Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1999, Blaðsíða 12
• -V-- ..J
rstræti tt
I tu G Ó L F S
—I TORG
f Ó k U S 25. júní 1999
Skipperinn ★★
Skipperinn er lítill og kósí, staöur þeirra
sem þola ekki snoób, nema þá aö
snoþba niðrá við, og vilja drekka i sig
lífsreynslusögur .alvörufólks". Það þarf
ekki aö biðja gestina um sögur: þeir
sem eru á annað borð á Irfi koma til þin
um leið og þeir sjá að þú ert ferskur á
staðnum. Sumir drykkjumennirnir kunna
m.a.s. spilagaldra og karlinn á barnum
er ekkert nema almennilegheitin.
1/2 I af bjór: 400 kr.
2-faldur vodkl i kðk: 700 kr.
Rauði barinn ★★
Kósi en snobbaður bar fyrir ofan veit-
ingastaðinn Einar Ben. Nýrikum
vindlaáhugamönnum gæti þótt akkur
í að flatmaga i leðursófunum og
rövla um veiðistangir.
1/2 I af bjór: 550 kr.
2-faldur vodki í kók: 800 kr.
Píanóbarinn O
Bar sem gæti verið á ferju á milli Helsinki
og Tallinn. Hingað flæktust Taílendingarnir
og Kanarnir af vellinum eftir aö Duus-hús
datt upp fyrir. Pool-borðið mætti vera opið
um helgar og það er fáránlegt að selja inn.
1/2 I af bjór: 600 kr.
2-faldur vodkl í kók: 800 kr.
Kostar Inn: 500 eftir hálftólf
um helgar.
Dubliners ★★
Þeir sem fíla ira og allt sem írskt er
fjölmenna hingað um hverja helgi.
Lopasokkabönd sjá um stuðið á
neðri hæðinni og um allt hús teyga
menn fljótandi rúgbrauðið. Þeim
sem finnst Guinness hins vegar
vondur og þola ekki fiðlur og tinflaut-
ur eru komnir til helvítis.
1/2 I af bjór: 500 kr.
2-faldur vodki í kók: 750 kr.
Kaffi Reykjavík O
Endurvinnslan eöa Sorpa er hann
stundum kallaður, þessi hanabjálki ein-
hleypra. Ef þú vilt fara á staö þar sem
mamma vinar þíns reynir við þig ferðu
hingað og líka í þeim plmörgu tilfellum
sem þig langar til að sjá Eyva skemmta.
1/2 I af bjór: 550 kr.
2-faldur vodkl í kók: 900 kr.
Kostar Inn: 700 kr. um helgar.
Club Clinton O
Slísí stripþbúlla, byggð upþ í kringum
gamlan og súran brandara. Hress beibíin
eru frá Eystrasaltslöndunum og Kanada
og líður greinilega ekki mjög vel í þessu
húsi. Þær redda þó staðnum frá hauskúp-
unni, enda þótt peningaþlokkiö og vand-
ræöagangurinn sé á heimsmælikvarða.
1/2 I af bjór: 600 kr.
2-faldur vodkl í kók: 850 kr.
Kostar inn: 1000 kr.
Naustkjallarinn O
Hingað kemur Geirmundur Valtýsson
þegar hann skreppur suður. Aðrir sem
mæta eru miðaldra og fá sér asna.
Hverfispöbb sem allir nema íbúar
neðri hluta Vestur-, Ránar-, Báru- og
Öldugötu hafa gleymt að sé til.
1/2 I af bjór: 500 kr.
2-faldur vodki í kók: 800 kr.
Kostar inn: 5-700 kr. ef það
er hljómsveit.
Glaumbar ★★★
Staður sem hefur haldið sínu striki
frá upphafi. Hingað mætir venjulegt
fólk á venjulega helgardrykkju. Það
sér vel yfir staðinn og hittir alla sem
á annað borð eru þar. Staöurinn
meikar enn meiri sens þegar stór-
mót í fótbolta stendur yfir. Fótbolti og
bjór fara nefnilega vel saman -
sama hverju íþróttaforystan og bind-
indishreyfingin heldur fram.
1/2 I af bjór: 550 kr.
2-faldur vodki í kók: 860 kr.
Gaukur á Stöng
★★
Elsti barinn og vígi popparanna. Um
helgar fá þeir að hanga á efri barn-
um fram eftir nóttu og monta sig af
aösókninni á síðasta sveitaballi.
Stemningin ræðst annars algjörlega
af grúppunni sem er að hamast á
sviöinu. Ef hún er góö er gaman, ef
hún er vond er verulega fúlt á Gaukn-
um því pleisið sjálft er að mestu
stemningslaust og gæti verið sjó-
minjasafn ef poppið vantaði.
1/2 I af bjór: 550 kr.
2-faldur vodki í kók: 800 kr.
Kostar inn: 500 kr.
(1000 kr. ef hljómsveitin
er virkilega fræg)
Café Amsterdam
O
Amsterdam tekur við yfirfallinu frá
Gauknum og Glaumbar og lifir því
eins konar sníkjulífi. Hér er lítið að
hafa nema lummó trúbadora og þar
að auki kostar inn. Bar sem gæti ver-
ið í Sementsverksmiðjunni á Akra-
nesi.
1/2 I af bjór: 550 kr.
2-faldur vodki í kók: 860 kr.
Kostar inn: 500 kr. um helgar.
Kaffi Thomsen
★★★★
Hér er nýjasta og heitasta tónlistin
og nýjasta og heitasta fólkið. Kaffi
Thomsen hefur tekist að láta Kaffi-
barinn líta út fyrir að vera helst til
skvapkenndur og eitthvað pirraður á
því. Hér hanga þau sem halda að líf-
ið sé partí og ef þú ratar ekki í rétt
partí lendirðu I vitlausu lífi. Eftir að
flóamarkaði Kattavinafélagsins í
kjallaranum var breytt f tónleikastað
má segja að staðurinn sé endanlega
kominn til að vera.
1/2 I af bjór: 500 kr.
2-faldur vodkl í kók: 750 kr.
Kostar inn: 500 kr. um helgar
og bjór innifalinn.
Leikhúskjallarinn
★
Langvarandi er stemning í Leikhús-
kjallaranum. Heimavöllur Stjórnar-
innar og diskótekið Dollý í pásum.
Fráskildir aö vestan reyna að sýnast
kúl en vildu samt helst dansa Fugla-
dansinn.
1/2 I af bjór: 600 kr.
2-faldur vodki í kók: 850 kr.
Kostar inn: 700 kr. á föstudögum
og 900 kr. á laugardögum.
Tres locos ★★★
Grenjandi glaðvært en hávært lat-
fnó- og evrópopp í bland við tequila
og frosnar Margarítur. Það er enn
nýjabrum á þessum stað og útlend-
ingarnir sem hanga á barnum fá
bleiknefjana sem mæta til að finn-
ast að þeir séu staddir í útlöndum,
endá staðurinn stundum kallaður liit-
háen. \
1/2 I af bjór: (mlllistærð) 350 kr.
2-faldur vodkl í kók: 700 kr.
Grandrokk ★★★★
Sveitaballið f miðbænum heldur
áfram. Ódýr bjór og misjafn sauður á
kreiki, allt frá sjúskuðum ellibelgjum
f smáskvísur að taka sín fyrstu spor
til hugsanlegrar glötunar. Á palli á
efri hæð poppa hæfir stuðboltar en
niðri húka spekingar yfir leikjum.
Vinaleg stemning og allir jafnir í
bræöralagi óminnishegrans sem tek-
ur aö gala hátt upp úr kl. 2.
1/2 I af bjór: 300 kr.
2-faldur vodki í kók: 700 kr.
Kaffibarinn ★★
Það er f raun stórmerkilegt hve þessi
staöur hefur haldið andlitinu lengi sé
miðað við að hann er til húsa í plássi
sem er jafnstórt og fbúð í Stúdenta-
görðum og á barnum er alltaf örtröð.
Þegar lufsast er í gegnum iðandi
hrúguna má búast við að glasið sé
orðið tæplega hálft þegar komið er
upp á aðra hæö. Galdurinn hlýtur að
vera að draumurinn um Demon og
Balta trekki að smápfurnar sem svo
trekkja að lúðana. Ergó: Kaffibarinn
er eilffðarvél.
1/2 I af bjór: 500 kr.
2-faldur vodki f kók: 750 kr.
Kaffi Austurstræti
O
Einhvers konar matstofa eða ein-
hvers konar bar, það er ekki alveg á
hreinu. Lftið f gangi nema góðkunn-
ingjar barþjónsins á léttu spjalli eða
fólk sem vill drekka eitt og yfirgefið.
1/2 I af bjór: 450 kr.
2-faldur vodki í kók: 700 kr.
Fógetinn ★
Sviplítill barf húsi sem fornleifafræð-
inga þyrstir I að komast I grunninn á.
Sviplitlir gestir á ýmsu reki og úr
ýmsum áttum fylla staðinn - helst úr
úthverfunum og fólk nýflutt f bæinn.
Hér fær það stundum að heyra í
ágætum trúbadorum ef heppnin er
með.
1/2 I af bjór: 500 kr.
2-faldur vodki f kók: 790 kr.
Rex ★
Það fínasta og flottasta, segja eig-
endurnir, en f raun búlla þar sem all-
ir eru í hlutverkum. Mafiuherbergið
gerir útslagið. Staður fyrir lúða f
töffaraupplifun. Stjarnan er fyrir tón-
listarviðleitni á fimmtudögum og
sjúklega góðan mat (þó rándýr sé).
1/2 I af bjór: 550 kr.
2-faldur vodki í kók: 900 kr.
Maxím ★★★
Þeim sem finnst Pamela Anderson
sæt ættu að leita annaö. Þessi eró-
tfski viskfklúbbur er þó með lang-
mestan karakter af strípiklúbbum
borgarinnar. Stemningin er eins og f
Derrick-þætti og ósjálfrátt fara gestir
að velta fyrir sér hver morðinginn sé.
1/2 I af bjór: 500 kr.
2-faldur vodki í kók: 800 kr.
Kostar Inn: 500 kr.
Óðal ★★
Klassastaður með glæsilegum stúlk-
um. Sviðið er kannski einum of lítið
en það er hugguleg stemning innan
dyra. Lftill og hreinlegur staður. Lágt
til lofts og því færðu það á tilfinning-
una að vera kominn inn í annan
heim. Stelpurnar dansa vel og fara
úr öllu.
1/2 I af bjór: (f gleri) 700 kr.
2-faldur vodki í kók:900 kr.
Kostar inn: 1000 kr.
Café París ★
Eftir AA-fundi finnst ölkum gaman aö
kfkja f kaffi á París. Þessi vfti til varn-
aðar eru einmitt það sem drykkjufólk
vill sfst horfa upp á f gleðinni miðri
og fer því annað.
1/2 I af bjór: 500 kr.
2-faldur vodki í kók: 850 kr.
Skuggabarinn ★★★
Þaö er lítill munur á Astró og Skugga-
barnum og báðir eru þeir vinsælir, enda
flækist sama fólkið á milli staðanna,
spennt, gratt og ákveðið í að skemmta
sér nú sem allra best, án þess þó að
missa kúlið. Astró hefur þó siglt fram úr
Skugganum á síðustu mánuðum, enda
aðeins ódýrari útgáfa af sama stuðinu.
1/2 I af bjór: 700 kr.
2-faldur vodkl í kók: 900 kr.
Kostar Inn: 500 kr. eftir miðnætti.
Kaffibrennslan ★★
Plebbaútgáfa af Astró og Skuggabar.
Hér er þröngt og loftlaust og ekki hægt
að dansa. En bjórúrvalið er geðveikt
og starfsfólk liðlegt og almennilegt.
1/2 I af bjór: 500 kr.
2-faldur vodki f kók: 750 kr.
Astró ★★★★
Ekki sérlega vinalegur staður þó Kiddi
Bigfoot skemmtanastjóri sé vinalegur
gaur. Staður módela, bflasala og
meðlima I Skftamóral. Frábært pleis
ef þú vilt drekka með þessum þjóðfé-
lagshóp sem er risastór miðað við
röðina fyrir utan. Þarna ferðu ekki
nema eftir langa dvöl fyrir framan
spegilinn. Þú verður líka að hafa þig
allan viö til að halda kúlinu.
1/2 I af bjór: 550 kr.
2-faldur vodki í kók: 900 kr.
Kostar inn: 500 kr. eftir miðnætti.
Litli Ijóti
andarunginn ★★★
Huggulegur staður með vingjarnlegu
starfsfólki. Hér er sjaldan marg-
menni og þvf oftast hægt að fá sæti.
Ef tónlist er leikin er það ofurlágt.
Andarunginn er fínn kostur til að
rabba saman á og kfkja í kollu.
1/2 I af bjór: 400 kr.
2-faldur vodki í kók: 700 kr.
Café Romance ★★
Inni á Café óperu er þessi píanóbar
fyrir mömmu þína, ef hún nennir ekki
í heilun og vill frekar sötra rauðvín og
hlusta á útlending spila lyftutónlist.
1/2 I af bjór: 500 kr.
2-faldur vodki í kók: 800 kr.
Wunderbar ★★
Vaijoröinn slappur en þá tóku nokkrir
Verzló-gæjar við pleisinu og geröu það
að hangáti fyrir menntskælinga sem
spjalla um eitthvað sem öllum er sama
um nema þeim sjálfum, eins og t.d.
hver verði næsti formaður nemenda-
ráðs. Tíminn leiðir f Ijós hvort félags-
starfspartíið lifir árum saman.
1/21 af bjór: 450 kr. 350 á virkum.
2-faldur vodki í kók: 800 kr.
Spotlight ★★★★
Staður ungra homma og lesbía. Kúl
pleis fyrir regnbogafólk og vini, já, og
bara allra sem vilja diskóið sveitt og
gleðina hýra. Aukastjarna fyrir
ódýrasta bjórinn.
1/2 I af bjór: 250 kr.
2-faldur vodkl í kók: 750 kr.
ísafold
sport-kaffi ★★★
Hér er boöiö upp á bestu aöstöðuna
fyrir þá sem vilja drekka með stórvið-
burðum f íþróttum: breiðtjöldin í
hrönnum og jafnvel sjónvarp á kló-
settunum. Um helgar breytist staður-
inn f griðland snyrtilegra hópa og
para f eldri kantinum.
1/2 I af bjór: 500 kr.
2-faldur vodki í kók: 750 kr.
Næsti bar ★★
Staðurinn lítur út eins og hasshaus
hafi hannað innréttinguna og gestir
þurfa því að vera skakkir til að finn-
ast staðurinn hlýlegur. Þarna hanga
gamlir popparar og fólk sem ein-
hvern tímann bjó í kommúnu eða
gerir það kannski enn. Það man þaö
ekki alveg.
1/2 I af bjór: 400 kr.
2-faldur vodki i kók: 750 kr.
Hverfispöbb Þinghyltinga sem fær
stjörnu fyrir góðar súpur og
eplasnafsa. Engan langar þó f súpu
á skralli en nfðsterk skotin gætu
haldið í gesti fram undir miðnætti.
1/2 I af bjór: 500 kr.
2-faldur vodki í kók: 750 kr.
Kofi Tómasar
frænda O
Lftið herbergi með dapurri aksjón.
Var einhvern tfmann aðalhangát
Valsara og miðað við gengi þeirra f
fótboltanum er stemningin kannski
skiljanleg. Staður á varamannabekk.
1/2 I af bjór: 500 kr.
2-faldur vodki í kók: 750 kr.
barinn ★
Fyrir ofan Pasta basta er staöur sem
stendur ekki nógu vel f stykkinu sem
kokkteilabar. Annars fer það eftir því
hver er að vinna á barnum; sumt
starfsfólkið kann að hrista saman
bragðgóða kokkteila (þó dýrir séu),
aðrir vita ekki hvaö Bloody Mary er
og taka hálftima f að finna út úr þvf.
1/2 I af bjór: 550 kr.
2-faldur vodkl f kók: 800 kr.
Regent ★★★
Hresst starfsfólk sem nennir að vera
I vinnunni. Þægilegur staður til að
slappa af og tala en ekki beint til að
lyfta sér upp á. Afslappaður staður á
uppleiö.
1/2 I af bjór: 600 kr. 1 flösku
2-faldur vodkl í kók: 850 kr.
Sólon íslandus ★
Trist gengi á fylliríi; Iffsleiöir verð-
bréfasalar og fótfúnar listaspírur,
meðvitaðar um eigin klæðnað og
stöðu í llfinu, f bland við ungt há-
skólafólk og unga stjórnmálamenn.
Dónalegir dyraverðir en barþjónarnir
sýna viðleitni til almennilegheita.
1/2 I af bjór: 550 kr.
2-faldur vodkl í kók: 900 kr.
Vegas O
Fyrsta glamúr-strippbúllan á íslandi.
Hér varð alger bylting f snyrti-
mennsku á sfnum tíma og enn eru
reglur um snyrtilegan klæðnað.
Dyraverðirnir eru f smóking en stelp-
urnar fara úr öllu. Þær eru misfalleg-
ar og ekki er sami glæsileikinn yfir
staðnum og áður var, enda hafa
nokkur hrikaleg mál skekið hann.
1/2 I af bjór: 700 kr.
2-faldur vodkl í kók: 800 kr.
Kostar Inn: 1000 kr.
RÆTl
-■\
Ari
Vegamót ★★★★
Traustur staður með þægilegri tónli
og lipurt og skemmtilegt starfsfóik.
Hér er oftast hægt að fá sæti, jafnvel
þó staðurinn sé fullur. Gestir eru úr
ýmsum áttum, helst þó úr skemmtana-
bransanum, og það er kostur fyrir Jón
en galli fýrir séra Jón að enginn fær for-
gang í röðinni fyrir utan.
1/2 I af bjór: 500 kr.
2-faldur vodkl í kók: 750 kr.
LA-Café O
Dapur, Ijótur og leiðinlegur pöbb.
Gestir eins og þeir hafi villst inn og
séu á leiðinni annað - um leið og
þeir eru búnir úr glasinu, Þetta er
sorglega hliðin á LA-Café. Gleðilega
hliöin er einstæðu mæðurnar sem
eru ekki orðnar nógu gamlar til að
reyna við karla á Kaffi Reykjavík.
1/2 I af bjór: 400 kr.
2-faldur vodki í kók: 850 kr.
Lille put hefur gengið vel og hér er nán-
ast alltaf fullt, enda búsið ódýrt. Sér-
kenni staðarins er að allt er til sölu inn-
andyra og má því sjá draugfullar byttur
með sérkennilega hatta á hausnum
þegar Ifða tekur á kvöldið. Barþjónarnir
eru þó ekki til sölu, eins og þeir hafa
ansi oft þurft að svara byttunum.
1/2 I af bjór: 300 kr.
2-faldur vodki í kók: 500 kr.
ZZ ★★
Ef maður er f klíkunni er 22 eins og
annaö heimili. Spyrjið bara heilagan
Móða sem á sitt horn og drykk með
sínu nafni á barnum. En heildarmynd
staðarins stefnir f alvarlegt sjúsk og
trega svo andlitslyfting kæmi sér vel.
Á efri hæðinni eru hommar, lesbíur
og fólk sem filar að dansa viö Cure,
Madonnu og annað 80’s popp helgi
eftir helgi eftir helgi...
1/2 I af bjór: 500 kr.
2-faldur vodkl í kók: 700 kr.
Nelly’s café ★★★
Kuldaleg fjarlægð afgreiðslufólks er
skiljanleg miðað við hve erfitt það á
meö að fá útborgað. Þegar karlinn
borgar lifnar þó yfir staðnum og þá
er jafnvel hent upp drag-keppni.
Nelly's er f einu af þessum hrörlegu
timburhúsum í miðbænum og miðað
viö það er stemningin langt f frá hrör-
leg, oft barasta alveg frábær, því
ungir plebbar kunna að skemmta sér
þegar þeir vilja. Aukastjarna fyrir
ódýrasta bjórinn f bænum.
1/2 I af bjór: 250 kr.
2-faldur vodki í kók: 500 kr.
Stjörnugjöf:
Hæst er hægt að fá 5 stjörnur en enginn staður á íslandi nær þeim standard
vegna þess að hér vantar staðlNN: pottþétta eöalbúllu sem stuðboltar fara á
helgi eftir helgi í stað þess að vafra linnulaust á milli bara, alltaf að leita aö
staðNUM sínum. Lægst er hægt að fá hauskúpu en þar sem landakort Fókuss
nær ekki að Hlemmi sleppa allir staðirnir 41 viö þann dóm.
Frá horni Frakkastígs og Laugavegar og að Grófinni er
fjörutíu og einn bar og hefur þeim fjölgað um 12 síðan
Fókus dró upp landakort síðasta sumar. Þetta er mið-
bærinn í Reykjavík, svæðið sem er orðið heimsfrægt fyrir
fyllirí. Um hverja einustu helgi upp úr miðnætti hópast
hér saman um tuttugu þúsund manns, vafra á milli
baranna, drekka, daðra og djamma, kaupa pulsu, stífla
Austurstræti og hverfa svo jafnsnögglega og þeir mættu.
Efeinhver staðar er þörfá góðu landakorti til að finna
réttu staðina - og forðast þá röngu - þá er það hér.
Landakort
drykkiumannsins