Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.1999, Side 15
Háskólabíó.fi
ithony Hopki
í tveimuii mÖ
ina Instinct þar sem
ll í
ásakaður er um morð
aoa í Rúanda
Mannfræöingur-
inn og sálfræöing-
urinn. Anthony
Hopkins og Cuba
Gooding jr. í hlut-
verkum sínum.
Anthony Hopkins i hlutverki
Ethans Powels sem hneppt-
ur hefur veriö í fangelsi,
ásakaöur um tvöfalt morö.
Þegar mannfræðingurinn og dýra-
fræðingurinn Ethan Powell (Ant-
hony Hopkins) er Quttur til Banda-
ríkjanna frá Rúanda í hlekkjum tek-
ur hann með sér leyndarmál sem
sálfræðingar á vegum saksóknara
reyna að leysa, en Powell hafði orð-
ið tveimur mönnum að bana sem
höfðu fundið hann í ffumskóginum
þar sem hann lifði meðal górilluapa.
Hans hafði verið saknað í fimm ár
og í jafnmörg ár hefur hann ekki
sagt aukatekið orð. Það er verksvið
hins nýútskrifaða sálfræðings Theo
Caulders (Cuba Gooding jr.) að kom-
ast til botns í málinu ásamt öðrum
sálfræðingi Ben Hillard (Donald
Sutherland) sem leiðbeinir honum.
Powell er haldið í einangrun og
Caulders, sem er metnaðargjarn sál-
fræðingur og telur að þetta mál
verði honum til góða á framabraut-
inni, kemst fljótt að því að engar
venjulegar aðferðir duga á Powell,
hann segir ekki eitt einasta orð. I ör-
væntingu sinni leitar hann til dóttur
Powells, Lyn (Maui'a Tiemey), sem
segir honum ýmislegt um foður
sinn og hvernig hún í mörg ár hef-
ur reynt að nálgast hann. Með sögu
hennar að leiðarljósi nær Caulders
smám saman sambandi við Powells
og á milli þeirra skapast spenna
sem ekki verður séð fyrir endann á
fyrr en allur sannleikurinn er kom-
inn í ljós.
Leikstjóri Instinct er Jon Tur-
teltaub sem sló í gegn með While
You Were Sleeping og fylgdi henni
eftir með Phenomenon. Áður hafði
hann leikstýrt 3 Ninjas og gaman-
myndinni Cool Runnings. Meðal
framtíðarverkefna Turteltaub er
endurgerð hinnar vinsælu japönsku
kvikmyndar Shall We Dance, með
Tom Hanks í aöalhlutverki. Tökur á
henni hefjast næsta haust.
-HK
Sean Penn leikur aöalhlutverkið í
The Weight of Water sem Karl
Júlíusson hannar leikmynd viö.
Kart Júlíusson
hannar
leikmynd í
Hollywood
Um miöjan september hófust tökur á stór-
myndinni The Weight of Water sem Karthryn
Bigelow (Point Break, Strange Days) stjórnar.
í aöalhlutverkum eru Sean Penn, Sarah
Polley, Elizabeth Hurley og Catherine McCor-
mack. Er myndin gerð eftir skáldsögu eftir
Anita Shreve sem kom út fyrir tveimur árum
og hefur fengið mikiö lof. Byggir hún sögu
sina á sönnum atburðum sem gerðust árið
1873 þegar tveir innflytjendur frá Skandinav-
íu voru myrtir á hrottalegan hátt. Gerist sag-
an bæði í nútímanum og fortíðinni og segir
frá ferð hjóna til eyjarinnar þar sem atburðirn-
ir gerðust. Eiginkonan er Ijósmyndari sem
hefur ákveðið að rifja upp atburöina í Ijós-
myndum. Um leiö og ferð hjónanna tekur á
sig óvænta mynd eru atburðirnir rifjaðir upp I
gegnum dagbók stúlku einnar sem var sú
eina sem liföi atburðina. Þaö sem vekur at-
hygli okkar íslendinga á þessari kvikmynd er
aö tveir tslendingar eru í leiðandi hlutverkum
við gerð hennar. Sigurjón Sighvatsson er einn
framleiðenda myndarinnar og Karl Júlíusson
hannar leikmynd en vegur hans á alþjóða-
mælikvarða hefur vaxið mikið undanfarin
misseri í kjölfar Breaking the Waves. Þess
má svo geta að kvikmyndatökumaður er Adri-
an Biddle sem meöal annars stjórnaði kvik-
myndatöku á Thelma and Louis og Aliens.
_________________________W
bíódómur
Sam-bíóin —
South Park ★ ★
Halty kjafli,
frændaseréirl
Þeir félagar Matt Stone og
Trey Parker upplifðu ameríska
drauminn þegar hugarfóstur
þeirra, South Park-þættimir,
uröu voða vinsælir fyrir
nokkrum árum og lentu meira
að segja á litlu Sýn. Núna eru f
þeir búnir að búa til kvik- '
mynd i fullri lengd um skíta-
blesa-sveitalubbabæinn
South Park. Myndin er hálf-
gerð söngvateiknimynd, en
samt ekki. Hún er saman-
suða af hinu og þessu, algjör vit-
leysa. Flestir söngvanna eru skop-
stæling á gömlum Disney-lögum
(Satan=Litla hafmeyjan), Broadway-
söngvum (Unclefucker) og þar fram
eftir götunum.
Myndin íjallar, eins og þættimir,
um þá félaga Stan, Kenny, Cartman
og alla hina sveitalubbana í South
Park. í kvikmyndahúsi bæjarins er
frumsýnd mynd með uppáhalds-
stjörnum strákanna, Kanadamönn-
unum Terrence og Phillip. Sú mynd
skartar miklum og litskrúðugum
blótsyrðúm og prumpuhúmor sem
krakkamir í bænum nota óspart. í
kjölfarið veröur allt vitlaust og for-
eldramir ákveða að kenna Kanada
um og stofna samtök á móti Kanada.
Þessi samtök breiðast síðan út um
allt land og Bandaríkjamenn ákveða
að aflífa Terrence og Phillip. Ein-
hvers staðar í miöjunni á öllu þessu
fíaskói drepst Kenny (eins og í hverj-
um þætti) og fer til helvítis. Þar hitt-
ir hann fyrir Satan sjálfan og rekkju-
naut hans, Saddam Hussein. Sam-
band þeirra er að mestu leyti byggt á
rúmfórum en það fer mjög í taugarn-
ar á Satan, sem vill fá eitthvað meira
út úr því. Þeir hlakka yfir aflífun
Terrence og Phillip, þar sem blóð
þeirra á bandarískri jörð er sjöunda
innsiglið sem hleypir af stað
Ragnarökum. Þeir einu sem geta
forðað heiminum frá satanískum yf-
irráðum em Stan og félagar sem
stofna til þess La Resistance.
Stone og Parker geröu myndina
Orgazmo fyrir skömmu og lentu þá í
miklum deilum við Kvikmyndaeftir-
litið í BNA sem gaf myndinni NC-17
stimpil (algjör bani). Ástæðan fyrir
þessum stranga stimpli var nektin í
myndinni. í því samhengi er fyndið
að sjá að South Park-myndin fékk R-
stimpil hjá eftirlitinu, þar sem þeir
fara algjörlega yfir strikið með blóts-
yrðum og rassaskap.
Þeir skióta fast á eftirlitið og
Bandaríkin og gera það ágætlega.
Ekki er farið leynt með skoðanir
þeirra á því að klámfengið efni er
tabú meðan ofbeldið lifir. Myndin er
uppfull af fyndnum augnablikum,
orðbragði og aðstæðum. Til dæmis
var Saddam mjög fyndinn, Bill Gates
skotinn, Baldwin-bræður sprengdir
upp og mamma Cartman lék í þýskri
scheise-mynd. En South Park er
langt frá því að vera gallalaus. Það er
allt of augljóst að verið var að berjast
við að ná að halda myndinni út í 90
mín. og eru mörg atriðin því leiðin-
leg og óþörf. Flesta söngvana hefði
mátt stytta um helming, maður var
farinn að iða í sætinu yfir þessum
lengstu. Annars var myndin hin
ágætasta skemmtun og fin tilbreyt-
ing frá truflaðri tilverunni.
Halldór V. Sveinsson*
28.-3 1 . OKTÓBER
föstudagur
LIK A Á SUNNUDÖGUM laugardagur
sunnudagur
GERÐU
GÆÐAKAUP!
Njóttu þess að koma í Kringluna,
skoða glæsilegar vetrarvörur og
gæða þér ó girnilegum réttum
í nýju og endurbættu umhverfi
Kringlunnar.
Fylgstu vel með
Sérkjörunum!
Nokkrar verslanir og (DjónustuaSilar
veita dag hvern 15% viðbótarafslótt
af sérvaldri vöru eöa þjónustu
ofan ó Kringlukastsafslóttinn.
í dag:
GALLABUXNABÚÐIN
FBI / DÝRLINGARNIR
NYJAR VORUR
með sérstökum afslætti
20%-50%
KyU\Ci\&J\
PflR 5 E M^rH J R R T fl B 51 í fl
29. október 1999 f Ó k U S
15
r