Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.1999, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 1999
Fréttir
11
Skógarverkefni við HafnarQall byrjað að skila árangri:
Rokrassgatið
kannski úr sögunni
- eftir örfá ár
Friðrik Aspelund frá Landgræðslu og Skógrækt
ríkisins útskýrir Hafnarskógarverkefnið.
DV, Vesturlandi:
Hafin er vinna við landbætur
á svæðinu umhverfis Hafnar-
fjall. Markaðsráð Borgarfjarðar
átti frumkvæðið að undirbún-
ingi verkefnisins í samvinnu
við heimamenn, Búnaðarsam-
tök Vesturlands, Landgræðslu
ríkisins og Skógrækt ríkisins. í
júní 1999 ákvað Umhverfissjóð-
ur verslunarinnar að styrkja
verkefnið myndarlega. Þar með
var landeigendum og Land-
græöslu gert kleift að heíja
framkvæmdir. Markmið verk-
efnisins er þríþætt: Að vernda
og stækka Hafnarskóg, að
breyta eyddu landi í nytjaland
og skýla umferð fyrir vindum
og skafrenningi.
Gert er ráð fyrir að þetta
verkefni taki um 15 ár og heild-
arkostnaður verði um 115
milljónir króna. Nú þegar er
farið að sjást það sem var gert
í sumar. Þar sem áður var ógróið
land er þegar farið að grænka og
Vegagerðinni líst það vel á þetta
verkefni að hún ætlar að styrkja
það myndarlega enda hafa margir
bílar farið út af við frægt „rokrass-
gat“ við Hafnarfjall en það kann að
heyra sögunni til í framtíðinni.
Landið við Hafnarfjall var fyrrum
vel gróið og þakið vöxtulegum birki-
skógi. í aldanna rás hnignaði skóg-
inum og eyðingaröflin náðu smám
saman yfirhöndinni. Þegar skógar-
ins naut ekki lengur við hvarf
skjólið sem hann veitti viðkvæmum
jarðvegi. Mjög vindasamt er á þess-
um slóðum, einkum þegar blæs af
fjallinu. En eins og vegfarendur
kannast við geta komið þarna ofsa-
veður þótt allt í kring séu veður
skaplegri. Sunnan Hafnarfjalls ein-
kenna sléttir melflákar landið með
ivafi af mólendi, kjarri og kyrkings-
legum leifum hinnar fornu grósku.
Víða er enn virkt rof í börðunum.
Þama bíða mikil verkefni við að
stöðva eyðinguna og endurheimta
fyrri grósku. Uppgræðsla auðna og
skjólbeltis eru fyrstu skrefin á
þeirri löngu leið.
Ákveðið var að leggja meginá-
herslu á landbætur á svæðinu frá
Leirá í suðri að Grjóteyri í
norðri. Á þessu svæði eru mel-
ar og skóg- og jarðvegseyðing
mest. Og svo er það nátt-
úruperlan Hafnarskógur. Hluti
skógarins hefur verið friðaður
í 10 ár. Þar er hann í mikilli
framför en betur má ef duga
skal og er full ástæða til að
hafa áhyggjur af bágbornu
ástandi landsins beggja vegna
skógarins. Stefnt er að því eftir
fóngum að aðstoða einnig eig-
endur nálægra svæða við land-
bætur.
Skjól fyrir þjóðveg
Á fyrstu árum verkefnisins
verður lögð megináhersla á að
girða af það land sem ástæða
þykir til að friða fyrir beit,
einnig verður reynt að ljúka
uppgræðslu ógróins lands sem
fyrst. Samhliða þessu verður
hafist handa við að skýla þjóð-
veginum og síðar öllum gróðri
með skjólbeltum og skógi. Það getur
tekið langan tíma. Því markmiði
verkefnisins að breyta eyddu landi í
nytjaland verður náð með sáningu
lúpínu eða grasfræs. Utan þess
svæðis sem ætlað er Hafnarskógi
verður markmiðum um skjól að
mestu náð með skjólbeltarækt. í
Hafnarskógi og nágrenni verður
mest treyst á sjálfgræðslu birkis.
Auk þess að vemda jarðveg mun
skóg- og skjólbeltarækt á þessu
svæði draga úr vindstrengjum og
vindsveipum sem iðulega valda
hættu á einum fjölfamasta þjóðvegi
landsins. -DVÓ
Það virðist enn vera meistarabragur á vesturbæingum eftir að íslandsmeistaratitiilinn kom loksins í vesturbæinn nú
í haust. Eigendur Drangeyjarinnar hafa í það minnsta teklð upp þá nýbreytni að flagga KR-merkinu í stafni bátsins
eins og myndin ber með sér. DV-mynd S
$ SUZUKI
Suzuki Baleno GLX 4x4, skr. 6/96, ek. 78 þús. km, bsk., 4 d. Verð 990 þús. Suzuki Sidekick sport, skr. 8/97, ek. 36 þús. km, ssk., 5 d. Verð 1.680 þús.
Suzuki Baleno GL, skr. 2/97, ek. 58 þús. km, bsk., 3 d. Verð 790 þús. Suzuki Vitara JLX, skr. 9/95, ek. 72 þús. km, bsk., 5 d. Verð 1.230 þús.
Suzuki Baleno Wagon 4x4, skr. 10/96, ek. 113 þús. km, bsk., 5 d. Verð 980 þús. Suzuki Baieno GL, skr. 2/97, ek. 58 þús. km, bsk., 3 d. Verð 790 þús.
Suzuki Baleno GL, skr. 9/97, ek. 34 þús. km, þsk., 4 d. Verð 1.040 þús. Suzuki Sidekick JX '93, ek. 98 þús. km, ssk., 5 d. Verð 790 þús.
Suzuki Vrtara 2,0 dísil, skr. 06/97, ek. 56 þús. km, 5 d. Verð 1.790 þús. Suzuki Swift GLX, skr. 6/97, ek. 56 þús. km, bsk. 5 d. Verð 760 þús.
Suzuki Vitara JLX, skr. 11/98, ek. 24 þús. km, ssk., 5 d. Verð 1.850 þús. Suzuki Swift GLX, skr. 6/98, sk. 22 þús. km, bsk., 5 d. Verð 870 þús.
Suzuki Baleno Wagon, skr. 1/97, ek. 47 þús. km, bsk., 5 d. Verð 1.080 þús. Suzuki Swift GX, skr. 2/97, ek. 55 þús. km, bsk., 5 d. Verð 680 þús.
Suzuki Swift GLS, skr. 4/96, ek. 56 þús. km, bsk., 3 d. Verð 650 þús. Suzuki Swift GX, skr. 1/96, ek. 81 þús. km, bsk., 5 d. Verð 570 þús.
Suzuki Vitara JLX, skr. 10/92, ek. 53 þús. km, ssk., 5 d. Verð 970 þús. Suzuki Vitara JLX, skr. 4/99, ek. 17 þús. km, bsk., 5 d. Verð 1.690 þús.
SUZUKIBÍLAR HF.
Skeifunni 17 • Sími 568 5100
www.suzukibilar.is
Skagafjörður:
Næg atvinna en fólki fækkar
DV, Akureyri:
Brottfluttir umfram að-
flutta í Skagaflrði fyrstu 9
mánuði ársins era um 50
talsins samkvæmt upplýs-
ingiun Hagstofunnar. Þótt
þetta sé allnokkuð í ekki
stærra sveitarfélagi er
þetta hlutfallslega lægri
tala en víða annars staðar
á landsbyggðinni.
Snorri Bjöm Sigurðs-
son, sveitarstjóri í Skaga-
firði, segir aö fækkunin sé
fyrst og fremst í sveitun-
Snorri Björn Sig-
urðsson: „Mikil eft-
irspurn eftir hús-
næði“.
um en ekki á Sauðárkróki;
þéttbýlið hafi þannig hald-
ið sínu. Hann segir at-
vinnuástandið í sveitarfé-
laginu þokkalegt, fólk vanti
til ýmissa starfa, bæði í
sérhæfð störf og störf sem
ekki krefjast sérstakrar
menntunar. „Sveitarfélagið
þarf t.d. að fara að hyggja
að því að auglýsa laus störf
og ástæðuna fyrir því að
fólk flytur úr Skagafirði er
ekki hægt að rekja til at-
vinnuástandsins," segir
Snorri Bjöm. -gk
(oníinenial
Vetrardekk fyrir vandláta
SOIN/NG
Smiðjuvegi 32-34 • Kópavogi • Sími: 544 5000