Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.1999, Síða 14
Ali samþykklr
Will Smith
Eftir nokkra byrjunaröröugleika er allt kom-
ið á fullt í undirbúningi aö kvikmynd sem
byggð verður á
ævi hnefa-
ieikakóngsins
Muhammads
Ali en tafir
höfðu orðið
vegna þess að
fyrrverandi um-
boðsmaður
hans og sonur
látins lögfræð-
ings hans
sögðust hafa
undir höndum
samning sem segir að þeir eigi hluta af
kvikmyndaréttinum. Málið hefur verið leyst
utan dómstóla. Og nú er ekkert til fyrir-
stöðu þar sem Ali hefur samþykkt að Will
Smith leiki hann. Það er því næst hjá
Smith að fara í æfingabúðir til aö reyna að
ná einhverju af snilldinni sem gerði Ali að
stærstu stjörnu boxins. Þangað kemst
hann að vfsu ekki fyrr en hann hefur lokið
við The Legend of Bagger Vance sem Ro-
bert Redford leikstýrir. Leikstjóri kvikmynd-
arinnar um Ali verður Barry Sonnenfeld en
hann og Will Smith gerðu saman Men in
Black og Wild Wild West.
Robert De Niro hefur, eftir gott gengi síð-
ustu tveggja mynda, Ronin og Analyze This,
hækkað í verði i Hollywood og mun hann fá
15 milljón dollara fyrir að leika i The Score
sem fjallar um þaulreyndan þjóf sem hefur
fullan hug á að draga sig í hlé en er neydd-
ur til að taka
þátt í einu ráni
enn. Laun
hans eru nærri
tvöfalt hærri
en hann fékk
fyrir að leika i
Analyze This
og þriðjungi
hærri en hann
fékk fyrir Ron-
in. Leikstjóri
The Score
verður Frank
Oz (Bowfinger)
og er áætlað
að tökur hefjist
í mars. Ekki er
samt víst að það takist að halda sig við
þessa timaáætlun því De Niro hefur lofað
vini sinum og samstarfsmanni til marga
ára, Martin Scorsese, að leika í Gangs of
New York en áætlað er að hefja tökur á
henni snemma næsta árs. Robert De Niro
var ekki fýrsti kosturinn hjá aðstandendum
The Score. Þeir höfðu nánast tryggt sér
Michael Douglas þegar hann ákvað að
finna frekar eitthvað sem hann og hans
heittelskaða Catherine Zeta Jones gætu
leikið saman í.
Áðurnefnd kvikmynd Martins Scorsese,
Gangs of New York, er stjörnum prýdd kvik-
mynd því auk Roberts De Niros mun goðið
sjálft, Leonardo DiCaprlo, leika eitt aðal-
hlutverkið. Það mun verða í þriðja sinn sem
De Niro og DiCaprio leika saman í kvik-
mynd en áður léku þeir í This Boy's Life og
Marvin's Room. Auk þeirra mun Cameron
Diaz að öllum líkindum leika í myndinni.
Gangs of New York, sem áætlað er aö
kosti um 90 milljón dollara, segir frá átök-
um á milli írskra og ítalskra glæpagengja í
New York. Scorsese er á heimaslóðum við
gerð þessarar myndar en sumar af hans
bestu kvikmyndum hafa einmitt fjallað um
glæpagengi i New York, meðal annars
nýjasta kvikmynd hans, Bringlng out the
Dead, sem frumsýnd var í Bandarikjunum
um síðustu helgi og hefur fengið góða
dóma þó ekki sé hún talin ná gæðum
bestu kvikmynda hans.
Fyrir níu árum léku Julia Roberts og Richard
Gere í Pretty Woman, mynd sem náði miklum
vinsældum, og þóttu standa sig vel. Lengi
hefur verið rætt um að þau myndu leika
saman á ný en það hefur ekki orðið fyrr en nú
Það kemur stundum fyrir að
tveir leikarar ná slíkum samleik að
það gneistar á milli þeirra. Slíkt
gerðist þegar Richard Gere og Jul-
ia Roberts léku saman í Pretty
Woman, einhverri vinsælustu gam-
anmynd tíunda áratugarins. Á
þeim níu árum sem liðin eru hefur
oft verið reynt að
koma þeim saman aft-
ur í kvikmynd en bæði
eru í röð eftirsóttustu
leikara og bundin
samningum langt fram
í tímann og svo hefur
ekki fundist rétt hand-
rit. Það var síðan Ric-
hard Gere sem hjó á
hnútinn þegar upp í
hendurnar á honum
kom handritið að
Runaway Bride. Hann
hafði samband við
Juliu sem leist vel á og
þau ákváðu síðan að
best væri að Gary
Marshall, sem leik-
stýrði þeim í Pretty
Woman, myndi leikstýra Runaway
Bride.
í Runaway Bride leikur Richard
Gere blaðamanninn Ike Graham
sem er dálkahöfundur við stórblað
í New York. Honum gengur flest í
mót, á erfitt með að skrifa auk þess
sem fyrrum eiginkona hans er yfir-
maður hans og passar vel upp á að
hann hafi nóg að gera. Dag einn
heyrir hann um unga stúlku í Mar-
yland sem greinilega hefur gaman
af því að vera trúlofuð, en þegar
Garry Marshall, leikstjóri Runaway Bride, ásamt
Richard Gere.
komið er að stóru stundinni, brúð-
kaupinu, flýr hún alltaf af hólmi,
þá yfirleitt komin upp að altarinu.
Ike er viss um að hún muni endur-
taka leikinn og telur sig vera kom-
inn með gott
fréttaefni og held-
ur því til Mar-
yland þar sem
hann fær kaldar
móttökur hjá
Maggie Carpenter
(Juliu Roberts)
sem hefur frétt af
fyrirætlun hans
og er ákveðin f að
hann fái ekki
tækifæri til að
skrifa þá grein
sem hann ætlar
sér.
Ike Graham (Richard Gere) er blaöamaöur sem hefur Auk þeirra Ric-
heyrt um stúlku sem ávallt flýr af hólmi þegar aö altarinu hard Gere og Jul-
kemur. ia Roberts leika
Maggie Carpenter (Julia Roberts) finnst gott aö vera trúlofuö en flýr þegar aö
stóru stundinni kemur.
margir aðrir þekktir leikarar í
myndinni. Má þar nefna Joan
Cusack, Hector Elizondo, Rita Wil-
son og Paul Dooley. Leikstjóranum
Garry Marshall hafa verið frekar
mislagðar hendur síðan hann leik-
stýrði Pretty Woman sem er hans
langþekktasta kvikmynd. Stutt er
síðan sýnd var hér á landi The
Other Sister sem hann leikstýrði,
mislukkuð kvikmynd sem átti góða
spretti en var engan veginn í sama
gæðaflokki og Pretty Woman. Ekki
var sú kvikmynd sem hann gerði
þar á undan, Dear God, betur
heppnuð. Hann á þó að baki ágæt-
ar kvikmyndir á borð við Frankie
& Johnnie (leikritið sýnt í Iðnó um
þessar mundir), Nothing in Comm-
on og Overboard. Auk þess að leik-
stýra kvikmyndum hefur Garry
Marshall átt mikilli velgengni að
fagna sem framleiðandi sjónvarps-
þátta og meðal vinsælla þáttaraða
sem hann hefur komið af stað má
nefna Happy Days, The Odd
Couple, Mork and Mindy og
Murphy Brown. Systir hans Penny
Marshall er einnig kvikmyndaleik-
stjóri (Big, Awakenings).
Runaway Bride verður frumsýnd
í dag í Bíóhöllinni, Kringlubíói,
Stjörnubíói, Nýja bíói, Keflavík, og
Borgarbíói á Akureyri. -HK
bíódómur
Háskólabíó — Bowfinger ★★★
Ráð undir rifi hverju
Bowfinger er kostuleg kómedía
um örþrifaráð sem einbeittir menn
grípa til á válegum tímum. Það er
vel við hæfi að sögusviðið sé í
heimi kvikmyndanna enda margt
þar um ráðagóðan manninn sem er
staðráðinn í að láta drauma sína
rætast. Og í þessari mynd er sam-
ankominn þvílíkur hópur minni-
pokamanna með stóra drauma að
Ed Wood hlýtur að tárast af gleði
og samkennd á himnum. Hvílík úr-
ræði! Hvílík dirfska!
Bowfinger (Martin) er lánlaus
framleiðandi í Hollywood og kemur
höndum yfir handrit sem hann telur
stórbrotna snilld. Stórlátur stúdíó-
mógúll heitir honum því að fram-
leiða myndina ef Bowfinger útvegar
helstu hasarstjörnu bæjarins, Kit
Ramsey (Murphy) í pródúktið. Bowf-
inger guðar á glugga stjörnunnar en
er vægast sagt fálega tekið. Þá fær
hann þá guðlegu vitrun að myndin
skuli gerð - með Kit í aðalhlutverk-
inu - án þess að hann hafi hugmynd
um það! Ekki skaðar að Kit er fullur
af ímyndunarveiki og tilbúinn að
trúa næstum hvaða vitleysu sem er.
Því verður ekki svo erfitt að sann-
færa hann um hinn langsótta heim
myndarinnar sem hann er óafvit-
andi að leika aðalhlutverkið í, enda
flídlar hún um geimverur sem falla
til jarðar í regndropum og hyggjast
leggja undir sig jörðina.
Allir Dogma-drengir hljóta að
beygja sig í duftið og játa sig sigr-
aða gagnvart snilld Bowfingers
sem gengur miklu lengra en bara
að filma raunsætt - hann myndar
raunveruleikann sjálfan en samt
algerlega á eigin forsendum.
Sér til aðstoðar hefur hann un-
aðslegan hóp af draumóramönnum
sem eru reiðubúnir að kasta sér
fyrir björg í þágu frægðarsólarinn-
ar. Þama er Carol, miðaldra leik-
kona sem aldrei hefur fengið að
láta ljós sitt skína fyrr en nú; Af-
rim, endurskoðandablók sem telur
sig hafa höndlað ameríska draum-
inn með handriti sínu; Daisy, ung
og saklaus stúlka úr sveitinni sem
ætlar að gefa Hollywood séns í
viku til að meikaða, og siðast en
ekki síst Jiff, dáðlaus drengstauli
sem samþykkir að taka að sér að
vera staðgengill Kits og sækja kaff-
ið. Jiff er ráðinn vegna þess að
hann líkist Kit ótrúlega í útliti
þrátt fyrir að vera eins ólíkur hon-
um í fasi og hugsast getur. .
Martin skrifar handritið að þess-
ari mynd og hefur áður sýnt að
hann kann vel til verka á því sviði,
t.d. með L.A. Story sem hann sendi
frá sér fyrir nokkrum árum. Bowf-
inger hefur þessa sömu blöndu af
ískrandi húmor og hlýju, við finn-
um að Martin þykir vænt um þetta
fólk og það gefur öllum vitleysis-
ganginum dýpt. Og leikstjórinn Oz,
sá gamli Prúðumeistari (hann er
rödd Svínku í Prúðuleikurunum),
heldur sérlega vel utan um leikara-
hópinn og passar að enginn fari
yfir strikið sem er einmitt svo mik-
ilvægt þegar atburðirnir eru farsa-
kenndir. Meira að segja Eddie
Murphy, sem vart hefur átt góðan
dag síðan á níunda áratugnum, er
hér í fínu formi. Og þegar Eddie er
í stuði er alltaf gaman.
Leikstjóri; Frank Oz. Handrit: Steve
Martin. Kvikmyndataka: Ueli Steiger.
Tónlist: David Newman. Aöalhlutverk:
Steve Martin, Eddie Murphy, Heather
Graham, Terence Stamp.
Ásgrímur Sverrisson
14
f Ó k U S 29. október 1999