Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.1999, Síða 9
FÖSTUDAGUR 22. OKTÓBER 1999
9
Utlönd
11 ára drengur hjálpaöi systur sinni að pissa:
Handjárnaður og
stungið í fangelsi
11 ára svissneskur drengur á nú
á hættu að verða ákærður fyrir sifja-
spell og dreginn fyrir rétt í Banda-
ríkjunum. Drengurinn, Raoul
Wútrich, hefur nú setið í gæsluvarð-
haldi í Colorado í sjö vikur. Foreldr-
ar hans eru flúnir til Sviss af ótta við
að yfirvöld taki af þeim þrjú önnur
börn þeirra.
Reiðir Svisslendingar hringja nú
án afláts í svissneska utanríkisráðu-
neytið eftir að stjúpfaðir drengsins,
Andreas Wútrich, sakað stjórnarer-
indreka um aðgerðaleysi.
Martröð fjölskyldunnar hófst 30.
ágúst síðastliðinn þegar lögreglan
stöðvaði bíl sinn fyrir utan heimili
fjölskyldunnar i Jeffersonsýslu í
Colorado. Raoul iitli var handjárnað-
ur og hann dreginn út í lögreglubíl.
Handtakan fór fram í kjölfar kæru
frá nágrannakonu. Hún kvaðst hafa
séð drenginn snerta fimm
ára systur sina á ótilhlýði-
legan hátt úti í garði auk
þess sem telpan hafi verið
afklædd að hluta. Félags-
ráðgjafar segja að telpan
hafi greint frá því að bróð-
ir hennar hafi oft snert
kynfæri hennar.
„Bull og vitleysa," segja
foreldrar Raouls. „Hann
var bara að hjálpa henni að
pissa.“ Andreas
Réttarhöld í málinu hefl-
ast 8. nóvember næstkom-
andi.
Barátta til stuðnings flölskyldunni
er nú hafin í Sviss. Mörg dagblöð
hvetja lesendur sína til að skrifa yf-
irvöldum í Bandaríkjunum og mót-
mæla. Svissnesk-bandarísk félög
hafa efnt til mótmæla fyrir utan
dómstólinn í Colorado.
„Fyrir 10 árum var
litið á hinn hættulausa
„læknaleik" sem ósköp
eðlilegan. Nú líta yfir-
völd á hann sem glæp,“
segir I forystugrein
blaðsins Blick.
Howard Davidson, i
samtökunum Americ-
an Bar Association,
segir að taka verði
gnm um sifjaspell alvar-
lega. En Hanspeter
Spuhler í svissnesk-
bandaríska félaginu telur að nú hafi
verið of langt gengið.
„Þetta er orðið of stórt mál. Hefði
þetta gerst í Sviss hefði einhver tal-
að við foreldrana. Það er ótrúlegt að
þetta skuli gert að glæpamáli," segir
hann.
Wutrich.
Gæðarúm á
góðu vcrði
Ragnar Björnsson ehf.
Dalshrauni 6, Hafnarflr&i, simi 555 0397, fax 565 1740
_________
Gusmao fagnað
við heimkomu
Xanana Gusmao, leiðtoga sjálf-
stæðissinna á Austur-Tímor, var
ákaft fagnað þegar hann sneri heim
til höfuðborgarinnar Dili í nótt eftir
margra ára vist í indónesískum
fangelsum.
„í dag er dagur frelsis á Austur-
Tírnor," sagði Gusmao við þúsundir
landa sinna sem tóku á móti honum
frammi fyrir fyrrum höfuðstöðvum
indónesísku stjómarherranna í
landinu.
„Við getum horft á bak þjáning-
unni. í dag blasir framtíðin við okk-
ur. Þetta er landið okkar. Við verð-
um sjálfstæð að eilífu."
Gusmao hvatti landa sína til að
minnast þeirra hundraða þúsunda
sem hafa látið lífið í sjálfstæðisbar-
áttunni undanfarin tuttugu og flmm
ár.
Indónesísk stjórnvöld létu
Gusmao lausan fyrir meira en mán-
uði, eftir að íbúar Austur-Tímor
greiddu sjálfstæði landsins atkvæði
með miklum meirihluta.
Xanana Gusmao heilsar stuðnings-
mönnum sínum við heimkomuna til
Austur-Tímor í nótt.
Karl Bretaprins
vildi ekki hitta
forseta Kína
Karl Bretaprins sýndi fyrirlitn-
ingu sína á framgöngu kínverskra
stjómvalda i mannréttindamálum í
verki þegar hann neitaði að mæta í
veislu sem Jiang Zemin Kínaforseti
hélt til heiðurs Elísabetu Englands-
drottningu í gær, að sögn blaðsins
Daily Telegraph. Opinberri heim-
sókn Jiangs til Bretlands lýkur í
dag. Að sögn blaðsins neitaði Karl
einnig að fylgja Jiang eftir í heim-
sókn hans. Blaðið segir að ákvörðun
prinsins megi rekja til aðdáunar
hans á Dalai Lama, útlægum trúar-
leiðtoga Tíbetbúa.
Lestu allt um Fjárvörslu
og allar nýjungarnar
hjá VÍB í nýja verðbréfa-
og þjónustulistanum.
verðb
þjonu!
20
V ÍB
Fékkstu hann ekki með Morgunblaðinu?
Komdu við í VÍB Kirkjusandi eða í útibúum
íslandsbanka og fáðu eintak.
VIB
VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA
Kirkjusandi, 155 Reykjavík. Sími 560 8900.
Myndsendir: 560 8910. Veffang: www.vib.is
Rétt rádgjöf skilar
milljónum
VÍB 2000 er kominn út!
Fjárvarsla:
Fyrir þá sem eiga yfir 3 milljónir króna í peningalegum eignum
• Kaup og sala veröbréfa eftir ósk viðskiptavinar.
• Innheimta og varsla verðbréfa og kvittana.
• Eftirlit með arðgreiðslum af hlutabréfum og útgáfu jöfnunarhlutabréfa.
• Þrjú mjög ítarleg yfirlit á ári.
• Árlegt skattayfirlit.
• Öll almenn ráðgjöf um eignauppbyggingu.
• Árlegur samráðsfundur að ósk viðskiptavinar.
• Símaviðskipti.
Fjárvarsla með eignastýringu:
Fyrirþá sem eiga yfir 20 milljónir ípeningalegum eignum
og vilja fá þjónustu við beina stýringu eignanna
til að nó sem hœstri ávöxtun.
• Kaup og sala verðbréfa.
• Innheimta og varsla verðbréfa og kvittana.
• Eftirlit með arðgreiðslum af hlutabréfum og útgáfu jöfnunarhlutabréfa.
• Þrjú mjög ítarleg yfirlit á ári.
• Árlegt skattayfirlit.
• Símaviðskipti.
• Viðtæk ráðgjöf um eignauppbyggingu, ítarlegt yfirlit um núverandi eignir,
yfirferð markmiða og aðstoo vio skynsamlega uppbyggingu heildareigna.
• Uppsetning viðmiðunargrunns fyrir eignasamsetninguna og leyfileg frávik
frá honum.
• Reglulegir samráðsfundir þar sem farið er yfir eignirnar og ávöxtun þeirra
og viðmunargrunnur endurskoðaður ef þön krefur.
Viltu vita meira?
Hafðu samband
við ráðgjafa okkar
íVÍB.