Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.1999, Blaðsíða 9
FIMMTUDAGUR 14. OKTÓBER 1999
9
ll'U
WCD3
=3 =
I1SX-S778
***« *
3-Diskageislaspilan - 68 + 68 + 18 + 18WRMS magnan meðsurround
kerfi - SUPER T-BASSI - BBE hljómkerfi - Hægt er að tengja mynd-
bandstæki við stæðuna - Innibyggður Subwoofer í hátölörum - tónjafnari
með ROCK - POP - CLASSIC - Jog fyrir tónstillingar, lagaleitun á geislaspilara
32 stöðva minni á útvarpi, klukka, timer og svefnrofi - Tvöfalt segulband
- D.S.P "Digital signal processor" fullkomið surround hljómkerfi sem líkir
eftir DISCO - HALL - UVE ásamt 4 einkastillingum - Fullkomin fjarstýring
fyrir allar aðgerðir - KARAOKE hljóðkerfi með DIGITAL ECHO og sjálfvirkum
radddeyfi - Tengi fyrir aukabassahátalara (SUPER WOOFER) - Segulvarðir
hátalarar. • . ' •
iisx-s888
3-Diska geislaspilan -112 + 112 + 25 + 25 W RMS magnan með surround
kerfi - SUPER T-BASSI - BBE hljómkerfi - Hægt er að tengja mynd-
bandstæki við stæðuna - Innibyggður Subwoofer í hátölörum - tónjafnari
með ROCK - POP - CLASSIC - Jog fyrir tónstillingar, lagaleitun á geislaspilara
32 stöðva minni á útvarpi, klukka, timer og svefnrofi - Tvöfalt segulband
D.S.P "Digital signal processor" fullkomið surround hljómkerfi sem líkir
eftir DISCO - HALL - LIVE ásamt 4 einkastillingum - Fullkomin fjarstýring
fyrir allar aðgerðir - KARAOKE hljóðkerfi með DIGITAL ECHO og sjálfvirkum
radddeyfi - Tengi fyrir aukabassahátalara (SUPER WOOFER) - Segulvarðir
hátalarar.
Ernestine Bradley:
Yrði fyrsta for-
setafrúin sem er
ekki bandarísk
Fari svo aö demókratinn Bill
Bradley nái útnefningu til forseta-
kjörs og sigri síðan kosningamar
verður um sögulegan atburð að
ræða. Eiginkona Bradleys,
Ernestine Schiant, er af þýsku bergi
brotin en aldrei í sögunni í hefur út-
lendingur sest að í Hvíta húsinu.
Schlant gerir sér grein fyrir sér-
stöðu sinni en segist ekki hugsa
mikið um Hvíta húsið enda viti eng-
inn hvað framtíðin beri í skauti sér.
Ernestine Schlant kom til Banda-
ríkjanna árið 1957 en þá starfaði
hún sem flugfreyja hjá Pan Am flug-
félaginu. Hún giftist Bradley árið
1974.
Síðustu ár hefur Ernestine gegnt
prófessorsstöðu í Montclair-háskól-
anum í New Jersey en hefur nú
fengið ársleyfi til að fylgja manni
sínum í kosningabaráttunni.
Brasilíumaðurinn og formúiuöku-
maðurinn Ricado Zonta veifaði til
aðdáenda þegar hann kom til borg-
arinnar Phnom Penh í gær. Zonta
heldur síðan til Malasíu þar sem
Formúla 1 fer fram um helgina.
Símamynd Reuter
Austur-Tímor:
Gusmao boðar
heimkomu sína
Leiðtogi sjálfstæðissinna á Aust-
ur-Tímor, Xanana Gusmao, sagðist í
gær munu halda heim á leið í næstu
viku.
í gær átti Gusmao meðal annars
fund með John Howard, forsætis-
ráðherra Ástralíu, þar sem þeir
ræddu ástand mála á Austur-Tímor.
Að sögn Gusmaos mun Ian Mart-
in, yfirmaður friðargæsluliða á
Austur-Tímor vera væntanlegur til
borgarinnar Darwin í Ástraliu í dag
til þess að ræða áætlanir um stjórn
mála í Austur-Tímor. Gusmao sagði
Austur-Tímora enn þurfa tíma til að
meta ástandið heimafyrir svo hægt
væri að forgangsraða þeim verkefn-
um sem brýnust eru.
Útlönd
Þvoöu flkniefnapeninga:
Tugir mafíósa
handteknir
ítalska lögreglan hefur upprætt
hring mafiósa sem hafa þvegið pen-
inga er hafa fengist fyrir fíkniefna-
viðskipti. ’ Alls hafa 67 verið hand-
teknir, þar á meðal fjármálamaöur-
inn Flavio Carboni frá Sardiniu.
Peningarnir hafa verið settir í fast-
eignir á Sardiníu.
Angilio Pellegrino, háttsettur lög-
regluforingi í deild sem berst gegn
maflunni, segir að eignir, sem metn-
ar eru á um 130 milljarða líra, eða
um hálfan milljarð íslenskra króna,
hafi verið gerðar upptækar.
Aldrei áður hafa svo miklar
eignir verið gerðar upptækar á
Ítalíu. Samkvæmt skjölum, sem
lögreglan hefur lagt hald á, má bú-
ast við að fleiri eignir verði gerðar
upptækar. Auk fasteignanna hefur
lögreglan lagt hald á um 4 þúsund
kíló af kókaíni.
Flavio Carboni, sem fyrir tveim-
ur árum var kærður fyrir morðið
á bankamanninum Roberto Calvi,
var handtekinn ásamt þremur fjöl-
skyldumeðlimum i gær, að því er
ítalska lögreglan greindi frá á
fundi með fréttamönnum í Mílanó.
Carboni var ráðgjafi Robertos
Calvis og einn þeirra sem sáu
Calvi síðast á lífi áður en hann
fannst hengdur við Blackfriar’s
brúna í London árið 1982.
Rannsóknin á starfsemi Carbon-
is hófst fyrr á þessu ári í kjölfar
uppljóstrana mafíuforingja. Mafíu-
foringinn greindi frá fjölda fyrir-
tækja sem tengdust Carboni á einn
eða annan hátt.
Skaut á Gorbat-
sjov og vill nú
setjast á þing
Kaupsýslumaðurinn Alexander
Sjmonov er einn þúsunda
frambjóðenda sem vilja komast á
þing í kosn-
ingunum í
desember næst-
komandi. Það
sem þykir sér-
stakt við áhuga
hans er að
Sjmonov er
þekktastur fyrir
tilræði gegn Michail Gorbatsjov
Sovétleiðtoga 7. nóvember, á
byltingarafmælinu, árið 1990.
Sjmonov, sem skaut með
loftbyssu á Sovétleiðtogann, var
lagður inn á geðsjúkrahús en er
nú útskrifaður. Nú vonast hann
til þess að afrek hans hjálpi
honum inn á þing og er þegar
byrjaður að safna undirskriftum
fyrir framboð sitt. Hann þarf ekki
nema 5 þúsund undirskriftir til
að geta boðið sig fram.
ArnÉi& 31«sími m tm r
UMBOÐSMENN UM tAND ALLT: Reykjavík: Heimskringlan - Hafnarfjörður Rafbúð Skúla - Grindavík: Rafborg - Keflavík: Sónar - Akranes: Hljómsýn - Borgarnes: Kaupfélag Borgfirðinga
Hellissandur: Blómsturvellir - Stykkishólmur: Skipavík - Blönduós Kaupfélag Húnvetninga Hvamstangi: Rafeindaþjónusta Odds Sigurðssonar - Sauðárkrókur: Skagfirðingabúö
Búðardalun Verslun Einars Stefánssonar - isafjörður: Frummynd - Siglufjörður Rafbær - Akureyri: Ljósgjafinn - Húsavík: Ómur Vopnafjörður Verslunin Kauptún - Egilsstaðir:
Rafeind Neskaupsstaður Tónspil - Höfn: Kask - Eskifjörður Rafvirkinn - Seyðisfjörður: Tumbraeður - Hella: Gilsá - Selfoss: Radíórás - Þoriákshöfn: Rás - Vestmannaeyja Eyjaradíó