Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.1999, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.1999, Blaðsíða 8
Sýningin: Arni (Bjarni Haukur) búinn aö draga Ijóshært beib (Laufey) meö sér heim af djamminu og reynir að taka hana á sófanum. 30 min. i syningu: Steinn Armann teiknar tattó á töffarann Davíö Þór. Fölnaðar rósir í sellófan Bjami gengur um og rífur upp nýja sokka. Steinn Ármann Magnússon og Þórhallur Sigurðsson, Laddi, bætast i hópinn. Á borðinu í búningsherbergi strákanna liggja uppþornaðar rósir í sellófanpappír. 1 klst. í sýningu: Konurnar eru mætt- ar í meik og hárgreiöslu en ekkert ból- ar á strákunum. Úlfur Eldjárn tónlistarmaöur, nemi og afgreiöslupiltur. g var á Kabarett- réttum 'í Austurstræti „Uhm...hemm hemm... Þennan dag var ég á Kabarettréttum 1 Aust- urstræti ásamt nokkrum góðkunn- ingjum mínum. Við drukkum bjór og borðuðum fullt af frönskum kartöflum. Bjórdrykkjan var að hætti hússins svo við dýfðum frönsku kartöflunum ofan í bjór- inn, átum þær siðan og supum af bjómum. Þama var ég bróðurpart- inn úr deginum svo ég fékk ekki fréttimar af axlarmeiðslum forset- ans fyrr en seint og um slðir. Jamm jamm... Þetta var frekar mgluð frétt og ég fattaði ekki almennilega hvað hefði gerst. Breska ástkonana var svo fyrirferðarmikil í fréttinni að það truflaði frásögnina og ég skildi ekki upp né niður. Allavega skildi ég ekki innihald fréttarinnar, þetta meö axlarbrotið, fyrr en nokkrum dögum síöar. Það gerðist eiginlega ekkert meira markvert á þessum degi, ég man ekkert fleira tíðindavert. Him...nei, ekki neitt.“ Þann 27. september féll Ólafur Ragnar Gríms- son, forseti íslensku þjóðarinnar, af hestbaki og slasaðist á öxl. Ólafur Ragnar var á feröa- lagi ásamt Dorrit Moussaieff, kærustu sinni. Þau brunuðu um á silfurlitum BMW og renndu í hlað á Leirubakka I Landsveit. Dorrit heilsaði Landsveitungum á glimrandi íslensku og iðaði af hreinni gleöi þegar þeim skötuhjúunum var boðið upp á pönnukökur. Aö bakkelsisátinu loknu brugðu þau sér á hestbak og þustu um Landsveitina á glerfínum gæðingum. Allt var voða gaman og þau réðu sér ekki fyrir ein- skærum fögnuði þar til hörmungarnar dundu yfir: Ólafur forseti datt af gæðingnum og lá næpuhvítur í móanum meðan Dorrit Moussai- eff felldi sölt tár. Stuttu síðar kom þyrla Land- helgisgæslunnar á staöinn og flaug með Ólaf Ragnar á Sjúkrahús Reykjavíkur þar sem hann var úrskurðaður axlarbrotinn. María Ellingsen. Það kom i ljós um síðustu helgi þegar Salka Valka var frumsýnd í Hafn- arfjarðarleikhúsinu að María Ellingsen, sem leikur Sölku, er alveg sláandi lík borgarstjóranum í Reykjavík. Og látið ekki blekkjast. Það er ekki bara hárgreiðslan heldur líka brosið og góðlegu augun. Jafnvel nefin eru ámóta og því er nokkuö Ijóst að ef einhver frumlegur leikstjóri setur upp söngleik- inn Ó, borg mín, borg, þá mun María leika Ingibjörgu. Hún mun auðvitað brillera í hlutverkinu en gagnrýnendur munu eflaust kvarta yfir því hversu leiðinlegt verkið sé og söngvar Karls Ágústs Úlfssonar leiðinlegir. 45 mín. í sýningu: Nefiö á Bjarna Hauki púöraö af sminkunni Kristínu Björnsdóttur. Sýningarlok: Salurinn virðist vera ánægöur og leikararnir eru klappaöir upp. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir. Hvaó, hiróið þið ekki blómin sem þið fáið? Þaö verður fátt um svör en Bjami segist allavega ekki eiga þessi fólnuðu blóm. „Ég er búin að þurrka öli frumsýn- ingarblómin mín og hengja upp á vegg,“ segir Laufey og er greinilega fyrir- myndarleikari. „Heyrðuð þið krítikina á Bylgjunni í vikunni? Það var einhver sem skemmti sér alveg rosalega vel,“ segir Immý og er ánægð. Davíð er í óðaönn að setja gervihúð- flúr á handlegginn á sér en segist samt aldrei vilja fá sér eitt slíkt i veruleikan- um. * Eftir að útlínurnar hafa verið þrykktar á handlegginn nær Steinn Ár- mann í svart túss og fyllir upp í. „Þú ættir að sjá hann Stein Ármann teikna. Hann ætti að vera myndlistar- maður," segir Davíð með sannfæringu. „Nei, það er búið að teikna og mála allt. Það er engin framtíð í 45 mín. í sýningu: Laufey Brá og Brynhildur Tinna peppa hvora aðra upp fyrir sýningu meö bröndurum. bransa," svarar Steinn Ármann og held- ur áfram að tússa. Nei, nei, ekki um jólin „15 mínútur í sýningu, 15 mínútur i sýningu,“ heyrist úr hátalara á veggn- um og allt í einu eru allar stelpurnar farnar að syngja. „í Leiklistarskólanum lærði maður að maður þyrfti að hita upp talfærin," útskýrir Laufey og syngur hástöfum. Nei, nei, ekki um jólin. Húðflúrið á Davíð er tilbúið og hann fyllir alla vasa af fólskum peningaseðlum. Dansarinn, Brynhildur Tinna Birg- isdóttir, er kominn í tvö gervi utan yfir hvort annað og æfir danssporin. Hin danspían, Berglind Petersen, virðist vera í einhvers konar teygjuæfmgum. „10 mínútur í sýningu, 10 mínútur í sýningu," segir röddin í hátalaranum. „Hvar eru sokkabuxumar mínar?“ spyr Laufey og er greinilega orðin stressuð. „Ég setti búninginn í hreinsun og Hvar - 27. septem 19 Það sem gerist baksvið í leikhúsinu er oft leikrit út af fyrir sig. Fókus kíkti bak við tjöldin í Bíóborginni og fylgdist með lífinu í búningsherbergi leikaranna í Kossinum en á laugardagskvöldið býður Fókus 100 les- endum blaðsins á leiksýninguna. Þeir lesendur sem fá þessa miða þurfa hins vegar að sitja úti í sal og sjá ekki þá hlið leikritsins sem hér er lýst. „Ég myndi aldrei vilja verða leikari" Klukkan er hálfsex á laugardags- kvöldi í sal eitt í Bíóborginni við Snorrabraut. Sviðið er eitt mess, salur- inn er fullur af einhverju dóti og það er fátt sem bendir til þess að hér verði sýnt leikrit eftir einn og hálfan tíma. „Ég myndi aldrei vilja verða leikari. Það er svo ótrúlega mikil vinna á bak við eitt svona leikrit og vinnutíminn er ömurlegur," segir menntaskólamærm Tinna Ottesen, sem stendur mitt í draslinu og reynir að koma röð og reglu á hlutina. Henni til hjálpar eru sviðsmennimir Janus Bragi Jakobsson og Brynjar Örn Þorleifsson sem hlaupa um með milliveggi og Brynjar blótar ógurlega. Tinna og Janus em kærustupar og fengu þessa vinnu í gegnum pabba Janusar sem er leikari. Brynjar er hins vegar ekki bara einn af „fólkinu í myrkrinu" eins og sviðsmenn em oft kallaðir því hann fékk að dansa í Eurovisionljósunum með Selmu á sín- um tíma. Niðri í fórðunarherberginu em bara stelpur þrátt fyrir að það sé aðeins einn tími og fimmtán mínútur í sýninguna. „Strákamir mæta alltaf svo seint," segir Nanna Kristín Magnúsdóttir sem er í óðaönn að bæta á farðann og er komin með rúllur í hausinn til að fá þessar flottu ljósu krullur sem hin aust- urríska og saklausa Júlía sem hún leik- ur er með. Sýningarstjórinn, Ingibjörg Bjama- dóttir, öðm nafni Immý, kemur blað- skellandi inn og tilkynnir að það sé búið að breyta útkallinu í tvisvar og svo ding, ding, ding. „Ég var að tala við Hallgrím og hann bað rosalega vel að heilsa öllum,“ segir Immý. „Hallgrímur, hver er það?“ segir Nanna og kveikir ekki alveg. „Jú, það er þessi sem gengur alltaf um með hatt. Hann minnir á Eirík Hauksson og gengur undir nafninu Faxi,“ segir Laufey Brá Jónsdóttir og hinar stelpumar hlæja ofsalega. Skíðabrúnka og dúkkukrullur Það er einn tími í leiksýningu og Bjarni Haukur Þórsson er fyrsti strákurinn sem mætir á svæðið með fangið fullt af vel pressuðum skyrtum. „Hvaða fólk er þetta?" segir hann og reynir aö koma röö og reglu á óreiö- una á sviöinu. bendn- á blaöamanninn og ljósmyndar- ann. „Frá Fókusi, já. Á nú að fara að skrifa meira níð um mann í þetta blað?“ spyr Bjami og er greinilega sár yfir því að nafn hans skuli hafa hafnað í grein í síðasta blaði sem fjallaði um ofmetna íslendinga. Davíð Þór Jónsson er einnig mættur á svæðið og fullvissar Bjama um það að hann hafi farið miklu verr út úr viðskiptum sínum við DV en Bjami. „Kærastan mín var að útskrifast í dag. Er orðin BA í frönsku og íslensku. Ég er að fara út að skemmta mér á eft- ir,“ tilkynnir Davíð stoltur og sest nið- ur með kaffi og Rís. Fjörutíu og fimm mínútur í sýningu og það er örtröð við spegilinn. „Júlía er alltaf á skíðum og þess vegna verður hún að vera vel brún í framan,“ segir Nanna og bætir ein- hveiju brúnu framan í sig svo hún lík- ist meira sólbrúnni skíðadís frá Austur- ríki. „Væri ekki betra að skilja eftir svona hvítt far í kringum augun eftir skíða- gleraugun?" segir Laufey. „Það væri svo miklu meira sannfærandi." Stelpurnar viö spegilinn hlæja en Nanna droppar þó skíðagleraugnafar- inu. „Þú spreyjar alltaf svo mikið framan í mig þegar þú ert að spreyjar á mér hárið," kvartar Nanna við hárgreiðslu- konuna, Fríði Ólafsdóttur, sem er í óða- önn að reyna að fá rétt útlit á dúkku- krullurnar. „Það er til þess að málningin haldist betur framan í þér,“ gjammar Laufey inn í og Fríður lofar að vera varfæmari með hárspreyið. f Ó k U S 29. október 1999

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.