Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.1999, Page 24
36
MIÐVIKUDAGUR 18. ÁGÚST 1999 TY\7
nn
Ummæli
Útsala var það,
heillin
„Göngum hægar um þær
gleðidyr að efna til
útsölu ríkiseigna -
svo mikil
hækkun hefur orð-
ið á hlutabréfum
FBA frá því ríkið
seldi, að útsala
var það, heillin."
Sighvatur Björg-
vinsson alþingismaður,
í Morgunblaðinu.
Vandræðagangurinn
á Laugaveginum
„Það er enginn annar en borg-
arstjóri sem ber ábyrgð á þessum
vandræðagangi sem verið hefur í
byggingarmálum i borginni að
undanfórnu. R-listinn er búinn
að hræra svo í kerfrnu að starfs-
fólk veit ekki lengur hvernig það
á að afgreiða mál.“
Jón Sigurjónsson, gullsmiður á
Laugaveginum, í DV.
íslensk mafía?
„Það er eitthvað sem ég þekki
ekki ef þeir eru
hluti af einhverri
mafiu. Ég man
ekki betur en að
einn þeirra hafi
verið aðstoðar-
maður Davíðs.“
Jón Kristjánsson
alþingismaður vegna
ummaela Davíðs Odddsonar,
í Degi.
GSM og sálimar
„Við erum aö keppa um sál-
imar á allt öðrum forsendum
en Landssiminn. Við þurfum
ekki GSM-síma til að ná sam-
bandi upp.“
Bjarni Grímsson, framkvæmda-
stjóri Kristnitökuhátíðar, i Degi.
Ringlaður ráðherra
„Hún hefur algerlega snúist
um 180 gráður frá
því að þessi ágæti
þingmaður var að
beijast fyrir því
að fá sem flest at-
kvæði í átökum
um varafor-
mannsembætti i
Framsóknar-
flokksins."
Össur Skarphéðinsson um Siv
Friðleifsdóttur umhverfisráð-
herra, í DV.
:
Þjóðleg skítalykt
„Það verður trúlega ekki mik-
ið mál að fá þennan sýningar-
skála til að bera sig. Fnykur af
frönskum og gos í kóki eru orð-
in að þjóðlegri skítalykt sem um-
lykur landið. Með því að bæta
við þetta spilakössum getur skál-
inn malað gull og hættum svo
bara þessu menningarkjaftæði."
Kjartan Guðjónsson myndlist-
armaður um örlög Listaskálans
í Hveragerði, í Morgunblaðinu.
Friðbert Pálsson hjá Góðum stundum:
JMikil áhætta liggur í
kvikmyndakaupum
Um síðustu helgi dreifði nýtt kvik-
myndadreifmgarfyrirtæki, Góðar
stundir ehf., sinni fyrstu kvikmynd
hér á landi. Var það myndin Allt um
móður mina sem spænski leikstjór-
inn Pedro Almodóvar leikstýrir. Er
um að ræða margverðlaunaða kvik-
mynd og fékk Almodóvar meðal ann-
ars verðlaun fyrir hana sem besti
leikstjórinn á kvikmyndahátíðinni í
Cannes: „Margir vildu nú meina
að myndin hefði átt að
fá gullpálmann og - - •, j
var almennt bú-
ist við því,“
segir Friðbert
Pálsson,
stofnandi
Góðra
stunda, en
hann hefur
mikla reynslu
í íslenskri bíó-
menningu, var
forstjóri Há-
skólabíós um
tveggja áratuga
skeið.
Friðbert segist nota reynslu sína til
að velja og hafna: „Þetta er áhættu-
samur bisness og það tekur sinn tíma
að koma þessu af stað. Ég stofnaði
fyrirtækið um síðustu áramót og það
er fyrst núna sem ég er að sýna fyrstu
kvikmyndina. í raun er þessi bransi
eins og að fara í spilavíti og velja eina
tölu og sjá svo til hvort hún kemur
upp. Ég kaupi sumar kvikmyndir fyr-
ir fram og hluta af þeim kvikmyndum
sem ég kaupi mun ég setja
beint á myndband, enda
mun fyrirtækið einnig
Maður dagsins
sinna myndbanda-
markaðinum. Má
nefna að á komandi
Kvikmyndahátíð í
Reykjavík á ég einar
þrjár kvikmyndir sem
þar verða sýndar og
munu þær síðan
síðar meir
verða
gefnar út á myndbandi. Eg kem til
með að gefa út fleiri titla á mynd-
bandi en þeim sem dreift er í kvik-
myndahús. Svo er ég einnig með sjón-
varpsréttinn og sel myndimar síðan
áfram 1 sjónvarpið."
Friðbert er spurður hvort hann sé
ekki í beinni samkeppni við bíóin
sjálf, sem eru einnig dreifingaraðilar:
„Jú, að einhverju leyti, en segja má
að Skífan sé einnig sjálfstæður dreif-
ingaraðili sem selur í kvikmyndahús.
Staðreyndin er að það eru of margir
kvikmyndasalir í Reykjavík. Ég held
__________ að nýtingin sé ekki nema
um 15% á ári, þannig að
það er ekki erfitt að
----------- semja um sýningu á
kvikmynd og þótt ég hafi samið viö
minn gamla vinnustað, Háskólabíó,
um að sýna fyrstu kvikmyndina sem
ég dreifi þá er ekki þar með sagt að ég
geri það með næstu kvikmynd."
Friðbert hefur þegar keypt nokkrar
kvikmyndir sem hann ætlar að sýna í
kvikmyndhúsum: „Næsta kvikmynd
sem tekin verður til sýninga er
danska kvikmyndin Síðasti söngur
Mifúme (Mifume’s sidste sang) sem
leikstýrt er af Sören Kragh-Jacobsen,
;n hún hlaut meðal annars silfur-
bjöminn á Kvikmyndahátíðinni í
Berlín, þá má nefna að ég er bú-
inn að kaupa nýjustu kvik-
mynd Roberts Di Niros,
Flawless, sem Joel
Schumacher leikstýrir og
Under Suspicion með Gene
Hackman og Morgan Free-
man.“ -HK
um þjóðsagna-
persónu, stend-
ur á hlaðinu
við höfnina.
Verkin eru
unnin í grá-
Sýningar
Páll Guðmundsson sýnlr í Skagafirði.
Höggmyndir
í Skagafirði
Þessa dagana stendur yfir
sýning á höggmyndum eftir
Pál Guðmundsson frá Húsa-
felli í Lónkoti í Skagafírði.
Flest verkin á sýningunni
eru í stóra tjaldinu en eitt
þeirra, sem er minnisvarði
grýti úr Lón-
kotsmöl, stuðla-
berg frá Hofsósi
og ýmiss konar
grjót frá Húsafelli. Sýning-
unni lýkur 29. ágúst.
Málverk í Lóuhreiðri
Edwin Kaaber sýnir um
þessar mundir í veitinga-
staðnum Lóuhreiðri í Kjör-
garði við Laugaveg. Mynd-
irnar eru unnar í oliu,
akrýl og vatnsliti. Sýningin
stendur fram í miðjan sept-
ember.
Myndgátan
Lausn á gátu nr. 2478:
rÍL /»1>
(ÞETTA
, víkk/ oc. oxeYT/A>rí ]
N \£’KK/‘ y f/£/'rr ANNAD-J -
'tA
Rétt skal vera rétt
Myndgátan hér að ofan lýsir hvorugkynsorði.
Stefán Karl Stefánsson leikur eina
hlutverkið í hádegisleikhúsi Iðnós.
1000 eyja
sósa
Iðnó hefur sýnt um skeið við
miklar vinsældir í hádegisleik-
húsinu 1000 eyja sósu eftir Hall-
grím Helgason og eru næstu sýn-
ingar í hádeginu á morgun og
fostudag. Þetta er annað hádegis-
leikritið sem Iðnó sýnir en bæði
voru afrakstur verðlaunasam-
keppni sem efnt var til.
Aðeins einn leikari er í verk-
inu, Stefán Karl Stefánsson, og
leikur hann Sigurð Karl sem situr
í flugvél á leiðinni til útlanda.
Hann hefur tekið ákvörðun um aö
yfírgefa konu--------------
sína og böm og LeÍkHÚS
tekur það lítið
nærri sér en styttir sér stundir
með því að mala við óviljugan
sætisfélaga sinn. Sigurður Karl er
afskaplega þreytandi maður öllum
öðrum en sjálfum sér. Hann æpir
þegar honum dettur í hug, þvaðr-
ar einhverja steypu og talar í far-
síma þó að það sé bannað. Þær
fjölmörgu skyldur sem hinn al-
menni borgari þarf að eltast við á
hveijum degi skipta hann litlu
máli lengur.
Bridge
John Onstott í sveit Steves Beatt-
ys missti af tækifæri á vinningi í
þessu spil sem kom fyrir í úrslita-
leik Spingold-sveitakeppninnar í
Bandaríkjunum á dögunum. Til úr-
slita í þeim leik spiluðu sveitir
Nicks Nickells og Steves Beattys
(mishermt var í dálkinum í síðustu
viku að Nickell hefði spilaö við
sveit Dicks Freemans í úrslitum, en
Freeman er í sveit Nickells!). í lok-
uðum sal höfðu sagnir endað í 5
hjörtum hjá Eisenberg og Hayden.
Vömin tók slagina tvo á svörtu ás-
ana og spilaði síðan áfram laufi.
Sagnhafi þurfti að gera sér mat úr
tíglinum til að öðlast von um vinn-
ing en þegar ásinn lá fjórði úti varð
sagnhafl að lokum einn niður. Ef
sagnhafi hefði tekið áhættuna af því
að trompa tígul í fjórða slag og
svína hjartagosa hefði spilið unnist.
Sagnir gengu þannig í opnum sal,
austur gjafari og NS á hættu:
♦ 10
•» ÁG876
♦ KG7632
* K
4 ÁKG86
M 2
♦ D105
* ÁG98
4 9432
W K9543
-
* 10632
Austur Suður Vestur Norður
Onstott Rodwell Beatty Meckstr.
14 pass 24 dobl
4 4 p/h
Útspil Rodwells var hjarta og
Meckstroth átti fyrsta slaginn á
hjartagosa. Næst koma spaðatía og
Onstott tók slaginn á drottninguna í
blindum. Nú gerði hann þau „mis-
tök“ að spila laufdrottningunni, því
hann taldi norður líklegan til að
eiga lengd i litnum. Hann tók einu
sinni spaða til
viðbótar, lauf-
gosa og gaf Rod-
well síðan slag á
lauftíuna. Rod-
well spilaði
hjarta á ás Meck-
stroths og Ons-
tott gerði heiðar-
lega tilraun til að
vinna spilið með því að henda tígli.
Norður hefði undir venjulegum
kringumstæðum verið endaspilað-
ur, en Onstott var óheppinn þegar
Meckstroth spilaði tígli og Rodwell
var með eyðu í litnum.
ísak Örn Sigurðsson
4 D75
* D10
♦ Á984
4 D754