Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1999, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1999, Blaðsíða 7
hverfandi fyrirbæri Sjopþurnar hverfa. Þeim hefur fækkað um nær helming á ellefu árum. Rúm 20% á fimm árum. Við erum að horfa upp á gamla sjoppukarlinn deyja út. Þessi karl, sem var um tíma ein af undirstöðum borgarasamfélagsins, víkur fyrir litlum stórmörkuð- um eða risavídeóleigum. Eftir sitjum við, fólkið sem nennir ekki að hanga í sjoppum. einni viku - og 25 á leiðinni? Þeir sem á annað borð búa í Reykjavík hafa örugglega tekið eftir þvi að það er alltaf verið að loka einhverri sjoppu. Mjög sorglegur ef ekki hræðilegur atburður sem snertir okkur öll. Hver kannast ekki við að hafa horft á eftir sinni sjoppu fara í súginn? Þetta byrjar yfirleitt þannig að gamli eigandinn sér að reksturinn ber sig ekki leng- ur og selur sjoppuna. Nýi eigandinn ætlar aldeilis að vera almennilegur og með þjónustuna í lagi. Sjoppan alltaf hrein og hillumar úttroðnar af vörum, keyptum með þungbæm bankaláni. Þá hefst hnignunin. Reksturinn ber sig ekki með þjón- ustunni einni saman. Samkeppnin er hörð. Súpermarkaðir og risa- sjoppur með videóleigum eiga markaðinn. Kúnnarnir hætta að fá sígarettumar sínar - þær em stað- greiddar hjá ÁTVR. Nokkmm vik- um eða mánuðum seinna er búið að loka enn einni sögufrægri sjoppu og þú kaupir þér súkkulaði og plastkók í Bónus. Fækkað um meira en helming Egill Helgason blaðamaður er Ragnar skjálfti sjoppumenningar- innar. Hann gerði heimildarmynd um sjoppukúltúrinn fyrir ellefu árum og hefur ætið verið mikill áhugamaður um sjoppur í Reykja- vík. „Ég sá nú um daginn að Ciro- sjoppan við Bergstaðastræti var lokuð og þá erum við eiginlega komin á botninn," segir Egill þegar slengt er framan í hann tölfræðinni varðandi fækkun sjoppa en þegar hann gerði umrædda heimildar- mynd voru 170 sjoppur í Reykjavík einni þannig að fækkunin er geig- vænleg. „Flórída er líka lokuð og það merkir að þessi hlekkur við framherjanna er að rofna,“ heldur Egiil áfram og útskýrir enn fremur að hér fyrir tíu, fimmtán ámm hafi verið ein sjoppa á hverja 550 íbúa en nú era þær meira en helmingi færri. 60 ára gömul sjoppa „Stórmarkaðimir em opnir fram eftir kvöldi og það hefur sín áhrif,“ segir Kristján Einarsson, eigandi sölutumsins Hallans við Mennta- skólann í Reykjavík. „Við þessir litlu erum síðan látnir greiða her- kostnaðinn því stórinnkaup mark- aðanna fela í sér magnafslátt." Hvaó hefur Hallinn veriö starf- andi lengi? „Þessi sjoppa er að verða yfir 60 ára gömul. Ég er 64 ára og alin upp hér í hverfinu og man eftir þessari sjoppu í æskuminningunni. Þá hét hún Freyja og seldi vínarbrauð og snúða. Þá var minna um svona söluturnavörur, eins og eru alls- ráðandi núna.“ En hvernig gengur reksturinn? „Ágætlega á veturna. Við höfum MR, Kvennó og Tjamarskóla þá og maður finnur fyrir því þegar þetta dettur niður á sumrin," segir Krist- ján og þess má geta að á sumrin er Hallinn bara opinn á daginn. Hetjur og mikilmenni „Sjoppuhangsið var þekkt fyrir- bæri hér ámm áður,“ útskýrir Eg- ill Helgason og bætir því við að hangsið hafi byrjað upp úr stríðinu. „Böm, unglingar og jafnvel fullorðið fólk hékk í sjoppum og þetta þótti rótlaus borgarlýður. Yfirvöld töldu þetta mjög Síðasta vígi sjoppanna, Ciro, var iokað um daginn og ef karlinn í Ciro lifir þetta ekki af þá eiga allir sjoppukariar veraldar eftir að gefast upp fyrir stórmörkuöunum. „Fiórída er líka iokuð og það merkir að þessi hlekkur við frumherjana er að rofna,“ segir Egill Helgason, Ragnar skjálfti sjoppanna. Lúgu- sjoppan Flórída er á Hverfis- götu. Húsnæðið hefur staðið autt í nokkur ár. Þessi hefur heitið þónokkrum nöfnum. Langholtsvegur 142. Var Bónusvídeó síðustu tvö árin sín. Húsnæðið stendur autt og hefur gert undanfarið ár. Enn einn sorgaratburður- inn. Örnólfur á Snorra- braut, dauður og tröllum gefinn. Reykjav í k í vikunni meikuðu Selma og Svala það og líka Sigur Rós og Barði Bang Gang. Að meika það þýðir í þessu tilfelli ekki að slá í gegn, heldur að geta búist við því að poppa salti í grautinn næstu mánuði og ár. Þetta er markmið sem allir popparar stefna að. Fyrst þurfa þeir að vinna við einhver leiðindi (eins og við hin) en svo hringir bjallan, Stöð 2 birtir frétt- ina og meikið er dunið á: Hægt verður að einbeita sér að poppinu í einhvem tíma eða þangað til er- lendu fyrirtækin sjá að ekkert gengur í alvöru meikinu og spýta listamönnunum út eins hratt og þeir vora teknir inn. En það á auðvitað alltaf að halda í vonina og búast við að allt gangi eins og blómstrið eina. Eftir þrjú ár gæti meikfrétt dagsins í Mogganum þess vegna litið svona út: Sigur Rós enn einu sinni með uppselda tónleika í London, nýtt lag með Bang Gang beint á topp- inn í Frakklandi, Svala enn í fyrsta sæti í Bandaríkjunum og Selma að gera nýtt myndband í Katmandu. Þessu til viðbótar verða svo tuttugu og fimm aðrir búnir að meika það og litið verður á ísland sem popphreiður Norð- ursins. Það er heldur enginn pípu- draumur. Án útbelgs þjóð- rembings er hægt að full- yrða að við s t ö n d u m h r i k a 1 e g a framarlega í poppinu og það þarf m.a.s. ekki að miða við höfðatöl- una. Sjáið t.d. bara Dani. Hvaða poppara eiga þeir af viti? Hvernig stendur eiginlega á þessu með okkur? Danir eru með sinn „Janteloven“-móral í gangi, þar sem allt gengur út á hangs og bjórdrykkju og fint er að allir séu jafnir í meðalmennskunni. Þar er líka allt flatt og flatneskjan í fólk- inu því landlæg. Hér höfum við freistandi fjöll á alla kanta og alltaf er eitthvað til að stefna að þó það sé ekki nema að komast upp á E^juna í sumar. í poppinu er sam- keppnin mikil og ekki snefill af meðalmennsku, þó poppararnir vilji ekki viður- kenna það og tali um bræðra- lag og kærleik. Það gengur bókstaflega og eðlilega allt út á það að meika það betur en næsti mað- ur. Það sem íslenskir popparar hræðast mest er háðið og spottið sem þeir verða fyrir ef þeir ana út í meikið og fara að básúna það of mikið. Þess vegna taka allir meik- inu af mikilli hógværð og gera sem minnst úr því. Hvað er svo sem til að monta sig yfir? Poppar- inn hefur fengið vinnu í útlöndum og verður annað hvort rekinn eða fær kauphækkun og lag á vin- sældalista. Við verðum að vona það besta og Fókus sendir nýjasta farmi af meikdollum stuðnings- kveðjur út í hákarlavatnið. eru líka horfnir. Svo og yngri menn á borð við Teit í Teitsjoppu við Gnoðarvog. Þetta em horfnar hetjur sem vom mikilmenni. En hér á árum áður gat ekki hver sem er opnað sjoppu. Menn þurftu að vera öryrkjar og helst fyrrum sjó- menn þar að auki. Það þótti líka plús að vera inn undir hjá Sjálf- stæðisflokknum eða einhverju slíku bákni. En nú má hver sem er opna sjoppu en samt virðast þær ekki vera að lifa af á þessum nýju tímum. Næsta öld stefnir því í að verða sjoppufátæk öld. -MT Kristján Einarsson í Hallanum finn- ur fyrir verri tíð í sjoppubransanum þrátt fyrir að hann sé á besta stað í bænum og sjoppan búin að vera þama í 60 ár. neikvætt og upp úr 1970 vom gerð- ar ráðstafanir gegn þessu og lög sett um að það yrði að selja sjoppu- góssið í gegnum lúgu.“ Það mætti segja að þá hafi hnign- unin byrjað fyrir alvöra. Flórida, á Hverfisgötu, er ein af þessum lúgu- sjoppum og þessi bókmenntalega sjoppa (Sigurður A. Magnússon talar um hana sem Gómóm freist- inganna) er nú farin á hausinn ásamt Simmasjoppu (það var þó reynt að flytja hana og varðveita en það tókst ekki). Karlar á borð við Leif einhenta og Litla karlinn 25. júní 1999 f ÓkUS 7

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.