Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.1999, Síða 5
MIÐVIKUDAGUR 18. ÁGÚST 1999
5
Fréttir
Fjölmenni
á tööu-
gjöldum á
Hellu
Rauöisandur á Baröaströnd - eftirsóttur af athafnafólki úr Reykjavík.
Reykvískt athafnafólk tekur stefnuna á Vestfirði:
Af sólarströnd á Barðaströnd
„Þetta verður ef til vill til þess að
liðið fyrir sunnan fari að sjá að líf og
landshagir hér fyrir vestan sé ein-
hvers virði,“ sagði Ólöf Matthíasdótt-
ir, bóndi á Melnesi og Stökkum á
Rauðasandi í Barðastrandarsýslu, um
háværan orðróm í sveitinni þess efn-
is að reykvískt athafhafólk sé að
kaupa allar falar jarðir í sveitinni -
sé búiö að fá nóg af sólarströndum og
vilji nú á Barðaströnd. Verið er að
ganga frá sölu á Saurbæ á Rauða-
sandi sem Eyrarsparisjóður á Pat-
reksfirði eignaðist á uppboði og í bæ-
inn Fossá á hafa borist tilboð að
sunnan:
„Það er komið tilboð í Saurbæ en
ég get á þessari stundu ekki upplýst
hver kaupandinn er,“ sagði Hilmar
Jónsson sparisjóðsstjóri í gær. „Það
er í sjálfu sér ekkert leyndarmál en
verður ekki upplýst fyrr en skrifað
hefur verið undir kaupsamning."
Heimamenn þykjast vita hvaða ná-
granna þeir eru að fá þótt þeir séu ekki
alveg vissir um hver sé að kaupa hvaða
jörð en meðal væntaniegra kaupenda
eru nefndir Rannveig Rist, forstjóri ál-
félagsins, Jóhannes í Bónusi, Kjartan
Gunnarsson, framkvæmdastjóri Sjálf-
stæðisflokksins, og félagi hans, Hannes
Hólmsteinn Gissurarson.
„Ég hef nú búið hér í 32 ár og ætla
suður á mölina eins og allir,“ sagði
Stella Jónsdóttir, húsfreyja á Fossá
en hún og bóndi hennar eru nú að
skoða tilboð i jörðina. Fossá er næsti
bær við Flókalund að sunnanverðu
og voru settar rúmar 16 milljónir á
jörðina. „Ég veit ekki hvort Jóhannes
í Bónusi er að falast eftir jörðinni
enda er mér sama hver kaupir. Hér er
fallegt en engin laxveiöiá," sagði
Stella á Fossá.
Á Eyri við Kollafiörð hafa Wathne-
systur komið sér fyrir og Laugaból í
Amarfirði var selt undir sumarhúsa-
lóðir í fyrra.
„Við höfum fengið að slá túnin á
Saurbæ og mjólka þar kýr sem við
keyptum. Eftir krókaleiðum fengum
við þau skilaboð frá væntanlegum
eiganda að við mættum alveg halda
áfram að slá túnin og nota fiósið hon-
um að meinalausu þannig að það er
alveg ljóst að hér fer kaupandi sem
vill eiga góð samskipti við væntan-
lega nágranna sína,“ sagði Ólöf hús-
freyja á Melnesi og Stökkum en 10
kílómetrar eru á milli bæjanna
tveggja. Mitt á milli liggur svo Saur-
bær sem svo mjög hefur verið sótt í
að undanfómu. -EIR
- Jón Ársæll í falMífarstökki
Töðugjaldahátíð var haldin um
síðastliðna helgi á Gaddstaðaflöt-
um við Hellu 6. árið í röð. Hátíðin
á orðið sér fastan sess aðra helgi
frá verslunarmannahelgi og kem-
ur fólk vfða að til að skemmta sér
og sínum.
Hátíðin hófst á fostudagskvöldið
og stóð alla helgina. Rigning setti
aðeins strik í dagskrána um mið-
bik laugardagsins en hátíðargestir
létu það ekki á sig fá. Seinnipart-
inn stytti svo upp og á brekkusöng
og skemmtun um kvöldið töldu að-
standendur hátíðarinnar að hafi
verið hátt í 5000 manns.
Fallhlífarstökkssýningu var
frestað þar til á sunnudag. Á með-
al stökkvara var sjónvarpsmaður-
inn Jón Ársæll Þórðarson sem
stökk sitt fyrsta fallhlífarstökk og
var farþegi með öðrum reyndari.
Þegar Jón var lentur veitti hann
viðurkenningar Töðugjaldahátíðar
og Sunnlenska fréttablaðsins, alls
fimm talsins, og í ár fengu þær:
fyrir atvinnumál Þórir N. Kjart-
ansson í Vík, fyrir umhverfismál
Magnús Runóífsson, Hvolsvelli,
fyrir menningarmál Hildur Há-
konardóttir, Selfossi, og frumkvöð-
ull ársins var valinn Már Sigurðs-
son, Geysi. Fimmtu verðlaunin
eru síðan heimshomið. Þau eru
veitt þeim einstaklingi sem hefur
staðið sig best á innlendum og er-
lendum vettvangi og í ár hlaut þau
Sigurbjörn Bárðarson hestamað-
ur. -NH
Magnús hvala-
vinur bjargar
lundapysju
Nú stendur lundapysjutíminn
yfir í Vestmannaeyjum og krakkar
rjúka út á kvöldin til að safna
þeim í kassa. Farið er með
pysjurnar niður í fiöru og þeim
sleppt. Þessar björgunaraðgerðir
eru hluti af lífínu í Eyjum en hing-
að til hafa pysjur ekki þekkst á
Reykjavíkursvæðinu - þangað til í
gær. Magnús Skarphéðinsson,
hvalavinur og formaður músa-
vinafélagsins, fann þá eina limda-
pysju á Skólavörðustígnum og
kom með á DV. Pysjan var hálf-
horuð en Magnús var ekki klár á
því hvað ætti að gera við hana. En
eftir leiðbeiningar Eyjamanns á
ritstjóm fór hann með hana niður
i fiöru og sleppti henni.
-EIS
Ræða Davíðs í Hóladómkirkju:
Vill ekki ræða
málið við DV
Davíð Oddsson forsætisráðherra
hefur ekki gefið skýringar á því hvort
skírskotun hafi verið í orðum hans á
Hólahátíð í síðustu viku til kaupa
eignarhaldsfélagsins Orca S.A. á
hlutabréfum í FBA. DV leitaði eftir
samtali við Davíð um ræðu hans í
Hólakirkju um sölu hlutabréfa í fyrr-
um ríkisbönkum og hvort hann óttað-
ist að ítök tiltekinna einstaklinga í
fiármálastofnunum hér á landi sköp-
uðu slika hættu sem hann hefur gefið
í skyn. Síðdegis i gær bárust þau boð
frá forsætisráðuneytinu að Davíö
óskaði ekki eftir samtali um málið.
í umtalaðri ræðu forsætisráðherra
í Hóladómkirkju sagði hann m.a.
þetta:
„Fargi var létt af frjálshuga fólki
um allan heim þegar múrinn féll og
kommúnisminn flaut yfir hrunið
steypuvirkið og fiaraði út. En það
mikla land Rússland með öllum sin-
um náttúrukynstrum og -kostum fær
ekki notið sín því stjórnkerfið og
efnahagslífið nær ekki að þroskast og
virðist um þessar mundir einkum
lúta lögmálum glæpalýðs og eitur-
lyfiabaróna. Blóðpeningar þeirra
flæða um Evrópu og skapa þar ótta og
öryggisleysi. Menn sem engar leik-
reglur virða leitast við að þvo illa
fengið fé sitt í fiármálakerfum þjóð-
anna. Margir stjómmálaforingar í
Evrópu telja þetta mestu ógnun sem
nú sé við að eiga á Vesturlöndum.
Við íslendingar, sem svo nýlega höf-
um opnað okkar hagkerfi, þurfum að
gæta þess að verða ekki leiksoppur
slíkra afla. Efnahagskerfið verður að
vera opið og einfalt en jafnframt
gagnsætt og byggt á trausti. Lykilorð-
ið er traust."
-SÁ
Magnús Skarphéðinsson, hvala- og músavinur, með lundapysju sem hann fann á Skólavörðustígnum í gær. DV-mynd Pjetur
Norðurál við Grundartanga:
Öryggisráðstafanir
vegna gasleka
Brotin var rúða í skartgripaverslun
Jóns og Óskars og stolið einhverj-
um verðmætum. Glerið, sem er
þykkt öryggisgler með sérfilmu yfir,
var brotið og þjófarnir hafa teygt sig
inn eftir ránsfeng.
Gasleki kom upp í gær f
gastanki sem var utandyra við
Norðurál við Grundartanga. í
tankinum var fljótandi gas sem er
hættulegt ef eldur kemur að því.
íöryggisskyni var svæðið girt af og
byggingin sem næst er tankinum
rýmd. Slökkvilið og lögregla voru
látin vita og voru í viðbragðsstöðu.
Gasfélagið var einnig verið látið
vitakom það og tæmdi tankinn.
Ekki er talið að nein hætta hafi
verið á ferðum en við slíka atburði
fer öryggisáætlun álversins í gang.
Ragnar Guðmundsson, fiármála-
stjóri Norðuráls, sagði í samtali
við Vísi.is að öryggisloki á tankin-
um hefði gefið sig en búnaðurinn
hefði verið skoðaður síðast í gær
morgun og þá verið í lagi.
Ekkert tjón varð vegna atviks-
ins.