Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.1999, Blaðsíða 7
FIMMTUDAGUR 14. OKTOBER 1999
7
I>V
Fréttir
íslendingar reyna að fá diplómatiska lausn 1 framsal týnda skreiðarkaupmannsins:
Taílendingar beðnir að
handtaka Ragnar
- enginn framsalssamningur í gildi - lítil sem engin tengsl við sakborninginn
Islensk stjórnvöld eru að fara
fram á það formlega við Taílend-
inga að þeir fmni og handtaki Ragn-
ar Sigurjónsson, kaupsýslumanninn
sem hvarf sporlaust frá London í
byrjun apríl, stuttu eftir páska.
Ragnar er talinn halda sig í
Taílandi, enda hringdi hann þaðan í
Qölskyldu sína í júlí eftir að hafa
verið týndur í þrjá og hálfan mánuð
- án þess að hafa samband við neitt
af sínu fólki. Margir höfðu þá í raun
talið hann af eftir að breska lögregl-
an hafði árangurslaust haft umsjón
með að Ragnars yrði leitað víða um
heim.
Ástæðan fyrir þessari diplómat-
ísku beiðni um að haft verði uppi á
íslendingnum er sú að hér heima, i
Héraðsdómi Reykjaness, þarf ríkis-
lögreglustjóri að ljúka tæplega 4ra
milljóna króna fjársvikamáli á
hendur Ragnari fyrir ijársvik gagn-
vart nígerískum skreiðarkaup-
manni.
Enginn framsalssamningur er í
gildi á milli íslands og Taílands.
Þess vegna er það algjörlega undir
Taílendingum komið hvort þeir
verða við beiðni íslenskra stjórn-
valda. í raun hafa þeir engum skyld-
umi að gegna gagnvart meintu ís-
lensku sakafólki. Að þessu virtu er
alls óvíst um árangur og einnig
hvort og hvenær viðbragða Taílend-
inga er að vænta.
Dómsmálaráðuneytið hér heima
biður utanríkisráðuneytið að leggja
Rjúpnaverndarfélagið:
Ráðherra
stytti veiði-
tímabilið
DV, Akureyri:
Rjúpnaverndarfélagið hefur skor-
að á umhverfisráðherra að stytta
þann tíma sem mönnum er heimilt
að skjóta rjúpur en rjúpnaveiðin má
hefjast á morgun,
fostudag. Rjúpna-
verndarfélagið
vUl að ráðherra
fresti opnun
veiöitímabilsins
og veiðamar hefj-
ist ekki fyrr en 1.
nóvember.
Með áskorun
sinni vill Rjúpa-
vemdarfélagið
vekja athygli á því að grípa þurfi til
friðunaraðgerða á landinu öllu eigi
endurnýjun í stofninum að vera við-
unandi. Þá fagnar félagið þeirri nið-
urstöðu að sannað sé að veiðamar
hefi áhrif á stofnstærðina, en áður
hafi margir haldið því fram, þar á
meðal fuglafræðingar, að það hafi
engin áhrif að skjóta rjúpuna. Frið-
unaraðgerðir á suðvesturhorni
landsins sýni hinsvegar annað og að
það þurfi að gæta þess að álag auk-
ist ekki á önnur svæði i framhaldi
af því.
Á fundi í Rjúpnaverndarfélaginu,
sem haldinn var í Ýdölum í Aðaldal,
urðu nokkrar umræður um atvinnu-
mennsku og stórdráp á rjúpu og vildu
fundarmenn halda þvi fram að sums
staðar væm þessar veiðar gengnar út
í öfgar. Fundarmenn lýstu imdmn
sinni á þvi að sveitarfélög á Norður-
landi vestra ætluðu að fara að gera út
á rjúpnaveiðar og græða á þeim. „Af
litlu er að taka og því væri nær að
grípa til friðunaraðgerða á stóram
svæðum í Húnaþingi sem og víðar á
landinu tO mótvægis við þá friðun
sem orðin er á Suðurlandi," segir í
ályktun Rjúpnaverndarfélagsins. -gk
Siv Friðleifsdóttir.
beiðnina fram við taílensk stjórn-
völd með viðeigandi hætti. Héraðs-
dómur Reykjaness og ríkislögreglu-
stjóri eru með sakamálið I bið á
meðan viðbragða er að vænta frá
taílenskum stjórnvöldum. Ragnar
sat síðast í réttarhaldi í málinu i
Hafnarfirði í lok mars - örfáum dög-
um áður en hann fór úr landi síðast.
Framangreindur Nígeríumaður
kom þá til að bera vitni gegn honum
í fjársvikamálinu.
Nánast ekkert hefur frést af þvi
hvað Ragnar hefur verið að gera á
síðustu tveimur mánuðum. Tengsl
hans við ísland eru nú í raun ein-
ungis í lögfræðilegum farvegi og
biðstöðu hér heima. -Ótt
Ragnar Sigurjónsson.
ESSO bœtir um betur
• Fidlkomnar bruna í vélum, hvort sem þœr
eru með eða án forbrunaholfs.
Er umhverfisvqw - inniheldur ekki klór.
• Dregur úr reyk- og hávaðamengun.
Ver éldsneytiskerfið gegn sliti.
»Fullkomnar eldsneytisbrunann
vegfia hcekkaðrar cetanetölu.
• Kemur í vegfyrir að oh
freyði við áfyllingu tanka.
• Stenst ströngustu kröfur
vélaframleiðenda - oggott betur!
• Heldur kuldaþoli olíunnar í hámarki.
Heldur kerfum vélanna hreinum
og hreinsar upp óhrein kerfi.
VEISTU UM
AÐRA BETRI?
FRAMÚRSKARANDI, FJÖLVIRK DÍSELOLÍA
Fjölvirlc bætiefni í Gœðadisel ESSO „Premium Diesel"
Olíufélagið hf. ESSO býður nú aðeins díselolíu sem uppfyllir
Evrópustaðalinn EN 590 um umhverfisvernd - og til að
auka endingartíma og tryggja þýðan gang vélarinnar bcetir
Olíufélagið fjölvirkum bcetiefnum í alla sína díselolíu.
Einstakt frostþol - allt að -24° C
Nú eru helstu kuldavandamálin einnig úr sögunni þar sem
ESSO Gœðadísel þolir að vetrarlagi allt að 24 stiga frosti.
ESSO Gæðadíselolía inniheldur:
• Dreifi- og hreinsiefni.
• Cetanetölubcetiefni sem stuðlar að réttum
bruna eldsneytis við öll skilyrði.
• Smur- og slitvamarefni.
• Tœringarvamarefni.
• Antio?ddant stöðugleikaefni.
• Demulsifier vatnsútfellingarefni.
• Froðuvamarefni.
• Lyktareyði.
• Bákteríudrepandi efni.
£ssoj
ESSO gœðaeldsneyti á bílinn - af hreinni hollustu við vélina og umhverfið.
Olíufélagið hf
www.esso.is