Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.1999, Page 11
plötudómur
Óli POPP, Lýður Árna og Jón Rósmann
- Karlrembuplatan ★
' Tónleikar Rage Against The Machine í Kaplakrika eru mörgum enn í fersku minni.
Þar fengu íslendingar forsmekkinn að því sem síðar átti eftir að vera staðall í rokk-
inu. Bönd eins og Korn og Limp Bizkit með sitt fönkaða þungarokk eru óumdeilan-
lega í beinum karllegg af sveitinni og með nýju plötunni eiga RATM líklega eftir að
endurheimta forystu
Nýja platan, sem eftir miklar
vangaveltur fékk titilinn „The Battle
of Los Angeles" átti að koma út í vor
en dróst þangað til núna í vikunni.
Þó bandið hafi starfað í sjö ár er
þetta aðeins þriðja platan. Gítarleik-
arinn Tom Morello úskýrir hæga-
ganginn svona: „Auðvitað vildum við
gera plötur oftar en kostir þess að
taka nægan tíma í plötugerðina eru
þeir að við fáum rými til að fylla
tankinn og getum gert eins vel og við
viljum og getum í hvert skipti. Það er
ekki nóg fyrir okkur að endurtaka
það sem við gerðum síðast. Við þurf-
um alltaf að fara örlítið lengra með
hverri plötu og það tekur tíma að ná
þvi takmarki."
Harðsoðnir
Rage spratt upp úr rústum nokk-
urra bílskúrssveita í Los Angeles
1991. Söngvarinn Zack de la Rocha
(sonur pólitíska listamannsins Beto)
hafði verið í Headstance, Farside og
Inside Out, Tom Morello (frændi
Jomo Kenyatta, fyrsta forseta
Kenya) var i Lock Up og trommarinn
Brad Wilk hafði djammað með
Eddie Vedder áður en Eddie gekk í
Pearl Jam. Æskuvinur Zacks, Tim
Bob (alias Timmy C, TOM.COM og
Y.tim.K), fyllti svo út í lausa stöðu
bassaleikara.
Strákarnir spiluðu á heimaslóðum
og tóku upp 12-laga spólu sem þeir
seldu á tónleikum og í gegnum aðdá-
endaklúbbinn. Þarna var m.a. lagið
„Bullet in the Head“ sem átti eftir að
verða vinsælt þegar það kom út á
fyrstu plötu sveitarinnar. Það var
Epic (hliðarmerki Sony auð-
valdsveldisins) sem gerði samning
við sveitina og þar sem meðlimir
Rage voru frá upphafi harðsoðnir
vinstri-menn og mótmæltu harðlega
ýmsu í amerísku þjóðfélagi og órétt-
læti í heiminum þótti ýmsum harð-
línumönnum þessi samningur stríða
gegn samvisku bandsins. „Við vinn-
um á kerfinu innan frá,“ var auðvit-
að afsökun bandsins og þeir hafa alla
tíð haldið fast í baráttumálin sem
þeir telja mikilvægari en músíkina.
Tryggir aðdáendur
Fyrsta platan vakti óskipta athygli
og risasmellurinn „Killing in the
Name“ fór eins og eldur í sinu, ekki
síst hér á landi, og tengja örugglega
margir Rage ennþá helst við þetta
stuðlag. Bandið spilaði sem vitskert
um allan heim í kjölfar plötunnar,
m.a. á Lollapalooza-ferðafestivalinu
sem fór um Bandaríkin, og vakti at-
hygli á ýmsum málum og baráttu-
hópum eins og FAIR (Faimess and
Accuracy in Reporting), Rock for
Choice og Refuse & Resist. Stærstur
hluti af ágóða bandsins hefur i gegn-
um tíðina farið til ýmissa hópa og á
nýju plötunni bendir sveitin á þrett-
án góðgerðarstofnanir og baráttu-
hópa hlustendum sinum til glöggvun-
ar.
Næsta plata kom ekki út fyrr en
1996, hét „Evil Empire“ og fór beint í
númer eitt i Ameríku, enda hafði út-
hald Rage skilað sér í mjög tryggum
aðdáendum. Aðdáendahópur Rage er
mikill enn í dag, eins og sjá má á
heimasíðufjölda bandsins á Netinu,
og fastlega má búast við hraðferð
nýju plötunnar upp lista, enda hafa
dómar verið mjög jákvæðir, alla vega
á tónlistina sjálfa, en sumum finnst
einstrengingsleg pólitíkin í textunum
barnalega einfóld.
Aftöku frestað
Og hvað eru Rage að æsa sig
yfir/vekja athygli á á nýju plötunni?
Jú, ástandinu í þriðja heiminum,
fólksfjölguninni og svo einangraði
málum eins og barnaþrælkuninni á
vegum gallabuxnaframleiðandans
Guess? Þá eru meðlimir bandsins
duglegir talsmenn Mumia Abu-
Jamal sem setið hefur í fangelsi síð-
an 1981og beðið eftir að dauðadómi
væri fullnægt. Mumia er gefið að sök
að hafa banað löggu. Hann hefur
alltaf haldið fram sakleysi sínu og
stuðningsmenn hans segja morðinu
klínt upp á hann því hann var mjög
virkur á vegum Black Panther sam-
takanna. Rage hafa stutt Mumia í
verki, m.a. haldið góðgerðartónleika
og vakið athygli á málstað hans og
varð barátta þeirra til þess að aftöku
Mumia, sem átti að fara fram i des-
ember sL, var frestað um óákveðinn
tíma.
Þó deila megi eflaust um boðskap
Rage er alveg klárt mál að aðdáend-
ur bandsins eru að fá feitt i skóinn
rokklega séð með nýju plötunni. Að
lokum er rétt að gefa Zack orðið með
eldheitar barátlukveðjur:
„Við verðum að endurheimta
visku, við verðum að endur-
heimta skilning á því hver við
erum. Við erum ekki bara maurar
í kerfl, heldur einstaklingar með 0
kraft til að gagnrýna, til að ráðast
að óréttlæti og reyna að uppræta
það þegar það birtist fyrir augrnn
okkar. Við höfum verið svæfð. Við
höfum verið svæfð af kerfinu. Kerfi
sem heldur áfram að hampa fáfræði
hugans og andans. Kerfi sem vill
hindra aðgerðir og vill halda okkur
niðri. Kerfi sem vill að við séum á
bar að drekkja andanum með bjór
eða dópi frekar en að við berjust á
móti heimsveldislygum og öðru hel-
vitis 500 ára gömlu kjaftæði. Svo þú
hefur um tvennt að velja.
Þú getur skálað i botn eða vaknað.
Þú getur verið hluti af lausninni eða
hluti af helvítis vandamálinu. Hættið
að sofa og vaknið. Vaknið!"
Gott stuö a góð-
gerðartónleiKum
I lok október fóru fram hinir ár-
legu góðgerðartónleikar Neil
Young til styrktar Bridgeskólan-
um. Skólann stofnuðu Neil og kon-
an hans Pegi fyrir fjölfötluð börn.
Þetta er þrettánda árið sem tón-
leikar þessir eru haldnir og eins
og venjulega fóru þeir fram rétt
utan við San Francisco, tvö kvöld
og nærri níu tímar
í hvert skipti, takk
fyrir. Gott stuð var
á tónleikunum og
dró til tíðinda.
Pearl Jam spilaði
tvö ný lög sem
verða á næstu
plötu, en hún er
væntanleg í byrj-
un næsta árs.
Smashing Pumpkins spilaði líka
nýtt efni og tvö kóverlög sem
komu á óvart: „Ol’ 55“ eftir Tom
Waits og U2-lagið „Stay“. Tom
Waits sjálfur var á svæðinu og
flutti efni af Mule Variations og
The Who - sem stefna á kombakk-
plötu á næsta ári - mættu frískir
eftir tónleikasyrpu í Las Vegas og
spiluðu gamla slagara. Neil Young
sjálfur spilaði svo nokkur lög, m.a.
gömul Beach Boys-lög með Brian
Wilson sem kom óvænt fram.
Crosby, Stills, Nash & Young
eru nýbúnir að gefa út nýja plötu
- „Looking Forward" - og áttu að
spila á tónleikunum. Úr því varð
ekkert þvi Graham Nash fótbraut
sig á báðum nýverið. Fresta varð
tónleikaröð CSN&Y af þessum
sökum, en hún fer af stað í janúar.
Þá er talið að Nash hafl náð sér og
verður bara að vonda að hinir elli-
belgirnir hangi hraustir þangað
til.
Kynnir: Jón Rotni
Netútvarpið eyada.com hefur
ráðið gamla kynlífshólkinn John
Lydon alias Johnny Rotten til að
sjá um þátt fyrir sig.
Heitir þátturinn Rotten
Radio og fer í loftið á
morgun kl. 16 að stað-
artíma (á miðnætti
hér). Sent verður út
frá heimili Johns í
LA. „Netið er fullkom-
inn miðill fyrir
John,“ segir eigandi
eyada.com. „Ekki nóg
með að hann nái til aðdáenda
sinna út um allan heim heldur get-
ur hann verið eins hneykslanleg-
ur og hann kærir sig um. Hann
getur sagt og gert það sem hann
vill og það er einmitt það sem
netútvarpið gengur út á; engar
hömlur.“ Ekki fylgdi fréttinni
hvort John væri að að koma með
einhverja nýja tónlist, en siðast
var hann á ferðinni 1996 með end-
urvöktum Sex Pistols í tónleika-
ferð sem fékk vægast sagt mis-
jafna dóma.
í umslaginu má sjá þrjá karla
sem líta út eins og sænskir tal-
meinafræðingar staddir hérlendis
á norrænni ráðstefnu og hafa tveir
þeirra náð sér í sitt hvorn barna-
vagninn (flippað). Þessir stórsnill-
ingar munu vera skipper Óli
POPP, héraðslæknirinn Lýður
Ámason og Jón Rósmann Mýrdal
málarameistari. Þessir gaurar eru
þjóðþekktir af síðum DV fyrir
meintar poppmessur á Flateyri,
drag-uppákomur og fleira skemmti-
legt.
Þetta eru svokallaðir gárvmgcu:
eða jafnvel kynlegir kvistir, og í
þokkabót spólgraðir á þessari
karlrembuplötu sinni. Kerlingarn-
ar hafa með semingi gefið þeim
leyfi til að vera frameftir að
djamma í skúmum og þar hafa
þeir bruggað kvenþjóðinni laun-
ráð, kannski með ólgandi brund-
fyllisgremju og slompaðir af
heimabruggi. Upp úr þessum
harðfiskþefjandi jarðvegi sprettur
þessi plata og textalegt ixmihald er
auðvitað: „Sama er mér þó sólin
skín, bara ég fái píkur og vín“,
eins og þeir syngja í lokalagi
meistaraverksins. Hér er helling-
ur af öðrum karlrembulegum
vangaveltum, öllum samt í léttum
leik og þó þeir leggi stelpu í mrnrn
„Mér finnst æðislegt að vera lam-
inn í klessu", meina þeir örugg-
lega ekkert með þessu enda senni-
lega meðlimir í hollvinasamtök-
um Kvennaathvarfsins. Stundum
er þetta þokkalega sniðugt hjá
körlimum og það er ekki skilyrði
að maður eigi fleiri en 2000 klám-
myndir á spólrnn til að finnast
það, þó það hjálpi vissulega.
Tónlistin er oft svipuð og PS og
Co var að gera fyrir tuttugu árrnn
síðan, ófrumlegt karlarokk og ljóst
að Stóns og Black Sabbath eru í
uppáhaldi. Oft er lúnkin laglína
með í spilinu, eins og í hinu bítla-
lega „Enska lagi“ og þeim skáta-
lega slagara „í tjaldi með
kjúkling". Stundum hljómar þetta
þó því miður eins og tónlist í léleg-
um farsa, eða ættum við að segja
músik í áramótaskaupinu eða
Stuðmenn í sinni ömurlegustu
mynd, og þá er voðinn vís nema
maður sé, ja, aðdáandi þess of-
antalda.
Karlrembuplötuna ættu alvöru-
karlmenn með fleiri en tvö bílhræ
á lóðinni að taka fagnandi og aðrir
Karlrembuplötuna ættu al-
vörukarlmenn með fleiri en
tvö bílhræ á lóðinni
að taka fagnandi
miðaldra karlar, sem geta hlustað á
þetta í heddfóni glottandi í laz-e
bojnum á meðan kerlingin rífst og
skammast. Stelpugreyin í Bríeti
ættu að fá sér eintak líka til að
hafa til að æsa sig yflr á næsta
sellufundi. Já, POPP og Lýður ættu
bara að senda þeim eintak því þá
myndi byrja ritdeila í Mogganum
sem væri góð kynning fyrir plöt-
una og ekki þykir mér veita af.
Dr. Gunni
Flqin argasti
sveitalubbi
Flea, bassaleikarinn smáfríði
úr Red Hot Chili Peppers, fer með
sitt fyrsta aðalhlutverk í mynd-
inni „Liar’s Poker", sem nýlega
var tekin til sýninga í amerískum
bióhúsum. Þetta er fyrsta mynd
Jeff Santo, sem gagnrýnendur
ytra telja til merkilegustu nýgræð-
inga ársins.
Flóin leikur
a r g a s t a
sveitalubba en
myndin er
flókin morð-
ráðgáta um
fjóra menn
sem fara í
veiðiferð
sem aðeins
einn þeirra snýr
lifandi úr. Það er ekkert nýtt að
Flea sjáist bregða fyrir í bíómynd-
um, þó þetta sé hans stærsta hlut-
verk til þessa. Hann lék t.d. þýsk-
an mannræningja í „Big Le-
bowski" og kom við sögu í „My
Own Private Idaho“.
5. nóvember 1999 f Ó k U S
11