Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1999, Page 18
«
*
♦
I
í
j
Ensími: Oddný hætt
en Albini glaður
Oddný Sturludóttir hljómborösleikari er
hætt I Ensími. Ekki er vitaö hvers vegna
eöa hvaö hún ætlar að fara aö dunda sér
viö en strákarnir ætla aö rokka fjórir og
sleppa hljómborðinu. Gleðilegri tíöindi af
bandinu eru aö Steve
Albini ætlar aö taka
upp plötu meö þeim í
haust. Steve er
heimsfrægur fyrir
verk sín í þágu Pixies,
Nirvana, Pages og
Plant og margra fleiri
og þegar hann kom
hingað á dögunum
meö pönksveitinni
Shellac tók hann
bunka af íslenskum plötum meö sér heim.
Nokkrum dögum síðar hringdi hann slef-
andi yfir síðustu plötu Ensíma og heimtaöi
að fá aö vinna meö þeim. Það reyndist
ekki tiltökumál.
Sigrún Huld seldi allt
í lok árþúsundsins er komin hrikaleg
kreppa í listheiminn enda búiö aö gera
nánast allt og engar nýjar hugmyndir i
gangi, heldur sífelld og súr endurvinnsla á
gömlum hugmyndum.
Hinn venjulegi lista-
verkakaupandi er því
hættur að hlaupa á
eftir ruglinu í ungum
listamönnum meö
frosnar hugmyndir
heldur kaupir þá list
sem þykir hve „tær-
ust" um þessar
mundir. Samsýning
næfra gamlingja vakti feikna athygli í
Gerðubergi fyrr á árinu og ekki síöri var
hrifning listaverkakaupenda af sýningu
Sigrúnar Huldar Hrafnsdóttur í Eden fyrir
nokkru. Sigrún, sem er þekktust fyrir
sundafrek sín, seldi allar myndirnar á sýn-
ingunni og var barist um þær, enda á ferö-
inni frábær verk. Áfram Sigrún!
Ný plata frá Tvíhöfða
Þeir Jón Gnarr og Sigurjón Kjartansson
eru í hljóöveri þessa dagana að taka upp
plötu sem hinn sívinsæli og kyngimagnaði
Tvíhöfði. Síðasta plata heppnaðist vel og
fékk feiknin öll af stjörnum. Þessi nýja
verður því að standa undir væntingum og
þær eru aö sjálfsögöu miklar. Þaö eina
sem hefur heyrst af þessari plötu er aö
hún tengist Abba meö jafn óvenjulegum
hætti og hjá hljómsveitinni Ham. Platan
kemur út í haust.
Lifid eftir vinnu
Þjðöleikhúslö sýnir Rent eftir Jonatan Larson í
Loftkastalanum kl. 20.30. Þetta er söngleikur sem
öfugt fiestra slíka sem hafa rataö á fjalirnar undan-
farin misseri er nýr. Ekki þó alveg því þráðurinn er
aö hluta spunninn upp úr óperunni La Boheme -
ekki þó tónllstin. Sagan segir frá ungum listnemum
í New Vork og líf þeirra innan um dóp, alnæmi, ást,
spillingu, greddu og rómantík. Baltasar Kormákur
leikstýrir en meöal leikenda eru flestar af yngri
stjörnum leikhússins: Rúnar Freyr Gíslason, Bjórn
Jörundur Friöbjörnsson, Brynhlldur Guðjónsdóttlr,
Atll Rafn Slguröarson og Margrét Elr Hjartardóttlr
auk nokkurra eldri brýna á borð viö Steinunni Ólínu
Þorstelnsdóttur og Helga Bjórns.
Sex i svelt er vinsælasta stykki Borgarleikhússlns
þetta áriö og er nú á feröalagi um landiö. Leikarar
eru Edda Björgvlnsdóttir, Björn Ingi Hilmarsson,
Ellert A. Inglmundarson, Gísli Rúnar Jónsson,
Rósa Guöný Þórsdóttir og Halldóra Gelrharðsdótt-
Ir.
Hallgrímur Helgason hefur skrifaö nýtt verk fyrir
Hádeglslelkhúsið, Þúsund eyja sósa. Þar segir af
viðskiptafrömuðinum Sigurðl Karli sem stundar
flókin rekstur og kanna að kjafta sig út úr öllum
vanda. Meö aðalhlutverk fer Stefán Karl Stefáns-
son, en Magnús Gelr Þórðarson leikstýrir. Sýnt er I
Iðnó sem fyrr.
•Opnanir
Gallerí Fold var aö opna vefsvæöi sitt að
http://www.artgalleryfold.com. Þar má finna
upplýsingar um listamenn, sýningar og uppboö.
Listamaður mánaðarins á vefnum er Haraldur
Bilson. Hann hefur sýnt á fjölmörgum sýningum
í flestum heimsálfum og sýnir nú 31 olíumálverk
í rafálfunni. Þessar myndir vann hann allar á
þessu ári og því síðasta.
Farandsýningin Lífæöar er nú sett upp í Sjúkar-
húslnu á Húsavík. Tólf listamenn ejga þar sam-
tals þrjátíu og fjögur myndverk og tólf Ijóðskáld
birta átján Ijóð. Myndir eiga Bragl Ásgelrsson,
Eggert Pétursson, Georg Guönl, Haraldur Jóns-
son, Helgi Þorglls Friðjónsson, Hrelnn Friöfinns-
son, Hulda Hákon, ívar Brynjólfsson, Kristján
Davíösson, Ósk Vilhjálmsdóttir, Ragnheiöur
Jónsdóttir og Tumi Magnússon. Ljóöskáldin eru
Bragl Ólafsson, Gyrðir Elíasson, Hannes Péturs-
son, Inglbjörg Haraldsdóttlr, ísak Haröarson,
Kristín Ómarsdóttir, Siguröur Pálsson, Sjón,
Matthías Johannessen, Megas, Vilborg Dag-
bjartsdóttlr og Þorstelnn frá Hamri.
•Ferðir
2. Syösta Mörk - Dagmálafjall - Merkurnes. Feröa-
félagsferölr i tilefni Jónsmessu eru tvær. Fyrst ber
aö telja næturröltiö yfir Flmmvöröuháls, en það er
8-10 klukkustunda ganga. Hin gangan nær yfir
Syöstu Mörk, Dagmálafjall og Merkurnes. Þórs-
merkurtúrinn í heild sinni tekur alla helgina og
brottför er klukkan 19.
Klukkan 18 veröur lagt af stað í næturgönguferð
á Heklu á vegum Feröafélagslns. Spennandi þvi
Hekla getur gosiö hvenær sem er. Brottför frá
Mörklnnl 6 og austanmegin Umferöarmiöstöövar-
innar.
Partur af Andvökunóttum I Borgarfiröi eystra er
Miönæturganga i Njarövik, Hvannagil, á Geitavik-
urþúfu og Kúahjalla en þar verður kveiktur varöeld-
ur. Söngur, grín og gaman. Síðan er haldið í Fjarö-
arborg og fengiö sér kaffi undir lifandi tónlist.
Laugardagui
26. júní
b í ó
Pönktríóið Unwound: Einróma lof í rokkpressunni.
Unwound pönka bjagað
Nú er komið að síðasta atriði
Lágmenningarveislu Hljóma-
lindar, tveimur tónleikum sveit-
arinnar Unwound. Veislan -
tónleikar Fugazi, Wiseguys,
LRD, Sigur Rósar, Jon Spencer
Blues Explosion og Shellac -
hefur gengið frábærlega vel.
Kiddl kóngur segir: „Ég er í
skýjunum með þetta. Það hefur
ekki verið neitt vesen, engir
stjörnustælar í böndunum,
nema smávegis í Jon Spencer,
og öll böndin hafa lýst yfir
áhuga á að koma aftur.“
Kiddi lofar meiri lágmenningu
í haust og er með ýmislegt
spennandi í bígerð. Hann segir
einnig að enn sé von til þess að
Pavement - nýbylgjusveitin sem
forfallaðist - komi á næstu mán-
uðum.
En nú er það síðasta atriðið,
bandaríska sveitin Unwound.
Hún spilar e.t.v. hrjúfustu tón-
listina í heimi indie-rokksins og
sérhæfir sig í þéttu pönkrokki
sem leiðist út í bjögun a la Sonic
Youth og á einnig ýmislegt sam-
eiginlegt með Fugazi.
Bandið var stofnað í Was-
hington-fylki árið 1991, nálægt
borginni Olympia, og hefur tekið
þátt í grasrótarrokkstarfinu þar.
Bandið er tríó. Justin Trosper
er gítarleikari og syngur, Vern
Rumsey er á bassanum en Sara
Lund trommar. Bandið er á
mála hjá Kill Rock Stars-útgáf-
unni sem einnig hefur á sinni
könnu lið eins og Elliott Smith,
Bikini Kill og Sleater-Kinney.
Unwound hefur gert ein sex
albúm og það nýjasta er smá-
skífusafnplatan „Further Listen-
ing“, sem Matador gaf út. Hljóm-
sveitin fær yfirleitt einróma lof í
rokkpressunni fyrir plötur og
tónleika og rokkarar klakans
ættu því ekki að þurfa að sjá eft-
ir því að líta bandið augum, sér-
staklega þar sem það er hræó-
dýrt inn, 500 kall.
Unwound spilar á Gauknum
þriðjudaginn 29. með Stolíu en
Akureyringar fá líka pönk.
Unwound spilar í Sjallanum
fimmtudaginn 1. júlí og þá hita
Toy Machine upp.
j
K1 ú b b a r
%/ Stoltball samkynhnelgöra á Spotllght í til-
efni Hinsegin helgar. Be there and be queer!
Hugarástandskvöld á Thomsen. Amar og Fri-
mann niöri en Áml E er á efri hæðinni.
•Krár
Hllmar Sverrlsson og Anna Vllhjálms leika og
skemmta á Næturgalanum, Smlöjuvegl 14.
Það ómar allt og ragnar á Stór-Háaleitissvæö-
inu þegar Taktík bregöur á leik inni á Krlnglu-
kránnl.
Gullöldin er meö lágt verölag á því sem ekki
má nefna.aöeins 350 kall. Sælusveitln er svo
á sviðinu til aö hræra í taugakerfinu.
Velkominn á Péturs-pub, Rúnar Þór. Láttu fara
vel um þig á sviðinu.
DJ Blrdy er gæinn í búrinu á Café Amsterdam.
Þetta er ekki teknóbúlla og sniðugt fyrir fólk
Bíóborgin
Lolita Leikstjórinn Adrian
Lyne, sem geröi m.a.
myndirnar Fatal Attraction
og 9 1/2 Weeks, tók þaö
erfiða verkefni aö sér að
gera endurgerð á mynd
Stanleys Kuþricks, Lolitu,
eftir sögu Vladimirs
Nabokovs. Saga þessi er
svo umdeild að hún hefur
veriö skotspónn rauð-
sokka I tæp fimmtíu ár. Óhætt er að segja aö
hún veki þær kenndir meðal karlmanna sem
þeir óttast mest.
Rushmore Rushmore fellur í flokk
ágætra mynda, maður er ágætari á eftir því
þetta er mynd sem býr klisjunum ferskan bún-
ing og gætir þess jafnan aö feta aöra stígu en
á sem flestar aðrar troða. Þetta er saga um
hvolpaást skólanemans Max Fischer á kennara
sínum Rosemary. Max er umfram allt næmur
listamaður og afkastamikið leikritaskáld, nokk-
urskonar nútíma Ólafur Ijósvíkingur sem hefur
tekið aö sér að þjást fyrir fáskiptinn almúgann.
Yfir myndinni er frísklegur blær og velkominn
þegar svo margar myndir frá Ameriku sem fjalla
um unglingsárin gera lítið annaö en að nema
lyginnar land undir yfirskini skemmtunar. -ÁS
10 Thlngs I Hate about You 10 Thlngs I Hate
about You segir frá ólíkum systrum. Bianca, er
vinsæl, falleg og rómantísk stúlka sem strákar
hrífast af. Kat er af allt öðru sauöahúsi, skap-
vopnd og gáfuö og þolir ekki stráka, sem hún
telur vera óæöri verur.
Message In a Bottle ★★ Óskammfeilin róm-
antik, saga um missi og nær óbærilegan sökn-
uð eftir því sem heföi getað orðið á öörum enda
vogarskálarinnar og örlagaríka samfundi og
endurnýjun á hinum endanum. Ýmislegt þokka-
lega gert, leikur er hófstilltur og látlaus, fram-
vindan aö mestu sömuleiðis og myndirfallegar.
En einhvern veginn nær þetta ekki aö virka
nægilega sterkt á mann, til þess er flest of
slétt og fellt. -ÁS
Bíóhöl1in
Austln Powers, Njósnarlnn sem negldi mlg
★★ í nýju myndinni fer
Austin aftur í tlmann, "rS£T
hann fór fram I þeirri fýrri
og er því eiginlega aö fara
aftur heim. En hann
kemst fljótlega að því aö
okkar tími, nútíminn, er
það mannskemmandi að
hann hefur rústaö u«i« u».««
kvennabósanum I hon-
um. Það gengur ekkert
meö stelpurnar og fólki finnst hann vera nett
hallærislegur í fortíöinni (þetta er að vísu líka
plottiö í fyrri myndinni, þá fer Austin til framtíö-
arinnar og þykir ömurlegur gæi meö gular tenn-
ur) og síöan kemur dr. Evil og njósnaragriniö
byrjar.
Permanent Midnight ★★ Þrátt fyrir sterkan
leik Ben Stillers er Permnent Mldnight aldrei
nema miðlungsmynd, formúlumynd af því tag-
inu að þetta hefur allt sést áöur. Þaö hlýtur aö
skrifast á reikning leikstjórans Davld Veloz aö
framvindan er öll hin skrykkjóttasta og þaö
sem heföi getað oröið kvikmynd um hæfileika-
rikan handritshöfund sem tapar áttum verður
aöeins kvikmynd um heróínneytanda og margar
betri slíkar myndir hafa veriö geröar. -HK
Pöddulíf ★★★ Það sem skiptir máli I svona
mynd er skemmtanagildið og útfærslan og hún
er harla góö. Sama skemmtilega hugmynda-
flugiö og geröi Mulan svo ánægjulega er hér
enn á ferö og mörg atriðanna eru hreint frábær,
bæöi spennandi, fyndin og klikkuö. -ud
Mlghty Joe Young ★★ Gamaldags ævintýra-
mynd sem heppnast ágætlega. Sjálfur er Joe
meistarasmíð tæknimanna og ekki hægt ann-
aö eri aö láta sér þykja vænt um hann. Þaö
er samt ekkert sem stendur upp úr; myndin
líöur í gegn á þægilegan máta, án þess aö
skapa nokkra hræöslu hjá yngstu áhorfend-
unum sem örugglega hafa mesta ánægju af
henni. -HK
Mulan ★★★★ Mulan er uppfull af skemmti-
legum hugmyndum og flottum senum, handritiö
vel skrifaö og sagan ánægjulega laus viö þá yf-
irdrifnu væmni sem oft einkennir Disney. Mikil
natni er lögð í smáatriði eins og er viö hæfi í
teiknimyndum og aukakarakterar, eins og drek-
inn og litla (lukku)engisprettan, eru svo
skemmtileg að þau heföu ein og sér veriö efni
I heila mynd. -úd
Payback ★★★ Leikstjóranum Brian Helgeland
tekst ágætlega aö búa til dökkmyndastemningu,
vel fléttaöa, og kemur stundum jafnvel skemmti-
lega á óvart. Hins vegar er svolítiö erfitt að trúa
á Mel sem vonda gæjann, til þess er byröi hans
úr fýrri myndum of þung. ÁS
8MM ★★ Þegar upp er staðið eins og sauður
I úlfsgæru, jafn kjánalega og það hljómar; mynd
sem á endanum reynist ansi miklu meinleysis-
legri en hún vill í upphafi vera láta. -ÁS
Pig in the Clty ★★ Mynd númer 2 er fyrst og
fremst ævintýramynd og meira fýrit börn en fyr-
irrennarinn. -HK
Háskólabíó
Plunkett &
Macleane ★★
Þetta er tilraun
til að búa til
„buddy"-mynd I
anda Butch
Cassidy and the
Sundance Kid,
en fýrir fólk sem höfundar myndarinnar álíta
greinilega bjána; þ.e. MTV-kynslóöina sem vill
flottar umbúöir fyrst og fremst en er nokk sama
um innihaldiö. Ég held reyndar að þaö sé mis-
skilningur. Þó að unga kynslóðin sé vön hrööum
klippum vill hún engu aö síður upplifa góða
sögu. Höfundunum mistekst hinsvegar alger-
lega aö glæða þessa bófa sem ræna þá ríku
einhveiju lífi, alla undirbyggingu persóna vantar
og því er holur hljómur í annars ágætum sam-
leik Carlyle og Miller. -ÁS
Celebrity ★★★ Fáir standast. Woody Allen á
sporði þegar kemur að þvl aö lýsa ruglingslegri,
mótsagnakenndri og örvæntingarfullri leit nú-
tlma borgarbúans að sjálfum sér. Leikstíll
mynda hans er unaðslegur, flæðandi og kaó-
tískur, samtölin eru flestum öðrum kaldhæðn-'
ari, beinskeyttari og hnyttnari, sviösetning yfir-
leitt einföld og hugkvæm, kringumstæöur gjarn-
an gegnumlýsandi og meinfyndnar. Af öllum
þessum mikilvægustu þáttum hverrar kvik-
myndar stafar þvi áreynsluleysi sem skilur á
milli fagmanns og meistara. -ÁS
200 Clgarettes ★* Á gamlárskvöld árið 1981
fylgjumst við með eitthvaö á annan tug persóna
á leið I partl. -HK
Forces of Nature ★ Fellibylurinn sem kemur
lltillega viö sögu I lok þessarar myndar virðist
áður hafa átt leiö um hugi allra aöstandenda
hennar því að satt aö segja stendur ekki steinn
yfir steini. -ÁS
Waking Ned ★★★ Þetta er ómenguð vellíöunar
(feelgood) kómedia og ánægjan er ekki hvaö síst
fólgin I aö horfa á hvern snilldarleikarann á fæt-
ur öðrum skapa skondnar persónur á áreynslu-
lausan hátt. Þaö er afskaplega hressandi aö sjá
bíómynd þar sem gamalmenni fara með aðalhlut-
verkin - þessir tilteknu gamlingjar eru sko langt I
frá dauðir úr öllum æöum. -ÁS
Arlington Road ★★★ I þaö heila vel heppnuð
spennusaga meö umhugsunarverðum og
ögrandi vangaveltum og sterku pólitísku yfir-
bragði. -ÁS
Kringlubíó
My Favorite Martian ★★
Þegar horft er á My
Favorite Martlan, sem
gerö er eftir vinsælli sjón-
varpsseríu sem var upp á
sitt besta um miðbik sjö-
unda áratugarins er ekki
laust við að sú hugsun
sæki að manni hvort kvik-
myndabransinn I
Hollywood sé aö fara fram
úr sjálfum sér varðandi trú á tæknibrellum.-HK
Belly Belly er leikstýrt af Hype Willlams sem
þykir nú einn besti leikstjóri tónlistarmynd-
banda.
f Ó k U S 25. júnf 1999