Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.1999, Qupperneq 18
Líficf eftir vmnu
#
3 haf
<•
Björk stelur samlokum
Björk dvelur þessa dag-
ana ! Kaupmannahöfn
og er auðvitaö fastur
gestur í Extra-blaðinu.
Fyrir viku var því slegið
upp í stórfrétt að Björk
hefði ruðst inn í eldhús veitingastaðar, gripið
þar sjö samlokur og rokið út. Starfsmenn
hlupu á eftir henni en sáu hana ekki á stétt-
inni. Töldu þeir að hún hefði fariö inn á veit-
ingastaðinn Café Bjorg sem er hinum megin
á götunni og faliö sig þar. Björk mun vera
fastagestur á
Café Bjorg. Áður
en fúlir samloku-
eigendur leituðu
til lögreglu kom
þriggja metra lifvörður Bjarkar, þaöst fyrir-
gefningar fyrir hönd stórstjörnunnar og borg-
aöi.
Emilíana gerir vídeó í Prag
Linda BJörk Árnadóttir fatahönnuöur er í Prag
þessa dagana aö stílisera myndband meö
Emllíönu Torrlni sem Sophle Muller leikstýrir.
Það hefur lítiö heyrst frá Em-
iliönu undanfariö annað en
lagið Dead Things sem kom
út nýverið. Myndbandið sem
nú er verið að gera í Prag er
viö lagið To Be Free sem er
önnur smáskífa stelpunnar.
Þriöja smáskífan veröur meö laginu Baby Blue
og svo kemur stóra platan, Love in the Time
of Science. Planið er að allt þetta góðgæti
komi út á þessu ári. Nammi namm.
Búlgörsk bíómynd á íslandi
Robert Douglas er loksins farinn að taka upp
búlgörsku myndina sína. Hann var heldur yfir-
lýsingaglaöur fýrir ári þegar hann sagðist vera
á leið í tökur. En nú hefur honum loksins tek-
ist ætlunarverk sitt og er að gera stuttmynd-
ina um búgarska sígarettusölumanninn aö
bíómynd. Júlli Kemp framleiðir.
Sjálfstætt fólk í bíó
STMH Leikstjórinn Hector Babenco
■ ^ gerði Kiss of the Spider
* Woman 1985. Síðan gerði
,3 hann Ironweed 1987 og hef-
ur lítið heyrst frá honum sfð-
an en hann á víst aö hafa
M dundaö sér við aö gera
spænskar myndir. Nú ætlar kappinn hins
vegar að snúa aftur og ekki með ómerkilegri
mynd en Sjálfstætt fólk, eða svo segir sag-
an. Já, innan nokkurra ára ættum við því aö
fá tækifæri til að horfa á söguna hans Lax-
ness leikna af stórleikurum (engir nefndir) í
leikstjórn Hectors.
Blámenn berjast
Eina ferðina enn eru stuttbuxnastrákarnir í
SUS komnir í slag enda á að kjósa formann
22. ágúst. Sigurður Kári Krlst-
jánsson og Jónas Þ. Guð-
mundsson heita piltarnir og
eyða miklum tíma og peningum
í baráttuna um þetta ólaunaða
formannssæti, enda væntan-
lega gott veganesti í pólitiska
slönguspilinu. Þaö sem helst skilur þessa
blámenn aö er að Jónas er dipló ihaldssegg-
ur af gamla skólanum en Sigurður er hress
frjálshyggjupúki að hætti Hannesar Hólnv
stelns. Þjóðin bíður spennt.
•Opnanir
Ásdís Arnardóttlr opnar I dag sýningu i Gallerí
Nema hvað á Skólavörðustig 22c. Hún er ný-
útskrifuð og sýnir verk, unnin með oiíu á plöt-
ur. Þessi sýning stendur til 8. ágúst.
Spor t
Vönduð bókmenntadagskrá fer fram á Halló
Akureyrl fyrir þá sem þannig eru innstilltir. í
kvöld er það heimur Ijóðsins sem kynntur verö-
ur í Deiglunni. Það eru Ijóð Brechts og Jóns
Helgasonar sem eiga upp á pallborðiö en um
dagskrána sjá Þorsteinn Gylfason, sem talar,
og Sif Ragnhildardóttir sem syngur.
•F eröir
Nóg að gerast hjá Ferðafélaglnu núna enda
löng helgi. Klukkan 18 verður lagt af staö í
helgarferð undir nafninu „Öræfin heilla". Þetta
er túr um Nýjadal, Vonarskarð, Laugafell og
Hágóngulón. Gist er í Nýjadal. Frábært!
Það er hægt að fara í bíltúr með Ferðafélag-
inu, bíltúr sem tekur alla helgina. Maður lif-
andi! Þetta er ökuferð um fjallabaksleiöir:
Laugar - Eldgjá - Álftavatn - Þórsmörk. Farið
úr borgini klukkan 19 og komið til baka á
mánudag. Kúl.
Ferðafélagið efnir
til hraðgöngu á
„Laugavegin-
um“. Laugar -
Álftavatn
Þórsmörk. Far-
angur verður
fluttur. Lagt verð-
ur upp frá Reykja-
vík klukkan
Þriggja bomsu sumarleyfisferð á vegum Ferða-
félagslns hefst í dag. Kannaöir verða leyndar-
dómar óbyggðanna vestan Vatnajökuls. Fariö
af stað klukkan 18 í dag og ekið í Nýjadal við
Sprengisandsleið. Gist þar. Á morgun er svo
keyrt norður f mynni Vonarskarðs og gengið í
Köldukvfslarbotna. Á sunnudag er gengið aö
Hamrinum ogtjaldað þartil tveggja nátta. Síö-
an er dagsganga um nágrennið á mánudag,
labbað niður i Jökulheima á þriðjudag og loks
ekiö heim með viökomu f Hraunvötnum og
skoöunarferö
Á laugardag og sunnudag má bregða sér í fróðlega og ánægjulega staöar-
skoðun um Sólheima. Fyrst er sögukynnlng í íþróttaleikhúsinu klukkan þrjú
og svo er farið og kíkt á starfsemina hjá verkstæðunum og fyrirtækjunum.
Ræktunar- og umhverfisátak Sólheima fær sérstaka umfjöllun. Listhús Sól-
heima og Verslunin Vala eru opin og tilboð er á lífrænt ræktuöu grænmeti
hjá garðyrkjustöðinni. Kerti og blóm eru einnig á sértilboði um helgina.
Vissuð þið að Sólheimar eru vistvænt byggðahverfi og aðili að Global Eco-
village Network?
Veiöivötnum á fimmtudag. Fararstjóri er Gest-
ur Kristjánsson.
Þórsmerkurferó í lengri kantinum hjá Ferðafé-
lagl íslands. Haldið er f Langadal. Brottför
klukkan 19.
Feröafélag Akureyrar er enginn eftirbátur
systur sinnar í Reykjavfk. Helgarökurferö er á
dagskránni. Ekið að Laugarfelli, Ingólfsskála
og I Skagafjörö. Lagt af stað klukkan 17 og
komið heim á mánudag.
•K lúbbar
Færustu og bestu snúöar okkar íslendinga eru
samankomnir á Thomsen þessa helgi. Það
kostar þúsundkall inn en í Þrumunni má fá for-
sölumiða sem gilda á öll kvöldin og kosta bara
Verðurðu í
Verslunarmannahelgin er yfir-
leitt sett i samhengi við útihátíðir
en það eru alltaf einhverjir sérvitr-
ingar sem nenna ekki eða geta
ekki farið út úr bænum. Þeir
verða að sjálfsögðu að fá eitthvað
fyrir sinn snúð og ekki er verra að
það sé plötusnúður. Kaffi Thomsen
ætlar að sjá um sína þessa helgi og
gefa útihátíðunum ekkert eftir.
Þar verður alger snúðaveisla alla
helgina. Plötusnúðarnir Frímann
og Amar (þeir verða einmitt með 6
tíma 4deck á laugardag), Bjössi,
Reynir, Grétar, Andrés, Bix,
Tommi, Rampage, Alfred More,
Fingaprint, Þossi og Herb
Legowitz þeyta skífurnar sem
verða ófáar og í öllum stærðum og
gerðum. Og þetta er að sjálfsögðu
fram á morgun. Loksins almenni-
leg næturklúbbastemning í
Reykjavík. 2000 kall fyrir þrjú
kvöld í forsölu hjá Þrumunni, Jap-
is og á Thomsen en annars er það
1000 kall hvert kvöld og frír bjór
þegar þú mætir á staðinn. Nýtt
hljóðkerfi.
klúbbar
tvö þúsund. þrjá fyrir tvo sem sagt.
Skuggabar: Áki og Nökkvi Sjá um dúmp
dúmpið. Þið hin sjáiö um uhh uhhið.
Tomml dídíar á
Vegamótum í
kvöld.
Sólon íslandus
ætlar að skapa
vettvang fyrir
feitt fönk frumbyggjanna. Meðlimur The
Diswasher Crew þeytir skífur í félagi við hljóö-
færaleikarana Buzzby og Tómas sem hamast
á didjeridoo og gyðingahörpu.
I Leikhúskjallaranum má nálgast Gumma
Gonzalez og tónlist hans.
•Kr ár
Café Hafnarfjoröur býður gestum sínum upp á
fjörugt diskó til klukkan þrjú. Sannir karlmenn
sem dansa ekki og gera ekki luftgttar sitja
bara og horfa á júrósport á risaglyrnu sem
horfir á móti og passar að enginn hugsi neitt
Ijótt.
Sólon er á
Amsterdam.
Þessi káta
hljómsveit leik-
ur öfluga
blöndu af
rokktónlist og
fönki. Sölvi hefði orðið ánægður.
„Þaö er skynsamlegast að vera í bænum,"
segja vertarnir á Gauknum og standa við það
með því að ota fram DJ Tomma og Jónl Atla,
rödd Guös.
Leyniþjónustan hefur tekið sér bólfestu inni á
Catalínu í Kópavoglnum.
Fógetlnn teflir
fram Hersvelt-
Innl. Kannski
ekki jafn djúsí
og stórskotalið
útihátíðanna
en örugglega
fínt samt.
✓ Geir Ólafsson og Furstarnlr eru á góöu róli á
Naustkránni, enda prófessjónal liö allt saman.
Níels Ragnarsson og Hermann Arason mynda
Sælusveltina sem skemmtir gestum Gullald-
arlnnar að þessu sinni. Brjálaö stuö.
Á Fjörukránni er KOS að brýna raust sína.
Komdu og sjáðu.
Á Rauða Ijónlnu er Torfl trúbbi meö endurtek-
ið efni frá í gær.
Allson Sumner er í bænum um helgina og
heldur uppi dampi á Café Romance.
Hvað er þetta með hann
Guömund Rúnar Lúö-
víksson og sokka? Hann
og Þröstur Haraldsson
skemmta saman á
Kringlukránnl milli dopp-
óttra slíkra.
Leynifjelaglð slakar
hvergi á og lyftir Kaffi
Reykjavík upp f hæðir.
Foster's á harnum.
Böl 1
Anna og Hilmar í sveiflu á Næturgalanum í
Kópavoginum. Anna hefur staðið í eldlinu ís-
Bíóborgin
Wild Wlld West ★ James
West og Artemus Gordon
eru sendir í vestrið til að
leita uppi snarbrjálaðan vís-
indamann, Dr. Arliss Lovel-
ess, sem er langt á undan
sinni samtíð í uppfinninga-
semi sinni. Sá hefur uppi
áform um að myrða forseta
Bandarikjanna. Sýnd kl.:
4.40, 6.50, 9 og 11.10
Wing Commander ★ Ein leiðinlegasta stjörnu-
striðsmynd sem gerö hefur verið. Það er ekki
hægt að fá neinn skynsamlegan botn i myndina,
hún er eins liflaus eins og tölvuleikurinn sem hún
er gerð eftir. Markaðsverö ungu leikaranna sem
eiga að selja myndina hlýtur að hafa lækkað þeg-
ar frammistaða þeirra í myndinni er höfð í huga,
þar sem helst má ætla af látbrögðum þeirra að
víðátta geimsins sé knattspyrnuvöllur. -HK Sýnd
kl.: 9,11
Lollta ★★★ „Saga þessi er svo umdeild aö hún
hefur verið skotspónn rauðsokka i tæp fimmtíu ár.
Það er ekki síst Jeremy Irons að þakka hversu
minnisstæð Lolita er." -HK Sýnd kl.: 6.40
Matrlx ★★★ „Fylkið stendur... uppi sem sjón-
ræn veisla, sci-fi mynd af bestu gerð, og er ekki til
•fc neins annars til bragðs að taka en að fá sér bita“,
segir Halldór V. Sveinsson kvikmyndagagnrýnandi
Fókuss um Matrix. Sýnd kl.: 6.40, 9.15
Pig In the Clty ★★ Dýrin, sem fá mikla aðstoð
frá tölvum nútimans, eru vel heppnuð og þótt oft
sé gaman að apafjölskyldunni og hundinum með
afturhjólin þá eru dýrin úr fyrri myndinni, bitastæö-
ustu persónurnar. -HK Sýnd kl.: 5
Mulan ★★★★ Uppfull af skemmtilegum hug-
myndum og flottum senum, handritiö vel skrifað
og sagan ánægjulega laus við þá yfirdrifnu væmni
sem oft einkennir Disney. -úd Sýnd kl.: 4.50
Bíóhöl1in
Wild Wild West ★ Sýnd kl.: 4.40, 6.50, 9,11.10
Wlng Commander ★ Sýnd kl.: 5, 7, 9,11
The Mummy
★★★ Sútilfinn-
ing læðist að
manni að að-
standendur The
Mummy hafi
bara haft svolit-
ið gaman af því sem þeir voru að gera og það er
kærkomin tilbreyting frá hinni straumlínulöguðu
og sálarlausu færibandaframleiöslu sem
Hollywood sendir svo oft frá sér yfir sumartímann.
Ekki svo að hér skorti neitt uppá straumlínur og
færibönd en einhver sannur græskulaus gam-
antónn fylgir með í pakkanum, líklega kominn frá
einhverjum sem man eftir fjörinu í þrjúbíó i gamla
daga. -ÁS Sýnd kl.: 4.30, 6.45, 9,11.15
Matrlx ★★★ Sýnd kl.: 5, 7, 9,11
10 Thlngs I Hate about You 10 Thlngs I Hate
about You segir frá ólíkum systrum. Bianca, er
vinsæl, falleg og rómantísk stúlka sem strákar
hrífast af. Kat er af allt öðru sauðahúsi, skap-
vopnd og gáfuð og þolir ekki stráka, sem hún tel-
ur vera óæðri verur. Sýnd kl.: 5, 7, 9,11
Háskólabíó
Nottlng Hlll ★★★Sæta sæta Julia Roberts er rosa
fræg leikkona og verður hrifin af sæta sæta Hugh
Grant sem er bókaormur. Sýnd kl.: 5, 7, 9,11.20
Fucking Ámál
★★★ Agnes hef-
ur búið I
krummaskuðinu
Ámál í næstum
tvö ár og hefur
enn ekki náð að
eignast vini, enda hlédræg og fáskiptin. Aftur á
móti er hún bálskotin i Elinu sem er eiginlega að-
algellan í bænum, sæt, sexí og til i hvað sem er -
hvenær sem er. Sýnd kl.: 5, 7, 9,11
Perdlta Durango ★★ Leikstjórinn Alex de La Igles-
ia leitar í smiðju Tarantinos og Rodriques. Gallinn
er bara sá að hann kann sér ekki hóf og því virkar
ofbeldiið, sem er kjarni myndarinnar ekki og ég
hafði þaö oft á tilfinningunni aö tilgangurinn væri
ekki að gera metnaðarfulla kvikmynd um hið flókna
eöli mannsins, eins og margt bendir til i handritinu,
heldur eingöngu að reyna á þolrifin í mannskepn-
unni hvað varðar ofbeldi. -HK Sýnd kl.: 9
HFLo Country ★ Efni í ágætis nútíma vestra með
tregablöndnum tóni en einhvernveginn fær maður
aldrei þessa tregatilfinningu því leikstjóranum virð-
ist nefnilega hafa vantað þá sannfæringu sem þarf
til að ná hinum sanna vestratóni; þaö er ekki nóg
að kunna góð skil á þeirri endurskoðun sem vestr-
inn hefur gengið í gegnum á síðari árum, maður
verður líka að hafa svolítið kæruleysi, lausbeislað
hugarfar og frelsisþrá í brjósti. -ÁS Sýnd kl.: 4.45
Go ★★★ Go er hröð og hrá en um leið beinskeytt
kvikmynd um ungmenni á villigötum. Leikstjórinn
Doug Liman kann að fara með svartan húmor og
er myndin góð blanda af spennu og fyndni. Sköp-
unarþörfin er mikil hjá Liman og í sumum atriðum
nánast skin hún i gegn, en hann ætlar sér um of
stundum og það er eins og hann eigi eftir að fin-
pússa stílinn. Leikarar sýna upp til hópa sýna góð-
an og agaðan leik. -HK Sýnd kl.: 5, 7, 9,11
Fávitarnlr Hópur af ósköp venjulegu ungu fólki
ákveður að gera uppreisn gegn hræsni þjóðfélags-
ins og ábyrgðarleysi fólks með því að þykjast vera
fávitar og búa um sig meðal venjulegs fólks. Hóp-
urinn tekur mjög ákveöna stefnu og er ekkert að
hika viö aö búa til alls konar óreiðu í þjóðfélaginu
og egna fólk til reiði. Viðbrögöin láta ekki á sér
standa. Sýnd kl.: 11
Kringlubíó
Wing Commander ★ Sýnd kl.: 5, 7, 9,11
Wild Wild West ★ Sýnd kl.: 4.40, 6.50,9,11.10
Matrlx ★★★ Sýnd kl.: 6.40, 9.15
My Favorlte Martlan ★★
Pöddulíf ★★★ Það sem skiptir máli i svona
mynd er skemmtanagildið og útfærslan og hún er
harla góð. -úd Sýnd kl.: 4.45
Laugarásbíó
Wlld Wlld West ★ Sýnd kl.:
Austln Powers, Njósnarlnn
sem negldi mlg ★★ Mike
Myers telur enn ekki full-
reynt með njósnarann og
gleðimanninn Powers, sem
hér birtist aftur í mynd sem
er lítið annað en röð af
„sketsum" en þvi miður
alls ekki eins fyndin og efni
standa til. Mér segir svo
hugur að ef Myers og félagar hefðu nennt að setja
saman eitthvað sem liktist sögu hefði glensið orð-
ið svolítið markvissara, því þá hefði ekki verið jafn
mikill tími fyrir allan fiflaganginn; minna hefði sem-
sagt orðið meira. -ÁS Sýnd kl.: 5, 7, 9,11
Cruel Intentlons ★★ Fær plús fyrir skemmtilega
ósvífni, hreinskilið tungutak og skort á siðsemi.
Hinsvegar hikstar myndin á lokakaflanum vegna
ónógrar undirbyggingar og ósannfærandi leiks. -
ÁS
Regnboginn
Virus Skip á Kyrrahafi
missir farminn. Geiriiverur
blanda sérí málin. Sýnd kl.:
5, 7, 9 og 11.
Office Space ★★★ Peter
Gibbons vinnur sem forritari
í stóru tölvufyrirtæki, Ini-
tech Corporation. Honum
hundleiðist rútínustarfið
sitt og er alltaf að hugsa um
að hætta. Þegar hann hittir hina glaðlyndu þjón-
ustustúlku Joanna sem ekki á heldur sæludaga í
sinni vinnu, tekur hann ákvörðun um að láta reka
sig úr vinnunni. Sýnd kl.: 5, 7, 9 og 11.
Never been Klssed ★★ Hér leikur Drew
Barrymore tuttugu og fimm ára stúlku sem vill
mikiö út úr lifinu og ætlar sér langt þegar hún byrj-
ar sem blaðamaöur á virtu dagblaði, Chicago Sun-
Times. Hún hefur gáfurnar og hæfileikana til að
skrifa góðan texta, en er eins og rati i einkalífinu.
í skóla var hún ávallt hæst, nörd sem kallaður var
Jossie Grossie. Hún hefur aldrei staðið í ástar-
sambandi við karlmann og það sem meira er,
aldrei verið kysst af karlmanni. Sýnd kl.: 4.45,
6.50, 9 og 11.15.
Entrapment ★★★ Entrapment er flókin saga
sem blandast miklum hraða þar sem bíógesturinn
þarf að hafa sig allan við að missa ekki af neinu
smáatriði. Réttan er skemmtileg en einhverra
4.40, 6.50,11.10
Sýnd kl.: 5, 7, 9,11
-V
18
f Ó k U S 30. júlí 1999