Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.1999, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.1999, Blaðsíða 7
MIÐVIKUDAGUR 18. ÁGÚST 1999 7 Fréttir Læknirinn nálgast skipið. Varðskipsmenn halda í tengilfnuna. Á þessu augnabliki er spilmaðurinn uppi í dyrunum að segja flugstjóranum að koma nær alveg yfir þilfar skipsins þar sem varðskipsmennirnir eru þannig að læknirinn lóði sem réttast þegar honum er slakað niður. DV á æfingu með þyrlusveit Landhelgisgæslunnar og Tý á Faxaflóa: Slakaðu mér niður! 23 hífingar á tæpum tveimur klukkustundum gengu eins og best varð á kosið hjá áhöfn TF-LÍF, stóru Super Puma þyrlu Landhelgisgæsl- unnar, þegar DV fór í æfmgaflug með vélinni i góða veðrinu á mánu- dag. Æfðar voru hifingar yfir varð- skipinu Tý úti á Faxaflóa og björg- un eins karlmanns og einnar konu af varðskipinu og síðan bæði úr gúmbáti og úr sjónum. Til að þyrluáhafnimar séu sem best í stakk búnar til að takast á við krefjandi verkefni og bjarga lands- mönnum sem öðrum í hættu stödd- um, jafnvel við verstu aðstæður með skömmum fyrirvara, er nauð- synlegt að fara nær stöðugt í æf- ingaflug. í æfingunni á mánudag voru flug- stjóri og flugmaður, stýrimaður, sem sá um siglingafræðina og fleira, tveir spilmenn, sigmaður og læknir frá Borgarspítalanum. Læknar slysadeildarinnar eru reglulega með á þyrluæfingum enda eru þeir oftast kallaðir út þegar eitthvað bjátar á. Meðfylgjandi myndir skýra hvemig þyrlusveit Landhelgisgæsl- unnnar ber sig að við hifingar yfir skipum úti á sjó þar sem þyrluflug- stjórinn lætur vélina nálgast skipin á hlið. Blaðamaður DV var látinn síga niður á skipið úr góðri hæð. Hvort sem það var eins og einn úr þyrlusveitinni orðaði það: „Jakob flugstjóri var í stuði“ eða aðstæður vom eins og best varð á kosið þá var lendingin á þilfari Týs og báðar hifingamar ótrúlega mjúkar. Þegar Páll Geirdal stýrimaður heyrði blaðamann segja „mjúkur" var hann fljótur til og sagði þetta væri ekkert miðað við þegar menn væra að síga niður á skip í brjáluðu veðri á hafi úti, jafnvel i lítilli birtu. -Ót Frá vinstri: Hannes Petersen læknir, Thorben Lund sigmaður og Ómar Ed- vardsson spilmaður. Flugstjórl í ferðinni var Jakob Ólafsson. Hannes Petersen, slysalæknir frá Borgarspítalanum, farinn út úr þyrlunni. Hann gefur fyrst spilmanni merki með þumalfingrinum: „Þú mátt slaka mér niður núna!“ Eftir stutta stund hangir læknirinn „í lausu lofti" og er á leiðinni niður. Áhöfn Týs heldur í tengilínuna sem hangir niður neðst til hægri. Þyrlu- flugstjórinn, sem situr hægra megin í flugstjórnarklefanum, lætur vélina fyrst „hanga" þannig að skipiö er nokkra tugi metra til hægri við skipið - þannig hefur hann góða viðmiðun þegar maður er látinn síga. Spilmaður fylgist svo með út um afturdyrnar og talar þá stöðugt við flugstjórann: „Vinstri, hægri, klukkan þrjú, tíu metrar, nfu, átta, sjö“ og svo framvegis. Flugstjórinn lætur vélina svo hanga nær beint yfir skipinu þegar sigmaður- inn er að „lenda“. DV-myndir Óttar Unnið að endurnýjun hitaveitulagnarinnar á Ólafsfirði. ÓlafsQöröur: Hitaveitulögnin endurnýjuö Búvélasafnið á vefinn DV, Vestnrlandi: Búvélasafnið á Hvanneyri hefur opnað nýjan vef á Veraldarvefnum. Þar er að finna upplýsingar um saihið, sögu þess og safiigripi. Vefur- inn er prýddur fjölda mynda og sagt er frá einstökum safngripum og sögu þeirra. Þá er að finna á vefnum raf- ræna sögusýningu um 80 ára sögu dráttarvélarinnar á íslandi. Slóð vefs- ins er: www.vesturland.is/buvelasafn. Nýi vefurinn var opnaður síðastliðinn föstudag í tilefni þess að um helgina fór fram á Hvanneyri sögusýningin „Ýtur í lífi þjóðar". Tilefni hennar er 90 ára saga beltavéla og jarðýtna á ís- landi og hlutur þeirra í ræktun en einnig samgöngubótum í dreifðum byggðum. Sýndar voru beltavélar, ýtur og fylgitæki þeirra frá ýmsum tímum, auk þess sem gömlum, fágætum mynd- um og söguþáttum var brugðið upp í sérstakri sýningardeild. Brugðið var á leik með ýtum og ýmislegt var í boði á Hvanneyri þessa daga. Sýningin stóð kl. 13-18 báða dagana. -DVÓ Hafnarfjörður: Vitni óskast Óskað er eftir vitnum að árekstri sem varð á mótum Öldugötu og Reykjanesbrautar í Hafnarfirði fimmtudaginn 12. ágúst, kl. 18.50. Þar rákust saman rauður Ford- sportbíll og blár Chevrolet-skúffú- bíll. Vitni eru vinsamlega beðin að hafa samband við lögregluna í Hafn- arfirði eöa Bjameyju Sigurleifsdótt- ur í síma 699 3812. DV, Ólafsfirði: Nú standa yfir viðamiklar fram- kvæmdir á vegum Hitaveitu Ólafs- fjarðar og er það í raun langstærsta verklega framkvæmdin sem Ólafs- fjarðarbær stendur að á þessu ári. Það á að endumýja stóran hluta af lögn heita vatnsins sem rennur í bæinn og þetta er síðasti hlutinn sem á að endumýja. Heildarlengd þess sem endumýja á hjá hitaveitunni nú er 2400 metr- ar og verður þá búið að endumýja alla lögnina, alveg inn á dal. Hluti lagnarinnar, sem verið er að endur- nýja, er asbest. Vænta menn þess að fá heitara vatn úr þessum sjálfrenn- andi holum frammi á dal, þannig að Ólafsfiröingar þurfa mun minni uppdælingu í Laugarengi. Sparast þannig talsverðar fjárhæðir á hverju ári. Heildarkostnaður við verkið er áætlaður 10 milljónir króna - efhi, vinna og frágangur á svæðinu, að sögn Ásgeirs Loga Ás- geirssonar bæjarstjóra. -HJ Grindavík: Mikið vinnu- framboð og mannfjöigun Atvinnuástand í Grindavík hefur verið með besta móti það sem af er ári og virðist ekkert lát vera á fjölg- un starfa á svæðinu. Mikil fjölgun starfa í ferðaþjónustu skipar þar stóran sess en opnun nýs baðstaðar við Bláa lónið skapaði u.þ.b. 30 ný störf við ferðaþjónustu. Enn fremur hefur verið fjölgun starfa í sjávarút- vegi og iðnaði og er svo komið að mikil eftirspum er eftir menntuðu vinnuafli á þeim sviöum á svæðinu, eins og reyndar víða um land. At- vinnuleysi hefur vart mælst í Grindavík í sumar en það var lengi vel 0,09% en stendur nú í 0,46% á þeim tíma sem atvinnuástand er vanalega verst. í kjölfar góðs atvinnuástands hef- ur verið mikil fólksfjölgun og er svo komið að umfra eftirspurn er eftir húsnæði í sveitEirfélaginu. Grind- víkingum fjölgaði um 39 á árinu 1998. Bendir margt til þess að íbúa- fiöldi í Grindavík nái í fyrsta sinn 2.200 manna markinu á þessu ári. Mikil uppbygging er hafin í bæjarfé- laginu með stækkun og einsetningu gmnnskólans, fjölgun leikskóla- plássa og dýpkun hafnarinnar. Verktakar í Grindavík eru um þess- ar mundir að bregðast við kröfum markaðarins um aukið íbúðarhús- næði í bænum. Er undirbúningur hafinn að nýju tvö hundrað íbúa hverfi. -bmg

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.