Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.1999, Qupperneq 28
i
Sölukössum er lokað
kl. 19.30
á laugardögum
og dregið
kl. 19.4S
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt,
hringdu þá I síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notað I DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
FÖSTUDAGUR 16. JÚLÍ1999
Básafell og DV:
Ekkert bólar
á lögreglunni
Ekkert bólar á lögreglurann-
sókn þeirri sem Svanur Guð-
mundsson, framkvæmdastjóri
Básafells hf„ boðaði í kjölfar frétta
DV af stjórnarfundum fyrirtækis-
ins og ráðagerðum um sölu eigna.
Öll viðskipti með hlutabréf í Bása-
felli voru stöðvuð á Verðbréfa-
*|)ingi í gær en þá hafði engin
hreyfing orðið á þeim frá því að
síðustu viðskipti fóru fram
snemma í júnímánuði.
Sjá nánar á bls. 4. Fundargerðin
öll er á Vísi.is. -EIR
Allt um
Vatnsberann
Lögreglan leitar Vatnsberans
um tilla Evrópu en hann er grun-
aður um að hafa banað manni.
Helgarblað DV er með úttekt á
Vatnsberanum og ferli hans. í
helgarviðtalinu er valkyrja Snigl-
anna, Hilde Hundesten, bifhjóla-
virki og dyravörður í Þórskaffi,
sem talar hispurslaust um ís-
lenska karlmenn, einkennileg við-
horf og lífið hjá mótorhjólageng-
inu. Guðrún Ögmundsdóttir þing-
maður segir frá draumum sínum
um að verða kokkur eða prestur
og Sigurgeir Þorgeirsson, fram-
kvæmdastjóri Bændasamtaka
íslands, rifjar upp skemmtilegar
'^ninningar frá æskustöðvunum á
Húsavík.
Gleði og spenna skein úr þessum andlitum sem brugðu sér í rússíbanann í tívolíinu í gær. En það kostar líka sitt og er dýrarara en að fara í lax. Bls. 2.
DV-mynd Pjetur
41 árs karlmaður grunaður um að hafa banað 48 ára íbúa við Leifsgötu:
Vatnsberans
leitað í Evrópu
- áhersla m.a. lögð á fyrri dvalarstaði í Svíþjóð, Þýskalandi og Bretlandi
Lögreglan í Evrópu leitar nú Þór-
halls Ölvers Gunnlaugssonar, 41
árs, sem er þekktur sem Vatnsber-
inn eftir samnefndu fyriræki í stóru
fjársvikamáli. Hann er grunaður
um að hafa banað 48 ára íbúa við
Leifsgötu aðfaranótt miðvikudags.
Eins og fram kemur á bls. 2 í dag
kom Þórhallur blóðugur á lögreglu-
stöðina í Reykjavík sömu nótt,
handtekinn fyrir ölvunarakstur.
Það blóð er talið vera úr hinum
látna.
Það var síðan í hádeginu í gær,
fimmtudag, sem kunningi hins
látna hafði samband við lögreglu og
óskaði eftir að hans yrði leitað þar
sem ekkert hafði sést til hans í á
annan sólarhring.
Var þá farið í íbúð
hins látna að
Leifsgötu þar sem
hann fannst með
stungusár.
Meint mann-
drápsvopn, hnífur,
fannst einnig á
staðnum. Krufning
á eftir að leiða í
ljós hver dánaror-
sök mannsins var. Ekki liggur fyrir
hver ástæða manndrápsins er.
Þórhallur Ölver er talinn hafa far-
ið með flugvél til Kaupmannahafnar
í fyrrinótt. Hann hefur m.a. dvahð
áður í Svíþjóð, Þýskalandi og Bret-
landi. Þess vegna er
áhersla kannski
sérstaklega lögð á
leit þar fyrir utan
Danmörku. Þar var
Þórhallur Ölver
handtekinn í janúar
1996 þegar fangels-
ismálayfirvöld
Þórhallur Ölver ^ eftir honum
Gunnlaugsson. tft að afPlána hinn
margumtalaða dóm
í Vatnsberamálinu. Hann hafði þá
verið dæmdur fyrir að svíkja 39 millj-
ónir króna út úr ríkinu með fólskum
vsk-skýrslum, m.a. á meðan hann sat
á Litla-Hrauni fyrir að afplána annan
dóm. Hæstiréttur dæmdi Þórhall
einnig til að greiða 20 milljónir króna
í sekt fyrir Vatnsberamálinu.
„Við höfum enn ekki fundið
manninn en leit og rannsókn heldur
áfram í samræmi við ósk starfs-
bræðra okkar í Reykjavík," sagði
Skov Koofoed, rannsóknarlögreglu-
maður hjá morðdeild Ríkislögregiu-
stjórans í Kaupmannahöfn, í morg-
un.
Hinn látni hét Agnar W. Agnars-
son og var einhleypur. Hann hafði
stundað viðskipti af ýmsum toga í
Reykjavík undanfarin ár og meðal
annars verið baráttumaður fyrir lög-
leiðingu fikniefna.
Sjá nánar á bls. 2.
-Ótt/-EIR/-EIS
Agnar W. Agn-
arsson.
RÚSÖÍBANI FYRIR
BANKASTJÓRA!
Veðrið á morgun:
Hiti 8 til
12 stig
Á morgun er gert ráð fyrir
austan- og norðaustanátt og vind-
hraða 5-8 m/s. Rigning verður
austan til en skýjað að mesu og
stöku skúrir norðan- og vestan tiL
Hiti verður yfirleitt á bilinu 8 til
12 stig.
Veðrið í dag er á bls. 29.
10 /- r V ( V
Jé io°2 \ll°
Pantið í tíma
da^ar í Þjóðhátíð
FLUGFÉLAG ÍSLANDS
570 3030