Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.1999, Page 14
Hopkins vill leika
Hannibal
Undanfarið hefur
sú fískisaga flogið
fjöllum hærra að
Anthony Hopkins
ætli sér ekki að
leika mannætuna
Hannibal Lecter í
Hannibal, fram-
haldinu af The Si-
lence of the
Lambs. Var meira að segja farið
að tala um að Tim Roth myndi
hljóta hnossið. Anthony Hopkins
hefur nú blásið á allt slíkt slúður
og segir að hann muni örugglega
leika Hannibal, hann bíði bara
eftir kallinu og víst er að Roth eða
aðrir sem hafa hug á hlutverkinu
geta gleymt því, enginn kemur til
með að taka hlutverkið af Hopk-
ins. Eins og kunnugt er vill Jon-
athan Demme ekki leikstýra
framhaldinu, hann fékk ekki í
gegn þær breytingar á sögunni
sem hann vildi og Ridley Scott
mun því leikstýra Hannibal en
tökur hefjast ekki fyrr en næsta
vor.
Leia prinsessa á
kafi í dópi
Nú þurfa Stars Wars-aðdáendur
að kyngja því að Leia prinsessa
var dópisti. I nýrri bók: Mythma-
ker: The Life and Work of George
Lucas, sem kom út í Bandaríkjun-
um í vikunni, kem-
ur það fram að
Carrie Fisher, sem
lék Leiu og er virt-
ur rithöfundur í
dag, hafi reykt
i marijuana daglega
4, meðan á tökum
. stóð á fyrstu
myndinni og tek-
ið kókaín og LSD um helgar. í
bókinni kemur einnig fram að
tveir bestu vinir Lucas, Steven
Spielberg og Brian De Palma, hafi
ekki verið ýkja hrifnir af Star
Wars þegar þeir sáu hana fyrst og
haft fá orð um gæði hennar.
Nóg að gera hjá
Helen Hunt
Óskarsverðlaunahafinn Helen
Hunt hefur ekki haft mikinn tíma
til að leika í kvikmyndum frá því
hún fékk óskarinn fyrir As Good
as it Gets vegna vinnu við sjón-
varpsþáttaröðina Mad about You.
Nú hefur hún hætt í
sjónvarpinu og hellt
sér út í kvikmynda-
bransann. Hunt er
þessa dagana að
leika I nýjustu
kvikmynd Roberts
Altmans, Dr. T
and the Women
og er að fara að
leika í Then She Found Me, sem
leikarinn Tony Goldwyn leikstýr-
ir. Svo er mjög líklegt að hún leiki
rabbþáttastjómanda í Then She
Found Me, en sú mynd er gerð
eftir skáldsögu sem kunnugir
segja að sé byggð á lífi Roseanne.
Hvernig drepa á hund
nágrannans
í vikunni hófust töku í
Vancouver í Kanada á svartri
kómedíu sem nefnist How To
KiU Your Neighbour’s Dog og
er leikstjóri og handritshöfund-
ur Michael Nozik, en hann leik-
stýrði Private Parts þar sem
«vinsælasti útvarps-
maður Bandaríkj-
anna.Howard
Stern, lék sjálfan
sig. í How to Kill...
i leikur Kenneth
I Brannagh frægan
I leikritahöfund
I sem býr í Los
Angeles. Honum
gengur frekar illa að koma sam-
an leikriti sem hann er að
skrifa og ekki bætir úr sífellt
geltandi hundur nágrannans.
Mótleikarar Brannaghs eru
Robin Wright Penn, Lynn Red-
grave, Peter Riegert og David
Krumholtz.
Ef einhverjir hafa saknað þess að lítið er gert af gamaldags
draugakvikmyndum þá ættu þeir að bregða sér í Sam-bíóin sem
frumsýna í dag draugamyndin The Haunting.
Hús
vonda
sá
Leikstjórinn Jan De Bont við tökur á The Haunting.
en rannsaka svefnvenjur
þeirra og Nell (Lili
Taylor) viðkvæm stúlka
sem virðist búa yfir mið-
ilshæfileikum. Strax við
komuna dregst Nell
ósjálfrátt að einum hluta
hússins og hryllingurinn
hefst.
Leikstjóri The Haunt-
ing, Jan De Bont, var
einn af virtustu kvik-
myndatökumönnum í
bransanum þegar hann
leikstýrði Speed. Sú
kvikmynd gerði Söndru
Bullock og Keanu Reeves að stór-
stjörnum í Hollywood. Þetta var
árið 1994. Tveimur árum síðar leik-
stýrði De Bont hamfaramyndinni
The Twister sem setti strax met í
aðsókn frumsýningarhelgina og
heildartekjur af aðgöngumiðasölu
af The Twister í heiminum fóru
yfir 600 milljónir dollara. Jan De
Bont er Hollendingur, fæddist í
Eindhoven. Hann nam kvikmynda-
fræði í Amsterdam og hóf feril sinn
í gerð heimildamynda. Þaðan lá
leið hans í þýska sjónvarpið þar
sem hann leikstýrði vinsælli þátta-
röð. Snemma á sjöunda ártugnum
ákvað hann að reyna fyrir sér í
kvikmyndum sem kvikmyndatöku-
maður og var í nánu samstarfi með
Paul Verhoeven í upphafi. Þegar
Verhoeven fór vestur um haf fylgdi
De Bont honum og þar var hann
bak við kvikmyndatökuvélina í
myndir á borð við Die Hard, Black
Rain, Flatliners, Lethal Weapon 3
og Flesh and Blood og Basic Instict
sem Paul Verhoeven leikstýrði.
-HK
Catherine Zeta-Jones og Lili
Taylor leika Theo og Nell sem
fengnar eru til að taka þátt í til-
raun í húsi sem hefur orð á sér
vegna reimleika.
(Lili Taylor) fær heldur betur að kenna á mætti
JL ií . s> \.J i ■' - Nl ic.
The Haunting, sem Sam-bíóin
frumsýna í dag, er byggð á klass-
ískri draugasögu The Haunting of
Hill House eftir Shirley Jackson.
Skáldsagan hefur verið kvik-
mynduð áður, einnig undir nafn-
inu The Haunting. Var það árið
1963 og leikstýrði Robert Wise
þeirri útgáfu, með Julie Harris,
Claire Bloom, Richard Johnson
og Russ Tamplyn í aðalhlutverk-
um. Sú kvikmynd þar sem
Jackson sjálf var annar handrits-
höfunda þykir ein besta drauga-
mynd sem gerð hefur verið og er
löngu orðin klassísk.
Útlit nýju útgáfunnar, sem leik-
stýrt er af Jan De Bont (Speed,
Twister) er allt öðruvísi og mun
meira lagt upp úr tæknibrellum en
í eldri myndinni. Sagan er samt sú
sama. Húsið er gamalt höfðingja-
setur, Hill House, og byggði það
Hug Crain barón fyrir 130 árum
fyrir sig og fjölskyldu sína. Saga
fiölskyldunnar var harmsaga og
mikill óhugnaður í kringum enda-
lok hennar og fáir orðið til að búa
á herrasetrinu síðan enda reim-
leikar þar í meira lagi, að sögn. Sál-
fræðingur einn, David Marrow
(Liam Neeson) fær mikinn áhuga á
húsi þessu og sögu þess og ákveður
að bjóða þremur einstaklingum að
dvelja þar með sér, segir þeim að
hann ætli að rannsaka svefnvenjur
þeirra. Þessi þrjú eru Theo
(Catherine Zeta-Jones) sjálfsörugg
kona sem er þó ekki öll þar sem
hún er séð, Luke, taugaveiklaður
unglingur sem fyrstan grunar að
prófessorinn hafi allt annað í huga
bíódómur
Fortíðin
Ætla mætti að saga um dóttur
hershöfðingja sem finnst myrt í an-
kannalegum stellingum á bílaplani í
herstöð, falleg ung kona með óhugn-
anlega fortíð að baki og fóður sem
talað er um sem verðandi varafor-
seta, væri efni sem Hollywood, með
alla sina reynslu í spennumyndum
og fagmenn í fremstu röð, ætti að
geta gert úr vænlegan trylli, en svo
bregðast krosstré sem önnur tré.
Satt best að segja byrjar Dóttir
foringjans (The General’s Daughter)
nokkuð vel þar sem við fylgjumst
með fremstu rannsóknarlöggu hers-
ins, Paul Brenner (John Travolta) í
miklum látum. í stund milli stríða
springur hjá honum og hann fær að-
stoð við að skipta um dekk hjá falleg-
um kvenkapteini sem síðar kemur í
Ijós að er dóttir eins þekktasta hers-
höfðingja bandaríska hersins. Þau
kynni verða stutt þar sem næsta
verkefni Brenners er að rannsaka
morö á þessari nýju vinkonu sinni.
Fljótt kemur í ljós að konan sem
hann hreifst af var ekki öll þar sem
hún var séð og er fortíð hennar hin
Háskólabíó / Laugarásbíó
bankar á dyr
skrautlegasta. Til
að finna morð-
ingjann innan um
þá mörgu sem lík-
legir eru þarf
Brenner að fá
svar við ýmsu úr
fortíð stúlkunnar
en þar rekst hann
á þagnarmúr sem
fáir verða til að
hjálpa honum að
rjúfa.
Eftir góða
spretti fyrsta Herlöggan Paul Brenner (John Travolta) á morðstað.
hálftímann, þar
sem hraðinn er mikill og margar
spumingar era lagðar fyrir áhorf-
andann, er eins og allur kraftur sé
uppurinn og sú spenna sem maður
átti von á og kraumar undir niðri
alla myndina kemst aldrei upp á yf-
irborðið. Það er í raun með ólíkind-
um hvað hægt er að láta söguþráð
sem býður upp á jafn spennandi
möguleika koðna niður í meðal-
mennsku. Að hluta til- má kenna
John Travolta um eða kannski held-
ur þeirri virðingu sem leikstjórinn
og aðrir aðstandendur myndarinnar
bera fyrir John Travolta. Hann er sá
sem á að selja myndina (og gerði
það) og því er allt gert til að hlutur
hans sé sem mestur; hann er sá sem
fær að koma með ódýra frasa sem
gera ekkert fyrir myndina en hjálpa
upp á ímynd hans. Madeleine Stowe
leikur hinn rannsóknarmanninn og
fær sjaldan að láta ljós sitt skína - er
oft eins og uppfylling á breiðtjaldið.
Dóttir foringjans ★★
Þvi miður kemur flest það slæma
fram í Dóttur foringjans sem ein-
kennir stórmyndir frá Hollywood í
dag. Stjömudýrkunin er komin úr
öllum böndum, ekki er hægt að
setja neina peninga að ráði í kvik-
mynd nema tryggt sé að einn af
þeim „stóru“ sé með og því eru
misvitrir handritshöfundar oft í
'vandræðum með að láta söguna
ganga upp eins og staðreyndin er
hér. Dóttir herforingjans er gerð
eftir vel skrifaðri og spennandi
skáldsögu sem leikstjórinn og
framleiðendur hafa samt ekki
treyst á að geti selt og því er allt
traust sett á gamla diskódansarann
sem oftast hefur gert betur.
Leikstjóri: Simon West. Handrit:
Christopher Bertolini og William
Goldman. Kvikmyndataka: Peter
Menzies. Tónlist: Carter Burwell.
Aðalleikarar: John Travolta,
Madeleine Stowe, James
Cromwell, Timothy Hutton og
James Woods.
Hilmar Karlsson
14
f Ó k U S 8. október 1999