Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.1999, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.1999, Blaðsíða 4
Lokahelgi Keisarans: Margeir Margeirsson fær óvænta heimsókn um lokahelgi Keisarans. Viskí- börnin mæta Keisaranum veröur lokaö eftir helgi svo þaö fer hver að verða síð- astur að kvcöja umdeildasta bar landsins. Þurrir og blautir alkar ásamt öðru áhugafólki um alkóhól- isma fá tækifæri til aö kveðja bar- inn með óvenjulegum hætti á morg- un kl. 15. En þá hefst útgáfuteiti ævisögu Jack Erdmann eftir hann og vin hans, Larry Keamey. Þeir fé- lagar eiga báðir að baki tugi ára fyllirí en hafa verið edrú síðan í upphafi síðasta áratugar. Þetta er þvi sannkölluð alkabók og fjallar um fyllibyttur á börum, ekki ósvip- uðum Keisaranum, í Bandarikjun- um. „f útgáfuteitinu verður boðiö upp á djús og kaffi fyrir þurra alka og svo verður barinn opinn fyrir þá sem enn em blautir," segir Guð- mundur Steinsson, útgefandi Viskí- barnanna sem er að koma út í þýð- ingu Ingva Þórs Kormákssonar. Það er því hægt að mæla með því að allt áhugafólk um fyllibytt- ur, fyrrum fyllibyttur og þeir sem enn drekka frá sér alla rænu mæti á Keisarann kl. 15 á morgun og hlusti á Hjalta Rögn- valdsson lesa upp úr bók- inni Viskíbömin, Bubbi kemur síð- an og syngur, Andrea Gylfa og El- var Lámsson blúsa og þama verða líka allir helstu framámenn hjá SÁÁ með kaffibolla í hönd og segja kannski nokkur vel valin orð. Og svo verður Keisaranum lokaö og hvert fara viskíbömin þá? GRIM Bubbi mætir og spil- ar fyrir viskíbörnin. Það breytist margt í tímans rás. Enn ein sjónvarpsstöðin vaknaði til lífsins í vikunni, Kringlan stækkaði í þeirri síðustu, verðbólgan er farin af stað og mitt í allri þessari geðveiki er unglingurinn. Hann er með GSM-síma, í alltof víðum buxum og veit varla í hvorn fótinn hann á að stíga. Því vill Fókus meina að það sé ömurlegt að vera unglingur í dag og týndi því til: 49 ástæður fyrir því að Þaðvarbetra að vera unglingur nítján hundruð áttatíu og eitthvað 1 George Michael v.s. Robbie Williams. 2 Þú varðst sjálfráða tveimur árum fyrr. 3 Þegar þú hékkst í tölvuleikjum fórstu allavega út úr húsi. 4 Vasadiskó voru ýkt kúl. 5 Það þótti flott að segja: Mei djók. 6 Mamma þín gat ekki hringt í gemsann þinn þegar þú varst úti fram eftir nóttu. 7 Bubbi var með hár og var ekki enn far- inn að yrkja ástarljóð eða syngja vikivaka. 18 Þá var tyggjó nammi en ekki meðmæli frá tannlækninum. 19 Blacklight Ijósin v.s. fyrir- heit um almennileg laser-sjóv. 20 Tveggja lítra mjólkurfernur. 21 Samkynhneigði leikskólakennar- inn var ekki í geðlægð vegna lestrar- erfiðleika misþroskuðu barnanna heldur var lesbíska fóstran bara eitt- hvað dauf vegna þess að óþekku krakkarnir kunnu ekki að lesa. 34 Rokk í Reykjavík v.s. Popp í Reykjavík. 35 Þú máttir vinna alvöru- vinnu en ekki einhverja ESB- unglingavinnu fyrir skítalaun. 36 Heimurinn var einfaldari; Sovét gegn Bandaríkjunum. 37 Ef þú áttir Skitles eða M&M's vildu allir vera vinir þínir. 22 Monty Python-hópurinn var enn að senda frá sér myndir og 8 Það voru til sérstakir unglingaskemmti- James Bond var original. staðir, samanber Villti tryllti Villi. 9 Strákar máttu varalita sig og blása á sér hárið. 10 Þú varst ekki álitinn síbrotaungling- ur þó þú færir niður í bæ og dyttir í það. 11 Það voru ekki til reyklaus kaffihús og ekkert mál að verða sér úti um sígarettur. 12 Jón Páll Sigmarsson v.s Fjölnir Þorgeirsson. 13 Þú fékkst ekki dóm ef þú svafst hjá 16 ára. 14 Þú varst ekki álitinn hommi þó þú gengir í bleiku og öðrum pastellitum. 15 Buxurnar voru ekki alltaf að detta niður um þig. 16 Meistari Reynir Pétur. 17 Það þurfti hvorki að gera gat á tung- una á þér né naflann, það var nóg að fá sér hring í eyrað til þess að vera kúl. 23 Aerobic og Herbalife voru ekki talin til lífsskilyrða. 24 Þú gast farið á hamborgarastað og kallað það að vera úti að borða. 25 Það þótti fínt að vera smyglari en nú eru smyglarar kallaðir „sölumenn dauðans". 26 Vatnsglas var ókeypis á skemmtistöðum. 27 Þú máttir taka í nefið. 28 Stuðmenn voru ekki gamlir, bara miðaldra. 29 Tölvunördar voru bara nördar. 30 Umsjónarmaður Stundarinnar okkar var kyntákn. 31 Stöð 2 sýndi dönsku stjörnumerkjaklámmyndirnar í stað Ijósbláu myndanna á Sýn. 32 Þér var óhætt að tala við ókunnugt fólk. 33 George Lucas var ekki orð- inn það heimskur að bjóða upp á persónu á borð við JarJar. 38 Kennarar fóru reglu- lega í mjög löng verkföll. 39 Hjól var bara hjól en ekki tugþúsunda króna fjallahjól. 40 Mamma þín hafði meiri áhyggjur af því að þú borðaðir ekki nóg en að þú myndir fitna. 41 Það var ekkert mál að verða sér úti um falsað nafnskírteini. 42 Að klæmast í símann var pervertismi en ekki iðnaður. 43 Það var bara til ein tegund af flottum strigaskóm; hvítir Adidas- skór með svörtum röndum. 44 Þú gast náð þér í gellur ef þú áttir skellinöðru. 45 Strætó var með leðursætum. 46 Þú gast gert símaat án þess að viðtakandinn sæi númerið þitt. 47 Þú varst ekki gerandi í einelti heldur stríðnispúki. 48 Það þótti flott að vera með plastpoka frá útlöndum. 49 Það voru bara hommar sem fengu eids. hvao segiröo...o6 vefinunN sara ao koma. y ER ÞETTA BARA EKKI SPURMING UM AB HR6YFA SI6 NÓGU MtKlO? f Ó k U S 29. október 1999

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.