ég verð erlendis áður en
keppnin verður haldin," sagði
þessi ungi sundmaður úr Njarð-
vík sem á svo sannarlega bjarta
framtíð fyrir sér í sundinu.
-DVÓ
Ánægðar
Þær Gunnfríður Ólafsdóttir og
Júlíana Þóra Hálfdánardóttir úr
Borgamesi voru yfir sig ánægð-
ar að fá að taka þátt í ÍA-sund-
mótinu og skemmtu sér vel. Þær
náðu ágætisárangri og ætla að
standa sig enn betur á aldurs-
flokkamóti íslands sem fer fram
dagana 25.-27. júní í Borgamesi.
Gunnfríður og Júlíana byrj-
uðu að æfa sund þegar þær voru
fimm eða sex ára gamlar og nú
æfa þær fjórum sinnum í viku
við mjög góðar aðstæður í nýju
útisundlauginni i Borgarnesi.
Það kemur ekkert annað til
greina en að halda áfram að æfa
sund og feta í fótspor Kolbrúnar
Ýrar, landsliðskonu íslands í
sundi, en hún er líka frá Borgar-
nesi. -DVÓ
Ægmms
ÉHfc, j
Fylkismenn urðu Reykjavíkurmeistarar í 3. flokki karla. Efri röð frá vinstri: Hörður Guð-
jónsson þjálfari, Guðmundur Ingi Björnsson, Ólafur Ingi Skúlason, Baldur Örn Arnarson,
Steinar Páll Magnússon, Þorsteinn Lár Ragnarsson, Brynjar Harðarson, Kristleifur Hall-
dórsson og Elmar Ásbjörnsson fyrirliði. Fremri röð frá vinstri: Jónas Guðmannsson,
Kristján Valdimarsson, Þórir Björn Sigurðarson, Andri Óttarsson, Bjarki Smárason, Hj'ör-
leifur Gíslason, Andri Andrason og Bjarni Þórður Halldórsson. DV-mynd ÍBE
Reykjavíkurmeistarar Vals í 2. flokki kvenna: Aftari röð frá vinstri: Elísabet Björnsdóttir, Þóra Bjarna-
dóttir, Hrafnhildur Arnórsdóttir, Ingunn Einarsdóttir, Fanney Jónsdóttir, Rakel Þormarsdóttir, Rakel
Logadóttir, Erla Þórisdóttir og Jóhanna Guðmundsdóttir. Fremri röð frá vinstri: Guðný Þórðardóttir, Rut
Bjarnadóttir, Guðrún Guðmundsdóttir, Guðbjörg Sigurðardóttir, Maríanna Þórðardóttir, Þóra Rögn-
valdsdóttir, Kristín Sigurðardóttir fyrirliði, Rakel Halldórsdóttir, Lilja Valþórsdóttir og Halldóra Guð-
mundsdóttir. Á myndina vantar Ernu Erlendsdóttur. Aftastur er þjálfarinn, Ásgeir H. Pálsson.
Léttur sigur
Fylkisdrengir unnu mjög sannfærandi
sigur í Reykjavíkurmótinu í
knattspyrnu. „Þetta var mjög léttur sig-
ur og við unnum öll liðin í Reykjavík
sem við kepptum á móti. Við erum með
mjög sterkan hóp og stefnum langt í
sumar,“ sagði Elmar Ásbjömsson, fyrir-
liði Fylkis.
„Hörður (þjálfari) er búinn að ná mjög
góðum árangri með þetta lið. Við urðum
líka Reykjavíkurmeistarar innanhúss,"
sagði Elmar ánægður að lokum.
Reykjavíkurmótinu í knattspyrnu lokið:
Sjö lið fengu bikar
Boltinn er svo sannarlega farinn að rúlla hjá
yngri flokkunum í knattspymu og var fótbolta-
sumarið opnað með Reykjavíkurmótinu í
knattspymu.
í kvennaflokki vora KR-stúlkur sigursælast-
ar en þær sigmðu bæði í 3. og 4. flokki. Báðir
aldursflokkar spiluðu stórkostlega vel og unnu
alla sína leiki. í 2. flokki kvenna sigraði hið
feiknasterka lið Vals sem fór líka taplaust í
gegnum mótið.
í karlaflokki skiptust verðlaunin á milli
margra sterkra Reykjavíkurliða. KR átti þar
einnig nokkra meistara, þar á meðal í 2. flokki
karla. Fylkir sigraði hins vegar í 3. flokki karla
með því að sigra öll Reykjavíkurliðin sem liðið
keppti við. ÍR sigraði í hópi 4. flokks, bæði A-
liða og 7-manna liða. í 5. flokki A sigraði Fram,
en Fjölnir í B-liðum, KR í C-liðum og Leiknir í
D-liðum. -ÍBE
Unnu án
markmanns
Valsstúlkur unnu alla leiki sína á Reykjavík-
urmótinu í knattspyrnu þrátt fyrir að í lið
þeirra vantaði mikilvægan leikmann. „Við vor-
um ekki með markmann í öllum leikjunum,"
sagði Kristín, fyrirliði Valsstúlkna. Þrátt fyrir
það klámðu þær mótið með markatöluna 28:2.
„Þetta var frekar létt nema hvað KR var erf-
iðasti andstæðingurinn. Við spilum vel saman
og það er styrkleiki liðsins," sagði Kristín.