Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.1999, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.1999, Blaðsíða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 18. ÁGÚST 1999 Spuriúngin Hversu oft kaupir þú tímarit? Brynja Skjaldar nemi: Svona einu sinni í mánuði. Helga Guðmundsdóttir nemi: Svona einu sinni í viku. Guðmundur Ásgrímsson kafari: Tvisvar til þrisvar í mánuði. Þóra Perla Bjömsdóttir bifvéla- virki: Svona tvisvar í mánuði. Bergur H. Birgisson verslunar- maður: Einu sinni í mánuöi. Tabitha Snyder verslunarstjóri í Valmiki: Aldrei. Lesendur Flokkshagsmunir eða lítilmagninn Sé almenningi gert ómögulegt að eignast hlut í stofnunum sem verða einka- væddar og seldar er alveg eins gott að halda áfram gamla ríkisjötuhugsun- arhættinum að hætti framsóknarmanna, segir Karl m.a. í bréfinu. - Fjárfest- ingarbankinn kynnir sölu hlutabréfa. Karl Ormsson skrifar: í fréttum undanfarið hefur forsæt- isráðherra Davíð Oddsson viðrað þá hugmynd að til að almenningiu- geti eignast hluti í bönkum og öðrum ríkisfyrirtækjum sem verða seld þurfi kannski að breyta lögum. stöðu með fjöldanum í þessu máli að þakkarvert er. Þá rís upp annar ráð- herra, viðskiptaráðherra, Finnur Ingólfsson. Hann vogar sér að ljá máls á því að hinir svokölluðu „pen- ingamenn" sem alltaf er verið að tala um séu sjálfkjörnir, að manni skilst, til að eignast bankana og þessi fyrir- tæki. Gamli framsóknarhugsunar- háttm-inn leynir sér ekki. Að sjálfsögðu á að taka hugmynd forsætisráðherra um dreifða eignar- aðild í þessum fyrirtækjum með þökkum. Forsætisráðherra er aðeins að hnykkja á þeirri stefnu Sjálfstæð- isflokksins að hann sé flokkur allra stétta. Ef almenningi er gert ómögu- legt að eignast hlut í þeim stofnun- um sem verða einkavæddar og seld- ar er alveg eins gott að halda áfram gamla ríkisjötuhugsunarhættinum að hætti framsóknarmanna. Ég hélt í einfeldni minni að timi hafta, einokunar, og ríkisforsjár væri liðinn. Það verður einfaldlega að kveða niður þennan gamla draug og það veit ég að Davíð Oddsson gerir. Menn geta haft mismunandi skoðanir á aðferð til að eignarhlut- urinn verði dreifður í þessum fyrir- tækjum. En að halda því fram, að það sé lögbrot að almenningur geti keypt smærri hluti í „sínum eigin fyrir- tækjum" eins og viðskiptaráðherra gerir er fjarstæða. Það hafa aðrir haldið fram þeirri skoðun að ekki sé gott að takmarka eignarhluta kaupenda og það hefi ég tekið sem „sérskoðanir" manna gagnvart rekstri fyrirtækjanna. Gera verður aðrar kröfur til ráðherra sem vill láta taka sig alvarlega. Það virðist ekki vera nema fyrir kosningar sem framsóknarmönnum er í nöp við að fé safnist saman á fárra manna hendur, sé þetta skoðun Finns Ing- ólfssonar fyrir hönd flokksins. Það var á vordögum 1995 sem ég skrifaði blaðagrein og varaði við of miklum væntingum um að gamla maddama framsókn væri dauð. Af gamalli reynslu hafði ég þó nokkrar efasemdir um hversu heppilegt það væri að hafa framsókn í ríkisstjóm og fleiri voru mér sammála. Þó var vandinn sá að kratar töpuðu svo miklu fylgi að forsætisráðherra taldi ekki vogandi að treysta á þá. Sam- starf þessara flokka hefur þó gengið framar vonum ef frá eru skilin ein- stök dæmi um þingmenn sem telja að þeir þurfi að minna á sig í ein- stökum málum. Við skulum vona að Finnur vitkist í þessu máli. Snyrtið hestana Regína skrifar frá Eskiflrði: Ég sá mynd af hestum í DV um daginn og varð nokkuð reið. Mér fannst hörmung að sjá hestana því ég er uppalin í sveit og man vel eft- ir því að hestar voru snyrtir í þá daga. Ennistoppurinn, makkinn og taglið var allt snyrt en það virðist ekki vera gert í dag. Þessir sem hafa hesta í dag eiga ekki skilið að hafa þá ef þeir geta ekki haldið þeim al- mennilega útlítandi. Ég er hrædd um augu hestanna því hárið fer svo mikið í augun á þeim. Hestar eru fallegustu skepnur sem við eigum en mennirnir fara ekki vel með þá. Það var áður siður að klippa hesta haust og vor og kemba þeim á hverjum degi. Það var hörmung að sjá þessa hesta í DV á dögunum. Það er ósk mín að þessir hestamenn - eins og þeir kalla sig - hafi manndóm í sér til að snyrta hestana eins og þeir eiga að gera. Ég vil líka bæta því við að þegar við sáum leikritið Feðgar á ferð um daginn þá voru þeir svo elskulegir hjá Kjörís að bjóða okkur upp á þrjár sortir af ís á meðan við horfð- um á leikritið. Landafundir í Vesturheimi - lítill áhugi, lítill ávinningur „Fálr rengja tilvist Leifs Eiríkssonar og vesturferðar hans en þær falla ekki lengur undir annað meira en aðrar ferðir víkinga á þessu tímabili," segir hér m.a. Einar Sigurjónsson skrifar: Margir eru farnir þegar búnir að fá sig fullsadda af fréttum og viðtöl- um vegna landafundanna svoköll- uðu og landnámið í Vesturheimi sem okkur er talin trú um að við ís- lendingar eigum þátt í. Ef ekki orð- ið frumkvöðlar að. Allir vita þó i dag að í Ameríku voru fyrir þjóð- flokkar Indíána, frumbyggjanna. Þetta er m.a. viðurkennt af flestum íbúum Norður-Ameríku og Kanada. Hinar suðrænu þjóðir Ameríku halda sig þó enn við sinn Kólumbus svona rétt til að stappa stálinu í hin- ar spænskumælandi þjóðir álfunn- ar. Þess vegna kom hún eins og ferskur vindblær greinin i Degi sl. laugardag þar sem mannfræðingur- inn Inga Dóra Björnsdóttir kemur fram og segir íslendinga ekki þurfa á því að halda að koma íslandi á framfæri í Ameríku undir merki Leifs Eiríkssonar. Hún segir það úr- elta hugmynd og ekki lengur viður- kennda í Bandaríkjunum að hvítir menn hafi fundið Ameríku. Hún segir Leif Eiríksson ekki heilla Bandaríkjamenn í dag. En burtséð frá þessari grein, sem var þó hin fróðlegasta, má segja að við ís- lendingar séum að efna til við- burðar (þess sem kallað er þúsund ára afmæli landa- fundanna) sem skiptir ekki neinu máli en skilur eftir sig slóða peningaút- láta í bak og fyrir. Það eru ekki sparaðar nefndir og fundahöld hér- lendis og erlendis vegna hátíðahald- anna í tilefni ímyndaðs ávinn- ings af kynningu á Leifi Eiríkssyni og afreki hans. Fáir rengja tilvist Leifs Eiríks- sonar og vesturferðar hans en þær falla ekki lengur undir annað meira en aðrar ferðir víkinga á þessu tímabili. Við getum því að skað- lausu dregið inn slakann á útgjalda- línunni. I>V Odincova- sjómenn heim Adda hringdi: Ég og þeir sem ég hef hitt eru undrandi á því hvemig einhver skipsútgerð eða einstaklingur kemst upp með að halda nokkrum sjó- mönnum mánuðum saman í skips- ræksni, næstum allslausum hér á ís- landi. Sjómenn þessir em komnir út á götu betlandi fyrir mat og lífs- nauðsynjum og eru víst búnir að leita ásjár forsætisráðherra. Liggur ekki ljóst fyrir að allir þeir sem dvelja hér á íslandi eiga að njóta mannréttinda og annarrar fyrir- greiðslu sem lög landsins kveöa á um? Em ekki launagreiðslur til þessara manna hluti þessara rétt- inda? Ég segi einfaldlega: Drífúm sjómennina til síns heima, með upp- gerðar kröfur. Drápsleikur Landssímans - ljótt er ef satt er Amþór hringdi: Skjálftamót Landssímans í Quake er eitthvað sem nú er flaggað hér sem stærsta tölvuleikjamóti lands- ins. Leikurinn er sagður skotleikur sem gengur út á að drepa sem flesta af andstæðingum sínum á tölvu- skjánum. Og það er „menning á bak við þetta“, segir umsjónarmaður , tölvuleikjamótsins. Ég segi hins veg- ar: Djöfuls ógeð er þessi þjóð að verða. En Landssíminn stendur ekki að mótinu til að græða á því, segir talsmaður simans. Er það eitt- hvað til afsökunar fyrir Símann? Hvað næst, volaða þjóð? Forsetinn víðförli Sigurbjörg skrifar: Mér þykir forsetinn okkar gerast víðfóruU þessar vikumar. Hann var í Ameríku, nefnilega Kanada, fyrir nokkru síðan á íslendingadeginum. Þaðan virðist sem hann hafi farið beinustu leið á heimsmeistaramót hrossa í Þýskalandi. Ég er sammála pistli Guðrúnar Helgadóttur í DV sl. fostudag um að það er aöeins ánægjulegt ef forsetinn okkar og ráðherrar nota sumarfríið sitt tU að sækja svona mót í útlöndum sé það tryggt að það sé ekki á kostnað okk- ar, skattborgaranna. En síðast heyrði ég frá forseta einhvers stað- ar við Miðjarðarhafiö. Mér þykir þetta satt að segja vera fulUiratt ferðast í einum og sama mánuðin- um. En ríkisstjórnin hlýtur jú að tryggja að þetta séu aUt opinberar og nauðsynlegar erindisferðir. Einkavæðingin til allra S.K.Ó. hringdi: Ég heyrði á mál þeirra sem voru gestir í þættinum í vikulokin i Rík- isútvarpinu sl. laugardag. Ég tek undir það sem Davíð Scheving Thorsteinsson sagöi um fiskveiði- kvótann og fleira tengt einkavæð- ingunni sem nú ber hvað hæst - að ríkið sendi bara til landsmanna sinn skerf í öUu „geiminu“ upp á t.d. þau u.þ.b. 270 þús. kr. sem hveijum landsmanni tilheyrir og síðan geta menn átt eða selt á eigin spýtur. Með þessu yrði mikiU ágreiningur úr sögunni. Það sama má gera í einkavæðingu banka og annarra ríkisstofnana. Engin styrkur til R-listans Einar Halldórsson hringdi: Ég las í DV nýlega stutt viðtal við núverandi forseta borgarstjórnar, Helga Hjörvar, þar sem hann neitaði staðfastlega að athafnamaöurinn Jón Ólafsson hefði nokkra sinni styrkt R- listann fjárhagslega með svo mikið sem einni krónu. Þetta verður maður nú því að telja sannleikanum sam- kvæmt. Það ætti því að fara að linna þeim áburði sem margnefndum Jóni hefur verið núið um nasir að hann hafi lagt fram svo og svo mtkið fé í kosningasjóði núverandi meirihluta borgarstjómar Reykjavíkur. Ég held að prófessor Hannes Hólmsteinn og aðrir áhangendur hans ættu nú hætta að andskotast út i þennan Jón af þessu tUefhi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.