Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.1999, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.1999, Blaðsíða 15
14 MIÐVIKUDAGUR 18. ÁGÚST 1999 MIÐVIKUDAGUR 18. ÁGÚST 1999 27 Bland i poka Dómstóll KSÍ staðfesti í gær dóm Knattspymudómstóls Austurlands sem fyrir skömmu úrskurðaði Þrótti úr Neskaupstaö 3-0 sigur gegn Hug- in/Hetti í 3. deildinni. Huginn/Höttur vann leikinn, 3-2, en tefldi fram leik- manni sem var rekinn af velli i næsta leik á undan. Dómarinn í þeim leik strikaði rauða spjaldið hins vegar út af skýrslu sinni eftir hringingu frá þjáifara Hugins/Hattar. Sport Sport Jon Pall var kjorinn Jón Páll Sigmarsson, kraftlyftinga- og aflraunamaður, var kjörinn íþróttamaður árþúsundsins í atkvæðagreiðslu sem fram fór á Vísi.is í samvinnu við DV, Bylgjuna og SS. Jón Páll, sem lést árið 1993, aðeins 33 ára að aldri, fékk 42,4 prósent atkvæða. Næstir komu Ásgeir Sigurvinsson knatt- spymumaður með 21,4 prósent, Jón Amar Magnússon frjálsíþróttamaður með 14,8, Albert Guðmundsson knatt- spyrnumaður með 12,6 og Vilhjálmur Einarsson frjáls- íþróttamaður með 10,4 prósent atkvæða. Sindri sigraói KVA, 4-0, í C-riðli 1. deildar kvenna í knattspymu á Homafirði í gærkvöld. Þegar þremur leikjum er ólokið i riölinum berjast enn þrjú lið um sigur og sæti í úr- slitakeppninni. Einherji er með 17 stig og sækir KVA heim i lokaleikn- um. Sindri er með 15 stig og Hug- inn/Höttur 13 en þessi tvö liö mætast tvívegis um næstu helgi. RKV tryggði sér sigur í A-riðli 1. deildar kvenna með sigri á Gróttu, 5-0, í Keflavík í gærkvöld. Vináttulandsleik Norðmanna og Tyrkja sem fyrirhugaöur var í kvöld hefur verið frestað sökum náttúm- hamfaranna í Tyrklandi. Litháar hafa gefið kost á sínu liði í staðinn en það skýrist þó ekki fyrr en í dag hvort af þeim leik verður þar sem það þarf að koma Litháum til Óslóar þar sem leikurinn á að fara fram á Ullevivellinum. Mark Bosnich, markvörður Manch- ester United í ensku úrvalsdeildinni, ætti að vera oröinn klár i slaginn á ný eftir tvær vikur, eftir meiðsli sem hann hlaut í leik gegn Leeds um síð- ustu helgi. Fyrst óttuðust menn um mánaðarfjarveru Ástralans en nú ætti hann að komast í markiö á ný innan tveggja vikna. Morten Olsen og Michael Laudrup munu líklega taka höndum saman og þjálfa danska landsliðið í knatt- spymu þegar Bo Johannsson lætur af störfum á næsra ári. Þeir eru tveir af bestu knattspymumönnum Dana frá upphafi. Olsen er 50 ára og var hann fyr- irliöi „danska dínamítsins" á HM í Mexikó 1986 og Michael Laud- rup, sem er 34 ára endaði glæsi- legan feril meö danska landslið- inu á HM í Frakklandi 1998, þá sem fyrirliði liðsins. Það var Guólaug Jónsdóttir en ekki Inga Dóra Magnúsdóttir sem kom toppliöi KR á bragðið gegn Skagakonum í úrvalsdeild kvenna í fyrrakvöld. Beðist er vel- virðingar á þessum mistökum. Skagamenn hafa farið burt með öll 15 stigin og skorað síð- ustu 11 mörkin í fimm síðustu heimsóknum sínum til Blik- anna. Skagamenn hafa unnið þar sex deildaleiki í röð og enn frem- ur 12 af 13 síðustu deildaleikjum liðanna. Síóastur Blika til að skora hjá ÍA í Kópavognum var Jón Gunnar Bergs en hann skoraði með skalla i 1-2 tapi fyrir 15 árum og 473 leik- mínútum síðan. Blikar unnu Skagamenn síðast í Kópavognum 31. maí 1983 og þá gerði Siguróur Grétarsson, núver- andi þjálfari Blika, eina mark leiksins. Skotar bíða leyfis frá KSÍ Forráðamenn skoska A-deildarliösins Dundee United bíða á milli vonar og ótta um hvort Sigurð- ur Jónsson fái leyfi íslenska knattspymusambandsins til að spila með liðinu gegn Glasgow Rangers um næstu helgi. Sigurður dró sig út úr landsliðshópnum gegn Færeyjum vegna meiðsla sem hann hlaut í sigurleik gegn Celtic um síðustu helgi. FIFA-reglur segja svo til uin að lands- liðsmaður sem dregur sig út úr landsleik megi ekki spila með liði sínu næstu fimm daga á eft- ir nema með leyfi viðkomandi knattspyrnusambands. Búist er við að Sigurður verði orðinn klár í slaginn um næstu helgi en samkvæmt fyrmefndri reglu mætti hann ekki spila fyrr en á mánudag setji íslensk knattspymuyfirvöld Skotunum stólinn fyrir dymar. -ÓÓJ Bjarki Gunnlaugsson er ánægður með þróun mála eftir að hann kom til KR- inga frá Brann í Noregi í Sterkt lið Færeyja sem mætir íslendingum í Þórshöfn í kvöld Færeyingar tefla fram sterku liði gegn íslendingum í vígslu- leik Tórsvallarins í Þórshöfn í kvöld. Sjö leikmanna þeirra koma erlendis frá, þar af þrír frá íslandi. Það era Leifturs- mennirnir Uni Arge og Jens Martin Knudsen og Allan Mör- köre úr ÍBV. Jens Martin verður þó vænt- anlega á varamannabekknum eins og í undanfömum leikjum. Jákup Mikkelsen, sem leikur með Herfölge í dönsku A-deild- inni, hefur varið mark Færey- inga með miklum ágætum í undanförnum leikjum. Auk Jákups koma tveir aðrir úr dönsku A-deildinni. Það em markaskorarinn Tóti Jónsson frá FCKöbenhavn og vamar- maðurinn Óli Johannessen sem er nýkominn til íslendingaliðs- ins AGF. Loks er í hópnum Julian Johnsson, sem leikur með Sogndal í norsku B-deild- inni. Aðrir leikmenn koma frá færeyskum félögum og meðal þeirra em Össur Hansen frá B36 og Sámal Joensen frá GÍ, en báðir hafa þeir verið nálægt því aö gerast leikmenn með Leiftri, Össur í fyrra og Sámal í ár. Allan Simonsen, fyrrnrn knattspymumaður ársins í Evr- ópu, þjálfar færeyska liðiö. í samtali við blaðið Socialurin í gær sagði hann að Færeyingar yrðu að gæta sín á því aö í þess- um leik væm íslendingar hinir stóm, Færeyingar hinir smáu. Færeyingar þurfa þó ekki að bera of mikla virðingu fyrir mótherjum sínum því í tveimur síðustu leikjum sínum hafa þeir gert jafntefli við Bosníu- menn og Skota. -VS Vongott - Qórir meiddir í 16 manna hópi Islands Tveir til Manchester United KR-ingamir Indriöi Sigurðsson og Jó- hann Þórhallsson hafa verið kallaðir til reynslu hjá Evrópumeistumm Manchester United eftir þetta tímabil samkvæmt heimild- um DV. Indriði sagði í gær að hann vissi ekk- ert enn um málið en ljóst er að þetta er mikil viðurkenning fyrir þá félaga. Indriði er 18 ára og hefur vakið mikla athygli síðustu tvö tíma- bil en Jóhann er einu ári eldri og kom frá Þór á Akureyri fyrir þetta tímabil en hefúr lítiö verið með í sumar vegna meiðsla. -ÓÓJ Mikil meiðsli hrjá íslenska landsliðið í knatt- spymu sem nú býr sig undir vígsluleik nýs og glæsilegs leikvangs í Þórshöfn í Færeyjum í kvöld. Af sextán leikmönnum sem Guðjón Þórðarson hefur til umráða í Þórshöfn em fjórir meiddir og það skýrist ekki fyrr en í dag hvort þeir verða leikfærir. Það eru þeir Rúnar Kristinsson, Tryggvi Guðmundsson, Steinar Adolfsson og Brynj- ar Bjöm Gunnarsson sem allir eru haltir og skakídr eftir leiki helgarinnar í Noregi og Svíþjóð. Það er því allsendis óvíst að Rúnar Kristinsson nái að jafna landsleikjamet Guðna Bergssonar í kvöld, spili sinn 77. landsleik, en hann átti að vera fyrirliði íslands að þessu sinni. Það kæmi þá væntanlega í hlut Birkis KristinssonEir markvaröar að leiða íslenska liðið innan vallar. „Þessir fjórir vom allir að spila á sunnudag og hafa því aðeins haft tvo daga til að jafna sig. Þetta skapar óvissu og vandamál fyrir leikinn, en maður verður að vinna úr stöð- unni eins og hún er og sjá hvemig málin þróast,“ sagði Guöjón Þórðarson við DV í gær- kvöld. Þetta er eini undirbúningsleikur liðsins fyrir átökin í Evrópukeppninni í haust en ísland mætir Andorra og Úkraínu á heimavelli í sept- ember og sækir Frakka heim í október. „Færeyingar verða mjög erfiöir hér á heima- velli sínum og þeir hafa náð góðum úrslitum undanfarið. Jafntefli við Skotland og Bosníu sýna styrk þeirra, og Tékkar sluppu héðan með skrekkinn. Færeyingar er með hættulega sókn- armenn og skora nær undantekningarlaust á heimavelli. Við verðum því að spila vel til að sigra þá,“ sagði Guðjón. ísland og Færeyjar mættust síðast árið 1997 þegar Guðjón var nýtekinn við landsliðinu. ís- land vann þá nauman sigur, 1-0, með marki Tryggva Guðmundssonar á síðustu mínútunni. Samtals hafa þjóðimar leikið 16 landsleiki og hefur Island unnið 15 þeirra en einu sinni orð- ið jafntefli. Það var 0-0 í Þórshöfn 1984 en þá tefldi ísland fram 21-árs landsliði sínu. -VS - fimleikafólk fer á HM í Kína Fjórir munu keppa fyrir íslands hönd á heimsmeistaramótinu í fimleikum sem fram fer í Kína dagana 9.-16. októ- ber. Það era þau Rúnar Alexandersson og Dýri Kristjánsson úr Gerplu, Elva Rut Jónsdóttir úr Björk og Jóhanna Sig- mundsdóttir úr Gróttu. Fimleikafólkið hefúr æft af fullum krafti í allt sumar og mun æfa stíft fram að móti. Til mikils er að vinna en um það bil þeir 80 bestu í karla- og kvenna- flokkum fá þátttökurétt á Ólympíuleik- ana í Sydney að ári. Á síðasta heimsmeistaramóti kepptu um 230 karlar og um 150 konur þannig að ljóst er að erfitt er fyrir jafn litia þjóð og ísland að komast á Ólympíuleikana. Þrátt fyrir það er fimleikafólkið von- gott. Mestar vonir eru bundnar við Rúnar Alexandersson en hann vonast eftir að komast í 36 manna úrslit í fjölþraut og 8 manna úrslit á bogahesti. Rúnar hef- ur staðið sig vel i keppnum að undan- förnu og því er möguleikinn vissulega fyrir hendi. Rúnar og Elva Rut eru að fara á sitt annað heimsmeistaramót en Dýri og Jó- hanna mun þreyta frumraun sína í Kína. Þjálfarar hópsins era Mati Kir- mes í karlaflokki og Vladimir Anatpv í kvennaflokki. -AIÞ/ÍBE Jóhanna Sigmundsdóttir, Elva Rut Jónsdóttir, Rúnar Alexandersson og Dýri Krisjánsson eru á fullu að undirbúa sig fyrir HM sem fram fer í Kína í október. A þrjóskunni - ekki gefast upp á mér, segir Guörún Arnardóttir Guðrún Arnardóttir er á leið á heimsmeistaramótið í frjálsum íþróttum sem fram fer í Sevilla 20.-29. ágúst. Guðrún meiddist í byrjun keppnistímabilsins í sumar og hefur því ekki náð sér almenni- lega á strik. „Þessi meiðsli mín þegar ég tognaði á læri í vor hafa sett strik í reikninginn en þetta er allt að koma. Ég næ aö hita eymslin úr mér með því að hita upp og það er alltaf jákvætt. Maöur finnur ekki til meðan maður er að keppa. Ég hef oft verið jákvæðari en ég ætla að biðja alla um að gef- ast ekki upp á mér,“ sagði Guö- rán en hún er mikil keppnis- manneskja og alltaf ákveðin í að gera sitt besta fyrir land og þjóð. „Ég ætla að reyna að fara þama á þrjóskunni einni saman og reyna að bæta tímann minn í ár. Ef það tekst þá er það frábært, ef þaö tekst ekki þá er það ekki eins frábært en það getur enginn sagt að ég hafi ekki reynt. Ég hefði viljað hafa aðeins meira að gera í sumar. Líkamlega er ég með góðan grann og mjög sterk en það vantar þessa keppn- issnerpu sem er fljót að fara ef maður missir hana einu sinni niður. Ég hefði ekki viljað meiðast, en þetta var spuming um hvort ég ætti að gefast alveg upp eða hvort ég ætti að reyna og ég ákvað að reyna og ég ætla að halda mér við það,“ sagði Guðrún sem hélt til Malmö í gær þar sem hún hittir Völu Flosadóttur og Þóreyju Eddu Elisdóttur en þær fara svo sam- an til Sevilla þann 19. ágúst. -ÍBE Ólafur Gottskálksson horfði að- eins á þegar Hibemian komst í hann krappan í skoska deildabik- arnum i gær. Þjálfari liðsins tók mikla áhættu og notaöi hálfgert varalið i leiknum en leikurinn sem var gegn C-deildarliði Clyde, sem er tveimur deildum neð- ar en Hibs, fór í vítakeppni þar sem varamarkvörð- | ur Ólafs varði víti og tryggði liðinu sæti í næstu umferö. Skagamenn koma í heimsókn til Blika í Kópavoginn í kvöld klukk- an 19.00 í frestuðum leik úr 8. umferð. Bjarki Pétursson leikur væntanlega með Breiðabliki í kvöld en hann hefur misst af síðustu fjórum deildaleikj- um Blika vegna meiðsla, auk bikarleikja. Blikar hafa ekki unnió ÍA á heima- veili í flarveru Sigurðar en þegar þjálfarinn var með 1980 til 1983 vann Breiðablik 3 af 4 viöureignum lið- anna og er enn taplaust gegn ÍA í Kópavogi þegar hann leikur með lið- inu. -VS/ÓÓJ vor. Joe Royle spenntur fyrir að fá Bjarka til Manchester City: „Mjög stoltur búinn að vera fyrir fáum mánuðum, segir Bjarki N Færeyjar-ísland í Þórshöfn: Tólf tilbúnir Rúnar Kristinsson getur jafnað landsleikjametið í kvöld, en þó eru blikur á lofti og óvíst að hann spili. Rúnar átti að vera fyrirliði en Birkir Kristinsson, sem er leikjahæsti markvörður íslands frá upphafi með 61 landsleik, tekur væntanlega við fyrirliðabandinu ef Rúnar forfallast. „Ég er mjög stoltur af því að vera orðaður við stórt félag á borð við Man- chester City. Fyrir nokkr- um mánuöum var ég nán- ast búinn að vera sem fót- boltamaður en nú virðist útiitið vera orðið betra," sagði Bjarki Gunnlaugs- son, knattspymumaður úr KR, í samtali við DV í gær- kvöld. Bjarki hefur undanfama daga verið sterklega orðað- ur við City, sem leikur í ensku B-deildinni á ný í vetur eftir eitt ár þar fyrir neðan. Joe Royle, framkvæmda- stjóri Manchester City, sagði í samtali við Man- chester Evening News í gær að City heföi tryggt sér fyrsta rétt til að fá Bjarka Gunnlaugsson úr KR til reynslu. Fáum Bjarka fyrstir, segir Royle „Umboðsmaður leik- mannsins segir að við fá- um hann til okkar fyrstir, um leið og KR sé fallið út úr Evrópukeppninni. En KR hefur þegar sigrað Kil- mamock í fyrri leiknum, þannig að það er ekki víst að við fáum hann alveg strax,“ sagði Royle og bætti því við að sér hafi verið sagt að Bjarki hefði þótt enn efnilegri en Am- ar tvíburabróðir hans á yngri árum. Þá kemur fram að Royle hafi fengið staöfest aö hann geti feng- ið Bjarka á hreinu útsölu- verði, City þurfi aðeins að greiða um 23 milljónir króna fyrir hann. Jákvætt „Það er mjög jákvætt að Royle skuli tala um mig á þennan hátt en ég hef sjálf- ur ekkert heyrt frá félag- inu þó ég hafi vitað af þess- um þreifingum um nokkurn tíma. Óska- staðan hjá mér er samt sú að klára tímabilið með KR og fara síðan utan. En ég verð þó að taka því sem að höndum ber, ef af þessu verður er ekki víst að City sé tilbú- ið að bíða of lengi,“ sagði Bjarki. Hann er laus allra mála frá KR um leið og hann hættir að sptia þar þannig að Vesturbæjarliðið fær ekkert af kaupverðinu ef Bjarki fer tti Manchester City eða annars félags í haust. -VS 1 Viking Stavanger hefur rætt viö Guðjón Þórðarson: förum? - málin rædd fljótlega eftir landsleikinn í Færeyjum Guflrun hefur oft verið vonbetri fyrir mót. Guðjón Þórðar- son, landsliðs- þjálfari í knatt- spymu, gæti orðið næsti þjálfari norska A- detidarliðsins Viking Stavan- ger. Sagt var frá þessu í Verdens Gang og Stavanger Áftenblad í gær og að Guðjón og Kalle Björklund, sem á dögunum var rekinn frá Elfsborg, væra líklegastir til að taka við liði Viking fyrir næsta tímabti. „Já það er rétt, forráðamenn Vik- ing hafa haft samband við mig en öll- um frekari viðræðum var frestað fram yfir leikinn hér í Færeyjum," sagði Guðjón við DV í gærkvöldi en hann er nú í Þórshöfn vegna lands- leiks þjóðanna þar í kvöld. Tveir leikmanna landsliðsins, Rík- harður Daðason og Auðun Helgason, leika með Stavangerliðinu, sem er um miðja A-deildina og frammistaða þess í ár hefur valdið vonbrigðum. Samningur Guðjóns við KSÍ renn- ur út í haust þegar þátttöku lands- liðsins í Evrópukeppninni lýkur. Viðræður um áframhaldandi starf Guðjóns með landsliðið eru ekki hafnar en Guöjón sagði við DV að þær væru áformaðar eftir leikinn gegn Úkraínu í næsta mánuði. DV hefur heimtidir fyrir því að fleiri erlend félög hafi sýnt áhuga á að fá Guðjón tti starfa i kjölfarið á frábærum árangri hans með lands- liðið í yfirstandandi Evrópukeppni. Enn fremur er Ijóst að lið í íslensku úrvalsdeildinni era með hann í sigt- inu. Það er því allsendis óvíst að Guðjón verði áfram landsliðsþjálfari íslands að þessu tímabtii loknu. -VS Draumalið DV Nýtt lið er komið á toppinn í draumaliðsleik DV eftir þrett- ándu umferð úrvalsdetidarinnar í knattspymu sem lauk á mánu- dagskvöldið með leik Vals og Víkings. Það var Þorvaldur Freyr Frið- riksson frá Raufarhöfn sem náði hvorki meira né minna en 15 stiga forystu í umferðinni. Lið hans, Lionsklúbburinn Diddi, fékk 16 stig og fór úr fjórða sæt- inu í það fyrsta á meðan liðin þar fyrir ofan töpuðu öll stigum. Fimm lið koma síðan jöfn í öðra til sjötta sætinu og þar á meðal er toppliöið síðan síðast, Fowler, en það fékk sex stig í mínus í umferðinni. Staða efstu liða er þannig: 02086 Lionsklúbburinn Diddi N 94 00954 Tengiskott frá helvíti R . 79 02235 Fowler N.................79 02898 Gullborg S...............79 02995 Plató R..................79 03056 Draumur í dós R .........79 02872 Doctor Tangó G...........78 03634 Jenna S .................77 00268 Carlsberg R .............76 02475 HN N.....................76 02525 Lídds G .................76 02596 Kobbi töff R.............74 03472 Theopopolapas United N 74 03780 Feiti bakvörðurinn ......74 00866 Ripp Rapp og Rup R .... 72 00245 Thisisit! R ............71 00838 Uncas 3 R...............71 02605 Sutton United R..........71 03442 Fulham 2 R ..............71 00259 Bolarnir R...............70 Staðan í þriðja hluta Komung stúlka úr Kópavogi heldur forystunni í þriðja hluta draumaliösleiks DV eftir fjórar umferðir af fimm. Hún heitir Halla Björk Ragnarsdóttir og er fjögurra ára gömul. Lið hennar, Hallgerður, fékk átta stig í 13. umferð úrvalsdetid- arinnar í knattspymu og jók með því forystu sína úr tveimur stigum i sex. Sá sem veitir Höllu mesta keppni er Ámi Jakob Stefáns- son, liðsstjóri handboltaliðs KA og fyrrum fótboltakappi úr Þór. Hann er í öðra sætinu með lið sitt, Stevo FC. Þriðji hluti draumaliðsleiks- ins nær yfir umferðir 10-14 í úr- valsdetidinni og lýkur því með 14. umferðinni um næstu helgi. Að henni lokinni veröur því krýndur þriðji sigurvegari sum- arsins í draumaliösleiknum. Þessi lið era í 300 efstu sætunum í þriðja hluta drauma- liðsleiksins: 02565 Hallgeröur G .............43 02490 Stevo FC N................37 03674 GamliNói.................36 03086 Seifu’46 G...............32 03408 Gressi Hook G............32 00386 Jarlinn V................31 00449 Gull-Egill V ............29 02588 Sóli G...................29 03780 Feiti bakvörðurinn ......28 03252 Bombay R ................28 03563 Rivaldo JF A ............28 00022 FC Bames R ..............28 02976 Slátrarinn frá Bilbao S . . 28 Bjarki stigahæstur Bjarki Gunnlaugsson úr KR hefur fengið flest stig af öllum leikmönnum úrvalsdeildar í draumaliðsleiknum. Þessir era stigahæstir: Bjarki Gunnlaugsson, KR .........38 Sigurbjörn Hreiðarsson, Val .... 26 Steingrímur Jóhannesson, iBV . . 26 Kristján Brooks, Keflavík .......24 Alexandre Santos, Leiftri........22 Ágúst Gylfason, Fram.............21 ívar Ingimarsson, ÍBV............21 Salih Heimir Porca, Breiðabliki.. 20 Amór Guðjohnsen, Val.............19 Guömundur Benediktsson, KR . . . 18 Gunnar Oddsson, Keflavík ....... 18 Stig allra leikmanna, sem og stöðu 300 efstu draumaliöanna, bæði í leiknum í hetid og í þriðja hluta leiksins, er aö finna á íþróttavefnum á Vísi.is. Bann vegna mistaka Stefán Þ. Þórðarson úr ÍA er kominn i eins leiks bann vegna augljósra dómaramistaka. Stefán fékk gult spjald fyrir meintan leikaraskap þegar hann var felldur af markverði Fram í leik liðanna á dögunum. Þetta var fjóröa gula spjald Stefáns sem verður í banni í 14. umferð úrvalsdetidarinnar í knattspyrnu um næstu helgi, ásamt þeim Ásgeiri Baldurs úr Breiðabliki, Ásgeiri Halldórs- syni úr Fram og Sigurði Sighvatssyni úr Víkingi. -VS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.