Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.1999, Page 28
28
FÖSTUDAGUR 22. OKTÓBER 1999
>nn
*
Ummæli
Ávallt á vinstri
kanti
„Ég er örvhentur, örvfætt-
ur og frá því að ég komst til
vits og ára hef ég
alltaf verið vinstri
sinnaður. Þannig
að til fótar, hugar
og handar hef ég
haldið mig á
vinstri kantin-
um.“
Ögmundur Jónasson
alþingismaður, í Viðskipta-
blaðinu.
Spurt en ekki svarað
„Ég hef áður spurt opinber-
lega og ítreka hér þá spum-
ingu: Hvenær ætlar forstöðu-
maöur (Vinnueftirlitsins) að
sýna launamönnum þá
kurteisi að segja starfí sínu
lausu?“
Guðmundur Gunnarsson,
formaður Rafiðnaðarsam-
bands Islands, i Morgun-
blaðinu.
Vinnustaður eða
gullgröftur
„Á meðan forstjórar ríkis-
stofnana eru að
kaupa og selja
hluti í vinnustað
sínum á kvöldin
er óljóst hvort
þeir líta á stofn-
unina sem
vinnustað eða
skóflu til að grafa
upp gull.“
Ásgeir Hannes Eiríksson, í
Degi.
Sóun á tíma og
peningum
„Það er sóun á tíma og pen-
ingum að fara út í langskóla-
nám ef markmiðið er að kom-
ast í góða stöðu á vegum rik-
isins. Einfaldari leið virðist
vera að taka virkan þátt í
starfi rótgróins stjórnmála-
flokks, t.d. Framsóknarflokks-
ins og skiptir menntun og
fyrri afrek þá litlu máli.“
Sigurður Sigurðsson, í
Morgunblaðinu.
Umræðan og
stjórnvöldin
„Stórorð umræða skapar
sjaldan raunveru-
legt aðhald. Þvert
á móti gefúr hún
stjórnvöldum
gullið tækifæri
til að fara sínu
fram óháð al-
menningsálti."
Hjalti Hugason pró-
fessor, í DV.
Guðmundur Valur Stefánsson, fiskifræðingur og tónlistarmaðiir:
Mikil skemmtun og
upplifun að gefa út plötu
„Ég hef lengi hrærst í tónlistinni,
hef haft hana sem hobbi frá því ég var
unglingur og verið að semja og spila
einn og með hljómsveitum. Ég hafði
komið mér upp töluverðu safni af lög-
um og ég hef haft áhuga á að gefa eitt-
hvað út af þeim
á plötu og þegar
vinir og kunn-
ingjar fóru að
hvetja mig til gefa lögin út þá stóðst ég
ekki mátið og lagði út í þetta ævin-
týri,“ segir Guðmundur Valur Stefáns-
son, sem nýlega hefur sent frá sér
hljómplötuna Valur þar sem er að
finna tólf lög sem hann hefur samið.
Sjö textanna hefur hann einnig samið
en fimm eru eftir aðra. Hann syngur
einnig öll lögin nema eitt sem Ari
Jónsson syngur.
Guðmundur Valur segir það dýrt
fyrirtæki að gefa út plötu: „Það eru
margir angar á þessu en þegar á heild-
ina er litið þá hefur þetta verið mjög
skemmtOeg vinna og mikil upplifun að
fara i gegnum þetta ferli. Ég vann með
miklu fagfólki, fékk með mér þann
þekkta tónlistarmann Vilhjálm Guð-
jónsson tO að útsetja og stjórna upptök-
um og var með góða hljóðfæraleikara."
Lögin á plötunni hafa orðið tO á
löngum tíma. „Það elsta var samið 1978
og það yngsta samdi ég á þessu ári. Það
tók mig tíma að fara í gegnum þau
fimmtíu lög sem ég hafði úr að spOa en
þessi tólf urðu fyrir valinu og er ég
ákaflega ánægður með útkomuna."
Guðmundur Valur er þessa dagana
að fylgja plötunni eftir með tónleika-
ferð um landið. í gærkvöld var hann í
Deiglunni á Akureyri og í kvöld
skemmtir hann á Hafnarbarnum í
Þórshöfn: „Ég er ættaður að norðan og
alinn upp í Hörgárdal í Eyjafjarðar-
sýslu og ég upplifi það að mér er betur
tekið á landsbyggð-
inni, sérstaklega á
mínum æskustöðv-
um, þar sem litið er
á mig sem „lokalboy". Þess vegna hef
ég einbeitt mér meira að því að
skemmta og kynna plötuna mina á
landsbyggðinni. Tónleikarnir á Þórs-
höfn í kvöld eru þeir síðustu í bOi þar
sem ég er á fórum til útlanda á vegum
vinnunnar en þegar ég kem aftur þá
verður haldið áfram þar sem frá var
horfið. Með mér á tónleikunum er
sá ágæti kontrabassaleikari Gunn-
ar Hrafnsson. Eins og gefur að
skOja eru útsetningamar á lög-
unum frábrugðnar útsetning-
um á plötunni en tónleikarn-
ir hingað tO hafa tekist
mjög vel þótt vissulega
hefði ég viljað sjá fleiri
áheyrendur."
Guðmundur Valur, sem er
menntaður fiskifræðingur,
með fiskeldi sem sérgrein, bjó
um þrettán ára skeið í Noregi:
„Þar var ég í mörg ár formaður
íslendingafélagsins í Bergen
og skemmtanalífið var
fjörugt hjá okkur. Ég
var ávaUt mættur
með gítarinn og hélt
þannig við spOa-
mennskunni."
Guðmundur Valur segist hiklaust
ætla að halda áfram í tónlistinni og
gefa út aðra plötu ef þessi gengur vel:
„Það fer aOt eftir undirtektunum. Ef ég
fer ekki Ola út úr þessu þá held ég
áfram, annars verður settur enda-
punktur á þetta og tónlistin verður að-
eins áhugamál.
-HK
Maður dagsins
, Andrea Gylfadóttir syngur í
Kaffileikhúsinu í kvöld.
Djass, blús og
íslensk dæg-
urlög
Á tónleikum í KafFOeik-
húsinu í kvöld mun Andrea
Gylfadóttir flytja blöndu af
djassi, blús og islenskum
dægurlögum. Meðreiðar-
sveinar Andrea Gylfadóttur
eru tveir af okkar betri gít-
arleikurum, Eðvarð Lárus-
son og Guðmundur Péturs-
son. Auk fyrrnefndrar tón-
listar megum við búast við
að tríóið taki nokkur lög af
Blúsmannadiskinum sem
kom út um síðustu jól. Þeir
Eðvarð og Guðmundur
munu spOa fyrri part tón-
leikanna á klassíska gítara
en seinni hlutinn verður
fluttur á rafmagnsgítara.
Tónleikamir hefjast kl. 23.
Skemmtanir
Fantasía
í kvöld mun hinn kunni
píanóleikari Árni ísleifs
leika af fingrum fram á
Kaffisetrinu Fantasíu,
Laugavegi 103. Hefur hann
leik kl. 22.30.
Óbreyttir borgarar Myndgátan hér að ofan lýsir nafnorði.
Tveir leikir verða í bikarkeppninni
í körfubolta í kvöid.
Eggjabikar í
körfunni og
handbolti
Það verður mikið um að vera í
handboltanum og körfuboltanum í
kvöld og fjölmargir leikir á dagskrá.
í körfuboltanum er það Bikarkeppni
KSÍ, sem nú gengur undir nafninu
Eggjabikarinn, sem ber hæst og eru
þrir leikir í kvöld, á ísafirði leika
heimamenn í KFÍ gegn Tindastóli, í
Njarðvík leika Njarðvíkingar gegn
Þór og í Hafnarfirði leika Haukar og
íþróttir
Keflavík og það er sjálfsagt sá leik-
ur sem verður í sviðsljósinu. Leik-
irnir hefjast kl. 20. Einn leikur er í
1. deild karla í Borgarnesi, þar leika
Stafholtstungur og Þór, Þorláks-
höfn.
í handboltanum eru þrír leikir á
dagskrá í 1. deOd karla. ÍR tekur á
móti íslandsmeisturum Afturelding-
ar í Austurbergi, í ValsheimOinu
leika Valur og FH og í Vestmanna-
eyjum leika ÍBV og KA. Einn leikur
er í 1. deild kvenna, í Framhúsinu
tekur Fram á móti KA. Allir leikirn-
ir hefjast kl. 20 nema viðureign ÍR
og Aftureldingar sem hefst kl. 20.30.
Bridge
Nú er lokið fyrri hluta haust-
tvímennings Bridgefélags Reykja-
víkur. í fyrri hlutanum var spOaður
hip-hop-tvímenningur og að lokinni
þeirri keppni spOa 22 efstu pörin (af
48) í a-riðli. Siglfirðingarnir Jóhann
Stefánsson og Birkir Jónsson náðu
hæsta skorinu, 1593 stigum, en á
hæla þeirra komu Guðlaugur R. Jó-
hannsson-Örn Arnþórsson (1564) og
bræðurnir Hrólfur og Oddur Hjalta-
synir (1556). Á síðasta spOakvöldi fé-
lagsins kom þetta spil fyrir. Það
þykir yfirleitt vera ávísun á laka
skor að fara tvo niður á hættunni í
gamesamningi en þó er það ekki
með öllu algOt. Sagnir gengu þannig
á einu borðanna, norður gjafari og
NS á hættu:
* 9
«* G9432
* K9763
* 52
4 ÁDG5
V ÁKD
♦ ÁG42
♦ D9
* K1032
V 85
♦ 8
* ÁKG1087
♦ 8764
•* 1076
♦ D105
♦ 643
Norður Austur Suður Vestur
2 * 4 * pass pass
dobl pass 4 * p/h
Þessi samningur var andvana
fæddur í þessari legu. Vömin byrj-
aði á því aö taka tvo slagi á lauf og
þegar þriðja
laufinu var
spOað tromp-
aði vestur með
spaðaníu.
Sagnhafi varð
að sætta sig
við að fara tvo
niður. Talan
200 í AV gaf
hins vegar NS
nokkuð yfir
meðalskor. í
sæti austurs var unglingalandsliðs-
maðurinn Guðmundur Gunnarsson
og honum fannst það eðlilega súrt í
broti að þurfa að dobla lokasamn-
inginn tO þess að fá góða skor í spO-
ísak Örn Sigurðsson