Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.1999, Side 8
8
MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 1999
Útlönd
Skaut sjö vinnufélaga sína til bana á Hawaii:
Gafst upp eftir
langt umsátur
Portillo aftur í
íhaldsframboð
Michael Portillo, fyrrum land-
vamaráöherra Bretlands, var í
gær útnefndur frambjóðandi
íhaldsflokksins í aukakosningum
í ömggu íhaldshverfi í London
síðar í mánuðinum.
Baráttumenn fyrir réttindum
samkynhneigðra gerðu hróp að
Portillo í gær og kölluðu hann
hræsnara, áður en lögreglan fjar-
lægði þá. Portillo viðurkenndi áö-
ur en hann hellti sér út í fram-
boðsslaginn að hann heföi átt ást-
arævintýri með öðrum körlum á
námsámm sínum.
Heimildarmenn innan íhalds-
flokksins sögðu í gær að William
Hague flokksleiðtogi myndi íhuga
að veita Portillo fljótlega mikil-
vægt starf í skuggaráðuneyti
flokksins. Ýmsir fréttaskýrendur
líta á Portillo sem ógn við forystu
Hagues. Portillo hefur lengi verið
uppáhald hægriafla flokksins.
Erfiðar viðræður
eru fram undan
ísraelar og Palestínumenn eiga
margra mánaða erfiðar samn-
ingaviðræður í vændum eftir til-
finningaþrunginn leiðtogafund
sem lauk í Ósló í gær. Bill Clint-
on Bandaríkjaforseta tókst að
blása nýju lífi í samningaferlið.
Clinton, Ehud Barak, forsætis-
ráðherra ísraels, og Yasser Ara-
fat, forseti Palestínumanna, hétu
því í gær að halda áfram verkinu
sem Yitzhak Rabin, fyrram for-
sætisráðherra ísraels, hóf og
ljúka endanlegum friðarsamningi
í september á næsta ári. Leiðtoga-
fundurinn í gær var haldinn til aö
minnast þess að fjögur ár era nú
liðin frá því Rabin var myrtur.
„Við voram aö ljúka mjög góð-
um fundi. Ég hef á tilfinningunni
að við höfúm blásið nýju lífi í
friðarferliö," sagði Clinton við
fréttamenn í fundarlok.
Merki numin frá
flugritum þotu
Skip bandarísku strandgæsl-
unnar hafa numið merkjasend-
ingar frá flugritmn egypsku far-
þegaþotunnar sem fórst undan
austurströnd Bandarikjanna á
sunnudag með rúmlega tvö
hundrað manns. Flugritarnir
gætu geymt upplýsingar um hvað
fór úrskeiöis á sunnudag og olli
því að þotan fór í hafið.
Veður hamlaði leit á slysstaðn-
um 1 gær og þurftu leitarskipin að
sigla til lands.
Rannsóknarmenn kanna nú
hvort afturþrýstingsbúnaður í
öðrum hreyflinum, sem ekki var
virkur á sunnudag, hefði átt ein-
hvem þátt í slysinu.
Búnaður þessi, sem notaður er
til að hægja á ferð þotna eftir
lendingu, fór í gang í þotu Lauda
Air sem fórsf í Taílandi 1991.
Bush langt á
undan Al Gore
George W. Bush, ríkisstjóri í
Texas, nýtur langtum meira fylg-
is en A1 Gore varaforseti fyrir for-
setakosningamar í Bandaríkjun-
um að ári. Samkvæmt nýrri skoð-
anakönnun ABC-sjónvarpsstöðv-
arinnar fengi Bush 55 prósent at-
kvæða væri gengið til kosninga
nú en Gore aðeins 39 prósent.
Fertugur tæknimaður hjá Xerox
fyrirtækinu, sem skaut sjö sam-
starfsmenn sína til bana í Honolulu
á Hawaii í gær, gafst upp fyrir lög-
reglu eftir fimm klukkustunda um-
sátur. Þar með var bundinn endi á
blóðugustu skotárás í sögu eyjanna.
Ódæðismaðurinn, sem yfirvöld
segja að heiti Byron Uyesugi, réðst
inn í vörahús Xerox-fyrirtækisins
og hóf skothríð á þá sem þar voru
fyrir með 9 millímetra skamm-
byssu. Þeir sem létust voru allir
karlmenn á aldrinum 33 til 58 ára.
Til mun hafa staðið að segja
Uyesugi upp starfinu sem hann
hafði gegnt í fimmtán ár.
Eftir morðin lagði Uyesugi á
flótta í sendibíl frá fyrirtækinu en
lögreglunni tókst að króa hann af á
vinsælum útivistarstað skólabarna
nærri vörahúsinu.
Tilræðismaðurinn situr í sendibíln-
um, umkringdur af lögreglu.
Þungvopnaðir laganna verðir um-
kringdu þegar sendibílinn en það
var ekki fyrr en eftir fimm klukku-
stunda þóf að samningamönnum
lögreglunnar og bróður skotmanns-
ins tókst að telja hann á að koma út
úr bílnum með uppréttar hendur og
leggjast á hnén.
Ríkisstjórinn á Hawaii sagði að
ættingjar og samstarfsmenn fómar-
lambanna fengju alla þá áfallahjálp
og aðra aðstoð sem hægt væri að
veita.
Vernon Wong, sem hefur þekkt
skotmanninn i þrjú ár vegna sam-
eiginlegs áhuga á gullfiskum, var
mjög bragðið þegar hann heyrði tíð-
indin.
„Þetta er indæll rólyndismaður,
dálítill einfari en það er ekki slæmt.
Honum lá lágt rómur og hann var
kurteis," sagði Vemon Wong.
Börn á Austur-Tímor leika sér að gömlum hjólbörðum á öskuhaugunum við höfuðborgina Dili. Krakkarnir eru að
bíða eftir öskubílnum, í þeirri von að innan um allt sorpið leynist eitthvað ætilegt. íbúar Austur-Tímor verða að hafa
allar klær úti til að útvega sér mat í svanginn, þar á meðal að leita á haugunum.
Landamæraverðir heimta
greiðslu af flóttafólki
Óbreyttir borgarar, sem tekist
hefur að flýja frá Tsjetsjeníu,
greina frá því að landamæraverðir
og aðrir rússneskir embættismenn
krefjist peninga af þeim sem vOja
komast yfir landamærin til
Ingúsjetíu. Þeir fátækustu komast
því hvergi.
Mörg þúsund flóttamanna bíða
við landamærin án matar og lyfja.
Rússneski herinn lokaði landamær-
unum fyrir 12 dögum. Það var ekki
fyrr en síðastliðinn mánudag sem
nokkrir fengu að yfirgefa Tsjetsjen-
íu. Forseti Ingúsjetíu greindi frá því
í viðtali við Interfaxfréttastofuna í
gær að fjórir hefðu látist aðfaranótt
þriðjudags á meðan þeir biðu eftir
að komast yfir landamærin.
Samkvæmt Sameinuðu þjóðun-
um og rússneskum heimildum hafa
um 200 þúsund Tsjetsjenar flúið til
Fátækustu flóttamennirnir komast
ekki frá Tsjetsjeníu.
Símamynd Reuter
Ingúsjetíu. Flóttamennimir eru yf-
irleitt krafðir um 5 þúsund ís-
lenskra króna. Það er há upphæð á
þessum slóðum, sérstaklega þar
sem greiða þarf þessa upphæð fyrir
hvern fjölskyldumeðlim. Þar að
auki þurfa flóttamennirnir að
greiða lögreglunni í Ingúsjetíu fyrir
dvalarleyfi.
Rússnesk yfirvöld visa því á bug
að stríðsrekstur þeirra í Tsjetsjeníu
hafi kostað óbreytta borgara lífið.
Vladimir Pútín, forsætisráðherra
Rússlands, ítrekaði í samtali við
Kjell Magne Bondevik, forsætisráð-
herra Noregs, í gær að Rússar bæru
enga ábyrgð á þjáningum
tsjetsjensku þjóðarinnar. I viðtali
við Bill Clinton Bandaríkjaforseta í
gær sóttist Pútín eftir stuðningi
Vesturlanda við baráttuna gegn
hryðjuverkamönnum í Tsjetsjeníu.
Stuttar fréttir dv
Laumufarþegar deyja
Að minnsta kosti 10 laumufar-
þegar létu lífið er eldur kom upp
í griskri ferju í gær sem var á leið
til Ítalíu.
Framsal ólíklegt
Argentínskir embættismenn
sögðu í gær að fyrrverandi leiðtog-
ar herforingja-
stjórnarinnar nytu
lagavemdar og því
væri ólíklegt að
þeir yrðu fram-
seldir. Spænski
dómarinn Baltasar
Garzon hefur gefið
út handtökuskip-
un á hendur 12 leiðtogum og 80
liðsforingjum herforingjastjórnar-
innar í Argentínu sem var við völd
1976 til 1983.
Mannskæð flóð
16 manns hafa látiö lífið í flóð-
um í Víetnam. Hundrað þúsunda
heimila hafa eyðilagst í flóðun-
um.
4 ára með byssu
Fjögurra ára dreng hefur verið
vikið í eitt ár úr leikskóla í Okla-
homaborg í Bandaríkjunum eftir
að hafa komið með hlaðna byssu
foreldra sinna í skólann.
Flýja Moskvu
Flestir starfsmenn bandaríska
sendiráðsins ætla að flýja Moskvu
fyrir árþúsundamótin af ótta við
vandræði. Mörg erlend fyrh-tæki
hvetja starfsmenn sina, sem
verða að vera um kyrrt, til að
hamstra mat.
Hlé á viðræðum
George Mitchell, sáttasemjari
Bandaríkjanna, gerði í gær hlé á
viðræðum kaþólikka og mótmæl-
enda á írlandi. Ætlar Mitchell að
gera Blair, forsætisráðherra Bret-
lands, Clinton Bandaríkjaforseta
grein fyrir stöðu mála.
Myndum af Karli stolið
Tösku með einkamyndum af
Karli Bretaprinsi og sonum hans,
Vilhjálmi og
Harry, var
stolið úr bil
barnfóstra
prinsanna,
Tiggy Legge-Bo-
urke, að því er
breska blaðið
Sun greinir frá.
Breska lögreglan hefur staðfest
þjófnaðinn en vill hvorki greina
frá hvað var í töskunni né hver
eigi hana. Samkvæmt Sun vora
einnig leynUegar upplýsingar í
töskunni, eins og tU dæmis síma-
númer meðlima konungsfjöl-
skyldunnar.
í fangelsi vegna stíls
13 ára dreng í Texas var sleppt
í gær eftir að hafa setiö nær viku
í fangelsi vegna skólaritgerðar
sem hann fékk A fyrir. í ritgerð-
inni er því lýst hvemig bekkjarfé-
lagar pUtsins eru skotnir tU baná.
Skólayfirvöld litu á ritgerðina
sem hótun og kærðu drenginn.
Reyklaust hjá Mikka
Nú eiga Mikki mús og félagar
hans að sleppa við að fá sígarett-
ureyk i augun. Frá og með janúar
má bara reykja á sérstökum
svæðum í skemmtigörðum Disn-
ey í Bandaríkjunum.
Vilja Slobo til Haag
Um 2 þúsund serbneskir náms-
menn efndu í gær til mótmæla í
Belgrad. Kröfð-
ust þeir rétt-
látra kosninga
sem yrði flýtt.
Er námsmenn-
irnir gengu
fram hjá aöal-
stöðvum Sósíal-
istaflokks
Slobodans
Milosevics Júgóslavíuforseta
hrópuðu þeir: „Slobodan á að fara
tU Haag.“ StriðsglæpadómstóU
Sameinuðu þjóðanna i Haag hefúr
ákært Milosevic vegna meints
þjóðarmorðs í Kosovo.
í
I
l-