Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.1999, Side 12
30
MÁNUDAGUR 4. OKTÓBER 1999
t:
Sport___________________________ dv
KR-ingar eftirsóttir
Leikmenn íslands- og bikarmeistara KR í knattspymu
eru eftirsóttir þessa dagana. Nokkur erlend félög hafa sett
sig í samband við vesturbæjarliðið og spurst fyrir um leik-
menn, með kaup eða leigu í huga. Þýska C-deildarliðið
Bayer Uerdingen hefur mikinn áhuga á að leigja vamar-
mennina Bjama Þorsteinsson og Sigurð Örn Jónsson í vet-
ur, norska liðið Brann er með Guðmund Benediktsson í
sigtinu og þá vill þjálfari ónefhds liðs í Hollandi leigja fimm
leikmenn KR fram til vors. -GH
Hjörtur á leið til ÍA
Hjörtur Hjartarson knattspyrnumaður er
að öllum líkindum á leiðinni frá Skallagrími
til Akumesinga. Hann hefur átt í viðræðum
við Skagamenn og samkvæmt heimildum
DV mun hann fljótlega ganga frá samningi
við félagið.
Hjörtur lék mjög vel í framlínunni hjá
Skallagrimi í 1. deildinni í sumar og varð
markakóngur deildarinnar með 18 mörk. -GH
Frakki í Snæfell
Úrvalsdeildarlið Snæfells í körfuknattleik á von á liðs-
styrk í vikunni en á fóstudag er væntanlegur í Stykkishólm-
inn franskur miðherji, David Colbos að nafni. Hann verður
til reynslu fyrst um sinn, félagaskipti hafa verið frágengin
en hann verður ekki löglegur fyrr en eftir einn mánuð.
Colbos er hávaxinn, 2,05 metrar á hæð, og gæti því reynst
mikill styrkur. Hann lék síðast í Rúmeníu með Dinamo
Búkarest en spilaði áður í neðri deildum í Frakklandi.
-vs
Skjern, lið Arons Kristjáns-
sonar, sigraði hollenska liðið
Horn Sittard, 31-26, í fyrri
viðureign liðanna í und-
ankeppni meistaradeildarinnar
í handknattleik í Danmörku á
laugardaginn. Aron átti góðan
leik og skoraði 6 mörk.
Barcelona varð fyrst liða til að
tryggja sér sæti í meistara-
deildinni með tveimur yfir-
burðasigrum, 40-13 og 28-14,
gegn Port Burgas fráBúlgaríu
um helgina. Önnur stórlið eins
og Kiel, Fotex Veszprém og
Badel Zagreb unnu auðvelda
sigra og eiga sæti í deildinni
vist. Þá er Sandefjord frá Nor-
egi komið þangað eftir tvo
sigra á Red Boys frá Lúxem-
borg, 34-24 og 43-15.
Ómar Jóhannsson var í gær
ráöinn þjálfari knattspyrnuliðs
Víðis úr Garði til tveggja ára
en Víðismenn féllu úr 1. deild-
inni á dögunum. Ómar hefur
þjáifað Hauka undanfarin flög-
ur ár en áður lið HK og ÍBV.
Baráttan um sænska meist-
aratitilinn galopnaðist i gær þegar
AIK tapaði, 0-1, fyrir Halmstad. AIK
er með 46 stig, Haimstad 43 og Háls-
ingborg er með 42 stig og á leik til
góða. Einar Brekkan lék í 60 minút-
ur með Örebro sem tapaöi 2-1 fyrir
Trelleborg.
Spánveijinn Sergio Garcia sigraði á
sterku golfmóti sem lauk i Þýska-
landi i gær. Garcia lék á 277 höggum
eins og írinn Padraig Harrington
og Bretinn Ian Woosnam en Garcia
tryggði sér sigur á 2. holu í bráða-
bana. Spánverjinn Jose Rivero, Bret-
inn Peter Baker og Þjóðverjinn Alex
Cejka komu næstir á 278 höggum.
Sigurganga KR hélt áfram á lokahófinu:
Lið ársins
íþróttafréttamenn völdu lið
ársins í karla- og kvennaflokki á
lokahófi KSÍ.
Karlar: Birkir Kristinsson,
ÍBV, Þormóður Egilsson, KR,
Bjami Þorsteinsson, KR, Hlynur
Stefánsson, ÍBV, Hlynur Birgis-
son, Leiftri, Sigursteinn Gísla-
son, KR, Guðmundur Benedikts-
son, KR, Jóhannes Harðarson,
Guðrún Gunnarsdóttir, Guðlaug Jónsdóttir, Guðmundur Benediktsson og Grétar Hjartarson - best og efnilegust.
DV-myndir E.ÓI.
Sendur
heim
í dag?
Samkvæmt
heimildum DV
verður Ryan
Williams, banda-
ríski leikmaður-
inn hjá úrvals-
deildarliði Tinda-
stóls í körfuknatt-
leik, sendur
heim, jafnvel
strax í dag.
Williams hefur
engan veginn
staðið undir
væntingum.
Sauðkrækingar
munu hafa mik-
inn hug á að fá í
staðinn Keith
Vassell, fyrrum
leikmann og
þjálfara KR.
-VS
- Guðmundur og Guðlaug kjörin leikmenn ársins
Bretinn Greg Rusdeski haföi betur
gegn Þjóðverjanum Tommy Haas i
úrslitum á atvinnumannamóti í
tennis sem lauk í Múnchen i gær.
Rusdeski sigraði, 6-3, 6-A, 6-7 og 7-6,
og hlaut 90 milijónir króna í verðlaun
sem er hæsta verðlaunafé sem veitt
hefur verið á tennismóti fyrr og
síðar.
Bandarísku systurnar Serena og
Venus Williams léku til úrslita í
kvennaflokki og þar hafði hin 18 ára
gamla Serena betur gegn systur sinn
sem er 15 mánuðum eldri. Serena
sigraði, 6-1, 3-6 og 6-3, og fékk 60
milijónir króna fyrir sigurinn.
Brann komst í gær í úrslit norsku
bikarkeppninnar í knattspymu með
því að sigra Molde, 4-8, i framlengd-
um leik. Brann komst í 2-0, lengi 2-3
undir en jafnaði á lokamínútunni,
3-3. Per Ove Ludvigsen skoraði sig-
urmarkiö þegar 10 mínútur voru eftir
af framlengingunni. Brann mætir ný-
krýndum meisturum Rosenborg í úr-
slitaleiknum.
Hrafnhildur Skúladóttir, landsliðs-
kona í handknattleik, hefur ekki get-
að'leikið með FH í fyrstu tveimur
umferðum íslandsmótsins í hand-
knattleik vegna meiðsla. Hrafnhildur,
sem kom til FHfrá Noregi í sumar,
verður nær örugglega ekki með þegar
FH tekur á móti Val annað kvöld.
-GH/VS
KR-ingar héldu áfram sigurgöngu
sinni þegar vertíðarlok knatt-
spymufólks voru haldin hátíðleg á
Broadway á laugardagskvöldið.
Hinir fjórföldu meistarar karla og
kvenna áttu þrjá af fjórum sigurveg-
urum kvöldsins í kjöri leikmanna.
Guðmundur Benediktsson var
kjörinn leikmaður ársins í karla-
flokki. Hann átti tvímælalaust besta
tímabil sitt með KR og naut sín vel
í nýrri stöðu sem sóknartengiliður.
Guðmundur skoraði 9 mörk og lagði
annaö eins upp.
Guðlaug Jónsdóttir var kjörin
leikmaður ársins í kvennaflokki í
annað skipti en hún hlaut titilinn
einnig 1995. Guðlaug var fremst í
flokki í ósigrandi KR-liði á árinu og
varð þriðja markahæst í deildinni
með 12 mörk.
Grétar Hjartarson úr Grindavík
var kjörinn efnilegasti leikmaður
úrvalsdeildar karla. Hann skoraði
10 mörk og var þriðji markahæsti
leikmaður deildarinnar og sló í
gegn í fyrsta 21 árs landsleik sínum.
Guðrún Gunnarsdóttir úr KR var
kjörin efnilegust í úrvalsdeild
kvenna. Hún lék stórt hlutverk í
KR-liðinu í sumar þrátt fyrir ungan
aldur og spilaði bæði með 21 árs og
18 ára landsliðum Islands, auk þess
sem hún var valin í A-landsliðshóp-
inn.
Þetta er annað árið í röð sem KR
vinnur tvöfcddan sigur i kjörinu því
í fyrra voru David Winnie og Olga
Færseth leikmenn ársins. KR átti
besta leikmann í kvennaflokki
þriðja árið í röð. -VS
ÍA, ívar Ingimarsson, ÍBV, Grét-
ar Hjartarson, Grindavík, Bjarki
Gunnlaugsson, KR.
Konur: Þóra B. Helgadóttir,
Breiðabliki, Sigrún Óttarsdóttir,
Breiðabliki, Guðrún Sóley Gunn-
arsdóttir, KR, Auður Skúladótt-
ir, Stjörnunni, Rósa Júlía Stein-
þórsdóttir, Val, Ásthildur Helga-
dóttir, KR, Margrét Ólafsdóttir,
Breiðabliki, Guðrún Jóna Krist-
jánsdóttir, KR, Guðlaug Jóns-
dóttir, KR, Rakel Ögmundsdótt-
ir, Breiðabliki, Ásgerður Ingi-
bergsdóttir, Val.
Kristinn Jakobsson var kjör-
inn dómari ársins af leikmönn-
um og er það í
þriðja sinn sem
hann hlýtur þennan
titil.
Breiðablik hlaut
háttvísiverðlaunin í
kvennaflokki og KR
í karlaflokki og ein-
staklingsverðlaunin
fengu Rakel Ög-
mundsdóttir,
Breiðabliki, og Þor-
móður Egilsson,
KR.
-GH
Lið ársins í úrvalsdeild kvenna ásamt Vöndu Sigurgeirsdóttur sem Lið ársins í úrvalsdeild karla. Eiginkonur Birkis
tók við viðurkenningu Ásthildar Helgadóttur. og Bjarka tóku við þeirra viðurkenningum.
íslandsmótið í kumite:
Ingólfur vann tvöfalt
Ingólfur Snorrason frá Selfossi vann tvöfaldan sigur á íslandsmótinu í
kumite, bardagahlutanum af karate, sem fram fór í íþróttahúsi Hagaskóla
á laugardaginn. Ingólfúr sigraði Bjarka Birgisson, KFR, í úrslitaviðureign
í opnum flokki og hann sigraði enn fremur í +80 kg flokki þriðja árið í röð.
Glæsilegur árangur Ingólfs sem gat ekkert æft í sex vikur fyrir mótið
vegna bijóskloss í baki og er langt frá því að vera í fúllu keppnisformi.
Edda Lúvísa Blöndal úr Þórshamri sigraði Sólveigu Kristu Einarsdótt-
ur, Þórshamri, í úrslitum í opnum flokki kvenna og varð því íslandsmeist-
ari sjötta árið í röð.
Gunnlaugur Sigurðsson, Haukum, sigraði í -65 kg flokki, Halldór Svav-
arsson, Fylki, í -73 kg flokki, Jón Ingi Þoiwaldsson, Þórshamri, i -80 kg
flokki og sveit Þórshamars sigraði í liðakeppni.
-VS
Ingólfur Snorrason varð
tvöfaldur meistari.
Rosenborg meistari
- endasprettur Ríkharðs dugði ekki til
Rosenborg varð í gær
norskur meistari í knatt-
spymu 8. árið í röð með
3-2 sigri á Viking frá
Stavangri.
Mörk Vikings komu á
síðustu þremur mínútum
leiksins. Ríkharður Daða-
son kom inn á sem vara-
maður 25 mínútum fyrir
leikslok og fyrst minnkaði
hann muninn í 3-1 og
lagði síðan upp annað
mark mínútu síðar. Auð-
un Helgason lék allan leik-
inn með Viking en Ámi
Gautur Arason var ekki í
marki Rosenborgar.
Tryggvi Guðmundsson
átti góðan leik með
Tromsö sem vann
Bodö/Glimt úti, 1-3.
Heiðar Helguson og
Rúnar Kristinsson náðu
sér hins vegar ekki á strik
meö Lilleström sem tapaði
3-1 gegn Válerenga. Aðrir
íslendingar komu ekki við
sögu um helgina.
Kongsvinger er fallið
eftir 1-2 ósigur gegn
Skeid. Strömsgodset tap-
aði, 2-5, fyrir Moss.
Rosenborg er með 56
stig, Brann 46, Lilleström
45, Molde 41, Tromsö 40,
Stabæk 37 og Viking 36
stig.
-VS