Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.1999, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.1999, Blaðsíða 2
24 MÁNUDAGUR 1. NÓVEMBER 1999 Sport DV Bland i poka Guömundur Benediktsson lék meö varallöi Geel þeg- ar það sigraði Beveren, 2-1, á föstudagskvöldið. Leikurinn hófst aðeins fjórum timum eftir að Guömundur kom til Befgíu en KR leigði hann sem kunnugt er til Geel út tímabilið. Hann má byrja að spila með aðalliðinu um næstu helgi. Þýska handknattleiksliöiö Wupper- tal hefur fengið homamanninn Tim Bauer lánaðan frá B-deildarliði Sol- ingen. Hann á að fylla skarð Valdi- mars Grimssonar sem er frá vegna meiðsla. Wuppertal á í miklum vand- ræðum því fimm fastamenn eru meiddir, þar á meðal Valdimar og Dagur Sigurðsson. Ole Andersen, 42 ára Dani, hefur ver- ið ráðinn þjálfari þýska handknatt- leiksliðsins Willstátt, sem Gústaf Bjarnason og Magnús Sigurósson leika með. Hann tekur við af Hrovje Horvat, sem hætti störfum á dögun- um, en Willstatt situr á botni A-deild- arinnar, án stiga. „Mér gengur alveg þokkalega, betur og betur með hverjum leik,“ sagði grindvíski landsliðsmaðurinn Páll Axel Vilbergsson, sem leikur með Fleron frá Liege í belgisku B-deild- inni í körfuknattleik. Fleron hefur leikið 6 leiki i deildinni, unnið fjóra og er í 4. sæti deildarinnar. Páll Axel skoraði 19 stig í síðasta leik, þar af sex 3ja stiga körfur, en hefur að meðaltali verið með um 14 stig. „Við stefnum á að komast í fjög- urra liða úrslitakeppnina og útlitið er ágætt eins og er,“ sagði Páll Axel. Phil Jackson, hinn nýi þjálfari Los Angeles Lakers i NBA-deildinni í körfubolta, hefur gefist upp á til- raunum sinum til að fá sinn gamla félaga frá Chic- ago Bulls, Mich- ael Jordan (til vinstri), til að taka fram skóna að nýju. Latrell Sprewell körfuboltamaður hefur skrifaö undir nýjan 5 ára samn- ing við New York Knicks, að verð- mæti um 4,2 milljaröar króna. Zydrunas Ilgauskas, körfubolta- maöurinn snjalli frá Litháen sem leikur með Cleveland, missir af tveimur fyrstu mánuðum timabilsins í NBA vegna meiðsla á fæti. Jokerit varö um helgina finnskur bikarmeistari í knattspyrnu þegar liðiö lagði HJK Helsinki í úrslitaleik í Helsinki, 2-1. Svissneska stúlkan Sonja Nef sigraði á fyrsta heimbikarmóti kvenna á skíðum sem fram fór i Tignes i Frakklandi á laugardaginn. Keppt var í stórsvigi. Anna Ottosson frá Svfþjóð kom önnur í mark og Anita Wachter frá Austurríki hafnaði í þriöja sæti. Jóhannes Ólafs- son tilkynnti á lokahófi knatt- spymudeildar iBV um helgina að hann væri hættur for- mennsku í deild- inni en hann hef- ur gegnt henni í tíu ár og setið i stjórn samfellt frá 1987. Tryggvi Ge- orgsson, sem hefur setið jafnlengi í stjóminni, er sömuleiðis hættur. Birkir Kristinsson var valinn leik- maður ársins hjá karlaliði ÍBV í loka- hófinu og ívar Ingimarsson sá efni- legasti. Hjá kvennaliði ÍBV var Sig- ríður Ása Friðriksdóttir valin best og Lind Hrafnsdóttir efnilegust. Birkir þurfti að sækja boltann fimm sinnum í markið hjá sér á laugardag- inn. Lið hans, Lustenau, tapaði þá, 5-1, fyrir Sturm Graz í austurrísku A- deildinni í knattspymu oq er áfram í næstneðsta sætinu. Birkir hefur enn ekki gefið Eyjamönnum endanlegt svar en þeir hafa pressað hann stift að undanförnu í von um að hann hætti við að hætta hjá þeim. Skotinn David Winnie sem leikið hefur með KR-ingum í úrvalsdeild- inni í knattspyrnu síðustu tvö árin er kominn á fullt með ástralska A-deild- arliðinu Canberra Cosmos. Um helg- ina gerði liðið jafntefli gegn Perth, 1-1. Eftir fimm umferöir er Canberra í 6. sæti af 16 liðum með 7 stig en Brisbane er efst með 13 stig. Atli tekur viö - væntanlega ráðinn þjálfari landsliðsins í knattspyrnu í dag árum síðar, 1994. Þá hafði hann leikið í tiu ár erlendis, með Dort- mund, Dusseldorf og Uerdingen í Þýska- landi og með Gencler- birligi í Tyrklandi. Atli lék í fjögur ár með KR, 1990 til 1993, en fór síðan út í þjálfun. Atli lék með landsliðinu um langt árabil, spil- aði samtals 70 lands- leiki sem var met í nokkur ár. Atli Eðvaldsson verður ráðinn landsliðsþjáifari íslands í knatt- spymu í dag. Það er nánast forms- atriði eftir að Guðjón Þórðarson til- kynnti formlega í gær að hann myndi láta af störfum en samning- ur hans rann einmitt út í gær. Eggert Magnússon, formaður KSÍ, sagði við DV í gær að eftir væri að fara yfir kaup og kjör með Atla en þeir ræddu saman síðdegis í gær og búast má við að málið komist endanlega á hreint i dag. Atli hefur þjálfað KR-inga und- anfarin tvö ár en hefur stýrt 21-árs landsliði ísland síðustu fjögur ár. Það hefur legið ljóst fyrir í nokkum tíma að hann yrði eftir- maður Guðjóns, ef samningar næð- ust, og þar sem gagn- kvæmur áhugi er fyrir hendi getur niðurstað- an tæpast orðið nema á einn veg. Langur ferill sem leikmaður og þjálfari Atli Eðvaldsson er 42 ára og á langan feril að baki sem leikmaður og þjálfari. Hann hóf að leika með Val 17 ára gamall, árið 1974, og lauk ferlinum sem leikmaður með HK 20 Hann þjálfaði HK 1994, ÍBV 1995 og 1996, Fylki 1997 og hefur siðan stýrt KR undanfarin tvö ár. Undir hans sijórn varð KR íslandsmeist- ari í ár, í fyrsta skipti í 31 ár, og varð jafnframt bikarmeistari. Atli tekur viö landsliðinu í góðri stöðu, þeirri bestu í sögu þess, en árangur þess í nýlokinni Evrópu- keppni var glæsilegur. Það fer hins vegar ekki á milli mála að það verður á margan hátt erfitt að taka við liðinu af Guðjóni Þórðarsyni. Bæði verður erflðara að bæta nú- verandi stöðu en að ná henni, og síðan verður samanburðurinn við fyrrverandi þjálfara alltaf fyrir hendi, ekki síst ef á móti blæs. -VS Kveðju stund Það fór vel á með Eggerti Magnússyni og Guðjóni Þórðarsyni þegar þeir þökkuðu hvor öðrum fyrir samstarfið í gær. DV-mynd E.ÓI. Eggert Magnússon: „Guðjón fýrsti kostur“ „Guðjón Þórðarson var alltaf okk- ar fyrsti kostur þegar litið var til starfs landsliðsþjálfara. Það er alveg ljóst að ef til þess hefði komið að hann væri tilbúinn að halda áfram, hefðum við náð saman í launamál- um,“ sagði Eggert Magnússon, for- maður KSÍ, í gær þegar ákvörðun Guðjóns um að hætta meö landslið- ið var tilkynnt. „Ég hef vitað lengi að það væri metnaður Guðjóns að komast að í þjálfun erlendis, og ég lít á það sem styrk fyrir islenska knattspymu að eignast toppþjálfara hjá erlendu liði. Þrátt fyrir að annað hafi verið sagt, hefur samstarf okkar Guðjóns verði mjög gott, við emm báðir skapmenn og höfum eflaust ein- hvern tíma sagt hvor öömm til syndanna þegar við hefur átt.“ Tekur aftur við landsliðinu síðar „Það var mikið lán fyrir íslenska knattspymu að fá Guðjón til starfa á erfiðum tíma, það var nokkuð fjaðrafok um þá hluti, en hann hef- ur lyft okkur um nokkra stalla á tveimur ánun. Guðjón er ungur maður, aðeins 44 ára, og ég er hand- viss um að hann á eftir að taka ein- hvem tíma aftur við íslenska lands- liðinu,“ sagði Eggert Magnússon. -VS Guðjón Þórðarson á leið út í óvissuna en: Stoke líklegast Guðjón Þórðarson kvaddi starf landsliðsþjálfara í gær, á síðasta degi samnings síns við KSÍ, og gerði það á formlegan hátt í höfuðstöðv- um knattspymusambandsins á Laugardalsvelli. Þar með er lokið farsælum 27 mánaða ferli Guðjóns með landsliö- ið en á þeim tíma hefur það hækk- að um 40 sæti á heimslista knatt- spyrnunnar og náði lengra en nokk- ur bjóst við í erfiðasta riðlinum í undankeppni Evrópumóts landsliða. Guðjón sagði í gær að nú héldi hann út í óvissuna, hann vissi ekki hvað biði sín þegar hann gengi út úr húsakynnum KSÍ. En óvissan er þó ekki meiri en svo að fullvíst má telja að hann taki við stjómartaum- unum hjá Stoke í Englandi innan skamms. Jafnvel síðar í þessari viku, ef endurvaktar viðræður ís- lensku fjárfestanna margumtöluðu og stjómar Stoke, sem fóm í fullan gang á ný á laugardag, leiða til þess að þeir kaupi meirihluta í félaginu. Malmö hefur áhuga Eggert Magnússon, formaður KSÍ, sagði í gær að hann vissi af því að Malmö í Svíþjóð hefði áhuga á Guð- jóni og þá em nokkur norsk lið með allt opið í sínum málum. „Ég stend á tímamótum og fyrir mig var að hrökkva eða stökkva, og ég ákvað að stökkva. Það var að sjálfsögðu freistandi að halda áfram með landsliðið, þar sem ég á stuttan en farsælan feril að baki, en það hefði verið ósanngjamt af mér að taka því og yfirgefa það síðan í miðri keppni þegar eitthvað annað byðist. Af landsliðinu sem slíku hef ég ekki stórar áhyggjur, þar á að vera hægt að halda áfram af sama krafti. Þar er komin mjög góð umgjörð og ég vona að KSÍ njóti sem lengst þeirra Guðmundar R. Jónssonar, Sigurjóns Sigurðssonar, Stefáns Stefánssonar og Ásgeirs Sigurvins- sonar sem störfuðu frábærlega með mér. Framtíðin verður að skera úr um hvort þessi ákvörðun hjá mér var rétt eða ekki en ég hef íhugað málið mjög vel. Það er ekki létt verk að rífa upp Stoke, eða eitthvert ann- að lið, og gera það að alvöruliði, en ég vil glíma við það sem er erfitt, hef gaman af allri áskomn þó ég þurfí að stökkva í gin ljónsins til þess. Ég vil sækja lengra og tel aö ég geti kennt margt, hvort sem er í Englandi eða á Norðurlöndum. Fót- boltinn er einfaldur leikur þrátt fyrir áráttu sumra að gera hann of ílókinn," sagði Guðjón Þórðarson í gær. -VS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.