Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1999, Blaðsíða 14
Hvernig
fannst þér
Matrix?
I kvöld verður frumsýnd hér á landi visinda-
skáldsögumyndin Matrix sem allir eru aö tala
um núna. Þetta er víst einhver rosalegasta
tæknibrellumynd sem sögur fara af og áhuga-
menn um brellur halda ekki vatni yfir henni.
Nokkrir íslendingar eru þegar búnir að sjá
hana á forsýningunni sem var um daginn. Fók-
us hafði samband við fjóra forsýningargesti og
spurði hvernig þeim fannst.
Ætla að sjá hana
8 sinnum í viðbót
Jón Atli Jónasson,
Guös á X-inu.
„Ég held að
sé einhver
veikasta mynd sem
ég hef séð á þessu
ári. Menn hljóta að
vera að grínast. Mynd-
in er brjálæðislega flott í alla
staði. í hléinu var ég í hreinlega í
leiðslu og vissi varla hvað ég var
búinn að horfa á. Keanu Reeves
stendur sig vel þó hann sé ekki
góður leikari yfirleitt. Tæknibrell-
urnar eru tiu sinum betri í Matrix
héldur en í Star Wars og ekki
hægt að líkja þessum tveimur
myndum saman. Maður trúir al-
gjörlega öllu sem fram fer á tjald-
inu. Það er óhuggulegt án þess að
vera ógeðslegt. Sumir vilja meina
að Matrix sé strákamynd en ég er
ekki sammála því. Þetta er mynd
fyrir nörda og stelpur geta alveg
eins verið nördar. Ég ætla að sjá
hana svona átta sinnum í viðbót."
Ótrúlega kúl og
brjáluð atriði
Óskar Þór Axelsson.
kvi kmyndagerðarmaöu r
„Mér fannst
rix mjög góð
ekki síður flott.
Hún er full af nýjum
atriðum sem maður
hefur aldrei séð áður.
Ég er einmitt búinn að pæla mik-
ið í þeim og lesa mér til um hvern-
ig þetta er allt saman gert og
finnst það ótrúlega kúl. Ég ætla að
sjá hana aftur en það er reyndar
ekki alveg að marka. Ég fer alltaf
aftur á myndir sem mér finnst
góðar. Leikaramir eru ekki aðal-
atriðið í Matrix. Smákarakterarn-
ir eru reyndar með einhverja
spretti en mér fannst það oft frek-
ar hallærislegt. Laurence
Fishbume og Carrie-Anne Moss
koma flott út en Keanu Reeves
gerir ekki meira en að vera bara
þarna. Hann hjálpar tæknibrellun-
um og gerir það vel. Þær em í að-
alhlutverkum.“
Kærastan á kung-
fu námskeið
Helðar Kristjánsson,
söngvari Botnleðju.
•(
Auðvitað heilluðuh*
tæknibrellurnar mig"
mest. Það var ótrú-^
lega flott að sjá hvernig''
þeir geta beitt myndavélunum. Út-
koman minnti mig stundum á
Mangaslagsmálateiknimyndirnar.
Svo skemmir tónlistin ekki fyrir.
Og leikararnir vom finir líka. Sér-
staklega Laurence Fishbume og
Carrie-Anne Moss. Keanu Reeves
er náttúrlega bara svona og svona.
En hann skilar sínu alveg ágætlega.
Ég ætti líka að taka fram að
kærastan mín filaði þessa mynd í
botn og á örugglega eftir að fara á
kung-fu námskeið á næstunni
vegna áhrifa frá henni en ég veit að
einhverjar stelpur kunna ekki að
meta hana.“
Háskólabíó frumsýnir mynd, sem ætti að fá Tarantino til að fölna, í kvöld.
Perdita Durango er leikstýrt af Spánverja, skrifuð af höfundi Wild at Heart
og gellan er leikin af Rosie Perez, sem varð einmitt í fyrsta sæti yfir
konur til að negla hjá piparsveini í Fókusi um daginn.
Are you
fkidktng Mm
or eatina him?‘
Perdita Durango er ein af þess-
um myndum sem hefur unnið sig
upp. Þetta er „low budget“-mynd
sem var frumsýnd á Spáni í októ-
ber 1997, Þýskalandi í október 1998,
Bretlandi í febrúar 1999 og í kvöld
verður hún sýnd í Háskólabíói.
Það er því nokkuð ljóst að um er
að ræða mynd sem er að fara um
heiminn á eigin forsendum.
Wild At Heart
Leikstjóri og meðhöfundur
myndarinnar er Alex de la Igles-
ia - ungur Spánverji sem gerði
Day of The Beast og fékk sex Goya-
verðlaun (spænsk hátíð) fyrir
hana. Ekki nóg með það því Day of
The Beast er talin vera vinsælasta
mynd Spánverja fyrr og síðar. Eft-
ir sigurgöngu Day of The Beast
biðu menn því ‘í ofvæni eftir
Perdita Durango. Hún náði hins-
vegar ekki jafnmiklum vinsældum
á Spáni og gekk ekki jafn vel á
Goya hátíðinni. Hún var tilnefnd
til nokkurra verðlauna en Alex tók
bara ein með sér heim.
Það sem er þó einna merkilegast
við þessa blóðugu mynd er Barry
Gifford, höfundur sögunnar og
meðhöfundur handritsins, en hann
skrifaði Sailor and Lula, sem var
einmitt breytt í Wild At Heart. Auk
þess hefur hann skrifað fjöldann
allan af bókum og sem rithöfundur
er hann í uppáhaldi kvikmynda-
gerðarmanna um allan heim. Hann
skrifaði tU dæmis handritið að Lost
Highway með Lynch og meðal bóka
sem guttinn hefur skrifað eru: Port
Tropique, Night People og auðvitað:
59" and Raining; The Story of
Perdita Durango. Tékkið á honum i
næstu bókabúð.
Mannát og önnur
geðveiki
Perdita Durango fjallar um sam-
nefnda stúlku sem leikin er af
Rosie Perez. Þetta er hættuleg
gella með fortíð sem er böðuð í
blóði og pervisnum ástríðum. Á
hverju kvöldi dreymir hana um
svartan jagúar (kisan) sem sleikir
nakinn líkama hennar og sefur hjá
henni. En myndin byrjar þegar
Perdita hittir Romeo Dolorosa
(Javier Bardem - hefur leikið í
fullt af spænskum verðlaunamynd-
um sem notið hafa takmarkaðrar
athygli hér á landi. En hann gæti
verið einhver Banderas - á barmi
heimsfrægðar) í Mexíkó og fær far
með honum til Bandaríkjanna.
Romee þessi er harðsvíraður
glæpamaður og einhvers konar
prestur hjá satanistum. í Banda-
ríkjunum fær kauði vinnu hjá
glæpaforingjanum Santos. Hann á
að flytja fóstur og annað hold fyrir
snyrtivörubransann. Á sömu
stundu þarf hann að fá eitthvað til
að fórna fyrir altari Satans og þá
hittir hann allt í einu ungt banda-
rískt par sem eru elt af - eins öm-
urlegt og það kann að virðast - út-
sendurum frá DEA (Fíkniefnalög-
reglan). Það er hér sem allt verður
gjörsamlega vitlaust í mannáti og
tómu tjóni sem getur bara endað
með geðveikri spennu.
Þetta er sem sagt tóm geðveiki
og mynd sem alls ekki er ætluð
viðkvæmu fólki. Leikaraliðið er
þokkalega frambærilegt. Auk
Rosie og Javier leika í myndinni
nokkrir semi-þekktir aukaleikarar
úr massífum Hollywood-myndum
sem af sögn standa sig ágætlega.
Sem dæmi um geðveikina i þess-
ari mynd er hér brot úr samtali
Perditu og Romeo:
Romeo: „Are you fucking him
or eating him?“
Perdita: „May be both.“
-MT
Er þessi mannátsfíkill einhver Banderas eöa bara einhver viðvaningur?
bíódómur
Bíóhöllin, Kringlubíó og Regnboginn
- Matrix
Fastur í Fylkinu
Bardagaatriðin eru öll mjög vel útfærð, enda er það kung-fu
snillingurinn Woo Ping Yuen sem semur þau, hann leikstýrði
Jackie Chan m.a. í Drunken Master
Einhver sagði að þumalputta-
reglan væri sú að ef Keanu Reeves
talar í þeim myndum sem hann
leikur í eru þær lélegar en ef hann
þegir eru þær góðar. Sem betur fer
talar hann mest lítið í Matrix sem
hefði átt að þýða Fylkið.
Myndin er eftir Warchowski-
bræður sem eiga einungis eina
mynd að baki, Bound. Sú mynd var
frábær og af allt öðrum toga en Fylk-
ið, ævintýri og sálarkreppa lesbía.
Með Fylkinu sýna þeir að þeir geta
farið eins vel með peninga. Aðal-
hugsunin í handritinu er ekki ný.
Tölvuforritarinn Thomas „Neo“
Anderson (Keanu Reeves) kemst að
því að veruleikinn sem hann lifir í
er ekki allur þar sem hann er séður
og með hjálp spark-í-rassinn-á-þér-
gellunnar Trinity (Carrie-Anne
Mossj og Zen-gúrúsins Morpheusar
(Lawrence Fishbourne) kemst hann
að sannleikanum. Keimlík pæling,
marglaga raunveruleiki, var í mynd-
inni Dark City og einnig svipar
sumt í Fylkinu til Strange Days, t.d.
þegar þau „logga“ sig inn, en þó
verður Fylkið að teljast betri en hin-
ar tvær. Einnig eru vitnanir í eldri
sci-fi myndir eins og Aliens og
Terminator en ekki er ekki verið að
stela hugmyndum, meira að fara eft-
ir reglunum. Það er augljóst að
Warchowski- bræður hafa legið í
handritinu i langan tíma, alls kyns
smáatriði eru úthugsuð og mikið
nostrað við hitt og þetta. Þeir fara
vel með ýmis málefni eins og gervi-
greind, mismunandi veruleika og
tengslin milli tima og rúms þannig
að maður fær á tilfinninguna að
þeir hafa að minnsta kosti lesið
greinar í virtustu blöðunum sem
þeir hafa náð sér í. Bardagaatriðin
eru öll mjög vel útfærð, enda er það
kung-fu snillingurinn Woo Ping
Yuen sem semur þau, hann leik-
stýrði Jackie Chan m.a. í Drunken
Master. Vírameistaramir frá Hong
Kong skila einnig sínu með prýði.
Leikurinn er ágætur. Það er svo
mikið að gerast að Keanu og hinir
þurfa ekki að segja mikið, Keanu
kemur samt nokkrum sinnum upp
um sig. Carrie-Ann Fisher var
mjög töff og Lawrence Fishbourne
ágætur þar sem hann þræddi veginn
milli gúrúsins og töffarans. Hins
vegar kemst sagan engan veginn að
niðurstöðu í lokin og það er meira
en litið svekkjandi að komast að þvi
að myndin toppar á venjulegum
byssubardaga. Miðað við það sem
búið var að búa mann undir hefði
nú verið betra að komast að ein-
hverri niðurstöðu, ekki enda mynd-
ina í Batman-stíl. En svona er þetta,
maður fær ekki alltaf það sem mað-
ur óskar eftir. Þar að auki eru þeir
bræður eflaust að undirbúa jarðveg-
inn fyrir framhaldsmynd(ir). En
Fylkið stendur hins vegar uppi sem
sjónræn veisla, sci-fi mynd af bestu
gerð, og er ekki til neins annars til
bragðs að taka en að fá sér bita.
Leikstjórar: Andy og Larry
Warchowski. Handrit: Andy og
Larry Warchowski. Kvikmynda-
taka: Bill Pope. Tónlist: Don Davis.
Aðalhlutverk: Keanu Reeves,
Carrie-Ann Moss, Lawrence Fish-
bourne og Hugo Weaving.
Halldór V. Sveinsson
14
f Ó k U S 25. júní 1999