Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.1999, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.1999, Page 6
6 MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 1999 Viðskipti i>v Þetta helst: Lítil viðskipti á VÞÍ, aðeins 361 m.kr. ... Mest með hlutabréf, 174 m.kr. ... Þar af íslandsbanki 81 m.kr. en óbreyttgengi ... Samvinnusjóðurinn hækkaði um 9,2% í 15 m.kr. viðskiptum ... Baugur hækkað um 2,9%. ... íslenska járnblendifélagið lækkaði um 3,4% í 16 m.kr. viðskiptum ... Úrvalsvísitalan lítt breytt, er nú 1.395,6 stig ... Efnahagsstefna ríkisstjórnarinnar: 73% stjórnenda ánægð í könnun sem Gallup hefur gert meðal stjómenda fyrirtækja fyrir Viðskiptablaðið kemur fram að 14% stjómenda eru mjög sátt við efna- hagsstefnu rikisstjórnarinnar og 59% frekar sátt. Þetta kom fram í Viðskiptablaðinu í morgun. Samtals eru 73% stjómenda sátt við stefn- una. Þessi könnun hefur verið gerð tvisvar á ári fyrir Viðskiptablaðið og var síðast gerð stuttu fyrir kosn- ingar í apríl sl. Það vekur mikla at- hygli að stuðningur hefur minnkað verulega síðan þá. í apríl var heild- arstuðningur við efnahagsstefnuna 83% og hefur því minnkað verulega. Könnunin er gerð meðal stjóm- enda 600 fyrirtækja af ýmsum stærðum og gerðum um allt land og - stuðningur minnkar frá fyrri könnun enda eftir stærð, stað- setningu eða veltu fyrir- tækja. Þó þarf fyrir- tæki að upp- fylla ákveðna lágmarks- stærð. Versnandi efnahags- Svo viröist sem stuöningur viö efnahagsstefnu ríkisstjórnar- horfur innar fari minnkandi, sennilega vegna versnandi efnahags- horfa. Það er greini' legtafþessari var nettósvörun 82,7%. Ekki mælist könnun að stuðningur hefur minnk- marktækur munur á svörum stjóm- að og mun fleiri eru ósáttir við stefnu stjórnarinnar. Frá apríl hef- ur staða efnahagsmála versnað nokkuð því verðbólga hefur aukist verulega og vextir hækkað. Líklegt verður að teljast að það sé ástæða fyrir minnkandi stuðningi. Þrátt fyrir þessa minnkun er ljóst að stjórnin nýtur yfirgnæfandi stuðn- ings meðal þeirra sem stjóma fyrir- tækjum um þessar mundir. Október Apríl Breyting Mjög sáttur 14% 31% -17% Frekar sáttur 59% 52% 7% Hvorki/né 15% 13% 2% Frekar ósáttur 10% 3% 7% Mjög ósáttur 2% 1% 1% Íslandssími og Landssíminn semja um samtengingar Frá undirritun samnings Íslandssíma og Landssímans. Háskóii íslands. Hlutafélag um rekstur tækni- háskóla Samtök iönaðarins hafa undan- famar vikur átt í viðræðum við nokkra aðila um stofnun félags um rekstur nýs tækniháskóla á grund- velli hugmynda Samtaka iðnaðar- ins. Þetta kemur fram á vef samtak- anna. Háskóli íslands og Háskólinn á Akureyri hafa lýst áhuga á að vera með í slíku félagi en á þessu stigi er beðið viðbragða frá Alþýðusam- bandi tslands og rannsóknarstofn- unum atvinnulífsins. Greint var frá því í síðasta tölu- blaði íslensks iðnaðar að Samtök iðnaðarins hafa sent menntamála- ráðherra tillögur um stofnun tækni- háskóla. Ráðherra svaraði erindinu í siðasta mánuði og gaf SI umboð til þess að kanna undirtektir ýmissa stofnana við tillögunum. Jafnframt bauð ráðherra til viðræðna um að SI og samstarfsaðilar taki við rekstri Tækniskóla íslands. Stjórn SI samþykkti 21. október sl. að standa að stofnun félags, helst hlutafélags, í samvinnu við ofan- greinda aðila. Félaginu er ætlað að leita samninga við menntamála- ráðuneytið um stofnun tæknihá- skóla á grunni Tí. Stefnt er að því aö ganga frá stofnun félagsins innan skamms. Fulltrúar Íslandssíma og Lands- símans skrifuðu í gær undir samn- ing sem kveður á um samtengingar á milli grunnkerfa fyrirtækjanna. Með samningnum er viðskiptavin- um Íslandssíma og Landssímans tryggður gagnkvæmur aðgangur að grunnkerfum beggja fyrirtækja. Fram kemur í frétt frá Landssíman- um að samningurinn taki einnig til kostnaðar sem hvor aðilinn um sig ber vegna hringinga á milli kerfa og sam- ræmingar kerfanna. í því felst ákveðið verðöryggi símnotendum til handa. Skrifað er undir samninginn nú þótt nokkur atriði séu ófrágengin, m.a. hvað varðar tengingu nets ís- landssíma við farsímanet Landssím- ans. Aðilar vinna nú að lausn þeirra mála í samvinnu við Póst- og fjarskiptastofnun. Þetta er fyrsti samtengisamningurinn sem Lands- sími íslands gerir um fastlínukerfi sitt. Samningurinn er grundvallað- ur á löggjöf Evrópusambandsins og er í meginatriðum í takt við sam- bærilega samninga miUi símafyrir- tækja erlendis. Samningurinn er afar hagstæður neytendum en samkvæmt honum Hluthafafundur hefur verið boð- aður hjá Vaka fiskeldiskerfum hf. 10. nóvember nk. og verður þar lögð fram tillaga stjórnar félagsins um sameiningu Vaka fiskeldiskerfa hf. og DNG sjóvéla hf. Samkvæmt tillögu stjómar Vaka fiskeldiskerfa hf. verða félögin sam- einuð í eitt félag undir nafninu Vaki-DNG hf. og gilda samþykktir eru samtengigjöld milli fyrirtækj- anna með því lægsta sem gerist í Evrópu. Fyrirtækin eru staðráðin í að tryggja að íslenskir neytendur njóti áfram einhvers lægsta verðs á fjarskiptaþjónustu sem um getur á Vesturlöndum og telja að því mark- miði verði best náð með heilbrigðri samkeppni. Bæði fyrirtækin eru Vaka fiskeldiskerfa hf. um hið sam- einaða félag. Sameiningin miðast við 1. júli 1999 og tekur hið samein- aða félag við öllum réttindum og skyldum hinna sameinuðu félaga frá þeim tíma. Við sameininguna fá hluthafar í DNG sjóvélum hf. hlutabréf í Vaka fiskeldiskerfum hf. að fjárhæð 19.500.000 kr. sem gagngjald fyrir öll byrjuð að starfa á grundvelli samn- ingsins. Það er samdóma álit for- ráðamanna beggja fyrirtækja að ánægjulegt sé hversu viðræður gengu vel. Telja þeir það til marks um breytta tíma í fjarskiptum þar sem horft er til heilbrigðrar sam- keppni og nýrra viðskiptahátta. hlutabréf sín í DNG sjóvélum hf. Hlutafé í Vaka fiskeldiskerfum hf. verður aukiö um 19.500.000 kr. og skal það afhent í skiptum fyrir öll hlutabréf í DNG sjóvélum hf. Eftir sameininguna verður hlutafé í Vaka fiskeldiskerfum hf. 64.500.000 kr. að nafnverði. DNG sjóvélar hf. sameinast Vaka fiskeldiskerfum hf. Básafell stokkað upp Hraðfrystihúsið-Gunnvör hf„ Bása- fell hf„ Þormóður rammi-Sæberg hf. og fleiri hafa stofnað félag sem kaupir rækjuverksmiðju og frystigeymslu Básafells á Isafirði. Þá hefur orðið að samkomulagi að Hraðfrystihúsið- Gunnvör kaupi varanlegar aflaheim- ildir af Básafelli fyrir allt að 600 millj- ónir króna. Fram kemur í frétt frá félögunum í dag að hlutafé nýja félagsins er 60 milljónir króna. Stefnt er að því að hið nýja félag hefji starfsemi strax. Eins og fram kom í fréttum fyrir helgi er staða Básafells erfið og nemur tap á síðasta rekstrarári um 850 milljón- um króna. I Viðskiptablaðinu var frá því sagt í september að líkur væru á því að látið yrði reyna á upplausnar- virði fyrirtækisins. Hugsanlegt er að þessi leikur sé skref í átt að upplausn fyrirtækisins en sem betur fer fyrir Vestfirðinga verða aflaheimildir Bása- fells enn í byggðarlaginu. Hagtölur vekja verðbólguótta Framleiðslukostnaður á evru- svæðinu hækkaði nokkuð í október og olli hækkunin nokkrum verð- bólguáhyggjum. Vísitala sem mælir kostnaðinn er nú 57,1 en var í sept- ember 54,7 og nemur hækkunin 5%. Þetta er sjöundi mánuðurinn í röð sem vísitalan hækkar. Visitala neysluverðs á evru-svæðinu hækk- aði líka verulega og nú telja sér- fræðingar afar líklegt að Seðla- banki Evrópu muni hækka vexti á fimmtudaginn. Financial Times greindi frá. Hækkandi húsnæðisverö Húsnæðisverð i Bretlandi hækk- aði um 2,8% í október frá mánuðin- um á undan og hefur ekki hækkað svo mikið milli mánaða í 10 ár. Frá því í september í fyrra hefur hús- næðisverð hækkað um 10,8%. Fast- eigngsérfræðingar í Bretlandi telja að vaxtahækkun sé það sem til þurfi til að slá á eftirspurn og þar með verðhækkanir á húsnæði. Vaxtahækkun í Ástralíu Seðlabanki Ástralíu mun að öll- um likindum tilkynna vaxtahækk- un síðar í dag. Talið er að hækkun verði 25 punktar í 5%. Ef af verður þá er þetta fyrsta vaxtahækkun í fimm ár. Ástæðan fyrir yfirvofandi hækkun er hin sama víðast hvar i heiminum um þessar mundir, vax- andi verðbólguótti. Væntingar um vaxtahækk- anir styrkja evruna Evran styrktist í gær á móti dollara og jeni. Evr- ópski seðla- bankinn, ECB, heldur vaxtaákvörðunarfund nk. fimmtu- dag og markaðurinn býst við að ECB hækki stýrivexti sína um 0,50% eins og fram kemur hér að ofan. Morgunkorn FBA greindi frá þessu. Markaðsaðilar hafa í tals- verðan tíma búist við vaxtahækk- unum og kom það mörgum á óvart þegar ECB hélt stýrivöxtum óbreyttum á vaxtaákvörðunarfundi sinum í byrjun október. Ósammála um vaxtahækkun I Morgunkomi FBA segir enn fremur að þrátt fyrir almennar væntingar um vaxtahækkanir þá eru farnar að heyrast raddir um að ekki sé þörf á þeim nú. í leiðara The Economist þessa vikuna kem- ur þessi skoðun fram. Sjónarmið þeirra er að vaxtahækkanir muni hafa neikvæð áhrif á hagvöxt í Evr- ópu að óþörfu vegna þess að verð- bólga sé fyrir neðan þau 2% við- miðunarmörk sem oft er horft á. Gerhard Schröder, kanslari Þýska- lands, hefur hins vegar ekki áhyggj- ur af neikvæðum áhrifum vaxta- hækkana á hagvöxt, hann sagði í gær að hagvöxtur i Þýskalandi gæti orðið 3% á næsta ári. Sala á PlayStation yfir 1 milljarð dollara Sony Computer Entertainment America, sem er Bandaríkjaarmur japönsku Sony-samsteypunnar, tel- ur að sala á PlayStation leikjatölv- um og tengdum afurðum muni verða yfir 1 milljarð dollara á kom- andi jólavertið. Frá því verð á leikjatölvunni var lækkað í ágúst sl. hefur fyrirtækið selt um 1 millj- ón leikjatölva og er heildarsalan í Bandarikjunum frá upphafi þá komin í um 21 milljón leiktölva.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.