Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.1999, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.1999, Blaðsíða 11
UV MIÐVIKUDAGUR 18. ÁGÚST 1999 ij^enning.. Svartálfadans Hin árlega kammertónlistarhátíð á Kirkju- bæjarklaustri var haldin um síðustu helgi. Reyndar var fleira en bara kammertónlist á hátíðinni þvi Sólrún Bragadóttir söng fjöld- ann allan af einsöngslögum. Eins og alltaf var efnisskráin fjölbreytt þó í ár hafi verið lögð nokkur áhersla á franska tónlist. Tón- leikamir voru þrennir alls og auk Sólrúnar komu þar fram ýmsir færustu tónlistarmenn landsins. Það virtist því tilvalið að skella sér á Klaustur um helg- i ina en því miður komst undirritaður þó aðeins i á aðra tónleikana, sem haldnir voru á laugar- daginn. Fyrst fluttu þau Sól- rún Bragadóttir, sópr- an, og Gerrit Schuil pí- anóleikari Fjögur lög úr Svartálfadansi (Stef- án H. Grimsson) eftir Jón Ásgeirsson. Þegar undir sköröum mána var fyrst og þar er hörpukenndur undir- leikurinn fagurlega of- inn um laglínuna, sem er hin áheyrilegasta. í næstu tveimur, Steinin- um og Kvöldvísum um sumarmál er stemning- in á hinn bóginn dálít- ið væmin, laglínurnar eru a.m.k. yfirmáta rómantískar og undir- leikurinn óttalega fyr- irsjáanlegur. Svipaða sögu er að segja um síðasta lagið, Svartálfa- dans, þar sem klunna- legur húmorinn er fremur klisjukenndur. Samt túlkuðu þau Sól- rún og Gerrit tónlist- ina á sannfærandi hátt, Sólrún var kraftmikil þegar við átti og með- leikur Gerrits var ávallt vandaður. Það dugði bara ekki til, þetta er einfaldlega ekki með því besta sem Jón Ásgeirsson hefur samið. Sólrún söng fleira á tónleikunum, fjögur lög eftir Ðuparc og Chanson Perpetuelle (Söngurinn eilífi) eftir Chausson. Lögin eft- ir Duparc eru oft sungin og reyndar hafa þau oft verið sungin betur. Meira hefði mátt vera um blæbrigði í sterku hlutum laganna, þrjú af fjórum lögum virkuðu ein- hæf og blátt áfram leiðinleg. Á hinn bóginn söng Sólrún einstaklega fallega veikt, hún hafði þá fullt vald á röddinni og túlkunin var markviss og áhrifarík. Sólrún hefur reyndar alltaf fullkomið vald á raddbeiting- unni enda er hún í heild flott söngkona sem syngur stundum ótrúlega vel, bæði óperur og ljóðasönglög. Hún má bara ekki sleppa sér svona og láta allt vaða í sterkum köfl- um því það virkar yfirborðslega. Einnig mætti hún passa sig á að renna sér ekki of Tónlist Jónas Sen mikið á tónana en það á sjaldnast heima í ljóðasöng. Klarinettutónlist á grafarbakkanum Á tónleikunum fluttu þeir Guðni Franzson og Gerrit Schuil Sónötu fyrir klarinettu og pí- anó op. 167 eftir Saint-Saens. Guðni kynnti tónlistina með nokkrum orðum áður en hann hóf leik sinn, og varpaði fram spurningunni hversvegna mörg tónskáld semdu aðallega fyrir klarinettu fyrst þegar þau væru komin á grafar- bakkann. Dæmin eru þó nokkur, þar á meðal rnnrædd sónata. Guðni svaraði ekki spumingunni, en undirritaður getur sér til að ástæðan sé hversu tónninn í klarinettunni er ómþýður og ann- arsheimslegur ef vel er á hana leik- ið. Hún bókstaf- lega gefur fyrir- heit um upprisu, endurfæðingu og andlegheit. Á hinn bóginn er ekkert hljóðfæri eins and- styggilegt ef illa er spilað á það, og er þá trompettleikur árla morguns hrein hátíð í sam- anburði. Sónata Saint-Sa- ens var afar falleg í meðhöndlun þeirra Guðna og Gerrits, þó tónn klarinettunnar hafi verið örlítið hvass hér og þar, og artikúlasjónin í hröðustu hlutum verksins ögn óná- kvæm. Túlkunin var bara svo lýrísk og gripandi að allar smávægi- legar yfirsjónir fyrirgáfust auð- veldlega. Síðast á dagskrá var píanókvartett op. 15 í c- moll eftir Fauré, leikinn af Eddu Erlendsdótt- ur píanóleikara, Sigrúnu Eðvaldsdóttur fiðlu- leikara, Helgu Þórarinsdóttur víóluleikara og Luc Tooten sellóleikara. Hér var flutningurinn í fremstu röð, allar nótur á sínum stað, og stemningin rómantísk og ástríðufull eins og hún átti að vera. Var þetta góður endir á tón- leikunum sem voru þó aðeins í meðallagi góð- ir. Sólrún Bragadóttir - söng einstaklega fallega veikt. DV-mynd Pjetur Spunamenn koma Saxófónleikarinn Jóel Pálsson var með tónleika í Hlaðvarpanum á sunnudagskvöld- ið. Þar var flutt frumsamin tónlist af fyrsta sólódiski hans, Prím, en hann kom út á síð- asta ári. Með Jóél léku Eyþór Gunnarsson á píanó, Þórður Högnason á bassa, Einar Val- ur Scheving á trommur og Hilmar Jensson á gítar. Tónleikamir vora trúlega haldnir í tengslum við þá ánægjulegu frétt að útgáfu- fyrirtækið Naxos ætlar að gefa út umræddan geisladisk á veraldarvísu. Það er nú oft þannig að hversu góð sem músík kann að vera þá er ekki auðvelt að fá henni dreift í þessum mæli og oft erfitt að fá hana útgefna bara í þessum fáu eintökum sem til þarf hér- lendis. Nú hafa þær frænkur heppni og kannski tilviljun gengið í lið með Jóel svo um munar en vissulega má ekki gleyma því að það er mikið spunnið í tónsmíðar hans og ljóst að í honum höfum við eignast fyrirtaks djasstónskáld. Ekki spilltu svo fyrir spuna- mennimir í hljómsveitinni sem tókst að gera þetta efni verulega spennandi. Dýnamík mikil Verk Jóels era fjölbreytt en eiga það sam- eiginlegt að vera dálítið sér á parti og þar Jóel Pálsson saxófónleikari. Jass Ingvi Þór Kormáksson með persónuleg. Útsetningarnar era óvana- legar og dýnamík mikil, oft mikil keyrsla og viðkvæmnislegir og lágværir kaflar inn á milli. Hljómaleiðir eru á tíðum óvenjulegar en samt rökvissar (þó það nú væri). Laglín- urnar eru frekar ómstríðar, meira að segja Flís vió rass sem væri afskaplega Ijúft lag ef höfundurinn virtist ekki svo greinilega forð- ast að laglína og hljómagangur minni á nokkuð sem áður hefur verið samið. Nema þetta sé samið yfir hljóma í einhverju lagi sem undirritaður þekkir ekki og veður hann þá greinilega í villu og svíma. Vonandi verð- ur heiti þessa lags ekki þýtt orðrétt yfir á ensku þegar af erlendri útgáfu verður. Fyrra settið hófst á svolítið hranalegu bopp-lagi, Skriplaö á skötu, og endaði á róm- antískum dúett Jóels og Eyþórs sem nefnist Sjöundi himinn. Eftir hlé bættist trommar- inn Matthías Hemstock í hópinn og léku þeir Einar Valur prýðisvel saman, m.a. í tveimur sömbum. Var sú síðari rosalega hressandi. Einnig kom Sigurður Flosason fram og lék tvö lög með hópnum. Ef marka má tónleikana er Prím Jóels Pálssonar óvenjugott byrjendaverk og allir yrðu þeir félagar góðir fulltrúar íslands á er- lendum vettvangi ef til þess kæmi. Ljóslifandi fuglar í gær var opnuð í anddyri Norræna húss- ins sýning á útskomum fuglum vesturís- lenska völundarins Einars Vigfússonar frá Árborg í Manitoba (á mynd), en um hann var fjallað og við hann spjall- að hér í DV fyrir nokkrum dögum. Á sýn- ingunni verða meðal annars íslenskir fuglar: fálki, lundar, heiðlóa, músarrindill, steindepill og fleiri sem Einar hefur skorið út í lindivið frá Manitoba. Einar var kominn á sextugsaldur þegar hann byrjaði að skera út fugla og sótti námskeið hjá þekktum fagmönnum í Kanada og Bandaríkjun- um þar sem þessi tegund útskurðar er í mikl- um metum. Til þessa hefur hann skorið út hundrað fugla, haldið sýningar bæði 1 Vest- urheimi og hér á landi - m.a. í Vesturfara- setrinu á Hofsósi - og unnið til fjölda verð- launa í keppni í fuglaútskurði. I sumar hefur Einar verið á ferðalagi um ísland ásamt konu sinni og syni og hefur m.a. notað tæki- færið til að gaumgæfa íslenska fugla í sínu náttúrulega umhverfi. Vonast hann m.a. til að vekja með útskuröarmönnum í „gamla landinu“ áhuga á þessari sérstöku hefð. Sýningin í anddyri Norræna hússins stendur til 21. september. Málsháttakeramík í Norska húsinu Norska húsið í Stykk- ishólmi er að verða óop- inber menningarmið- stöð þeirra Snæfellinga og nánast alltaf eitthvað að gerast í þeim ranni yfir sumartímann. Þar stendur nú yfir samsýn- ing þriggja valinkunnra leirlistarkvenna, Kristínar Isleifsdóttur, Jónu Guðvarðardóttur og Sigríðar Erlu Guð- mundsdóttur. Kristín (á mynd) sýnir m.a. hluta af „málsháttakeramík“ þeirri sem hún framsýndi við góðan orðstír i Ásmundarsal, en þar kom hún fyrir „viskubrunni", uppfull- um af keramíki, með áletrunum á borð við: „Enginn dettur lengra en til jarðar". Einnig sýnir hún blómavasa, svokallaða „snjóbolta", sem hún fékk nýverið verðlaun fyrir í sænskri hönnunarkeppni. Þá eru á sýning- unni leir- og bronsverk eftir Jónu, sem bú- sett er í Ungverjalandi, og leir- og kuðunga- skálar eftir Sigríði Erlu. Sýningunni í Norska húsinu lýkur 31. ágúst nk. Þangað til er húsið opiö alla daga, kl. 11-17. Af möguleikum blokk- flautunnar Og fyrst Stykkis- hólmur er til umræðu er rétt að minna á lokatónleikana í sum- artónleikaröð Stykkis- hólmskirkju sem haldnir verða sunnu- daginn 22. ágúst, kl. 17. Þá koma fram Camilla Söderberg blokkflautuleikari (á mynd) og Snorri Öm Snorrason lútu- og gít- arleikari. Camilla mun leika á blokkflautur af ýmsum stærðum og gerðum og Snorri Öm mun leika ýmist á lútu eða gítar. Á efnis- skránni verða verk frá miðöldum og til vorra tíma. í fréttatilkynningu segir að „yfirleitt séu verkin stutt og sýni þá möguleika sem þessi hljóðfæri bjóða upp á“. Myndir & músík Óvenjuleg sýning verður haldin í sal Ferðafélags íslands, Mörkinni 6, á morgun, fimmtudag, kl. 17.30. Þar sýnir Magnús Ein- arsson ljósmyndari litskyggnur af íslensku landslagi og leikur undir hljómkviðuna Pláneturnar eftir breska tónskáldið Gustav Holst. Er þessi sýning öðrum þræði ætluð ráðstefnuhölduram, fundarmönnum og ferðamannahópum. Þetta virðist áhugaverð uppátekt en væri ekki nær lagi að tefla sam- an skyggnum af íslensku landslagi og tónlist Jóns Leifs? Umsjón Aðalsteinn Ingólfsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.