Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.1999, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.1999, Blaðsíða 10
30 FIMMTUDAGUR 28. OKTÓBER 1999 Sport i>v Einar Arni Jóhannsson liðsstjóri, 22 ára. Sigurður Einarsson, 17 ára, bakvörður, 0 leikir. Páil Kristinsson, 23 ára, framherji, 121 leikur, 1038 stig. Ragnar Ragnarsson, Friðrik Stefánsson, 23 ára, bakvörður, 23 ára, miðherji, 64 leikir, 124 stig. 76 leikir, 769 stig. Örlygur Sturluson, 18 ára, bakvörður, 14 leikir, 107 stig. Hermann Hauksson, 27 ára, framherji, 201 leikur, 2845 stig. Jason Hoover, 23 ára, framherji, 0 leikir. Teitur Örlygsson, 32 ára framherji, 330 leikir, 5493 stig. Ásgeir Guðbjartsson, 22 ára framherji, 11 leikir, 6 stig. Jón Júlíus Árnason, Gunnar Örlygsson, 27 ára bakvörður, 28 ára, bakvörður, 139 leikir, 302 stig. 101 leikur, 666 stig. m Örvar Kristjánsson, Friörik Ragnarsson, 22 ára, framherji, 29 ára, bakvörður, 66 leikir, 170 stig. 283 leikir, 2779 stig. Hörð toppbarátta Ég er nokkuð sáttur við gengi liðsins hingað til þótt hefðbundinn undirbúningur sé ekki sá sami og oft áður vegna þátttöku okkar í Evrópukeppninni. - Áttu von á skemmtilegum vetri í körfuboltanum? Karfan í vetur á eftir að verða skemmtileg. Lið eins og Hamar frá Hveragerði hefur komið skemmti- lega á óvart en reyndar á það eftir að mæta sterkustu liðunum og þá kemur í ljós hvað í því býr. Suður- nesjaliðin eru öll mjög sterk og ég hef einnig trú á að KR og Tinda- stóll eigi eftir að verða með í topp- baráttunni. Botnbaráttan verður einnig mjög hörð. Nú er breytt fyrir- komulag, tvö lið falla, og það gerir slaginn enn meira spennandi. Hvað um Reykjavíkurfélögin? Liðin á höfuðborgarsvæðinu hafa dregist aftur úr í körfunni og fleiri íþróttagreinum. Ég held að það vanti meiri sam- kennd sem er mun meiri á lands- byggðinni. Er karfan á uppleið? Engin spurning, karfan er á uppleið og við spilum mun betri bolta nú en fyrir fimm árum. Vandamálið er að okkur vantar meiri líkamlegan styrk til að ná enn lengra. En því miður bjóða þjóðfélagsaðstæður ekki upp á meira, flestir leikmanna eru í fullri vinnu og gott betur. Hverjir verða íslandsmeistarar þegar upp verður staðið? Njarðvik, að sjálfsögðu, sagði Friðrik Ingi Rúnarsson þjálfari þeirra Njarðvíkinga. Bland í poka Njaróvikurliðið heldur að mestu sínu liði frá þvi í fyrra en þó eru nokkrar breytingar á leik- mannahópnum. Sœvar Garðarsson fór í Grindavík og Ægir Gunnarsson í Hamar, auk þess sem Guðjón Gylfason er hættur. I staðinn fékk Njarðvík Örlyg Sturluson heim frá Bandarfkjunum, auk þess sem fyrrum leik- menn liðsins sneru aftur, Gunnar Örlygsson úr Reyni, Hellissandi, og Jón Július Árnason sem byrjaði aftur. Njarðvik er eina liðið ásamt KR sem hefur verið með í úrvalsdeildinni öll árin sem eru nú orðin 21. Á þessum tima hefur Njarðvíkurliðið leikið 482 leiki og unnið 373 af þeim, sem gerir 77,4% sigurhlutfall, en ekkert annað félag í sögu úrvalsdeildarinnar hefur náð eins góðum árangri. Njarðvík hefur oröið íslandsmeistari tiu sinnum en aðeins ÍR, sem hefur orðið íslands- meistari 15 sinnum, hefur oftar orðið meístari en þess má geta að allir titlar ÍR-inga voru fyrir tima úrvalsdeildarinnar en allir titlar Njarð- víkinga hafa komið á síðustu 18 árum. Auk tíu íslandsmeistaratitla hefur Njarðvík unnið bikarinn fimm sinnum, síðast í fyrra með því að leggja íslandsmeistara Keflavikur í mögnuðum úrslitaleik. Njarðvík komst einnig í lokaúrslitin um íslandsmeistaratitilinn í tí- unda sinn í fyrra, sem er met, en varð að sætta sig við að tapa í oddaleik í Keflavik. Teitur Örlygsson er bæði leikja- og stigahæst- ur Njarðvíkinga i úrvalsdeild en alls hefur hann skorað 5493 stig í 330 leikjum fyrir þetta tímabil. Friðrik Ragnarsson var jafn Isaki Tómassyni í öðru sætinu fyrir tímabilið með 268 leiki og komst því í annað sætið i fyrsta leik í ár en alls hafa sex leikmenn félagsins náð að leika 200 úrvalsdeildarleiki í Njarðvíkur- búninginum því þeir Kristinn Einarsson (252 leikir), Jóhannes Kristbjörnsson (231) og Val- ur Ingimundarson (228) eru einnig í þessum hópi. Njarðvík var með bestu vörnina í fyrra ef marka má tölfræöina því liðið fékk á sig fæst stig (75,4). Andstæðingar nýttu skotin verst gegn þeim (44,5%), þeir stálu næstflestum bolt- um (13,7) og vörðu næstflest skot (3,77), auk þess sem þeir fengu á sig þriðju fæstu villur meðal liða deildarinnar (17,4). Auk þess var Narðvík með flest stig í plús, eða 17,1 að með- altali í leik, á síðasta tímabili. -ÓÓJ Heimaleikir: 5/11 Njarðvík-Snæfell..........20:00 16/12 Njarðvik-Keflavík........20:00 19/12 Njarðvik-Tindastóll .....16:00 6/1 Njarðvík-Þór Ak............20:00 20/1 Njarðvík-Haukar...........20:00 30/1 Njarðvík-Hamar............18:00 13/2 Njarðvlk-KFÍ..............20:00 3/3 Njarðvík-Akranes...........20:00 5/3 Njarðvík-Skallagrímur .... 20:00 Friðrik Ingi Rúnarsson. * Lækkað verð ... þvottavélum, þurrkurum og uppþvóttavélu

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.