Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.1999, Page 10

Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.1999, Page 10
10 íennmg MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 1999 Heimspeki á tímamótum Nú, þegar loksins er komiö út á íslensku vandað yfirlitsrit um heimspeki, Heimspeki- saga í þýöingu Stefáns Hjörleifssonar, þykir manni eins og heimspeki hafi hingað til verið á hrakhólum hér á landi. Það er engu líkara en þessa fræðigrein hafi skort kjölfestu þar sem yfirlitsritið vantaði. Og nú er það loksins komið og þá eru tímamót í fræðunum, á svip- aðan hátt og í sálfræði þegar Sálfræðibókin kom út fyrir nokkrum árum. Heimspekin er hér með orðin stofnun á íslandi. Leiðin sem var valin var ekki að gefa út safnrit með greinum helstu íslensku heim- spekinga samtímans. Þess í stað var þýdd vin- sæl erlend bók, Filosofihistorie eftir þá Skirbekk og Gilje. Fyrir vikið er þessi fyrsta yfirlitsbók um heimspeki heilsteypt rit sem mun gagnast mörgum, ekki síst heim- spekinemum við Háskóla íslands og öðrum áhugamönnum um heimspeki. Og raunar enn fleirum. Bókmenntir Ármann Jakobsson Áherslan er á hið sögulega yfirlit og heim- speki er skilgreind á víðan hátt. Ekki er að- eins fjallað um heimspekinga á borð við Platón, Aristóteles, Vilhjálm frá Ockham, Descartes og Kant heldur einnig Ágústínus kirkjufóður, Newton, Keynes, Marx, Freud, Max Weber, Darwin og Rósu Luxemburg. Þannig er heimspekin ekki aðeins frumspeki eða verufræði eða þekkingar- fræði heldur er hún skil- greind sem móðir annarra vísinda, bókmenntafræði, eðlisfræði, hagfræði og sál- fræði. Ekkert mannlegt er heimspekinni óviðkom- andi. Þetta rit hefur því býsna víða skírskotun sem er heillandi á sér- hæfingaröld. Umfjöllunin er sögu- leg, mikið ber á alls kyns fróðleik um kenningasmiði og samfélög þeirra en síðan eru sögð skil á mikilvægustu kenn- ingum hvers heim- spekings. Þá eru birtar glefsur úr ritum nokkurra heimspekinga og er vel til fundið að kynna þá ekki aðeins' með orðum annarra heldur einnig þeirra eig- in. Vitaskuld getur ekki verið um djúpa úttekt á hverri einustu kenningu að ræða í svo víð- feðmu riti. Umfjöllunin er ekki tæmandi fyrir sérfræðinga en hún er oft býsna greinargóð og þar að auki er hún skýr sem er ekki minna um vert. Ritið er góður staður að byrja á og líklegt að góður lesandi verði þegar ýmsu nær. Síðan er af nógu að taka í framhaldinu þar sem mikið þrekvirki hefur verið unnið í þýðingu heimspekirita hin síðari ár, ekki síst á vegum Hins íslenska bókmenntafé- ^ lags. V { riti sem þessu er tæpt á ■ æði mörgu og kann sumt að V orka tvímælis. Ekki rakst ég ■ á margar villur en ■ færa hefði mátt upp- m lýsingar til samtím- ans á stöku staö. Þannig er ekki getið m um dánarár heimspek- V inganna Gadamers og V Poppers sem voru að W mér virðist á lífi þegar ■ verkið hófst. Málfar bók- V arinnar einkennist af einfaldleika ■ að hætti kennslubóka og er það vel. W Það er mikill fengur að þessu riti. ■ Útgáfan er myndarleg og metnaðar- I full og hönnun kápu er enn eitt afrek f Öldu Lóu Leifsdóttur. Háskólaútgáfan hefur fáa starfsmenn en hefur undan- farið unnið sér verðskuldaðan orðstír fyrir metnað og vandvirkni. Heimspekisaga Skirbekk og Gilje festir það orðspor í sessi. Gunnar Skirbekk og Nils Gilje: Heimspekisaga Stefán Hjörieifsson þýddi Háskólaútgáfan 1999 Rjúpnaveiðibók handa huglausum Það er ekki oft sem fmnskar bækur rekur á fjörur manns. Nýlega gaf Mál og menning þó út eina sem kom út í Finnlandi fyrir 25 árum. Ár hérans segir frá Kaarlo Vatanen. — Finna á fertugsaldri sem hef- ur fengið nóg af ástlausu hjónabandi og vélrænni vinnu sinni. í byrjun bók- ar stendur hann einn úti í skógi með fótbrotinn héra í fanginu. Þá er eins og því ljósti niður í höfuð hans að hann hefur lifað lífinu eins og huglaus héri. Hann kveður sitt gamla lif og flakkar fót- gangandi um óbyggðir Finn- lands. En í ljós kemur að mað- ur getur ekki bara stungið af sisvona. Eiginkonan reynir að ná honum aftur til sín og lögregl- an vill hafa hendur í hári hans en Vatanen berst til hinsta blóðdropa fyrir frelsi sínu - og hérans. 1 í sögunni ríkir gamansamur 1 tónn, blandaður ádeilu á stofnanir ' samfélagsins, lögregluríki og skrifræði. Stíllinn er áreynslulaus og þægilegur, í takt við ofurmannlegan innri frið sem Vatanen virðist öðlast í nýfengnu frelsi sínu. Einvera, einfaldur matur og líkamleg þreyta veita honum lífsfyllingu. Hvorki ævintýralegar svaöilfar- ir né stórfurðulegar persónur sem á vegi hans verða raska ró hans. Ætlar hann ef til vill að sigla í gegnum nýja lífið eins dofinn og hann var i því gamla? Varla, því þessu lífi fylgir gleði og nægjusemi. í seinni hluta bókarinnar verða ævintýri Vatanens býsna yfirgengileg og sag- an leysist upp, líkt og Vatanen sjálfur þegar hann hverfur með dular- fullum hætti í sögulok. Fyrir nokkru kom út hjá Bjarti bókin Náin kynni eftir ensk- pakistanska rithöf- undinn Hanif Kureis- hi. Bókin vakti mik- inn úlfaþyt í Bretlandi fyrir snarpa ádeilu á hjónabandið og innihalds- laust líf nútímamanna. Söguhetjan þar er líka karlmaður á besta aldri sem stekkur burt frá Gömlu brýnin gefast best Litríkar auglýsingamar sem geislaplötuút- gefendur birta í fagblöðum í hvert sinn sem þeir senda frá sér nýjar plötur með helstu stjörnum í bransanum segja næsta lítið um afkomu þessara stjarna eða fjárhagslega þýð- ingu þeirra fyrir útgáfufyrirtækin. I mörgum tilfellum er um að ræða hreint áhættukapítal; útgefendur veðja á tónlistarmann í kjölfar vel heppnaðra tónleika og góðrar gagnrýni, og þá sakar ekki ef viðkomandi hefur útlitið með sér. Hljómplötur Aðalsteinn Ingólfsson Gullegg geislaplötuútgefenda eru ekki nýst- imin heldur gömlu brýnin og upptökurnar með þeim sem þeir hafa sankað að sér í tím- ans rás. Þessar upptökur er endalaust verið að gefa út af minnsta tilefni og í margs konar samhengi, eða selja til annarra útgáfufyrir- tækja fyrir stórfé. Fyrirtækin gera út á „heild- arútgáfur" eða „afmælisútgáfur", og nú eru þau auðvitað á fullu við að markaðssetja út- gáfur á borð við „hljómsveitarstjórar aldar- innar“, „helstu píanóleikarar aldarinnar" og svo framvegis. Hér skiptir umgjörðin heil- miklu máli: fallega útlítandi bæklingur með ljósmyndum, öllum helstu upplýsingum um listamenn- ina, helst viðtölum viö þá og ýmsu öðru sem eykur við þekkingu okkar á tónsmíð- um þeirra eða tónlistarflutn- ingi. Sjálfum hefur mér þótt afar vel staðið að safnplöt- unum sem Sony hefur verið að gefa út undir heitinu Classical Masterworks Heritage og Legends-safn- plötunum frá Decca, að minnsta kosti hvað útlit og upplýsingar varðar. Tónlistarmenn aldarinnar? RCA-útgáfan hefur verið að gefa út „Tón- listarmenn aldarinnar" sem er að mörgu leyti aðlaðandi kostur, ef menn eru á annað borð að bæta gömlum upptökum við geislaplötu- safn sitt. Hér er um að ræða tvöfaldar plötur á „meðalverði“, þar sem nokkrar sjaldgæfar upptökur fylgja með þekktari upptökum tón- listarmannanna. Á safnplötu með Jussa Björl- ing er til dæmis að finna upptökur á ljóða- söng hans, sem allt of fáir þekkja. Og á plötu með Montserrat CabaUé eru upptökur sem ekki hafa fyrr verið gefnar úr á geisla. Ekki þekki ég heldur betri safnplötu með söng m MOMTStMAt r CABALLÉ THEUITWATECOUICnOS Carusos heldur en þá sem RCA gefur út í þessum flokki. Það sem aðallega má út á þessar safnplötur RCA setja er umgjörðin; með hverri plötu fylgir sérstaklega tlkarlega útlítandi bæklingur með upplýsingum sem ekki bæta neinu við það sem flestir sæmi- lega upplýstir tónlist- arunnendur vita. Og svo má auðvitað setja spurningar- merki við nokkra þá listamenn sem RCA kall- ar „Tónlistarmenn aldarinnar". Á Mario Lanza heima í þeim hópi? Eða blokk- flautuleikarinn Michala Petri, komung manneskjan? En upptökumar standa auðvit- að fyrir sínu. Caruso, The Greatest Tenor in the World RCA Montserrat Caballé, The Ultimate Collection RCA Jussi Björling, The Ultimate Collection RCA Mario Lanza, The Ultimate Collection RCA Leontyne Price, The Ultimate Collection RCA Michala Petri, The Ultimate Recorder Collect- ion RCA Umboð á Islandi: JAPIS Þýðinganámskeið eiginkonu og samfélagsskyldum í leit að betra lífi. Ár hérans er yfirlætislaus bók um karl- mann í kreppu en Náin kynni er ágeng og óþægileg. Þessar ólíku bækur sem fjalla um sama efni vöktu mig til umhugsunar um stöðu karlmannsins í aldarlok. Hvar er þeirra starf í sex hundruð sumur? Hafa þeir glatað Bókmenntir Steinunn Inga Úttarsdóttir stöðu sinni í lífmu, orðið mjúkir tO þess eins að missa tökin? Era konur alveg að drepa þá með hreiðuráráttu sinni, fjölskyldugildum og öryggisfíkn? Það er ekki gott að segja en þeir era ólíkt skemmtUegri karlamir sem taka af skarið en héramir huglausu. Karlmenn ís- lands: Ár hérans er kjörin bók tU að stinga í bakpokann áður en haldið er á rjúpnaveiöar - einkum ef menn ætla ekki að snúa aftur. Arto Paasilinna: Ár hérans Guðrún Sigurðardóttir þýddi. Mál og menning 1999 Ef þið hafið áhuga á að stunda þýðing- ar í framtíðinni er vert að veita athygli námskeiði sem Félag háskólakvenna býð- ur upp á og hefst á morgun. í fyrri hluta þess verða kynnt hugtök og kenningar í þýöingafræðum en seinni hluti nám- skeiðsins verður eftir áramót og hefst á málstofu með starfandi þýðendum. Stjórn- andi námskeiðsins er HaUdóra Jónsdóttir cand.phU. en nánari upplýsingar gefur Geirlaug Þorvaldsdóttir í síma 899 3746. List á Akranesi Á mánudaginn var opn- uð sýning á verkum Þóra Einarsdóttur í Listahorn- inu, Kirkjubraut 3, Akra- nesi. Hún sýnir þar ný mál- verk unnin á silki. Sýning- in stendur til 22. nóv. og er opin aUa virka daga kl. 11-12.30 og 13-17. Dagbók Önnu Frank Bókaútgáfan Hólar hefur gefið út nýja útgáfu af Dagbók Anne Frank og er þetta i fyrsta skipti sem bókin kemur út óstytt hér á landi. AUir kaflamir sem Otto Frank feUdi úr af ýmsum ástæðum þegar hann gaf dagbók dóttur sinnar út era hér með. Þessi útgáfa Mirjam Pressler geymir um það bU 30% meira efni en eldri útgáf- an. í óstyttri útgáfu kemur betur fram þroskasaga ungrar stúlku viö hinar erfið- ustu aðstæður, en Anne var hoUenskur gyðingur og fjölskylda hennar lifði í fel- um fyrir nasistum mánuð- um saman. Meöal annars má lesa frekari lýsingar á vaxandi áhuga Anne á hinu kyninu og erfiðleik- um í samskiptum við for- eldra. Dagbók Anne Frank hefur heiUað kyn- slóðimar alveg síðan fyrsta útgáfa hennar kom út og aftan á kápu nýju útgáfunnar er fullyrt að engin bók, að biblíunni und- anskUinni, hafi selst í fleiri eintökum. Ekki er að efa að hún megnar enn i dag að heiUa nýja kynslóð, stúlkan sem lifði svo ríkulegu innra lífi þótt hún þyrfti að kúldrast í þröngu fylgsni með ljölda manns. Ólafur Rafii Jónsson þýddi bókina. Illur fengur Leikfélag Selfoss framsýnir á fimmtu- dagskvöldið kl. 20.30 hina kolsvörtu kómedíu Illan feng eftir Joe Orton. Leik- stjóri er Oddur Bjarni Þorkelsson. í IUum feng segir frá manni sem hefur misst konu sína, hjúkrunarkonunni sem annaðist konu hans í veikindunum, syni hans sem hefur ýmislegt annað fyrir stafni en að syrgja móður sina og starfs- manni útfararstofu sem einnig er vinur sonarins. Inn í söguna fléttast bankarán sem vinimir standa fyrir. Höfundinum er fátt heilagt, gerir ískalt grín að hefðum og viðteknum venjum og eru dásamlegir orðaleikir aðall hans ásamt skemmtUeg- um fléttum og kvikindislegum skotum á mannlegt eðli. Sýningar á IUum feng verða í litla leik- húsinu við Sigtún á Selfossi og verður önnur sýning á sunnudagskvöldið á sama tíma. Orðabusl Myndabókin Orðabusl eftir Margréti E. Laxness er fyrsta orðabók litla bamsins. Þar eru líflegar og litríkar heU- síðumyndir af kunnuglegum senum í daglegu lífi okkar - til dæmis fjöruferð, sólardegi úti í garði og uppi í sveit, verslunar- ferð, sundlaugarferð, afmælis- veislu, degi í leikskólanum, leik í snjó og loks jólunum sjálfum. Inni á myndunum eru letrað orð sem bömin geta skoðað og lært hvað þau þýða og æft sig að segja. Bókinni er ætlað að skerpa athyglisgáfu bama og auka orðaforða þeirra. Nokkrar þýddar bækur hafa veriö gefnar út hér undanfarin ár í þessu skyni og er gaman að fá alíslenska bók af þessu tagi. Mál og menning gefur bókina út Umsjón Silja Aðalsteinsdóttir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.