Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.1999, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.1999, Blaðsíða 3
 m e ö m æ 1 i e f n i Lífid eftir vinnu Tískuvikan „Futurice" verður haldin eftir ár. Þetta er stærsti tískuatburður sem hér hefur veri haldinn og frábært tækifæri fyrir íslenska hönnuði Oðruvisi stökkpalUur í Laugaraalslaug Þaö hefur ekki farið fram hjá neinum að á næsta ári verður Reykjavík ein af menningarborg- um Evrópu. Hér verður því allt vaðandi í ýmiss konar listrænu menningarsprelli og er dagskrá ársins smám saman að skýrast. Margir koma að verkefninu, þ. á m. Eskimo models sem sjá um tískuvikuna „Futurice". „Við erum núna að leita að fata- hönnuðum til að taka þátt í verkefh- inu,“ segir Þórey Vilhjálmsdóttir hjá Eskimo. „Það verða valdir nokkrir hönnuðir úr hópi umsækj- enda og okkar takmark er að fá bestu fatahönnuðina á landinu til að taka þátt í því. Þetta er stórt tæki- færi því þeir sem verða valdir taka þátt í tískusýningu ásamt heims- frægum erlendum hönnuðum og fyr- irsætum." Hér er Þórey að tala um framúr- stefnulega tískusýningu sem verður í Laugardalslaug 12. ágúst árið 2000. Veröur sýningin stökkpallur óþekktra hönnuöa inn í tískubrans- ann? „Jú, þetta er frábært tækifæri til að komast inn í þennan bransa því hönnuðimir þurfa ekki að kosta sig utan heldur kemur tískupress- an hingað. Þar fyrir utan er auð- veldara að láta taka eftir sér hér heldur en að fara utan. Fólk vill týnast í fjöldanum þar.“ Þurfiöi nokkuö aö halda svona samkeppni, þekkiöi ekki alla í bransanum? „Nei, við erum að vonast til að finna fólk sem við höfum ekki vit- að af áður, t.d. fólk sem er að læra erlendis eða er bara sjálft að hanna heima hjá sér.“ Hberjir eru í dómnefndinni? „Það era fulltrúar frá Eskimo, Menningarborg og frægur erlend- ur hönnuður.“ Sem er? „Leyndarmál." Umsóknarfrestur rennur út 15. ágúst. Það eru engin þátt- tökuskilyrði og hönnuðir framtíðar eiga að skila möppunum inn til Eskimo Models. Úrslit verða tilkynnt 25. ágúst. 30. júlí 1999 f Ó k U S Hreimur í Landi og sonum: Semur öll lögin og fílar Sigurrós þig• þú að eitthvað um verslunar- mannahelgina? 8 Cubbar fræg málv Ensírtii á þjéðhátíð Pissuskálar ikjálftlnn virk Iverjir voru hwi 17-23 Myndavél helgarinnar er Nikon Nuvis S. Þessi vél fer vel I öll tjöld og þolir jafnvel rigningu. Hún lokast vél og þaö ætti að vera í lagi að æla yfir hana, stíga ofan á hana en, í guðanna bænum, ekki týna henni. Hún er rándýr. Flottasti stóllinn ! dag er þessi rauöi flauelsstóll úr stáli. Hann er kallaður Soshun og hannaður af Edra Mazzei. Stóll- inn kostar bara 70.000 kall í London og að sögn er hreinn unaöur að sitja í hon- um. Arnar Valdimarsson gerði kökuvefinn eftir uppskrift mömmu sinnar með vini sínum og vinnufélaga, Birgi Ingimundarsyni. http://koLu.vefurinn.to „Ég fékk'hugmyndina að þessum vef fyrir svona einu og hálfu ári sið- an,“ segir Arnar Valdimarsson, hönnuður hjá Nýherja, en hann hef- ur ásamt félaga sínum, Birgi Ingi- mundarsyni, búið til ótrúlegan kökuvef sem er alveg örugglega einn itarlegasti sinnar tegundar í öllum heiminum. „Mig langaði bara til að gera heimasíðu fyrir sjálfan mig og nennti ekki að gera einhvern svona „hérna er ég“-vef,“ heldur Arnar áfram og bætir því við að hann hafi líklega verið nýbúinn að borða köku hjá mömmu þegar hann fékk hug- myndina að kökuvefnum. En vefurinn flallar einmitt um grænu köku móður Arnars. Sú kaka er alveg einstaklega bragðgóð og hvaða klúðrari sem er ætti að geta eldað hana með ítarlegu leiðbeining- unum á heimasíðu Arnars og Birgis því þar er nákvæm útlistun á öllu sem þarf til að baka kökuna. Þá erum við ekki bara að tala um upp- skrift heldur er þér líka kennt að setja spaðana í þeytarann, það er út- skýrt fyrir þér hvað lyftiduft er og húsráð gefm, ásamt almennri sið- fræði eldhússins. Og er mikil vinna búin að fara í vefinn? „Svoldil. Þetta er búið að vera áhugamál hjá okkur í ár,“ svarar Birgir. En hvaða hendur eru það sem baka á vefnum? „Það er kærastan mín,“ segir Arnar. „Hún Tinna Ýrr Arnardótt- ir. Hún var samt með annað nagla- lakk þegar við tókum myndimar af henni.“ í náinni framtíð stefna félagamir á frekari sigra í kökuvefgerðinni. Þeir ætla að bæta við kökum án þess þó að slaka á metnaðinum og iturleikanum. Það verður fróðlegt að fylgjast með því og Fókus hvetur alla til að kíkja á http://koku.vefur- inn.to, sjón er sögu rikari. Ingvi klippari: „Sítt að aftan, ekki 4 spurning“ j Bækur: Venjuleg frík koma út úr skápnum Dr. Love: Allt um rakstur karl- manna 16 Þegar Tupac Shakur lenti í steininum fyrir nokkrum árum neit- uðu allir féiagar hans að lána honum millj- ón dollara í tryggingu. Ástæðan er einföld. Tupac var ruddl þar til hann drapst og nú er komið út virkilega djúsí myndband sem segir alla söguna. Þetta er heimildarmynd um Tupac. byggð á viðtölum við kauða ásamt heimamyndböndum vina og vandamanna. Kauptu þér klossa og láttu prjóna utan um þá. Gjöf sem gleöur meira en orð fá lýst, sérstak- lega ef gefandinn prjónar sjálfur. Það vantar fleiri svoleiðis gjaf- lr í líf okkar. Poppið: Manic Street Preachers kúka á kerfið Bíó: Notting Hill og Gloria 14-15 Þetta eldhústól á að vera til á hverju heimili. Það jafnast ekkert á við heimatilbúinn shake og auðvitað er hægt að nota þessa hrærivél í hvað sem er. Það er hægt að skipta um göndul á henni og breyta í hakkara, hrærara eða taka tækið bara með í rúmiö. f ókus fylgir DV á föstudögum Forsíðumyndina tók Hilmar Þór af Hreimi Erni Heimissyni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.