Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.1999, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.1999, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 1999 Fréttir Hestaskólinn á Ingólfshvoli, dýrasti skóli landsins, i uppnámi: Skólastjórann burt - úr kennslu, var krafan. Flestir erlendu nemendanna ætluöu heim Dýrasti skóli landsins, Hestaskól- inn á Ingólfshvoli, hefur verið óstarfhæfur það sem af er vikunni. Stafar það af óánægju þorra nem- enda með kennsluaðferðir skóla- stjórans, Hafliða Halldórssonar. Einnig telja nemendur ekki hafa verið staðið við allt það sem þeim hafði verið heitið. Eftir mikil funda- höld forráðamanna skólans með nemendum í gær náðist samkomu- lag þess efnis að þeir þurfa ekki að sækja tíma hjá Hafliða nema þeir óski þess sérstaklega. Freyja Hilm- arsdóttir og Olil Amble munu taka að sér kennsluna í skólanum ef um semst. Fimmtán nemendur hófu nám á því námskeiði sem nú stendur yflr, þar af ellefu útlendingar. Fyrir 10 vikna námskeið greiða þeir á milli 4 og 500 þúsund krónur. Fljótlega fór að bera á óánægju meðal nemend- anna sem hefur stigmagnast. í fyrradag funduðu nemendur vegna málsins. Gærdagurinn fór allur í fundahöld. Krafan var m.a. að skóla- stjórinn hætti kennslu. Einn erlendu nemendanna sagði við DV að þeir væru ósáttir við ýmislegt varðandi kennslu í skól- anum. Þeim hefði verið lofað ýmsu sem ekki hefði verið staðið við. Þeim hefði t.d. verið lofað að þeir fengju keppnishesta. Við það hefði ekki verið staðið í öllum tilvikum. Þá væri óánægja með kennsluna, ekki einungis meðal erlendu nem- endanna, heldur einnig einhverra hinna íslensku. Þeir væru ósáttir við kennsluaðferðir Hafliða Hall- dórssonar skólastjóra sem hefur verið aðalkennari skólans. Sjö af erlendu nemendunum ætluðu að hætta í skólanum ef hlutirnir gengju ekki upp og fara heim, þrátt fyrir að aðeins fjórar vikur af tíu vikna námskeiði væru liðn- ar. Námsgjaldið fengist endur- greitt. Örn Karlsson, stjórnarmaður hestaskólans, staðfesti við DV að skipt hefði verið um kennara við skólann, vandinn hefði verið leyst- ur og sátt ríkti í skólanum. -JSS íslensk, 15 ára ljósmyndafyrirsæta vekur athygli erlendis: Tók Ítalíu með trompi - tvisvar á forsíðu ítalska tískutímaritsins Grazia „Ferðalögin heilla mig, til dæmis ferðir til Indlands og annarra fram- andi landa. Ég á örugglega eftir að búa einhvem tíma erlendis," segir Edda Björk Pétursdóttir, 15 ára fyrir- sæta, sem hefur hreinlega slegið í gegn á Ítalíu. í tveimur nýjum tölu- blöðum hins virta ítalska tískutíma- Sýnishorn af myndum sem birtust af Eddu Björk í Grazia, mörg andlit - flott fyrirsæta. rits Grazia, sem gefið er út i Mílanó, hefur hún verið forsíðufyrirsæta. Upphafið að þessu ítalska ævintýri hófst í sumar. Edda Björk dvaldi þá í heUan mánuð í New York ásamt mömmu sinni, Guðrúnu Örnu Guð- jónsdóttur. Þar var hún á vegum fyr- irsætuskrifstofunnar Metropolitan, Vísir.is: Yfir 1000 skráningar „Viðtökumar hafa farið fram úr björtustu vonum,“ sygir Þorvaldur Jacobsen, framkvæmdastjóri Vís- is.is, en Vísir.is hóf í gær að bjóða gestum sinum upp á ókeypis tölvu- póst þar sem hver fær sitt eigið netfang á Vísi.is. „Á þessum fyrsta degi í gær fengum við yfir 1000 skráningar." „Þjónustan er öU á is- lensku þannig að þetta auðveldar mjög aðgang fyrir íslendinga og er mun þægilegra en sambærUeg er- lend þjónusta. Fólk getur nálgast tölvupóstinn hvaðan sem er i ver- öldinni", segir Þorvaldur. -hdm Edda Björk Pétursdóttir, aðeins 15 ára, hefur verið tvisvar á forsíðu ítalska tískutímaritsins Grazia. Auk jjess hafa verið myndasyrpur af henni inni í blöðunum. DV-myndir Teitur sem er í samstarfi við Eskimo Models. Ljósmyndari frá Grazia hafði uppi á Eddu Björk fyrir miUigöngu Metropolitan. Hann tók af henni myndasyrpu á Long Island. Hann spurði síðan hvort möguleiki væri á að hún kæmist í myndatökur í London. Hún fór í viku og afrakstur- inn er glæsUegur, eins og áður sagði, forsíðumyndir af henni á september- og nóvemberhefti Grazia, auk margra mynda inni í blöðunum. Edda Björk er í 10. bekk í Garða- skóla. Hún fer líklega aftur tU New York næsta sumar þegar hún er búin í skólanum. Mamma hennar fer þá með henni. Svo býst hún við að leiðin liggi fljótlega í mennta- skóla. „Fyrirsætustarfið getur stundum verið erfitt, mikið álag. Maður þarf að vera þolinmóður," segir hún. „Ég get hugsað mér að starfa við það til tvítugs, en ekki lengur. í framtíð- inni langar mig í ljósmyndun, helst í tískubransanum. Mig langar að gera þetta eitthvað öðruvísi, á list- rænan hátt,“ Aðspurð hvort hún verði ekki moldrík á fyrirsætustörfum fyrir frægt blað eins og Grazia, segir Edda Björk að blöðin borgi ekki svo ýkja mikið. Sjónvarpsauglýsingar gefi t.d. meira. „En það er auðvitað mikiU peningur í þessum bransa ef manni gengur vel,“ segir hún. -JSS Bæjarstjórinn á nektarbúllu - fyrir 34 árum og mislíkaði „Við sendum Úrskurðarnefnd áfengismála svör okkar varðandi nektardansinn í Casínó í dag og í kjölfarið ætti úr- skurður hennar að liggja fyrir,“ sagði EUert Ei- ríksson, bæjar- stjóri í Reykja- nesbæ, rnn defluna sem staðið hef- ur í bæjarstjórn um hvort leyfa eigi veitingamanninum í Casínó við smábátahöfnina að reka nekt- ardansstað. „Maðurinn hefur leyfi frá okkur til að selja áfengi og hafa opið frá klukkan 9 á morgnana og fram til 1 á nætumar aUa daga vikunnar svo ég veit ekki hvað hann er að kvarta. Sjálfur fór ég á nektarbúUu í St. Paul í Minnesota 1965 og þótti lítið til koma. Reyndar fannst mér sýningin sú vera öllum þeim sem að henni stóðu tU vansa,“ sagði EU- ert bæjarstjóri. Eiginkona bæjarstjórans, Guð- björg Ágústa Sigurðardóttir, hefur verið fremst í flokki þeirra kvenna sem mótmælt hafa fyrir- huguðum nektardanstað við smátabátahöfnina í Reykjanesbæ og hefur afhent eiginmanni sínum og bæjarstjóra mótmælalista vegna þessa. „Konan mín missti ekki sjálf- stæðan rétt tU að hafa skoðanir þegar hún giftist mér og því má hún mótmæla því sem hún viU. -EIR Ellert Eiríksson. Stuttar fréttir r>v Selt inn á Þingvelli Opinber nefnd kannar leiðir til að innheimta aðgangseyri að friðlýstum svæðum. Gert er ráð fyrir því í frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2000 að slík innheimta skUi 15 mUljónum króna 1 tekjur. For- maður nefndarinnar, Magnús Oddsson ferðamálastjóri, hefur efasemdir. Dagur sagði frá. Undrandi frumkvöðull Pétur Þorsteinsson, fyrrver- andi skólastjóri Grunnskólans á Kópaskeri og frumkvöðull að ís- lenska menntanetinu, segist undr- ast mjög það metnaðarleysi hjá ríkinu að áforma að selja mennta- netið einkaaðUum. Hann telur að áformuð einkavæðing mennta- netsins sé endahnúturinn á margra ára niðurlægingu þess hjá ríkinu. Dagur sagði frá. SAS skellir í lás Söluskrifstofa SAS-flugfélags- ins á íslandi, sem starfrækt hefur verið í Reykjavík í þrjátíu ár, verður lögð niður frá og með næstu áramótum og munu Flug- leiðir taka við hlutverki hennar fyrir SAS. 15 til Nígeríu Á miðvikudag hefst íslensk kaupstefna i borginni Aba í Ní- geríu. Það er Fiskmiðlun Norður- lands á Dalvík í samvinnu við ut- anrikisráðuneytið sem stendur fyrir kaupstefnunni en þátt í henni taka af íslands hálfu ýmis íslensk fyrirtæki á sviöi sjávarút- vegs og flutningaþjónustu, auk fulltrúa frá utanríkisráðuneytinu. Alls fer 15 manna hópur frá ís- landi í Nígeríuferðina. Dagur sagði frá. Stripp í sérflokki Sturla Böðvarsson samgöngu- ráðherra telur að áhrifarikasta leiðin til að koma böndum á rekstur nektar- dansstaða sé endurskoðun á flokkun og skil- greiningu veit- ingahúsa. Hann telur rétt aö sér- stakt tillit verði tekið til kráa, kaffihúsa og næturklúbba, Eró- tískir dansstaöir yrðu þá flokkað- ir með næturklúbbum og gefa þyrfti út sérstök starfsleyfi þeim til handa. Vísir. is sagði frá. Síðasta jólaútkall í skip Síðasti frestur til að senda jóla- pakka í sjópósti til landa utan Evr- ópu og Bandaríkjanna rann út sl. fóstudag. Þeir sem ætla að senda jólapakka sjóleiðis til Bandaríkj- anna eru einnig að verða of seinir því til að þeir komist örugglega til skila þurftu þeir aö fara af stað sl. mánudag. Mbl. sagði frá. ítarleg jól á Akureyri Akureyri verður áfram jólabær og Miðbæjarsamtök Akureyrar hafa ráðið starfsmann til að halda utan um jólabæinn. Miðbæjar- samtökin og fleiri vinna að hug- myndum um upplyftingu miðbæj- arins síðustu vikurnar fyrir jól. Þó eru menn sammála um að ekki muni verða annað Norðurpólsæv- intýri og kostnaöur minni nú en í fyrra. Dagur sagði frá. Óbreytt verft á áburði Haraldur Haraldsson, stjómar- formaður Áburðarverk- smiðjunnar, segir að þrátt fyrir mikinn hallarekstur þegar verk- smiðjan hafi verið keypt hafi nýjum eigendum tekist að taka svo mikið tfl í rekstrinum að komið hafi verið í veg fyrir ann- ars verulega hækkun á áburðar- verði. -GAR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.