Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.1999, Síða 5
MÁNUDAGUR 28. JÚNÍ 1999
23
Sport DV
Ekki að bjóða í Helga Colin Todd, framkvæmdastjóri enska knattspymufé- lagsins Bolton, neitaði því í enskum fjölmiðlum um helg- ina aö hann væri í þann veginn að bjóða í Helga Kolviðs- son, íslenska landsliðsmanninn hjá Mainz í Þýskalandi. „Ég hef séð nafn Helga á blaði en veit ekki meira um hann,“ sagði Todd, sem þekktur er fyrir að tala ekki af sér um leikmannakaup sín. Sagt er að Helgi sé metinn á tæpar 100 milljónir króna. -VS Spilum góðan fótbolta Háværar raddir hafa verið á Akureyri um að heitt sé undir Einari Einarssyni, þjálfara 1. deildarliðs KA i knattspyrnu. Einar segir hins vegar að þjálfaraskipti séu örugglega ekki á döfinni. „Við spiluðum góðan fótbolta gegn Fylki og sköpuðum okkur tækifæri en fengum ekki það sem við áttum skilið. Við æfðum við mjög erfiðar að- stæður hérna í vor og þurftum að bíða eftir völlunum okkar þar til í þessari viku,“ sagði Einar við DV. -JJ Markmannsmál KVA leyst Mikil vandræði hafa verið í markmannsmálum knattspyrnuliðs KVA og það sem af er þessu tímabili hafa fjórir menn varið mark þeirra. Þessi vandræði voru leyst á fostudag með tilkomu nýs markmanns, Júgóslavans Zoran Stojadihovic. Zoran spilaði ágæt- lega í sigri KVA á Þrótti R. í 1. deildinni á laugardag. „Þessi mark- maður er kominn til að vera,“ sagði Róbert Haraldsson, fyrirliði KVA, um nýja markmanninn. Til stóð að fá makedónískan lands- liðsmarkmann, en hann reyndist of dýr fyrir Austfirðinga. -ÍBE
Þolin-
mæði
- þegar KVA skellti Þrótti R., 0-1
0-1 Veigur Sveinsson (62.)
Þróttarar tóku á móti KVA á Val-
bjamarvelli á laugardag í sól og
golu. Það voru heimamenn sem
byrjuðu betur og stjómuðu algjör-
lega leiknum og leit út fyrir að þeir
ættu auðveldan sigur fyrir höndum.
Svo var ekki því baráttuglaðir KVA-
menn gáfust aldrei upp, spiluðu
vömina flekklaust og byggðu leik
sinn upp á hröðum skyndisóknum.
Þróttarar spiluðu boltanum oft
mjög skemmtilega á milli sín og var
vörn þeirra örugg, miðjan sterk, en
allt bit vantaði í sóknarleikinn.
KVA-menn spiluðu fyrri hálfleikinn
skynsamlega á móti golunni, lágu
aftarlega og biðu átekta eftir því að
Þróttarar gerðu mistök.
í síðari hálfleik héldu Þróttarar
áfram að stjórna leiknum, en án ár-
angurs. Þolinmæði KVA-manna bar
hins vegar árangur er þeir upp-
skáru mark eftir homspyrnu. Það
var Veigur sem skoraði ömgglega
eftir mikið þóf í markteig Þróttara.
Eftir markið sóttu Þróttarar gifur-
lega stíft en uppskám aðeins stangar-
skot og fóru því niðurlútir af velli
þegar flautað var til leiksloka. KVA
fagnaði hins vegar öðram sigri í röð.
„Við börðumst eins og menn, ail-
ir fyrir einn. Þegar þeir voru að
brenna af þessum fæmm þá sá ég að
við áttum þrjú stigin í dag. Þessi
deild er nú þannig að það geta allir
unnið alla, nema kannski Fylkis-
menn, þeir era stöðugastir,“ sagði
Róbert Haraldsson, fyrirliði KVA,
eftir leikinn. Vörn KVA spilaði öll
mjög vel ásamt Sigurjóni Bjöms-
syni og Róbert. Hjá Þrótti voru Páll
Einarsson, Fjalar Þorgeirsson og
Kristján Jónsson bestir.
Maður leiksins: Róbert Har-
aldsson, KVA. -ÍBE
Þjófnaður
- þegar Víðir jafnaði gegn Dalvík
1-0 Grétar Einarsson (12.), 1-1 Örvar Eiríksson (56.), 1-2 Atli
Viöar Björnsson (60.), 2-2 Grétar Einarsson (90.)
Víðismenn vora sannarlega heppnir þegar þeir
náðu jafntefli, 2-2, gegn frískum Dalvíkingum í Garð-
inum í 1. deildinni á laugardag. Eftir góða byijun þar
sem Grétar skoraði gott mark eftir frábæra sendingu
frá Antoni Stissi datt allur botn úr leik Víðismanna.
Norðanmenn tóku leikinn algerlega í sínar hendur og
og á fjögurra mínútna kafla í seinni hálfleik skoruðu
þeir tvö mörk. Á síðustu sekúndum leiksins átti
Gunnar Sveinsson gott skot að marki Dalvíkinga, Atli
Már Rúnarsson sló boltann í stöngina og þar kom
Grétar og potaði honum yfir marklínuna.
Grétar Einarsson sagði að Víðismenn hefðu verið
mjög heppnir að ná einu stigi. Magni Blöndal, þjálfari
Víðis, sagði að það væri ljóst að það þyrfti aö vinna i
ýmsum málum ef liðið ætti að standa undir þeim
væntingum sem hann og forráðamenn gerðu. Jónas
Baldursson, þjálfari Dalvíkinga, var ánægður með
leikinn að mörgu leyti og sagði að ef hans menn
næðu að spila svona áfram þá færu stigin að detta
inn. Þeir ætluðu ekki að vera farþegar í þessari deild.
Maður leiksins: Grétar Einarsson, Víði. -KS
Vignir Sverrisson og aðrir Þróttarar urðu að sætta sig við tap gegn KVA á laugardag. Vignir sést hér í baráttu við
leikmann KVA á meðan félagi hans horfir á.
KA komið á botninn
ö-l Gunnar Pétursson (5.)
0-2 Finnur Kolbeinsson (43.)
KA situr á botni 1.
deildar en Fylkir er í
þægilegri stöðu á toppn-
um eftir 0-2 sigur Árbæ-
inga á Akureyri á fostu-
dagskvöldið.
KA-menn vora frekar
óheppnir. Það gekk ekk-
ert upp sem þeir ætluðu
að gera. Þeir áttu þó sín
færi í leiknum sem þeir
náðu ekki að nýta. Fylkis-
menn voru skipulagðir í
varnarleiknum og það
sem fór úrskeiðis náði
Kjartan Sturluson að
verja eða þá að KA-menn
skutu fram hjá.
Maður leiksins: Kjartan
Sturluson, Fylki. -JJ
Líflegt í Borgarnesi
0-1 Jón Þór Eyjólfsson (8.)
0-2 Sævar Gíslason (36.)
1- 2 Hjörtur Hjartarson (40.)
2- 2 Hjörtur Hjartarson (44.)
2- 3 Heiðar Ómarsson (56.)
3- 3 Guðlaugur Rafnsson (81.)
Skallagrímur og ÍR
skildu jöfn, 3-3, i bráðfjör-
ugum leik í 1. deildinni í
Borgarnesi á fóstudags-
kvöld. í heildina voru úr-
slitin sanngjörn, ÍR var
meira með boltann en
Skallagrímur fékk hættu-
legri færi og átti tvö skot
í slá og eitt í stöng. Nýju
mennirnir, Aleksander
Linta og Andrés Jónsson,
styrkja Borgnesinga
greinilega talsvert og
Hilmar var mjög hættuleg-
ur ásamt Hirti. Sævar var
fremstur í jöfnu liði ÍR.
Maður leiksins: Hihnar
Hákonarson, SkaUagr. -EP
ít*f »• DEILD KARLA
Fylkir 6 5 0 1 12-7 15
ÍR 6 3 2 1 16-13 11
Stjarnan 6 3 12 13-8 10
FH 6 3 0 3 15-11 9
Víöir 6 2 2 2 12-14 8
Skallagr. 6 2 13 11-12 7
Þróttur R. 6 2 13 6-7 7
KVA 6 2 13 10-17 7
KA 6 12 3 6-8 5
Dalvík 6 12 3 8-12 5
Markahæstir:
Hörður Magnússon, FH . . . 6
Grétar Einarsson, Viöi . . .5
Hjörtur Hjartarson, SkaUagrími . 5
Sævar Þór Gíslason, ÍR . .. . 5
Heiöar Ómarsson, ÍR .. . . . 4
Kári Jónsson, Víði . 4
í 7. umferð, 1. Og 2. júlí mætast:
Dalvík-Stjaman, FH-KA, Fylkir-
Þróttur R., ÍR-Víðir og KVA-Skalla-
grímur.
Stjarnan vann
í höröum leik
1-0 Reynir Bjömsson (20.), 1-1 Höröur
Magnússon (50.), 2-1 Boban Ristic (69.),
3-1 Dragoslav Stojanovic (73.), 4-1 Boban
Ristic (90.)
Það voru frískir Stjörnumenn
sem tóku á móti grönnum sínum,
FH-ingum, i Garðabæ á föstudags-
kvöld og sigruðu, 4-1.
Eftir margar góðar sóknir Stjöm-
unnar var Boban felldur innan vita-
teigs FH og Reynir skoraði öragg-
lega. Eftir markið færðist heilmikil
harka í leikinn og bæði lið gerðu sig
sek um slæm brot.
Stjörnumenn héldu áfram að
sækja í síðari hálfleik en náðu ekki
að skora. í stað þess sótti Hörður
upp hægri kantinn og skoraði glæsi-
legasta mark leiksins og jafnaði þar
með metin. Stjörnumenn gáfust
ekki upp, héldu áfram að sækja og
uppskáru þrjú mörk til viðbótar í
afar sanngjörnum sigri á FH.
Maður leiksins: Boban Ristic,
Stjörnunni. -ÍBE
Unnin og topuð stig
- hjá Eyjamönnum og Víkingum í harðri baráttu liðanna um hvert stig
Eyjamenn komu aftur ann-
an leikinn í röð eftir að hafa
lent undir og unnu nú Vík-
inga, 1-2, í Laugardalnum á
föstudagskvöld í frekar slök-
um knattspymuleik.
Nýliðar Víkinga, sem
fengu á sig stigamark þriðja
leikinn í röð, léku oft ágæt-
lega á köflum og höfðu vissu-
lega rétt á öðra stiginu þegar
upp var staðið. Samtals hafa
þessi 3 stigamörk kostað liðið
7 dýrmæt stig í harðri bar-
áttu fyrir lífinu í deildinni.
Eyjamenn
voru með
útivallar-
hrollinn í
upphafi
leiks enda
aðeins unn-
ið 2 af síð-
ustu 9 úti-
leikjum og
má segja að
klaufaleg og
grátleg mis-
tök Gunnars Magnússonar og
Þorra
Ólafssonar
varnar-
manns á
18. mínútu
leiksins
hafi komið
þeim inn í
leikinn.
Á þeim
tíma virtist
sem liðið
væri kom-
ið í þrot hvað stemningu og
leikgleði varðar en fengu þar
mark nánast gefins og björg-
uðu svo stigunum þremur.
Stigin þijú eru annað gleði-
efni Eyjamanna frá þessum
leik, hitt er að í síðustu
tveimur leikjum hafa þeir í
fyrsta sinn í þjálfarasögu
Bjarna Jóhannssonar náð að
vinna sig út úr því að lenda
0-1 undir og vinna. Leikur
liðsins var hins vegar ekki
sannfærandi. -ÓÓJ
Q.0 Þrándur Sigurðsson (13.)
v v afgreiddi inn skallasendingu
Sváfnis Gíslasonar alirir á markteig
eftir háa sendingu Hauks Úlfarssonar.
Q.Q Guóni Rúnar Helgason
" ” (18.) sendi boltann í autt mark
eftir grátleg mistök og misskilning
Gunnars markvarðar og Þorra.
0_ A Gudni Rúnar Helgason (62.)
” með fallegum skutluskaiia úr
miðjum teig eftir írábæra fyrirgiöf
fvars Bjarklind frá hægri.
Víkingur 1 (1) - ÍBV 2 (1)
Gunnar Magnússon - Lárus Huldarsson, Þorri
Ólafsson, Þrándur Sigurðsson Arnar Hallsson -
Bjami Hall Colin McKee (Valur Olfarsson ® 60.), Haukur
Úlfarsson, Alan Prentice (Amar Hrafn Jóhannsson 60.) - Sumarliði
Ámason @, Sváfnir Gíslason @ (Daníel Hjaltason 70.).
Gul spjöld: Amar Hallsson.
Birkir Kristinsson - fvar Bjarklind @, Zoran
Miljkovic, Kjartan Antonsson @, Hjalti Jóhannesson
- Allan Mörköre @ (Goran Aleksic 74.), ívar Ingimarsson, Guðni Rúnar
Helgason @, Baldur Bragason @, Rútur Snorrason (Bjarni Geir
Viðarsson 74.) - Steingrímur Jóhannesson.
Víkingur - ÍBV Víkingur - ÍBV
Markskot: 11 11 Horn: 6 4 Áhorfendur: 662. Völlur: Góður Dómari: Kristinn Jakobsson, röggsamur og góður.
Maður leiksins: Ivar Bjarklind, ÍBV Lék vel i vörn ÍBV og ógnaði með góðum sendingum og hlaupum.
Víkingur: