Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.1999, Síða 2
2
FÖSTUDAGUR 16. JÚLÍ 1999
Fréttir
Stuttar fréttir :dv
Morðrannsókn á íslandi og í Danmörku eftir að maður fannst látinn af stungusárum:
Meintur morðingi
fannst en líkið ekki
- Vatnsberinn var handtekinn alblóðugur en sleppt þar sem ekkert lík fannst
Þórhallur
Gunnlaugsson
eða öðru nafni
Vatnsberinn.
Lögreglan leitar nú ákaft manns
sem grunaður er um að hafa myrt
með stunguvopni mann. Hinn myrti
fannst á heimili
sínu við Leifs-
götu um hálfum
öðrum sólar-
hring eftir að
hann lést af sár-
um sínum. Mað-
urinn sem nú er
leitað er
Þórhallur Ölver
Gunnlaugsson
sem gengur und-
ir nafninu Vatns-
berinn vegna
svikamáls sem tengdist samnefndu
fyrirtæki. Hann er sterklega grun-
aður um manndráp og er nú leitað
ákaft á íslandi og í Danmörku.
Það sem gerir málið snúið er að
lögreglan handtók Vatnsberann, að-
faranótt miðvikudags, skömmu eftir
morðið, þar sem hann ráfaði um al-
blóðugur í miðbænum. Við hand-
tökuna kom strax upp grunur um
að alvarlegur atburður hefði átt sér
stað þar sem blóðið var ekki úr hon-
um sjálfum. Ekki var unnt að yfir-
heyra hann af neinu viti og lögregl-
an bar ekki kennsl á hann. Eina vís-
bendingin um hver hann væri var
úr sem hann var með og merkt var
fyrirtæki og upphafsstöfum ásamt
ártalinu 1986. Úrið reyndist vera úr
dánÁ miðvikudag þegar Þórhallur
hafði sofið úr sér sagði
hann blóðið hafa komið
þannig að hann hafi lent
í átökum við. Þrátt fyrir
hinar sterku grunsemdir
fundust ekki aðrar skýr-
ingar og var honum
sleppt um miðjan dag.
Sólarhring síðar fannst
svo lík manns í íbúð á
Leifsgötu 28. Hinn látni
var rúmlega fertugur og
bjó einn. Hann fannst
hálfum öðrum sólar-
hring eftir að hann lést
og tímasetn-
ingin stemm-
ir við hand-
töku hins
blóðuga.
Blóðsýni var
sent í gær-
kvöld áleiðis
til Noregs í
DNA-rann-
sókn en
nokkra daga
tekur að
greina það.
Samkvæmt
heimildum
DV telur lög-
reglan sig
hafa vissu
Skeifingaratburður átti sér stað við Leifsgötu á þriðjudag þegar
maður lést af stungusárum. Morðingjans er nú ákaft leitað og
vakt er allan sólarhringinn við hús hins látna. DV-mynd S
íbúð hins látna er innsigluð.
Aköf leit hófst strax í
gær en þá var hinn
fyrir því að Vatnsberinn sé sá seki grunaði horflnn. Bifreið sem hann
og aðeins formsatriði sé að greina var á fannst við Leifsstöð. Talið er
blóðið. að hann hafi farið úr landi til
Kaupmannahafnar og var starfs-
fólk í Leifsstöð yfirheyrt. Þá var
Interpol einnig sett inn í málið og
er Vatnsberans nú leitað um alla
Evrópu. rt
Sumargaman barnanna:
Dýrara í Tívolí en í laxveiði
Dagur (Tívolí: 18.600 krónur.
Það er dýrara að
fara með þrjú böm
í tívolíið á mið-
bakka Reykjavík-
urhafhar en að
kaupa sér veiði-
leyfi á aðalsvæði
Norðurár í einn
dag. Er þá reiknað
með að börnin þrjú
fari einu sinni í öll
tækin sem boðið er
upp á í tívolíinu.
„Það er alltaf
sama gamla verðið
hjá okkur. Miðinn
kostar hundrað
krónur og svo kostar mismarga miða
í tækin. Rússíbaninn er dýrastur en
í hann kostar 6 miða eða sex hund-
ruö krónur. Enda verður að hafa í
huga að kostnaður við að koma rús-
síbananum til landsins nam tæpum
tveimur miiljónum," sagði Jörundur
Guðmundsson, tívolíhaldari.
Ef reiknað er með að bömin þrjú
fari eina rússíbanaferð, einu sinni í
hrekkjuhúsið, einu sinni í allar
hringekjumar og endi síðan á skot-
Dagur í Norðurá: 18.600 krónur.
bökkunum nemur kostnaðurinn ná-
kvæmlega 18.600 krónum.
„Fyrir þetta verð er hægt að velja
á milli margra góðra laxveiðiáa,"
sagði Bergur Steingrímsson, fram-
kvæmdastjóri Stangveiðifélagsins.
„Þetta er sá pen-
ingur sem kostar
að komast í Norð-
urá n en um þau
leyfi er slegist.
Gullmoli eins og
Leirvogsá er
einnig á þessu
verði og svo getum
við nefnt Hítará,
Sogið og heilan dag
í Elliðaánum. Við
bætist að gisting í
veiðihúsum er
innifalin í verðinu
en það gistir eng-
inn í tívolíinu,"
sagði Bergur og bætti því við að ef
verið væri að hugsa um bömin
mætti nefha að dagur í góðri silungs-
veiði kostaði frá 1.500 krónum og upp
í 3000 krónur.
-EIR
Nýjung fyrir ferðamenn:
Hlustið á ísland
„Bróðir minn fékk þessa hugmynd
eitthvert kvöldið þegar honum þótti
útvarpsdagskráin leiöinleg," sagði
Ólafur Sindri Ólafsson sem hyggst
ásamt Ragnari bróður sínum gefa um-
hverfishljóð frá íslandi út á snældum
fyrir ferðamenn. „Við höfum þegar
lagt drög að því að hljóðrita við Gull-
foss og Geysi, við Öxará á Þingvöllum
og í miðbæ Reykjavíkur. Snældurnar
geta orðið skemmtilegur minjagripur
úr íslandsferð, svo ekki sé minnst á
þá sem ekki geta komist til landsins.
Þá er ég að hugsa um landa okkar sem
búa víðs fjarri og sakna fóðurlands-
ins,“ sagði Ólafur Sindri sem er 17 ára
og hyggur á menntaskólanám á Akur-
eyri í haust. Ragnar bróðir hans legg-
ur hins vegar stund á heimspekinám
við Háskóla íslands.
Snældurnar verða myndskreyttar
við hæfl og á bakhlið verða upplýsing-
ar um þá staði þaðan sem hljóðin eru
upprunnin. Bræðurnir hafa kannað
áhugann á hugmyndinni á Netinu og
fengið góð viðbrögð. Þeir hafa ekki
enn lagt í mikla fjárfestingu vegna
fyrirtækisins en hyggjast verðleggja
snælduna á 29 dollara. „Það er sama
verð og ferðamenn eru að greiða fyrir
geisladisk með íslenskum þjóðlögum.
Á snældunum okkar verða aftur á
móti íslensk hljóð,“ sagði Ólafur
Sindri. -EIR
Ólafur Sindri við upptökur á íslenskum hljóðum í Reykjavík. DV-mynd Gólfi
Nýtt blátt lón
Forseti ís-
lands, Ólafur
Ragnar Gríms-
son, var við-
staddur þegar
nýtt blátt lón í
Svartsengi var
opnað í gær.
Hraunhella,
sem táknaði upphaf framkvæmd-
anna, var afhjúpuð í gær. Lónið
verður opið alla daga vikunnar frá
kl. 9-22.
Á suðurskautið
Ingþór Bjamason og Haraldur
Örn Ólafsson, tveir þeirra þriggja
sem gengu á suðurskautið fyrir
einu og hálfu ári, ætla á næsta ári
að ganga á norðurpólinn. Þing-
maðurinn Ólafur Öm Haraldsson
fer ekki með þeim að þessu sinni
en aðstoðar félaga sína frá íslandi.
Morgunblaðið sagði frá.
í leitirnar
Tvær konur sem björgunar-
sveitarmenn á Austöörðum leit-
uðu að fundust heilar á húfi um kl.
22.30 í gærkvöldi. Konurnar voru á
leið frá Egilsstöðum í Loðmundar-
fjörð en hafði seinkað af einhverj-
um orsökum. Bylgjan sagði frá.
Biðin styttist
Stjóm íbúðalánasjóðs kom sam-
an á fundi í gær til að ræða taflr
vegna afgreiðslu umsókna um hús-
bréf. Stjómin hefur uppi hug-
myndir um breytingar sem geta
stytt biðtímann um mánuð og er
gert ráð fyrir því að þær breyting-
ar taki gildi upp úr næstu mánaða-
mótrnn.
Fjölgun hjá íslandsflugi
Farþegum Islandsflugs í innan-
landsflugi flölgaði um 20 prósent á
12 mánaða tímabili, frá júlí til júní
1997-1998. Farþegum hefur Qölgað
úr 90 þúsund farþegum í 110 þús-
und farþega. Morgunbiaðið greindi
frá þessu.
Áhrif kvótaþings
Mathiesen sjáv-
arútvegsráð-
herra hefur
falið dr. Birgi
Runólfssyni,
dósent við HÍ,
að kanna áhrif
laga um Kvóta-
þing og Verðlagsstofu. Útvegs-
menn geta aðeins flutt aflamark
milli skipa að undangengnum við-
skiptum á Kvótaþingi.
81 milljón í styrki
Dagur greindi frá því að ráð-
herrarnir höfðu hátt í hundrað
milljónir króna til frjálsrar ráð-
stöfunar á síðasta ári og notuðu 81
milljón af því.
Fólksfjölgun á landinu
Alls fluttu 460 manns fleiri til
Kópavogs en frá bænum og 450
fleiri fluttu tO Reykjavíkur en frá.
Á landinu í heild sinni fluttu 680
fleiri til landsins en frá því. Suður-
land var eina iandsvæðið á lands-
byggðinni þar sem fleiri fluttu tO
svæðisins en frá því.
KB og Baugur
Baugur og Kaupfélag Borgfirð-
inga, sem bæði reka verslanir i
Borgamesi, hafa bæði sótt um lóð
við aðalgötu bæjarins, Borgar-
braut.
Skatturinn breytir
Stefnt er að því að gera breyt-
ingar á skattskýrslum einstak-
linga á næsta ári. Gert er ráð fyrir
að skattayfirvöld fyUi út skýrsluna
en viðkomandi staðfesti hana svo
með undirskrift sinni.
Laðar fólk að
Karl Björns-
son, bæjarstjóri í
Árborg, sagði í
Degi í dag að
bæjaryfirvöld
hefðu unnið
markvisst að því
að laða fólk tO
bæjarfélagsins.
Hann segir eftirsóknarvert að búa í
Árborg og hann hafi fundið fyrir
mikOli sókn og sveitarfélagið hafi
lagt sitt af mörkum tO þess. -hb