Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.1999, Side 6
6
MIÐVIKUDAGUR 18. ÁGÚST 1999
Viðskipti
Þetta helst: ... Viðskipti á VÞÍ 590 m.kr. ... Mest með hlutabréf, 501 m.kr. ... Mest með Marel, 129 m.kr.,
og hækkuðu bréfin um 23,5% ... Samherji og Eimskip 73 m.kr ... Flugleiðir 53 m.kr. ... Úrvalsvísitala hækkaði um
1,62% og er nú 1.288,5 sem er met ... Fiskiðjusamlag Húsavíkur lækkar um 10% ... Tæknival lækkar enn ...
Afkoma fyrirtækja
umfram væntingar
- úrvalsvísitalan aldrei hærri
Helstu hlutabréfavísitölur
MNGVfSITÖLUR Lokagiidi Breyting í % frá:
(verðvísitölur) 16.08.99 áramótum
Úrvalsvisitala Aðallista L26&.0 15,53'/.
Heildarvísitala Aðallista 12314 17,63%
Heildarvístala Vaxtarlista L0794 7,95%
Vísitala sjávarútvegs 104,4 8,60%
Vísitala þjónustu og verslunar 1024 5,43%
Vtsitala fjármila og trygginga 139,0 25,00%
Visitala samgangna 150,4 14,35%
Vísitala oliudreifingar 119,6 34,65%
Vísitala iðnaðar og framleiðslu 1094 12,73%
Vísitala byggingar- og verktakastarfsemi 147,6 47,66%
Vísitala upplýsingatækni 1444 4440%
Vísitala lyfiagreinar 111 7 1140%
Vísitala hlutabréfasjóða og fiárfestingarf élaga 109,3 7,02%
HeMktWÍ PT3
Hlutabréfaverð hefur tekið veruleg-
an kipp undanfarið og viðskipti með
bréf hafa verið verið með líflegasta
móti. Allar helstu hlutabréfavísitölur
hafa hækkað töluvert og svo virðist
sem aukinnar bjartsýni gæti á hluta-
bréfamarkaði. I Morgunkomi FBA í
gær kom fram að þau milliuppgjör
sem birst hafa undanfarið séu mun
betri en markaðurinn hafi almennt bú-
ist við og þau gefi nokkurt tilefiii til
þjartsýni. Almennt má segja að af-
koma fyrirtækja sé nokkuð yfir vænt-
ingum og það hljóta vera góðar fréttir.
Að mati FBA má draga þá ályktun,
þrátt fyrir að nokkur fyrirtæki eigi eft-
ir að skila milliuppgjöri, að fyrirtæki
hafi náð að nýta sér hagstæðar ytri að-
stæður og að hagræðingaraðgerðir síð-
ustu ára séu að skila sér. Spennandi
verður að sjá hvort fyrirtækjum tekst
að nýta sér meðbyrinn með því að
auka arðsemi enn meira á síðari hluta
ársins.
Hagnaður umfram væntingar
í Morgunpunktum Kaupþings í gær
er sagt að ef framhaldið verði eins gott
og milliuppgjör-
in gefi tilefni til
að ætla megi
segja að enn séu
góðir hækkun-
armöguleikar á
hlutabréfamark-
aði á seinni
hluta ársins.
Reyndar telja
margir að verð,
t.d. bankastofh-
ana, sé nokkuð
hátt en afkoma
þeirra var langt
umfram spár
sérfræðinga.
Hagnaður Bún-
aðarbankans,
Landsbankans
og FBA var um og yfir 100 milljónum
meiri gert var ráð fyrir en á móti kem-
ur nokkuð óöryggi um framtíö í löggjöf
um fjármálastofnannir.
Úrvalsvísitalan aldrei hærri
Úrvalsvísitalan fór 1.288,5 eftir að
hafa hækkað um 1,619% í gær og hef-
ur aldrei verið hærri. Helsta ástæðan
er mikil hækkun á bréfum Marels, um
23,5%. Marel hf. birti milliuppgjör sitt
i gær og var hagnaður 225 milljónir
sem er miklu meira en sérfræðingar
höfðu spáð. Viðskipti á VÞÍ með bréf
Marels voru 129 miHjónir gær en nán-
ar verður fiallað um milliuppgjör Mar-
els í DV á morgunn.
Þá voru mikil viðskipti með bréf
annarra félaga og verulegar hækkanir
voru í þeim viðskiptum i gær. Það
rennir enn frekari stoðum undir að
seinni hluti ársins verði bjartur.
-bmg
Mánaðarleg velta með hlutabréf á Verðbréfaþingi
- milljónir króna
Heimild: VÞÍ lr»T^
Dráttur á sölu
ríkisbankanna
neikvæður
í ljósi umræðunnar um stofnun
nýrra banka hér á landi ber að geta
þess að þróun löggjafar um slíkar
stofnanir, auk nýrrar tækni við
rekstur þeirra, gerir aðgangstak-
markanir að bankamarkaði mjög
litlar. Þetta kom
fram í Morgun-
fréttum F&M í
gær. í umræðu
um stofnun nýrra
banka þarf þó að
gera greinarmun
á eöli fiárfesting-
arbanka og við-
skiptabanka þar
sem löggjöfin
varðandi stofnun
og stcufsemi við-
skipabanka er
mun stífari.
Tómas Ottó
Hansson, forstöðumaður rannsókna
F&M, sagði í gær að verðmæti fiár-
festingarbanka fælist fyrst og fremst
í viðskiptasamböndum starfsmanna
bankans, auk þekkingar starfs-
manna og reynslu. „Óvissa um
framtíðarfyrirkomulag á fiármála-
markaði gerir verð þeirra banka
sem þegar eru á markaði ótryggara.
Miðað við háa verðlagningu á bönk-
um í dag er ljóst að dráttur á sölu
ríkisbanka og hugsanlegri samein-
ingu fiármálafyrirtækja kann að
leiða til lækkunar á verði þeirra,"
segir Tómas. -bmg
Tómas Ottó
Hansson for-
stöðumaður
rannsókna
F&M.
Skipamiðlunin
Bátar & Kvóti
Sími: 568 5330
hllfi ll\x VVW Vfff lf * í<s/‘-\itfÍfji/
Lyfjaverslun íslands:
Hagnaður í samræmi við áætlanir
Hagnaður af rekstri Lyfiaverslunar
íslands hf. var 37 milljónir króna á
fyrstu sex mánuðum ársins sam-
kvæmt árshlutareikningi 30. júní 1999.
Niðurstaðan er í samræmi við rekstr-
aráætlun ársins. Á sama tíma í fyrra
nam hagnaðurinn 22 milljónum króna.
Veltuaukning er 3% miðað við sama
tímabil árið áður en veltan var 744
milljónir hjá móðurfélaginu og 817 hjá
samstæðunni í heild á fyrri hluta árs-
ins. Óreglulegar tekjur sem námu 28
milljónum króna eru vegna söluhagn-
aðar af eigin bréfum félagsins.
í lok júní nam eigið fé samstæðunn-
ar 502 milljónum króna en var 560
milljónir í árslok 1998 og hafði því
minnkað um 58 milljónir. Minnkun
eigin fiár stafar af því að á tímabilinu
var greiddur út arður í félaginu sem
nemur 40,62% af nafnverði hlutafiár
félagsins. Arðurinn sem var greiddur
út í formi hlutabréfa í Delta hf. nam
122 milljónum króna.
Eiginfiárhlutfall í lok júní var 43%,
veltufiárhlutfall var 2,2 en veltufé fé
frá rekstri nam 16 milljónum króna.
Eftir sölu Lyfiaverslunar íslands á
framleiðslu- og þróunardeild sinni til
Delta hf. um síðustu áramót hefúr ver-
ið unnið að eflingu markaðs- og dreif-
ingarþáttar félagsins. Ein af niðurstöð-
um þeirrar vinnu er aö Lyfiaverslunin
mun taka við dreifingu á öllum fram-
leiðsluvörum Delta hf. um næstu ára-
mót. Hluthafar í félaginu eru nú um
1100 og er eignaraðild enn mjög dreifð.
Aðeins einn hluthafi á yfir 10% hlut í
félaginu. -bmg
Hraðfrystihúsið með 43,6 milljóna hagnað
- samruni við Gunnvöru leiðir til hagræðingar
Gengisþróun Hraðfrystihússins hf. frá áramótum
. Ástæöan fyrir skrykkjóttu gengi Hraöfrystihússins er
4,2 fyrst og fremst stopul viðskipti og lítil velta. Frá
áramótum hafa viöskipti aöeins veriö 31,4 m.kr.
4,0
20.1. 1999 ----------------------------------------
-► 20.1. 1999
irsT*3
Hagnaður Hraðfrystihússins hf. í
Hnífsdal var 43,6 milljónir króna fyrstu
6 mánuði ársins 1999 en var 50 milijón-
ir á sama tímabili 1998. Rekstrartekjur
voru á tímabilinu 912 milljónir en voru
855 milljónir á sama tímabili í fyrra.
Hagnaður fyrir afskriftir var kr. 147
miUjónir en var 134 milljónir á árinu
1998.
Eigið fé Hraðfrystihússins hf. var 614
milljónir í lok timabilsins og eru það
tæp 22% af niðurstööu efnahagsreikn-
ings en var tæpt 21%. Pjárfestingar fé-
lagsins á tímabilinu voru kr. 98 milljón-
ir og skiptust þær þannig að endurbæt-
ur á skipum námu 72 milljónum, endur-
bætur á fasteignum 13,5 milljónum og
nýjar vélar og tæki 11,9 milljónir. Veltu-
fé frá rekstri nam 95 milljónum á tíma-
bilinu en 80 milljónum árið áður. Veltu-
fiárhlutfall félagsins var 1,3 í lok tíma-
bilsins en var 1,39 á sama tíma árið
áður.
Félagið rekur bolfiskvinnslu í Hnífs-
dal, rækjuverksmiðju í Súðavík og gerði
út 5 skip og einn bát á tímabilinu, þar af
voru tvö leiguskip. Tvö skipanna voru á
bolfiskveiðum, tvö á ísrækjuveiðum,
eitt á rækjufrystingu og bátur á rækju-
veiðum i ísafiarðardjúpi.
Sameining við Gunnvöru
30. júní síðastliðinn undirrituðu
stjómir Hraðfrystihússins hf. og
Gunnvarar hf. áætlun um sameiningu
félaganna. Áætlunin gerir ráð fyrir að
hluthafar í Gunnvöra fái eingöngu
hlutabréf í Hraðfiystihúsinu hf. í stað
hlutabréfa i Gunnvöru hf. Sameining-
in mun gildi frá 1. janúar 1999 og
munu skiptihlutfóllin byggjast á efna-
hag í árslok 1998, að teknu tilliti til af-
komu félaganna á tímabilinu janúar til
maí 1999. Hluthafafundir verða vænt-
anlega haldnir um mánaðamótin
ágúst-september nk. þar sem samruni
félaganna verður tekinn fyrir. Gert er
ráð fyrir að sameining félaganna muni
leiða til aukinnar hagræðingar í veið-
um og vinnslu. -bmg
Viðræðum Þormóðs ramma
og Fiskiðjusamlagsins slitið
Ekki náðist samkomulag milli
Þormóðs ramma-Sæbergs hf. og
Fiskiðjusamlags Húsavíkur hf. um
að Þormóður rammi-Sæberg kæmi
sem nýr hluthafi inn í FH með nýtt
hlutafé. Þessum viðræðum hefur þvi
verið hætt. Hlutabréf í Fiskiðjusam-
laginu hafa hækkað verulega undan-
farið, m.a. vegna þessa hugsanlega
samnings. Því verður spennandi að
sjá hvort þessi hækkun mun ganga
til baka.
Ringholm bjartsýnn
Bosse Ringholm, fiármálaráðherra
Svíþjóðar, sagði í gær að ríkisstjómin
spáði 3,5% hag-
vexti á þessu ári.
Fyrr á árinu var
því spáð að hag-
vöxtur yrði að-
eins 2,2%. Breyt-
ingin er einkum
rakin til já-
kvæðra efhahags-
legra þátta á öllu
Skandinavíusvæðinu sem aukið hafa
efnahagsleg umsvif.
Gúmmívinnslan kaupir Hjól-
barðaþjónustu Einars
Gúmmívinnslan hf. á Akureyri
hefúr keypt Hjólbarðaþjónustu Ein-
ars við Dalsbraut og mun taka við
rekstrinum um næstu mánaðamót.
Þetta kom fram á Viðskiptavefnum á
Vísi í gær. Engar verulegar breyt-
ingar eru fyrirhugaðar á rekstri
Hjólbarðaþjónustu Einars þrátt fyrir
breytingar á eignaraðild. Fyrirtækið
verður áfram rekið undir sama
nafni og starfsmannafiöldi verður
óbreyttur.
Neysluverðsvísitala hækkar í
Bandaríkjunum
Neysluverðsvísitala í Bandaríkj-
unum hækkaði um 0,3% í júlí. Þessi
hækkun er í samræmi við spár
helstu sérfræðinga og rennir stoðum
undir hugsanlega vaxtahækkun 24.
ágúst.
2,2% verðbólga í Bretlandi
Verðbólga í Bretlandi var óbreytt
í júlí frá fyrra mánuði. Neysluverðs-
vísitala lækkaði um 0,4% en vísitala
neysluverðs jafngildir 2,2% verð-
bólgu á ári. Þessi niðurstaða er inn-
an við verðbólgumarkmið Englands-
banka.
Eichel lofar skattalækkun
Hans Eichel, fiármálaráðherra
Þýskalands, opnaði nýtt ráðuneyti í
Berlín í gær og
lofaöi um leið að
flýta umfangs-
miklum skgtt-
breytingum.
Hann sagðist
myndu minnka
rikisútgjöld,
lækka fyrirtækja-
skatta, skatta á
bamafiölskyldur og leggja á umhverf-
isskatta. Hins vegar neitaði hann því
að hækka ætti dísilskatta. Eichel von-
ast til að lækkun skatta í heild sinni
verði um 1168 milljarðar íslenskra
króna í fiárlögum fyrir árið 2000.
Vaxtahræðsla í Þýskalandi
Hlutabréf í Þýskalandi lækkuðu
nokkuð i verði í gær og í fyrradag
vegna hugsanlegrar vaxtahækkunn-
ar i Bandaríkjunum. í fyrradag
lækkuðu helstu vísitölur um 0,54%
og í gær þegar DV fór í prentun
höfðu bréf lækkað um 0,02%.
ísrael nær sér á strik
Eftir þriggja ára niðursveiflu virð-
ist efnahagur ísraels vera vænkast
þrátt fyrir að þjóðarframleiðsla hafi
aðeins vaxið um 0,3% fyrstu sex
mánuði þessa árs. Enginn vöxtur
var fyrstu þijá mánuðina en á öðr-
um ársfiórðungi óx landsframleiðsla
um 1,7%.