Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1999, Side 9
FÖSTUDAGUR 23. JÚLÍ 1999
9
Utlönd
i hár saman
vegna Darwins
og Maríu meyjar
DV, Ósló:
María mey var saklaus af erfða-
syndinni og hún var guðdómleg
hrein mey, einnig eftir að hafa
fætt son sinn Jesúm. Um þetta
eru norskir trúmenn sammála -
en hvar eru sannanimar fyrir
þessu? Það er verra mál og nú um
hábjargræðistímann logar mál-
gagn séra Kjells Magnes
Bondeviks, forsætisráðherra Nor-
egs, í illdeilum um málið.
Meðan aðrir norskir fjölmiðlar
eiga í mesta basli með að fylla
síður sínar í gúrkutíðinni er eng-
inn hörgull á efni í málgagninu
sem ber nafnið Vort land. Prestar
vegast þar daglega á með rit
Marteins Lúters og Biblíuna í
hönd í leit að sönnunum fyrir
meydómi Maríu sem þó var ekki
dreginn í efa.
Þetta er þó ekkert í samanburði
við að hópur nemenda fékk núll
fyrir að svara spurningu um þró-
un tegundanna á stúdentsprófi
samkvæmt sköpunarsögu Biblí-
unnar. Ekki færri en sex prófess-
orar hafa undanfarið deilt um mál-
ið. Einn þeirra segir að tilvitnun í
Biblíuna gefi rangt svar en hinir
fimm segja að þá sé sannkristnum
stúdentum mismunað - enda sé
Biblían æðri vísindum villutrúar-
mannsins Darwins. -GK
Útför Kennedys og Bessettesystra fór fram á hafi úti:
Munaðarlaus börn, sem öll bera HlV-veiruna, leika sér á barnaheimili í Jóhannesarborg í Suður-Afríku. Að sögn
Sameinuðu þjóðanna eru átta milljónir munaðarleysingja í landinu sýktar af HIV. Símamynd Reuter
Edward Kennedy ásamt konu sinni Vicky um borð í strandgæslubátnum Sani-
bel sem flutti aðstandendur Johns F. Kennedys og Bessettesystra út í herskip-
ið Briscoe þar sem ösku þremenninganna var dreift. Símamynd Reuter
aðstandendur. Tveir háttsettir yflr-
menn bandaríska sjóhersins voru
viðstaddir athöfnina en henni
stýrði að kaþólskur prestur.
„Þetta var ekki formleg útför að
hætti sjóhersins,“ sagði Ken
Bacon, talsmaður Pentagon.
„Hvort fjölskyldurnar vilja upp-
lýsa hvað fór fram um borð er
undir þeim sjálfum komið,“ sagði
Bacon jafnframt.
Nokkur hundruð manns komu
saman á eyjunni Martha's Viney-
ard til þess að fylgjast með athöfn-
inni úr fjarska.
í gær var Kennedyhjónanna
minnst í kirkju heilags Patreks í
New York. Athöfnin var opin al-
menningi og var vel sótt. í morgun
var síðan haldin önnur minning-
arguðsþjónusta í New York en hún
var eingöngu ætluð fjölskyldu og
vinum. Lauren Bessette verður
minnst í Connecticut á morgun.
Kafarar hafa nú náð nánast öllu
flakinu á land en talið er víst að
rannsókn á tildrögum slyssins taki
ekki undir sex til átta mánuðum.
£?Abu
Garcia
yeiðivörur
Þú færð veiðivömna
hjá okkur
Útför Johns F. Kennedy yngra,
eiginkonu hans, Carolyn Bessette,
og mágkonu, Lauren Bessette, fór
fram á hafi úti í gær. Útförin fór
fram í tundurspillinum Briscoe,
skammt frá staðnum þar sem þre-
menningamir létu líflð um síðustu
helgi þegar flugvél Kennedys
steyptist í hafíð.
Snemma í gær voru lík þre-
menninganna krufin og síðan
brennd. Niðurstaða krufningar
leiddi í ljós að öll þrjú hefðu látist
samstundis af áverkum sínum.
Athöfnin var látlaus og hana
sóttu flmmtán úr Kennedyfjöl-
skyldunni, þar á meðal systir
Johns F., Carolyn Kennedy
Schlossberg og Edward Kennedy
öldungadeildarþingmaður, bróðir
Johns F. Kennedys, fyrrum forseta
Bandaríkjanna. Þá voru aðstand-
endur Bessettesystra viðstaddir, þ.
á m. móðir þeirra og systir.
Að ósk fjölskyldunnar var fjöl-
miðlum haldið i sjö kílómetra fjar-
lægð. Úr fjarlægð mátti greina
hvítklædda sjóliða og svartklædda
Osku þremenninganna
varpað í vota gröf
Kæliskápur CG1340
- Kælir 216 Itr.
• Frystir 71 Itr. B**3
•Tvær grindur
• Sjálfvirk afþýöing í kæli
•Orkunýtni B
•Mál hxbxd: 165x60x60
i V
pf_
Kæliskápur CG 1275
• Kælir 172 Itr.
• Frystir 56 Itr. B*«»l
•Tværgrindur
• Sjálfvirk afþýðing í kæli
• Orkunýtni C
• Mál hxbxd: 150x55x60
Kæliskápur RG 1145 » í
• Kælir 114 Itr.
•Klakahólf 14 Itr.
• Orkunýtni D
• Mál hxbxd: 85x50x56
Q)inDesiT m
Kæliskápur RG2190
• Kælir 134 Itr.
• Frystir 40 Itr.
• Sjálfvirk afþýöing I kæli
• Orkunýtni C
•Mál hxbxd: 117x50x60
ixœiidnapui nu lluu
•Kælir 184 Itr
• Frystir 46 Itr
■ Sjálfvirk afþýðing í kæli
•Orkunýtni C
*Mál hxbxd: 139x55x59
Kæliskápur RG 2290
• Kælir 211 Itr.
• Frystir 63 Itr. Q**3
• Sjálfvirk afþýöing í kæli
• Orkunýtni C
• Mál hxbxd: 164x55x60
Þú þarf ekki að blða eftir næsta tilboði. Þu færð okkar lága INDESIT - verð al I a daga