Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.1999, Qupperneq 13
MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 1999
13
DV
Fréttir
Hugmynd fulltrúa Sjálfstæðisflokks í leikskólaráði:
Borgin hætti leikskólarekstri
- kostnaður við yfirstjórn 204 milljónir í fyrra
„Það sem vekur athygli er að
þessi ákvörðun um að segja upp
dvalarsamningum er ekki lögð fyr-
ir leikskólaráð. Þetta eru óskiljan-
leg vinnubrögð en því miður ekki
einsdæmi," segir Guðlaugur Þór
Þórðarson, sem sæti á í Leikskóla-
ráði Reykjavíkur.
Guðlaugur segir forystumenn R-
listans hafa gert lítið úr
vandræðaástandi hjá leik-
skólum borgarinnar og hafi
engar tillögur til úrbóta.
„Þvert á móti felldi R-list-
inn tillögu okkar sjálfstæð-
ismanna tun að aukafjár-
veitingar sem veittar eru
til leikskólanna á þessu ári
og því næsta, samtals 130
milljónir króna, yrðu
greiddar út til þess starfs-
fólks sem vinnur að stað-
aldri á skólunum. Ef fjármunum
hefði verið deilt niður á þá starfs-
menn leikskólans sem hafa unnið
í tólf mánuði og lengur hefði upp-
hæðin verið um 150 þúsund krón-
ur á hvem einstakling fyrir þetta
tímabil. Rök borgarstjóra fyrir því
að fella þessa tillögu vom þau að
starfsmennirnir þyrftu að vinna
fyrir þessum peningum en gætu
ekki fengið þá fyrir að gera ekki
neitt,“ segir Guðlaugur.
Fleiri börn á hvern starfs-
mann
Guðlaugur telur stefiiu R-listans
í leikskólamálum komna í þrot.
„R-listinn lofaði fyrir kosningarn-
ar 1994 að útvega öllum börnum,
eins árs og eldri, vistun fyrir lok
þess kjörtímabils. Nú á seinna
kjörtímabili listans halda biðlistar
áfram að lengjast og sifellt er erfið-
£u:a að fá og halda í starfsfólk. Ef
leikskólamir væru fullmannaðir
væri hægf að koma fyrir um 230
bömum þar í viðbót. í þeim áæti-
unum sem að fyrir liggja er
ekki gert ráð fyrir að leik-
skólarnir útvegi pláss fyrir
meira en um 70% af börn-
um á aldrinum eins til
fimm ára,“ segir hann.
Að sögn Guðlaugs er
ýmislegt til ráða. Eitt sé að
láta alla þá fjármuni sem
aukalega er varið í þennan
málaflokk renna til starfs-
fólks leikskólanna. „Það
væri bæði hvetjandi fyrir
starfsfólkið og þá sem hefðu áhuga
á því að koma til starfa. Þá má
skoða þá hugmynd að starfsfólkið
fái ffía vistun fyrir sín böm. Það
yrði örugglega ódýrasta kjarabótin
sem borgin gæti útvegað starfs-
fólkinu þó að gallinn við hug-
myndina sé sá að hún felur í sér
mismunun milli starfsmanna. í
þriðja lagi má skoða viðmið hvað
varðar fjölda barna á hvern starfs-
mann. Samkvæmt reglugerðum
mega fimm ára börn ekki vera
fleiri en átta á hvern starfsmann
en þegar þau em einu ári eldri þá
mega þau vera 20 eða 25 á hvern
kennara í grunnskólum. Það má
örugglega skoða hvort þróunin
geti ekki verið jafnari. í fjórða lagi
Guðlaugur Þór
Þórðarson.
Leikskólabörn í Reykjavík búa við mikla óvissu og sitt sýnist hverjum um
það hvernig taka skuli á vandanum.
má skoða staðlana fyrir leikskól-
ana. Nú eru leikskólar sem upp-
fylla ekki staðla hvað varðar stærð
útileiksvæðis og fleira. Það bendir
hins vegar ekkert til þess að börn-
unum þar líði eitthvað annað en
vel. Það er erfltt að finna leikskól-
um stað í grónum hverfum og
kannski eru áherslurnar hjá okk-
ur ekki á réttum stöðum.“
Einkaaðilar fái rekstrarstyrki
„En til lengri tíma litið er þó
mikilvægast að gjörbreyta áhersl-
um borgarinnar," segir Guðlaug-
ur. „í stað þess að leggja ofur-
áherslu á að borgin eigi og reki
leikskólana er mtm eðlilegra og
hagkvæmara að styðja til þess
einkaaðila. Markmiðið er að sem
allra mest framboð sé af góðum
leikskólaplássum. Það er eðlilegt
að hafa stofnun eins og Leikskóla
Reykjavíkur sem eftirlitsaðila og
greiða síðan út styrki með hverju
barni. Það er ekki hagkvæmt að
borgin standi að þessum rekstri,
enda hefur kostnaður við yfir-
stjórn aukist úr 80 miUjónum
króna árið 1991 í 204 milljónir árið
1998. Sömuleiðis hefur kostnaður
borgarinnar á hverja dvalarstund
sinna leikskóla hækkað um 10 þús-
und krónur á síðustu þremur
árum, úr 52 þúsundum í 62 þús-
undir,“ segir Guðlaugur Þór Þórð-
arson.
-GAR
Aöalsteinn Baldursson, formaður fiskvinnsludeildar VMSÍ:
Oöryggið fælir fólk frá fiskvinnslu
DV, Akureyri:
„Á þessum fundi kom greinilega
fram í máli allra þeirra sem tjáðu
sig, að helsta ástæða þess að fólk
fæst ekki til fískvinnslustarfa, er
fyrst og fremst það lélega starfs-
öryggi sem fólkið í greininni býr
við. Hin meginástæðan er svo
launamálin," segir Aðalsteinn Bald-
ursson, formaður fiskvinnsludeild-
ar Verkamannasambands íslands,
en þessi mál voru mjög í brennid-
epli á aðalfundi deildarinnar sem
haldinn var nýlega.
„Það sóttu þennan fúnd um 90
manns og ég vek athygli á að fund-
armenn á þessum fundi koma úr
röðum fólksins á gólfinu, sem svo er
kallað, og þetta brennur á því fólki.
Vinnuveitendur geta sent fólk heim
Aðalsteinn Baldursson: „Óöryggið
ástæðan fyrir því að fólk fæst ekki
til fiskvinnslu".
að eigin geðþótta og það er áberandi
ólga meðal fólks með þetta ástand,"
segir Aðalsteinn. Hann segir aö
fyrstu fjóra mánuði ráðningarsamn-
ings viðkomandi starfsmanns í fisk-
vinnslu sé hægt að senda hann
heim og launþeginn verði þá að
skrá sig atvinnulausan. Eftir fjög-
urra mánaða starfstíma sé hægt að
senda starfsmenn heim, þeir haldi
þá reyndar sínum grunnlaunum, en
verði af bónusum og öllum öðrum
aukagreiðslum. Fyrirtækin geri síð-
an endurkröfurétt á ríkið vegna
þessara launagreiðsla.
„Ég er ekki að halda því fram að
þetta sé misnotað af vinnuveitend-
um, en það er þó vitað um dæmi
þess, t.d. að fyrirtæki hafi látið skip
sigla og selja afla erlendis en fisk-
vinnslufólk fyrirtækisins hafi á
Stalínismi á Bylgjunni
- segir Bubbi á 20 ára tónlistarafmæli sínu
„Þetta er ekkert annað en stalín-
ismi á Bylgjunni. Ég hef ekki
kynnst þessu frá því á árdögum
þegar við Megas vorum settir í
bann,“ segir Bubbi Mortens, sem
heldur upp á 20 ára tónlistaraf-
mæli sitt þessa dagana með útgáfu
á diski með nýjum og gömlum lög-
um. „Þeir á Bylgjunni hafa neitað
að spila lagið mitt, Það þarf að
mynda hana, af því að þeim finnst
það of rokkað - gítararnir of
agressivir. Á tímum Stalíns voru
ákveðnar bækur ekki gefnar út og
núna, árið 1999, er mönnum í ís-
lensku útvarpi fengið það vald aö
ákveða hvaða tónlist er leikin í út-
varpi og hver ekki,“ segir Bubbi,
sem reyndar þarf ekki á þessari
útvarpsspilun að halda að eigin
Bubbi Mortens. Jósef Stalín.
sögn, slík sé staða hans á mark-
aðnum:
„Ég er ekki að hugsa um sjálfan
mig, heldur hina ungu strákana
sem eru að ströggla. Ef þeir fá ekki
inni í útvarpinu komast þeir aldrei
áfram. Þetta eru hættuleg vinnu-
brögð," segir Bubbi.
ívar Guðmundsson, tónlistar-
stjóri Bylgjunnar, segir að tónlist
Bubba sé mikið
leikin á Bylgjunni.
Þar séu 30 lög með
honum nú á lista.
Bubbi sé einn
helsti tónlistar-
maður þjóðarinn-
ar - og Bylgjunn-
ívar Guð- 3X1
mundsson. -Bubbi er bara
að gráta utan í
okkur vegna þess að við tókum okk-
ur þrjá daga til að athuga hvort
þetta tiltekna lag hans hentaði tón-
listarstefnu okkar. Sannleikurinn
er sá að lagið er alveg á mörkum
þess sem við teljum boðlegt hlust-
endum okkar. En Bubbi er bara
svona,“ sagði ívar Guðmundsson
hjá Bylgjunni. -EIR
sama tíma verið sent heim vegna
hráefnisskorts. Þetta er hreint brot.
Það sést líka að fyrirtækin gera
mikið af því að senda fólkið heim og
sú upphæð sem ríkið greiddi fyrir-
tækjum í fiskvinnslu vegna þessara
mála á siðasta ári nam heildarlaun-
um 200 starfsmanna í fiskvinnslu,"
segir Aðalsteinn.
Hvort þetta atriði verði sett á odd-
inn í komandi kjarasamningum
vildi Aðalsteinn ekki tjá sig um, en
sagði að á næstunni væri stefnt að
því að ganga á fund félagsmálaráð-
herra og vekja athygli hans á þessu
ástandi sem fældi fólk frá fisk-
vinnslu á sama tima og fluttir eru
til landsins útlendingar í hundraða-
tali til að vinna í fiskvinnslu.
-gk
Gæðarúm á
góðu verði
Ragnar Björnsson ehf.
Dalshraunl 6, Hafnarfiröl, síml 555 0397, fax 565 1740