Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.1999, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.1999, Blaðsíða 20
Lifid cítir vinnu 1 g i k h ú s Davið Þof a Vegamótum Fókus býöur ekki bara í leik- hús eins og kemur fram hér á síðunni fyrir framan. Þaö verður nefnilega partí fyrir þá sem næla sér i leikhúsmiða. Partíið er haldið að Vegamótum og byrjar strax eftir sýninguna, kl. 22. Eini hængurinn er að þú verður að koma þér upp i DV-hús og næla þér i miða á leikritið, þá færðu að fara í partiið. Og þetta er ekk- ert smáparti. Konungur uppi- standsins á tslandi og einn af leikurunum i Kossinum, hann Davíð Þór Jónsson verður nefni- lega með stand up. Aðrir leikar- ar úr Kossinum láta sjá sig og ætla ekki að missa af Davíð, Þossi kemur svo til með Dj-a fram eftir nóttu, Grolsch-bjór flæðir um alla bari og svo eru allar skálar fullar af Nachos- snakki og djúsi sósum. Sýningin Dularfulli garðurinn verður opnuð i dag kl. 20 í Listasafn! ASÍ. Hér sýna Elsa Dórothea Gisladóttir, Guðrún Vera Hjartar- dóttlr, Helgl Hjaltalin, Hreinn Friöfinnsson, Jón Bergmann Kjartansson, Pétur Örn Friö- riksson og Sólveig Þorbergsdóttir. Sýningin stendurtil 14 nóvember. Opið alla daga nema mánudaga frá kl. 14-18. Ragnheiður Thorarensen, umboðsmaður Ge- org Jensen Damask, opnar sýningu á dúkum fyrirtækisins i Safamýri 91 kl. 14. Georg Jen- sen Damask er rótgróið veffyrirtækl sem rek- ur sögu sína 5 aldir aftur í timann og leggur áherslu á listræna hönnun sem unnið hefurtil ótal verðlauna og viðurkenninga. Meðal nýj- unga sem kynntar verða á sýningunni er dúk- ur sem ofinn er með mynstri úr brúðarkjól Mar- grétar drottningar fyrstu frá 14. öld og hátíðar- dúkur i tilefni árþúsundamótanna. Sýningin er opin þessa helgi, bæði í dag og á morgun, frá eins og áður sagði 14 til 18. Jón Baldur Hlíðberg sýnir myndir úr náttúru Is- lands undir yfirskriftinni Lífríki lands ogsjávar í Hafnarborg, menningar- og listastofnun Hafn- arfjarðar. Á sýningunni í Hafnarborg verða myndir af fuglum, flskum, hryggleysingjum og blómum og kynnt verða mismunandi vinnu- brögð á bak við myndirnar með skissum og öðrum vinnugögnum ásamt stuttri mynd- bandsspólu.Sýningin stendur til 13. desem- ber og er opin alla daga nema þriðjudaga, frá kl. 12 til 18. Kynning á listvefnaði Þorbjargar Þóröardóttur í Meistara Jakop, listhúsi á Skólavörðustíg 5, hefst I dag. Sýningin stendur til 9. nóvember. Opið virka daga 11-18 og laugardaga 11-14. Slgurður Magnússon opnar sýningu í Hafnar- borg, menningar- og iistastofnun Hafnarfjarö- mira.is SJÁÐU Á NETINU BÆJARLIND 6 200 KÓPAVOGI Sími: 554 6300 • Fax: 554 6303 \f\ 3 4-> 'O E Z H3 OT o c <U CO^ > vo cn jQ_ o <rO «- H3 > 4-> ífj -*-> Q '<Þ ar. Sigurður sýnir u.þ.b. 20 olíumálverk, sem öll eru máluð á sl. tveimur árum. Sýninguna kallar Sigurður „Fleiri þankastrik". Sýning á verkum fimm félaga SÚM-hópsins, sem allir stóðu að opnun Gallerí SÚM fyrir 30 árum, veröur opnuð í stóra salnum í Llstasafnl íslands. Þeir sem eiga verk á sýningunni eru Jón Gunnar Árnason, Magnús Tómasson, Hreinn Friðfinnsson og bræðurnir Kristján og Slgurður Guðmundssynir. Sýningin stendur til 28.11. Kl. 16 verður opnuð veggmyndasýning I and- dyri Aöalbyggingar Háskóians í tilefni af því að 200 ár eru liðin frá fæðingu franska rithöf- undarins Honore de Balzac.. Sýningin stendur til 14. nóv og aðgangur er ókeypis. í landi birtunnar er heiti á sýningu með mynd- um eftir Ásgrím Jónsson sem opnuð verður í Llstasafnlnu kl. 17. Ásgrimur Jónsson er einn þeirra málara sem lögðu grunn að landslags- hefð í íslenskri myndlist á fyrstu áratugum þessarar aldar og sá málari íslenskur sem mesta rækt hefur lagt við gerð vatnslita- mynda. Á ferðum sínum um Skaftafellssýslur málaði hann fjölda vatnslitamynda sem eiga sér enga hliðstæðu í íslenskri myndlist. í til- efni sýningarinnar hefur verið gefin út vegleg bók með grein um þennan myndaflokk í list Ásgrims eftir Júlíönu Gottskálksdóttur list- fræðing. •Síöustu forvöö Síðustu forvöð að sjá sýningu Hannesar Scheving I húsakynnum B&L. Sýningunni lýk- ur kl. 16 á dag og hún hefur ekkert með jeppa eða aðra bíla a6 gera. Samsýnigu I Sneglu Listhúsi, sem er til húsa á horni Grettisgötu og Klapparstígs, lýkur í dag. Sýningin ber heitið í hring og standa 15 aðilar sem hafa viðurkennt listnám að baki í myndlist, leirlist og textíl. Opið er alla virka daga frá kl. 12-18 og laugardaga kl. 11-15. I dag lýkur sýningu verslunarinnar Vefur I GalF erí Nema hvað á Skólavörðustíg 22cd á silki- efnum frá Chase Erwin. Hér er að finna glitr- andi organza silki með speglum sem glitra eins og stjörnur. Einnig er að finna nýjustu lín- una frá Designers Guild. Opið kl.10-18. •Fundir Félagsvísindaráðstefnan heldur áfram í dag í Odda. Markmið ráðstefnunnar er að efla stöðu þessara fræða á íslandi með því að kynna nýlegar rannsóknir og koma niðurstöð- um þeirra á framfæri. I dag er m.a. hægt að hlusta á fyrirlestra um kvótakerfiö og líf kvenna sem byrja kl. 13 og Samgöngur á ís- landi sem byrja kl. 10, sem og Sameiginleg forsjá: rannsókn á reynslu og viðhorfum frá- skilinna foreldra. Allir eru velkomnir og ókeyp- is aðgangur. Landvernd heldur afmælisráðstefnu í félags- heimllinu Seltjarnarnesi frá kl. 14-17.30. Að- gangur er 1000 kr. og 500 fyrir námsmenn en fritt fýrir 18 ára og yngri. Fjallað verður um um- hverfis- og náttúruvernd á Islandi síöastliðin 30 ár. •S p o r t Forkeppni ferfram í Fitness 99 í Kringlunni kl. 13.00. Úrslitanna verður fólk hins vegar að bíða. Þau hefjast ekki fyrr en 6. nóvember, kl. 20.00, í Laugardalshöllinni. Sprellglaðir ættu endilega að mæta og horfa á hamhleypurnar sprikla. Sunnudagur 31. október •Krár Andrea Gylfa slipar raddböndin á Gauki á Stöng. Guðmundur Rúnar Lúð- viksson mætir í Krlnglukrána og leikur á alls oddi. Síðasti sjéns að drekka á hálfvirði á Nellýs en þetta þrusu góða tilboð hefur varað í mánuð. i leit að einhverju rólegu og rómantísku? Þá er Café Romance staðurinn þar sem píanó- snillingurinn Joseph 0. Brian slær engar feil- nótur. • B ö 11 Ball og aftur ball enn eitt sunnudagskvöldið í Ásgarði. Maður bíður bara eftir að komast á ellilífeyrinn til að geta tekið þátt i gleðinni. Hið víðfræga Capri tríó spilar. D j a s s , & | \/ Hljómsveit Tenu Palmer, Cruclble, tón- ar í Sölvasal Sólons ís- landus, á fjórðu haust- tónleikum Múlans. Þar verður fléttað saman raf- mögnuðum og órafmögn- uðum hljóöum við túlkun á lögum bæði eftir Tenu og aðra. Hljómsveitina skipa: Jóhann Jó- hannsson, Kjartan Valdimarsson, Matthías M.D. Hemstock, Pétur Hallgrímsson og Tena Palmer raddbandaþenjari. Tónleikarnir hefjast kl. 21 og aðgangur er 1000 kr., 500 fyrir nem- endur og eldri borgara. •K1 a s s í k Aðrir tónleikar Noröurljósa, tónlistarhátíðar Musica Antiqua, verða í Listasafni íslands. Rytjendur eru Guðrún S. Blrgisdóttir á barokk- flautu, Elín Guömundsdóttir á sembal og Ólöf Sesselja Óskarsdóttir á gömbu. Tónleikarnir hefjast kl.20.00. •Sveitin Nú er Möguleikhúsið við Hlemm komiö á fulla ferð inn í nýtt leikár. Fyrsta stykkið sem það frumsýndi var Langafi prakkari og það gengur áfram. Þetta er leikrit, gert eftir sögu Sigrúnar Eldjárn, sem hefur nú hlýjað mörgu barninu um hjartarætur og því er hægt að búast við hugljúfu ogfallegu verki. Sýningin hefst kl. 14. Síminn er 562 5060. Loksins er eitthvað ókeypis hér i þessum heimi! Skellið ykkur í Norræna húslö og sjáið finnska ævintýramynd kl. 14 og það án þess að borga krónu fyrir. Sláið tvær flugur í einu höggi oggleðjið þar með bæði börnin og budd- una. s/Maggi Kjartans og KK eru búnir að gefa út nýjan disk og eru nú á ferð um landið til að kynna tónlistina. Þeir spila á Hótel Bláfelli, Breiðdalsvík. Tónleikarnir byrja ki. 21 •Leikhús Djúpt inni í maga Þjóðleikhússins, nánartiltek- ið í Smíðaverkstæðinu, ergriski harmleikurinn Fedra sýndur kl.20.30. Fedra er reyndar franskt verk en Hilmi Snæ, Arnari Jónssyni og Tinnu Gunnlaugsdóttur er nokk sama og leika þau með miklum tilþrifum. Enn er Hellis- búinn aö bliva feitt. Gæinn í lendarskýlunni virðist einfald- lega höfða til innstu hvata eiginlega alltaf uppseit. Sýningin hefst kl.20 í íslensku Óper- unni en síminn í miðasölunni er 551-1475. Það er síðasti séns að fara með börnin á prinsessudaga í Norræna húsinu í dag. t höll- inni er listasmiðja þar sem hægt er að búa til ýmislegt konunglegt og skrautlegt og stelpurn- ar geta klætt sig upp eins og prinsessur.Gjald fyrir einstaklinga er kr. 100. íþróttaálfurinn M a g n ú s Scheving kall- ar ekki allt ömmu sína og er ekki vitund hræddur við Gianna glæp en það er nafn- ið á vonda karl- inum í sam- nefndu leikriti sem Þjóðleik- húsið sýnir þessa dagana. Sigurður Sigurjónsson leikstýrir og Máni Svav- ars samdi tónlist við söngtexta Karls Ágústs Úlfssonar. Leikarar eru meðal annarra Stefán Karl Stefánsson, Magnús Ólafsson, Örn Árna- son, Steinn Ármann Magnússon, Kjartan Guðjðnsson, Linda Ásgeirsdóttir, Ólafur Darri Ólafsson, Rúnar Freyr Gíslason og auðvitað Magnús Scheving sjálfur. Tvær sýningar eru i dag. Sú fyrri hefst kl. 14 en sú seinni kl. 17 og það eru laus sæti. Áhugasömum er bent á að hringja I síma 5511200. nútímamannsins því það er Sigurganga Þjóns í súpunni heldur áfram. Áhorfendur taka þátt í sýningunni og það er eitthvað sem virðist leggjast vel í íslendinga. Verkið er sýnt í lönó og hefst sýningin kl. 20. Síminn er 530 3030. • 0 pnanir Nemendur i hönnunardeild Iðnskólans láta ekki deigan síga og sköpunargleðin ræður rikj- um á hönnunarsýningu í Galleri Geysi. Sýndu þig, sjáöu aðra og komdu í Hitt húslð kl. „Baileys er máliö áður en maður fer að sofa á kvöldin eða eftir mat. Sæl- keravín sem fær mann til að slaka á eða loka máltíðinni. Svona eins og að fá sér súkkulaöimola eftir matinn. Algjör lúxus. Ég held að Baileys sé frá írlandi og ég var einmitt að koma þaðan og kom fyrir viku og keypti flösku í fríhöfn- inni. Er að sjálfsögðu ekki búin með flöskuna en hef svona rétt dreypt á henni. En hún klárast ör- ugglega um helgina eða á næstu vikum.“ Uppáhaldsvín Ingibjargar Lindar Karlsdóttur, dagskrárgeröarkonu á Skjá 1, er Baileys. 16.00. •Síöustu forvöð Nú er síðasta sýningarhelgi á myndlistarsýn- ingu Ellerts Grétarssonar I Svarta pakkhús- inu í Reykjanesbæ. Þar verða til sýnis mynd- Fyrir börnin Nú er ég hissa! Hattur og Fattur mættir aftur til leiks. Bara um hverja helgi og alltaf jafnmikið stuð í Loft- kastalanum þegar þeir eru nærri. Vá! Og sýn- ingin hefst kl. 14. Gaman, gaman fyrir börnin. Síminn í Kast- alanum er 552 3000. myndlist Magnús Pálsson er meö sýningu í gallerí i8 þar sem hann sýnir silfurstóla og myndband. „Komdu í Dollýbæ" er heiti á myndlistasýningu Elrúnar Sigurðardóttur sem er í fullum gangi Stöölakoti Bókhlöðustig 6. Hér er hægt að heimsækja Dollýbæ þar sem hægt er að sjá Dollý dansa, tala við klámálf, sitja á gæru og fleira og fleira. Lifið er frábært og Dollý tekur þátt í því. Opið frá kl. 12-18 nema mánudaga. Stendur til 14. nóv. Veggmyndsýning tileinkuö Honoré de Baizac er í andyri aðalbyggingar Háskólans. Myndir Jóns Baldurs Hlíðbergs úr náttúru ís- lands eru til sýnis i Hafnarborg. Sýningin Dularfulli garöurinn stendur yfir í Llstasafnl ASÍ. Opið alla daga nema mánudaga frá kl. 14-18. Sýning á verkum fimm félaga SÚM-hópsins, sem allir stóðu að opnun Gallerí SÚM fyrir 30 árum, stendur yfiri í stóra salnum í Listasafni íslands. Sigurður Magnússon listmálari er meö mál- verkasýningu í Sverrissal i Hafnarborgar. Grafík í mynd heitir sýning á Kjarvalstöðum þar sem sýnd eru verk innlendra og erlendra lista- manna. í landi blrtunnar er heiti á sýningu með mynd- um eftir Ásgrimur Jónsson sem er i Listasafn- Inu. Ragna Róbertsdóttir sýnir verk úr vikri, gler og hluta af Mýrdalssandi á Kjarvalstöðum. Opið alla daga frá klukkan 10 -18. Verslunin Vefur stendur fyrir texstílsýningu í Galleri Nema hvað Skólavöröustig 22cd. M.a er þar aö finna sérstæð organzaefni með sþegl- um. Sýningin stendur til 30.okt. Opið 10-18. Sýnlngln Fjar-skyn stenduryfirí Nýlistasafnlnu, Vatnsstíg 3B. Aðgangur er ókeypis og allir vekomnir. Seyðfirðingurinn Harpa Björnsdóttir sýnir vatnslitamyndir í Llstasalnum Man, Skóla- vörðustíg 14. Ellert Grétarsson opnar myndlistarsýningu í Svarta pakkhúslnu í Reykjanesbæ. Sýningin verður opin næstu tvær vikurnar, frá kl.13-19 um helgar og 18-21 virka daga. Allir vita að Friörik Þór Frlðrikson hefur vit á kvikmyndum en hefur þessi maður eitthvað vit á myndlist? Það getur fólk vegið og metið í Menningarmiðstööinnl í Geröabergi þar sem sýningin „Þetta vil ég sjá“ stendur yfir. Margrét Jóns listmálari er með einkasýningu í Llstasafnl Kópavogs. Sýninguna kallar hún Kyrralífsmyndir og eru verkin olíu- og egg- temperaverk. Árþúsunda arkitektúr eða Millennial Architect- ure er heiti samsýningar sem sýnd er í Gerðar- safnl í Kópavogi. Geröarsafn er opið alla daga nema mánudaga frá kl. 12 -18. Llstasafn Akureyrar sýnir nú verk Stefáns Jóns- sonar en um er að ræða hámenntaðan Akureyr- ing sem sýnir gólfskúlptúra. Á sama tíma hefst ný röð yfirlitssýninga á vegum Listasafnsins sem hlotið hefur heitið Sjónauki. Hjálmar Svelnsson fjallar um „dauöahvötina" sem hann telur sig greina hjá íslenskum myndlistarmönn- um. Sýningin er opin frá kl. 14-18. Nú stendur yfir, í Llstasafni Kópavogs, Gerða- safni, sýning á Ijósmyndum þýska Ijósmyndar- ans Wilbert Weigend. Páll Thayer sýnir í Gallerí oneoone á Laugavegi 48b. Sýningin ber nafnið Inni i a moll. Hönnunarsafn íslands stendur fyrir sýningu að Garðatorgi 7, nýbyggingu í miðbæ Garöabæjar, sem nefnist íslensk hönnun 1950-1970. í gallerílnu i8 Ingólfstræti 8 stendur yfir sýning sem ber heitið Trash/Treasure eða Drasl/Dýr- mæti. www.i8.is I Listasafnl Árnesinga sýna þau Gísll Slgurðs- son og Sigrid Valtlngojer verk sýn. Sigrid, sem er tékknesk, sýnir yfirlit frá 20 ára myndlistar- ferli sinum. Nieis Hafstein er með sýningu á textaverkum i Ganginum Rekagranda 8 kl. 17. Félagarnir Sigurður Þór Elíasson og Gísli Stein- dór Þóröarson, sem báðir eru einhverfir og heyrnarlausir, eru með málverkasýningu á Mokka á Skólavörðustíg. Brynja Árnadóttir sýnir pennateikningar í Kaffi Krús á Selfossi. Þetta er ellefta einkasýnig hennar og er hún opin á opnunartíma kaffi- hússins. 7 myndlistarkonur sýna í Sparisjóðnum Garðatorgi 1, Garðabæ. Á sýningunni eru graf- ikmyndir og málverk. Þær sem sýna eru Freyja Önundardóttlr, Guðný Jónsdóttir, Gunnhildur Ólafsdóttir, Inglbjörg Hauksdóttir, Jóhanna Sveinsdóttir, Kristín Blöndal og Sesselja Tómasdóttir. Þær hafa allar mynd- listarnám að baki og hafa tekið þátt í fjölda sýninga. Þær reka ásamt 7 öðrum listakonum gallerí Listakot, Laugavegi 70. 20 f Ó k U S 29. október 1999

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.