Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.1999, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.1999, Blaðsíða 3
m g ö m æ 1 i e f n i Þessi er góöur fyrir þær sem nenna ekki að taka tösku meö sér á djammið. Þú vippar þessum Þara á milli brjóstanna og heldur vörun- um rauðum fram eftir nóttu. Já, pínulítill varalitur frá Pierre Car- dln á Ítalíu er málið. En ef þú fíl- ar töskur þá flettiröu upp á síðu 16 í Fókusi og skoðar töskurn- ar sem hún Monlca Lewinski hannaði þegar vindla- hneykslið gekk yfir. Nú fer aö kólna og þaö er eiginlega nú þegar orðið skítkalt úti. Þess vegna er málið að fara að Ijárfesta í vetrarklæðnaði eða finna gömlu ullina 1 geymslunni. Annars er málið að kaupa sér eitthvað íslenskt og þá eru vettlingar frá Wise Man's Clothing málið. Þeir eru með bandi, líkt og hjá leikskólakrökkunum, og því ekki fræðilegur að þú týnir þeim á djamminu um helgina. Og strákarnir verða að vera með vasahníf á sér. Ekta svlss- neskan fjallahníf á lyklakippunni. Þaö er hægt að plkka upp gellur út á hnífinn. Þær eru oft í neyð, stelpurnar. Þurfa að láta opna bjórflösku eða dýrka lás. Svo eru líka skæri á hnífnum til að bjarga stelpum úr klóm nauðg- ara og annarra mlsindismanna. Þetta er bara tólið. illra landa sameinist. um helgina í HK-hús- í Dlgranesl, Kópa- >gi. Spilað verður frá 3 í dag og frá kl. 10 lorgun og sunnudag. sannkallað maraþon Jur fram til miðnætt- gana. Nánari upplýs- þessa geðveiki er finna á síðunni /mot4.html“ en þar er meðal annars hægt að finna lista yfir þá sem þegar eru skráðir. „Ég sakna alltaf Hlemms," segir Emilíana Torrini en hún kom til landsins á sunnudaginn og fer aftur utan til London á sunnudaginn kem- ur. Þetta er því stutt stopp. „Ég hef ekkert komið hingað heim nema í viku og viku síðan ég flutti út,“ segir Emilíana en hún flutti fyrir einu og hálfu ári. „Þessar heimferðir geta verið svolítið krefjandi. Það er þétt dagskrá og ég næ ekki að heim- sækja nærri því alla. Ég væri líka bara til í að koma heim og fara út á land. Enda geri ég það stundum. Fer bara upp í sveit eða í sund. Það er svo gott að fara í sund og borða slátur og hrísgrjónagraut." Eru sundlaugarnar ömurlegar uti í London? „Já. Það eru bara innilaugar og mér líkar þær ekki.“ Óánægð með veður „Ég bý hjá afa núna og er bara að hanga með mömmu og vinum mín- um,“ segir Emilíana, aðspurð um hvað hún hefði verið að gera frá því hún kom. Og ertu ekki meö heila hljómsveit meö mér? „Jú. Sigtrygg Baldursson trommara og tvo Charlie og einn Dave sem spilar á gítar. Charlie-amir eru á bassa og hljómborð," útskýrir Emilíana en hljómsveitin gistir að sjálfsögðu ekki hjá afa hennar. „En ég er ekkert smá svekkt yfir veðrinu. Það er alltaf svona veður þegar ég kem heim. Og ég sem ætlaði að sýna hljóm- sveitinni norðurljósin." Við verðum að vona að það rætist eitthvað úr því eftir útgáfutónleikana í íslensku óperunni. Það gengur alla- vega ekki að taka á móti gestum og bjóða ekki upp á það besta. Þessi hljómsveit á lika eftir að flakka með Emilíönu um alla Evrópu og verður að bera okkur vel söguna en eftir Óp- eruna halda þau til Frakklands, Þýskalands, Englands, Danmerkur, Ítalíu og guð má vita hvað. Platan hennar Emilíönu okkar er nefnilega að koma út um allar trissur á næstu mánuðum. Saknar skjáauglýsinga „Þetta eru útgáfutónleikar og því byggjast þeir á efni disksins," segir Emilíana um hvað verði spilað í Óper- unni i kvöld. Og á aó fara á djammió eftir tónleikana? „Já. Ég ætla út eftir tónleikana í kvöld. Það verður eitthvert partí- stand.“ En ertu ekkert smeyk að vera allt í einu búin aó kasta þér í meikhaf heimsins? „Nei. Ég stekk bara út í allt og horfi ekkert í afleiðingarnar. Ég geri bara það sem ég geri og vil vegna þess að ég veit að það sem ég vil er alveg rétt.“ Svona aö lokum, saknaröu einhvers frá Fróni? „Já. Skjáauglýsinganna. Þær eru al- veg frábærar. Virkilega kósí og ein- göngu til á íslandi. Minna mig á það þegar ég var lítil og hlustaði á tilkynn- ingarnar á Rás eitt.“ ts í sjálfshjálp- að skoðanir væru óþarfar" Sölumennskunni fylgir álag á lifrina. ^ § § § f ^ S* $ S y Í’ ^ Steinar Bragi er löðrandi Ijóðskáld, bókmenntafræðinemi og gefur sjálfur út verkin sín. Á næstu dögum er von á glænýrri Ijóðabók eftir hann. Þessa dagana þræðir Steinar Bragi götumar i svörtum frakka og minnir einna helst á James Dean. Hann selur vegfarendum hugarsoðn- ingu sem bullar og kraumar milli kápuspjaldanna. Andagiftin leggur sig meðan sölumaðurinn fer á stjá og auglýsir eigin verk, Svarthol sem kom út ‘98 og bókina Augnkúluvökvi sem er ljóðaafrakstur ársins ‘99. Stundum verður Steinari Braga kalt á tánum í sölumennskunni því skórnir hans eru götóttir og hann þarf að eignast pening fyrir nýjum skósólum. „Sölumennskunni fylgir líka álag á lifrina. Það er best að selja drukknu fólki og drukkiö fólk fer í fýlu ef maður er ekki sjálfur drukk- inn. Drukkið fólk er alltaf að halda fram hjá og það er hrætt um að mað- ur skrifi bók um það,“ segir kaup- sýsluskáldið og glottir. Stripbúllur fyrir Ijóðskáid „Ég gef ekki bækumar mínar út af neinni sérstakri hugsjón. Mig skortir framtakssemi til að fara og hitta forleggjara. Ég geri þetta af full- komnu hugsunarleysi,“ segir Steinar Bragi, yppir öxlum og sýpur svolítið kaffl. Er gefandi fyrir Ijóðskáld aó búa í Reykjavík-city? „Þetta er rosaleg spurning. Eins og allir vita er Reykjavík orðin stórborg á heimsmælikvarða. Það eru sjö stripbúllur héma og það er mjög gott að hafa stripbúllur fyrir ljóðskáld sem ætlar að skrifa á alþjóðlegum mælikvarða." Ertu maöur með skoöanir? „Ég las í sjálfshjálparbók að skoð- anir væm óþarfar. Svo eina skoðun- in mín er sú að hafa engar skoðanir. Ég er samt á móti ríkistjórninni,“ fullyrðir Steinar. Mér leiðist skáldskapur Steinar Bragi innbyrðir bók- menntafræðina beint í æð og skrifar í hjáverkum. Þessi kokfylli af skáld- skap hlýtur að æra óstöðugan til lengdar. „Ég verð sérstaklega leiður á ljóð- um eftir Jóhann Hjálmarsson. Jah...já...og eins og Steinn Steinarr sagði þá leiðist mér skáldskapur. Ég ætla að reyna að hætta þessu sem fyrst og semja krossgátur í staðinn." Fœrðu kikk út úr Ijóðagerö? „Ég var einu sinni kýldur þegar ég var að selja Svarthol, það var högg. Svo sparkaði ég í magann á manni sem sagði að Megas væri aumingi. Það var geðveikt kikk. Þetta var vel klæddur maður og hann frussaði framan í mig.“ Hjálpar bókmenntafrœöin skriftun- um? „Hún hjálpar manni að vera gjald- gengur i hópi gáfumanna. Ég veit til dæmis hvað allegoría er og Derrida!" Ertu í stuói? „Ég er stanslaust í stuði og flissa voða mikið,“ segir Steinar Bragi og skríkir af ánægju. „Mér finnst mjög mikilvægt að fólk taki hverjum degi eins og hann kemur af kúnni og lifl lífinu sprelllifandi." 49 ástæður fyrir því að: Það var miklu betra að vera unglingur á síðasta áratug 4 Skjár 1: Menntaskólatíví eða eina íslenska sjón- varpsstöðin Kossinn: „Ég myndi aldrei vilja verða g leikari“ Horfnir skemmtistaðir: Kaffi Gestur lifði hátt en stutt Popp: 10-11 Emilíana verður stór Kíkt í kventöskuna: u „Sú kona sem gengur um með þetta í töskunni hlýtur að vera stór- hættuleg“ Hrafn í Ensími: Það besta við djobbið er að kom- ast heim 13 Bíó: Júlia 14-151 Roberts er flóttabrúður é Tískan kl. 12 á hádegi: Töskur hannað- n ar af Monicu Lewinski 16 vmnu Lífíd eftir Dollý hitt Sigurros og Loia klamálfa )a dan^inn dun; fverjir v§_|| f ókus fylgir DV á föstudögum Forsíöumyndina tók Teitur af Hrafni í Ensfml. 29. október 1999 f Ókus 3

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.