Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.1999, Side 26
34
MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 1999
Afmæli
Þorgeir Gestsson
Þorgeir Gestsson læknir, Norður-
brún 12, Reykjavík, er áttatíu og
fimm ára í dag.
Starfsferill
Þorgeir fæddist að Hæli í Hrepp-
um og ólst þar upp við almenn
sveitastörf. Hann lauk gagnfræða-
prófi frá MA, stúdentsprófi frá MR
1938, embættisprófi í læknisfræði
við HÍ 1945 og stundaði framhalds-
nám í Danmörku 1950-51.
Þorgeir var héraðslæknir í Ár-
neshéraði 1945-46, í Neshéraði
1947-50, Húsavíkurhéraði 1950-58 og
Hvolshéraði 1958-65 og heimilis-
læknir í Reykjavík 1965-90.
Þorgeir sat í stjóm Læknafélags
Reykjavíkur 1966-72 og í heilbrigð-
isráði íslands frá 1977. Hann söng
fyrsta tenór í MA-kvartettinum
meðan hann starfaði, 1932-42.
Fjölskylda
Þorgeir Kvæntist 23.6. 1945 Ásu
Guðmundsdóttur, f. 25.6. 1918, hús-
mæðrakennara. Hún er dóttir Guð-
mundar Stefánssonar, b. á Harðbak
á Melrakkasléttu, og k.h., Margrétar
Siggeirsdóttur húsfreyju.
Synir Þorgeirs og Ásu
eru Guðmundur, f. 14.3.
1946, sérfræðingur í
hjartasjúkdómum í
Reykjavík og prófessor
við HÍ, kvæntur Bryndísi
Sigurjónsdóttur kennara
og eiga þau fimm böm;
Gestur, f. 15.7. 1948, sér-
fræðingur í hjartasjúk-
dómum í Reykjavík,
kvæntur Sólveigu Jóns-
dóttur sálfræðingi og eiga
þau íjögur börn; Eiríkur
Ingvar, f. 20.3. 1953, augnlæknir í
Reykjavík, kvæntur Ragnheiði Guð-
mundsdóttur hjúkrunarfræðingi og
á hann sex böm.
Systkini Þorgeirs: Gísli, f. 6.5.
1907, d. 4.10.1984, safnvörður á Þjóð-
minjasafninu; Einar, f. 15.10.1908, d.
14.10.1984, bóndi á Hæli; Steinþór, f.
31.5. 1913, fyrrv. bóndi og alþm. á
Hæli; Hjalti, f. 10.6.1916, fyrrv. ráðu-
nautur á Selfossi; Ragnheiður, f. 7.2.
1918, d. 26.6.1997, húsfreyja á Ásólfs-
stöðum í Gnúpverjahreppi.
Foreldrar Þorgeirs voru Gestur
Einarssonar, f. 2.6. 1880, d. 23.11.
1918, bóndi á Hæli, og k.h., Margrét
Gísladóttir, f. 30.9. 1885, d. 7.6. 1969,
húsfreyja.
Ætt
Bróðir Gests var Eiríkur
alþm. Systir Gests var
Ingveldur, móðir Einars
Ingimundarsonar, fyrrv.
alþm. Önnur systir Gests
var Ragnhildur, amma
Páls Lýðssonar hjá SS.
Þriðja systir Gests var
Sigríður, móðir Einars
Sturlusonar óperusöngv-
ara. Gestur var sonur
Einars, b. á Hæli, Gests-
sonar, b. á Hæli, Gísla-
sonar, b. á Hæli, Gamalíelssonar,
bróður Jóns, afa Haralds Matthías-
sonar menntaskólakennara, föður
Ólafs alþm. Móðir Einars Gestsson-
ar var Ingveldur Einarsdóttir, ætt-
föður Laxárdalsættarinnar, Jóns-
sonar. Móðir Gests Einarssonar var
Steinunn, systir Guðrúnar, móður
Guðnýjar, móður Brynjólfs Bjama-
sonar, heimspekings og ráðherra,
en systir Guðnýjar var Torfhildur,
langamma Davíðs Oddssonar. Stein-
unn var dóttir Vigfúsar, sýslu-
manns á Borðeyri, Thorarensens og
Ragnheiðar Melsted.
Margrét var dóttir Gísla, b. á Ás-
um í Eystrihreppi, Einarssonar, b. á
Urriðafossi Einarssonar, ættfóður
Urriðafossættar Magnússonar. Móð-
ir Gísla var Guðrún, systir Ófeigs á
Fjalli, langafa Ernu, ömmu Ólafs
Árna Bjarnasonar tenórsöngvara.
Guðrún var dóttir Ófeigs, rika á
Fjalli, bróður Solveigar, móður
Guðrúnar á Skarði, langömmu Guð-
laugs Tryggva Karlssonar, söng-
manns og hestamanns, og langa-
langömmu Signýjar Sæmundsdótt-
ur óperusöngkonu. Ófeigur var son-
ur Vigfúsar, ættfóður Fjallsættar-
innar Ófeigssonar og Ingunnar,
móður Katrínar, langömmu Sigurð-
ar Ágústssonar, tónskálds og kór-
stjóra frá Birtingaholti. Bróðir Ing-
unnar var Eiríkur, langafi Ingu,
móður Þorgerðar og Rutar Ingólfs-
dætra. Ingunn var dóttir Eiríks, ætt-
foður Reykjaættarinnar Vigfússon-
ar.
Móðir Margrétar var Margrét
ljósmóðir, dóttir Guðmundar, b. á
Ásum Þormóðssonar, og Margrétar
Jónsdóttur, pr. á Klausturhólum,
Jónssonar, pr. í Hruna, bróður
Hannesar biskups, ættföður Fin-
senættarinnar. Jón var sonur Finns
biskups Jónssonar.
Þorgeir og Ása eru að heiman.
Þorgeir Gestsson.
Aðalbjörg
Aðalbjörg Jónsdóttir, húsmóðir
og verslunarmaður, Bylgjubyggð 16,
Ólafsfirði, er sextug í dag.
Starfsferill
Aðalbjörg fæddist á Mýri í Bárð-
ardal í Suður-Þingeyjarsýslu. Hún
lauk stúdentsprófi frá MA 1961.
Auk húsmóðurstarfa stundaði
hún kennslu og hafði umsjón með
fullorðinsfræðslu í Ólafsfirði
1973-83 en hefur stundað verslunar-
störf frá 1983.
Aðalbjörg átti heima í Fremsta-
felli til 1962, á Húsabakka í Svarfað-
ardal 1962-66 en hefur verið búsett í
Ólafsfirði frá 1966.
Fjölskylda
Aðalbjörg giftist 25.9. 1961 Jóni
Þóri Jónssyni, f. 25.9. 1938, kennara
við Gagnfræðaskólann í Ólafsfirði.
Hann er sonur Jóns Jónssonar og
Rannveigar Önnu Sigurðardóttur,
bænda á Jarðbrú í Svarfaðardal.
Böm Aðalbjargar eru Anna Guð-
mundsdóttir, f. 27.1. 1961, mat-
reiðslumaður í Reykjavík, en maður
hennar er Eggert Skúlason, frétta-
stjóri á Stöð 2, og eiga þau eitt barn;
Rannveig Þórisdóttir, f. 18.4. 1962,
skrifstofumaður á Akranesi, en
maður hennar er Óskar Amórsson
vélfræðingur og eiga þau fjögur
böm; Jón Þórisson, f. 6.4. 1963, við-
skiptafræðingur í Grindavík, en
kona hans er Svava Agnarsdóttir
húsmóðir og eiga þau þrjú böm;
Trausti Þórisson, f. 27.7. 1965, bóndi
á Hofsá í Svarfaðardal, en kona
hans er Ásdis Gísladóttir bóndi og
eiga þau eitt bam; Auður Þórisdótt-
Jónsdóttir
ir, f. 12.2. 1976, líffræðing-
ur í Reykjavík, en maður
hennar er Hávard Jakob-
sen líffræðingur.
Systkini Aðalbjargar
eru Ásdís Jónsdóttir, f.
22.10. 1936, sjúkraliði, bú-
sett í Reykjavík; Rósa
Jónsdóttir, f. 12.7. 1943,
starfsmaður við leikskóla,
búsett í Reykjavík; Rami-
veig Jónsdóttir, f. 20.6.
1949, starfsmaður leik-
skóla, búsett á Akureyri;
Þorgeir Jónsson, f. 26.7.
1955, bóndi á Fremstafelli
í Kinn í Suður-Þingeyjarsýslu.
Foreldrar Aðalbjargar: Jón Jóns-
son, f. 5.4. 1908, og k.h., Friðrika
Kristjánsdóttir, f. 18.7.1916, bændur
á Fremstafelli frá 1940-94, síðan bú-
sett í Miðhvammi á
Húsavík.
Ætt
Tvíburabróðir Jóns var
Páll H. Jónsson, kennari
og rithöfundur, sem
kenndur var við Laugar i
Reykjadal, S-Þing. Annar
bróðir Jóns er Áskell,
söngstjóri, organisti og
kennari, faðir Harðar,
kantors við Hallgrims-
kirkju í Reykjavík.
Bróðir Friðriku, móður
Aðalbjargar, er Jónas,
fyrrverandi forstöðumaður Árna-
stofnunar. Föðurbróðir Friðriku
var Jónas Jónsson frá Hriflu.
Aöalbjörg
Jónsdóttir.
Einar Pétursson
Einar Pétursson húsa-
smíðameistari, Hófgerði
16, Kópavogi, er fimmtug-
ur í dag.
Starfsferill
Einar fæddist í Reykja-
vík og ólst þar upp. Hann
lauk gagnfræðaprófi 1966,
stundaði nám við Iðn-
skólann í Reykjavík, lauk
sveinsprófi í húsgagna-
smíði 1970, lauk sveins-
prófi í húsasmíði 1972 og
Einar Pétursson.
lauk prófi frá Meistara-
skóla Iðnskólans 1978.
Einar hefur starfað sjálf-
stætt sem húsasmíða-
meistari frá 1978.
Einar hefur setið í stjóm
Breiðabliks, í stjórn
körfuboltadeildar Breiöa-
bliks frá 1990 og í stjórn
Átthagafélags Rangæinga
frá 1996.
Fjölskylda
Eiginkona Einars er Ingi-
björg Guðrún Magnúsdóttir, f. 10.6.
1953, skrifstofumaður. Hún er dóttir
Magnúsar Jónssonar og Ágústu Ei-
ríksdóttur í Reykjavík.
Böm Einars og Ingibjargar Guð-
rúnar eru Ágústa Einarsdóttir, f.
31.3. 1972, búsett í Reykjavík, en
bam hennar er Stefán Andri Ingv-
arsson, f. 19.3. 1993; Pétur Óli Ein-
arsson, f. 18.5.1977, nemi; Helgi Páll
Einarsson, f. 29.7. 1983, nemi.
Systkini Einars: Oddur Vilberg
Pétursson, f. 4.5. 1944, d. 15.3. 1995,
löggiltur endurskoðandi í Reykja-
vík; Ingunn Pétursdóttir Sim, f. 16.6.
1947, bankastarfsmaður í Bandaríkj-
unum; Loftur Þór Pétursson, f. 15.7.
1956, húsgagnabólstrari í Kópavogi;
Linda Björk Pétursdóttir, f. 30.7.
1961, kennari, búsett i Garðabæ.
Foreldrar Einars: Pétur Einars-
son, f. 11.10.1910, d. 12.1.1985, verka-
maður í Reykjavík, og Guðbjörg
Oddsdóttir, f. 23.12. 1921, húsmóðir.
Einar heldur upp á afmælið í
samkomusal Breiðabliks í Smáran-
um í Kópavogi laugardaginn 6.11.
frá kl. 20.00.
Tilkynningar
Félag eldri borgara í
Reykjavík
Ásgarður Glæsibæ: Kaffistofa opin
alla virka daga frá kl. 10-13. Matur í há-
deginu.
Söngfélag FEB. Kóræfing i dag, mið-
vikudag, kl. 17. Danskennslan fellur niður
næstu vikur og hefst aftur mánudaginn 6.
desember. Upplýsingar á skrifstofu félags-
ins í sima 588 2111 milli kl. 9 og 17 alla
virka daga.
Peperoni skór
Verslunin Blanco y Negro er komin með
skó frá Peperoni til sölu. Skórnir eru
framleiddir í Portúgal og á Ítalíu. Þetta
eru gæðaskór fyrir börn og unglinga. Jafn-
framt heldur verslunin áfram að selja eig-
in framleiðslu á flísfatnaði fyrir böm og
unglinga.
Fundarlaun
Þetta hjól hvarf frá Grundartanga í Mos-
fellsbæ um næstsiðustu helgi. Hjólið er
blátt að lit og ef einhverjir hafa orðið var-
ir við það eru þeir vinsamlegast beðnir að
hafa samband i síma 864 0511 og tala við
Sverri. Fundarlaun.
Til hamingju með afmælið 3. nóvember
95 ára
Aðalheiður Eggertsdóttir, Ránargötu 26, Akureyri.
85 ára
Ásta Lára Jóhannsdóttir, Dalbraut 20, Reykjavík. Halldóra Ingimundardóttir, Hombrekku, Ólafsfirði. Ingvar Loftsson, Birkigrund 33, Kópavogi. Svava Bemharðsdóttir, Hrauntungu 50, Kópavogi. Þórunn Kristjánsdóttir, Hverahlíð 20, Hveragerði.
80 ára
Guðrún Sveinsdóttir, Skipholti 21, Reykjavik. Þormóður Sigurgeirsson, Holtabraut 4, Blönduósi.
75 ára
Ásta S. Magnúsdóttir, Hrauntungu 16, Hafnarfirði. Gunnar Knútur Valdimarsson, Dalbraut 42, Bildudal. Kristjana Hólmgeirsdóttir, Tjamarlundi 12F, Akureyri.
70 ára
Erla Vigdis Karlsdóttir, Álfheimum 38, Reykjavík.
60 ára
Halldór Bárðarson, VaUarbraut 6, Njai-ðvík. Lúðvík Vignir Ingvarsson, Fitjabraut 6A, Njarðvík.
50 ára
Baldur Dagbjartsson, Hvassaleiti 72, Reykjavík. Björk Rögnvaldsdóttir, Mýrargötu 31, Neskaupstað. Björn Vagnsson, FeUsmúla 14, Reykjavík. Ema Áraadóttir, Miðgarði 8, KeUavík. Ema Reynisdóttir, Reyðarkvísl 16, Reykjavík. Guðmunda Jónasdóttir, Höfðaholti 3, Borgarnesi. Sigurjón Guðmundsson, Skriðustekk 23, Reykjavik. Sturla Jóhannsson, Litlubæjarvör 11, Bessastaðahreppi. Þorbjörg Sigurðardóttir, Selvogsgötu 24, Hafnarfirði.
40 ára
Anna María Jónsdóttir, Smárarima 2, Reykjavík. Bjarni Þór Bjömsson, Sporðagrunni 16, Reykjavík. Brynjar Hildibrandsson, Bjamarhöfn 2, Snæf. Eiríkur Þórðarson, Hrannargötu 9A, ísafirði. Elsa Dóra Grétarsdóttir, Fremristekk 3, Reykjavík. Ema Jónsdóttir, Skólagerði 1, Kópavogi. Guðrún Eggertsdóttir, Dvergholti 14, MosfeUsbæ. Hjálmar Ingvason, Bleiksárhlíð 45, Eskifirði. Ríkharður Jón Stefánsson, Höfðavegi 44, Vestmannaeyjum. Svanur Guðmundsson, Reyrengi 21, Reykjavík. Unnur Pétursdóttir, Múla 1, S Þing.
XJrval
- hefur þú lesið það nýlega?